Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júlí 2026 12:00 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarp um breytingu á fyrirkomulagi séreignar á húsnæðislán. Unnið er að innleiðingu og framkvæmd hjá Skattinum. Vísir/Anton Brink Hægt verður að sækja um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána þann 1. október. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði. Hægt verður að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt.
Ráðstöfunin var fyrst kynnt árið 2014 undir formerkjum leiðréttingar og var hægt að sækja um hana á heimasíðunni leiðretting.is. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum, sem sér samkvæmt nýju lögunum um framkvæmd laganna, kemur fram að undirbúningur sé hafinn hjá embættinu. Samkvæmt svari skattsins þarf að þróa nýtt kerfi hjá Skattinum fyrir umsóknir. Hægt verði að nota eitthvað úr eldri kerfum en nokkur atriði séu með ólíkum hætti. Samkvæmt svari embættisins kallar þetta á töluvert utanumhald sem ekki hafi verið til staðar áður. Auk þess stefni Skatturinn að því að gera kerfið betur úr garði en áður. Geta ráðstafað samanlagt en ekki bara samfellt Nú sé til dæmis heimild samkvæmt lögum til að ráðstafa séreign samanlagt í 120 mánuði en var áður í samfellda 120 mánuði. Stefnt verði að því að unnt verði að sjá hversu langan tíma af 120 mánuðunum viðkomandi hefur þegar nýtt og jafnframt hversu langur tími er eftir af heimildinni. Í svari embættisins er einnig vakin athygli á því að eldra „leiðréttingakerfi“ um ráðstöfun á séreignarsparnaði átti að gilda í tvö og hálft ár en var ítrekað framlengt í stuttan tíma í einu. Af þessum ástæðum hafi þurft að smíða kerfið á stuttum tíma og vegna þess að um var að ræða tímabundna ráðstöfun hafi ekki verið ráðist í umfangsmiklar umbætur á því þar sem óljóst var hversu lengi heimildirnar yrðu í gildi. Eins og áður segir tekur úrræðið gildi 1. október en samkvæmt svari verða upplýsingar um framkvæmd úrræðisins, umsóknarferlið og tímasetningar birtar á vef Skattsins eftir því sem undirbúningi vindur fram.
Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Fjármál heimilisins Lífeyrissjóðir Alþingi Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira