Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Eiður Þór Árnason skrifar 2. júlí 2026 18:26 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands.
Að mati samtakanna vekja tvö nýleg umræðuskjöl SKE um verð í dagvöruverslunum og eldsneytismarkað upp alvarlegar spurningar um það hvernig eftirlitið sinni lögbundnu hlutverki sínu og umræðuskjölin innihaldi „órökstuddar ályktanir“. Í nýju umræðuskjali SKE um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25 prósent að raunvirði á sama tímabili. Álagning er sögð hafa hækkað verulega á síðustu árum og verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum aukist á sama tíma. Þá hafi hækkanir á olíuverði skilað sér hraðar út í verðlag á dælu en lækkanir. „Umræðuskjölin bera þess merki að Samkeppniseftirlitið hafi á köflum valið framsetningu sem vekur grunsemdir um háttsemi fyrirtækja áður en rannsókn er lokið. Þótt eftirlitið kalli skjölin umræðuskjöl eru þar settar fram staðhæfingar og vísbendingar sem geta haft veruleg áhrif á orðspor fyrirtækja áður en þau hafa fengið endanlegt tækifæri til að tjá sig,“ segir í yfirlýsingu SA og SVÞ. Í júní birti SKE umræðuskjal um dagvörumarkaðinn en þar sagði meðal annars að Íslendingar borgi 55 prósentum meira fyrir matvöru að jafnaði en íbúar Evrópusambandsins. Þá hafi verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020 til 2025. Benedikt S. Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.Vísir/Einar SA og SVÞ gagnrýna að í báðum umræðuskjölunum séu settar fram sterkar ályktanir um markaðshegðun, framlegð og samkeppni „þótt eftirlitið viðurkenni sjálft að rannsóknir séu enn í gangi, frekari gögn og skýringar liggi ekki fyrir og samanburður við önnur ríki sé háður verulegum fyrirvörum.“ Eigi ekki að staðfesta fullyrðingar hagsmunaaðila Samtökin segja það alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi í fjölmiðlum lýst því yfir að efni umræðuskjalanna styðji málflutning hagsmunasamtaka á borð við FÍB og ASÍ. „Slík ummæli vekja óhjákvæmilega þá spurningu hvort ferli umræðuskjalsins sé raunverulega opið eða hvort niðurstaðan hafi í reynd verið mótuð áður en umsagnir markaðsaðila hafa verið metnar. Hlutverk sjálfstæðs samkeppnisyfirvalds er að leggja sjálfstætt og hlutlægt mat á gögn, ekki að staðfesta fyrirfram framkomnar fullyrðingar einstakra hagsmunaaðila.“ Olíuverð hefur verið mikið í deiglunni.Vísir/vilhelm Þá segja hagsmunasamtökin að Samkeppniseftirlitið hafi í samanburði sínum við erlenda markaði ekki gert nógu vel grein fyrir öðrum mögulegum skýringum á verðþróun, á borð við smæð markaðar, launakostnað, flutningskostnað, innkaupasamninga, birgðahald eða aðra kostnaðarþætti. „Það eitt að verð á Íslandi sé hátt eða hækki hraðar en annars staðar sýnir ekki sjálfkrafa fram á að orsökin sé skortur á samkeppni. Slíkar ályktanir krefjast mun ítarlegri hagfræðilegrar greiningar en fram kemur í skjölunum.“ Ólíkt öðrum umræðuskjölum Samtökin fullyrða að umræðuskjöl SKE séu ólík því sem fyrirtæki hafi vanist hjá öðrum evrópskum samkeppnisyfirvöldum. „Í stað þess að nota umræðuskjöl fyrst og fremst til að setja fram opnar rannsóknarspurningar og kalla eftir gögnum eru þar á köflum settar fram órökstuddar ályktanir og möguleg íhlutun stjórnvalda rædd áður en rannsókn er lokið og umsagnir hafa verið metnar.“ „Umræðuskjöl eiga að vera vettvangur fyrir opin skoðanaskipti, þar sem gögn eru lögð fram, óvissa viðurkennd og kallað eftir sjónarmiðum áður en niðurstöður eru dregnar fram. Þessi skjöl gefa hins vegar á köflum allt aðra mynd.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Samkeppnismál Matvöruverslun Bensín og olía Tengdar fréttir Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. 2. júlí 2026 13:32 Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar. 2. júlí 2026 10:35 Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa Samtaka iðnaðarins um matvælaverð hér á landi en Samkeppniseftirlitið segir Íslendinga greiða 55 prósent meira fyrir matarkörfuna en íbúar ESB. 11. júní 2026 11:39 Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03 Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira
Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. 2. júlí 2026 13:32
Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar. 2. júlí 2026 10:35
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa Samtaka iðnaðarins um matvælaverð hér á landi en Samkeppniseftirlitið segir Íslendinga greiða 55 prósent meira fyrir matarkörfuna en íbúar ESB. 11. júní 2026 11:39
Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03