Fleiri fréttir

Ferðaskrifstofur um allan heim bíða upplýsinga frá Íslandi

Ferðaskrifstofur um heiminn sem eiga viðskipti við Íslands bíða nú eftir upplýsingum úr fjárlögum ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Óskað hefur verið eftir því að beðið verið með hækkun virðisaukaskatts í ferðaþjónustunni en þær eru sagðar kollvarpa áætlunum fyrir næsta ár.

Danir hvetja Kínverja til að fjárfesta í Danmörku

Dönsk stjórnvöld hafa allt aðra afstöðu til kínverskra fjárfestinga en íslensk stjórnvöld. Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra Danmerkur hvetur kínverska fjárfesta til að koma til Danmerkur og segir að þeir séu meir en velkomnir.

Beinar erlendar fjárfestingar jukust um 100 milljarða í fyrra

Beinar fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi jukust um tæplega 100 milljarða króna í fyrra miðað við árið 2010. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að bein erlend fjárfesting hafi numið rúmlega 128 milljörðum króna í fyrra en hún var tæplega 30 milljarðar króna árið 2010.

SAS á duldar eignir fyrir tugi milljarða í London

Flugfélagið SAS á duldar eignir í London sem eru tug milljarða króna virði. Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk en þar kemur fram að þessar eignir felist í lendingarleyfum, eða svokölluðum "slots", á Heathrow flugvellinum.

Engin lausn í banni á verðtryggingunni

Höfundar skýrslu sem kynnt var í gær telja bann við verðtryggingu ekki munu leysa neinn vanda. Grunnrætur vandans, verðbólga og óstöðugleiki, munu áfram vera við lýði. Lántakendur fái nægar upplýsingar til að meta áhættu.

Álverðið komið yfir 2.000 dollara á tonnið

Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli. Verðið er nú komið aftur yfir 2.000 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga og stendur í 2.038 dollurum.

Fasteignamarkaðurinn tekur við sér að nýju

Sumardeyfðinni á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu virðist vera lokið í bili en í síðustu viku var 109 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í borginni. Þetta er nokkuð yfir meðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 103 samningar á viku.

Segir sæmilegan gang í íslenska hagkerfinu

Greining Arion banka segir að sæmilegur gangur hafi verið í hagkerfi Íslands það sem af er árinu. Heilt yfir er gangurinn ekki ósvipaður því sem mældist á sama tímabili á síðasta ári.

Krónan veikist aftur - styrking á sumarmánuðum gengin til baka

Gengi krónunnar gagnvart helstu alþjóðlegu myntum hefur veikst töluvert að undanförnu. Í ágúst styrktist gengið umtalsvert, og var hægt að fá ríflega 146 krónur fyrir hverja evru, hinn 10. ágúst. Nú, rúmum mánuði síðar, er hægt að fá tæplega 157 krónur fyrir hverja evru, sem er næstum jafn mikið upp á krónu og var hægt að fá fyrir hverja evru 10. júli, samkvæmt upplýsingum um opinbert gengi krónunnar gagnvart alþjóðlegum myntum á vefsíðu Seðlabanka Íslands.

Dísilolían hækkar

Verð á dísilolíu hefur hækkað umtalsvert á síðustu tveimur vikum. Hjá Olís hefur verðið hækkað um 8 krónur á lítrann síðustu á tímabilinu og stendur nú í 262,7 krónum. Hækkunin hjá Skeljungi er enn meiri, en síðustu 10 daga hækkaði verðið um tæpar 13 krónur og stendur einnig í 262,7 krónum á lítrann.

Konur löngu tilbúnar til að stíga fram í atvinnulífinu

Íslenskar konur eru tilbúnar til að stíga með auknum krafti inn í atvinnulífið og stjórnmálin. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtalsþættinum Klinkinu á Vísi. „Jájá, fyrir löngu síðan," bætti hún við en sagði að konur hafi gjarna mætt glerþaki og mæti enn.

Nýjar hagtölur frá Kína valda áhyggjum

Nýjar hagtölur frá Kína, sem sýna mun minni vöxt í útflutningi en spáð hafði verið, þykja renna frekari stoðum undir það að ekki sé enn kominn sá tímapunktur að hið alþjóðlega efnahagslíf fari að taka við sér á nýjan leik, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Töluvert dregur úr tekjuhalla hins opinbera

Tekjuhalli hins opinbera á öðrum ársfjórðungi ársins var 12,3 milljarðar króna sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma í fyrra er hann var 18,6 milljarðar króna. Tekjuhallinn nam 2,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 6,7% af tekjum hins opinbera.

Hótar Norðmönnum tollahækkunum á sjávarafurðir þeirra

Bendt Bendtsen einn af Evrópuþingmönnum Dana hefur hótað Norðmönnum því að hann muni beita sér fyrir auknum tollum á norskar sjávarafurðir vegna þess að Norðmenn hafa hækkað verulega skatt á innflutningi skrautblóma til landsins.

Soros segir Þjóðverjum að hrökkva eða stökkva

Hinn þekkti fjárfestir George Soros segir að annaðhvort verði Þjóðverjar sjálfir að yfirgefa evrusvæðið eða sjá til þess að veikari þjóðirnar innan svæðisins fái þá aðstoð sem þær þurfa.

Reykjaneshöfn greiðir niður lán um 700 milljónir

Reykjaneshöfn hefur ákveðið að greiða niður lán og endurkaupa skuldabréf fyrir 700 milljónir kr. Nota á nýlega fyrirgreiðslu frá Reykjanesbæ til þessa í framhaldi af sölu bæjarins á svokölluðu Magma-skuldabréfi.

Ríkissjóður rekinn með 88,5 milljarða halla í fyrra

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 88,5 milljarða króna í fyrra eða 5,4% af landsframleiðslu, en án áfallinna ríkisábyrgða var hún neikvæð um 69 milljarða króna. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 155 milljarða króna árið 2010 eða 10% af landsframleiðslu, en án áfallinna ríkisábyrgða 99 milljarða króna eða 6,5% af landsframleiðslu.

Virði gullforða Seðlabankans yfir 13 milljörðum

Virði gullforða Seðlabanka Íslands er komið yfir 13 milljarða króna. Mikilar hækkanir á heimsmarkaðsverði á gulli að undanförnu ollu því að gullforðinn hækkaði um tæplega 700 milljónir króna í ágúst og er orðinn tæplega 13,2 milljarðar króna.

Straumur fær auknar starfsheimildir

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Straumi fjárfestingarbanka auknar starfsheimildir. Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsins.

Raftæki öðlast framhaldslíf hjá Grænni Framtíð

Gamlir farsímar og tölvur fá framhaldslíf hjá fyrirtækinu Græn Framtíð sem tekur við þeim og selur til viðgerðarfyrirtækja í Evrópu. Stofnandinn segir öryggisvörð næstum því hafa hringt í lögregluna þegar hann sá tugi fartölva í stöflum í stofunni.

iPhone er stærri en Microsoft

Apple mun að öllum líkindum kynna nýjasta snjallsíma sinn, iPhone 5, í næstu viku. Vinsældir iPhone snjallsímanna síðustu ár eru með ólíkindum en þetta litla raftæki hefur innsiglað stöðu Apple sem eins stærsta fyrirtækis veraldar. En hversu vinsæll er iPhone í raun og veru?

Óskar eftir sérstökum fundi í viðskiptanefnd vegna úrræða tollstjóra

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir sérstökum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til að fá frekari skýringar úrræðum sem tollstjóraembættið hefur boðið fyrirtækjum sem skulda skatta, en embættið hefur gert samninga um greiðsluáætlun við fjölda fyrirtækja vegna skattskulda.

Fáni ESB brenndur í Grikklandi

Rúmlega 15 þúsund mótmælendur voru í gær saman komnir í borginni Thessaloniki, næststærstu borg Grikklands, til að mótmæla niðurskurði og skerðingu lífeyrissparnaðar sem grísk stjórnvöld hafa þurft að innleiða sem eitt af skilyrðum vegna fjárhagslegrar aðstoðar frá evruríkjunum og AGS. En björgunarpakkinn er nauðsynlegur til að forða ríkinu frá gjaldþroti.

Hefur gert samkomulag við hundruð fyrirtækja vegna skattskulda

Embætti tollstjóra hefur gert samkomulag við hundruð fyrirtækja sem skulda opinber gjöld og eru dæmi um fyrirtæki sem skulda marga tugi milljóna króna vörsluskatta en hafa ekki þurft að þola stöðvun atvinnurekstrar. Tollstjóri hefur ekki beitt stöðvun á nein fyrirtæki frá árinu 2009 vegna tilmæla fjármálaráðuneytisins.

Lindex nú hluti af neyslutölu Hagstofunnar

Sænska fataverslunin Lindex verður framvegis hluti af verðsöfnun neysluvísitölu Hagstofunnar. Í tilkynningu frá Lindex kemur fram að í þessu felist viðurkenning á því starfi sem verslunin hefur haft að meginmarkmiði sínu, að bjóða íslenskum heimilum tískufatnað með hagkvæmni að leiðarljósi.

Hentar vel að vera á flekaskilum

Hilmar Bragi Janusson er önnum kafinn maður og hægara sagt en gert fyrir hann að gefa sér tíma til að spjalla við blaðamann enda í óðaönn að ljúka undirbúningi fyrir sitt fyrsta skólaár sem forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs við Háskóla Íslands. Hann segir það vissulega viðbrigði að söðla um eftir 20 ára starf hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri.

Mótmælti breytingum á starfslokasamningi

Leiðtogar meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs funduðu nýverið með Guðrúnu Pálsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, í því skyni að fá hana til að gera breytingar á starfslokasamningi hennar frá því í febrúar síðastliðnum.

Rannsaka einkavæðingu banka

Tillaga um rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands verður lögð fram að nýju á Alþingi á þriðjudag. Hún kom fram á síðasta þingi en fékk ekki afgreiðslu.

Ákvarða ekki eigin laun

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, vill sem minnst tjá sig um þá gagnrýni sem hefur komið fram á launahækkun hans. „Ég ákveð auðvitað ekki eigin laun, þau eru ákvörðuð af ráðherra og kjararáði. Ég get einungis lýst minni aðkomu að þessu máli. Ég var á leið úr landi í nýja vinnu og þurfti því að segja upp mínu starfi á Landspítalanum. Nokkrum klukkustundum eftir að ég gerði það var ég beðinn um að endurskoða hug minn og eftir að hafa hugsað málið og rætt við ráðherra komumst við að samkomulagi um áframhaldandi samstarf. Það er það eina sem ég hef um þetta að segja.“

33ja milljarða bakreikningur

Framkvæmdastjórn ESB hefur kallað eftir endurgreiðslu á 215 milljónum evra, sem jafngildir rúmum 33 milljörðum króna, sem þrettán aðildarríki höfðu fengið út úr sjóðum sambandsins í gegnum styrkjakerfi sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar.

Sparisjóður ekki til Landsbanka

Landsbankinn hefur fallið frá kaupum á rekstri og eignum Sparisjóðs Svarfdæla. Samkomulag náðist á milli aðilanna tveggja um þá lendingu eftir að Tryggingasjóður sparisjóðanna féllst á að leggja sparisjóðnum til nýtt stofnfé og veita honum víkjandi lán. Stofnfjáraukningin nemur 10 milljónum króna og víkjandi lánið er upp á 70 milljónir króna.

Hrunið fækkaði ekki einkabílum

Um 60% nemenda og starfsmanna við Háskóla Íslands koma á einkabíl í skólann. Um 14 þúsund nemendur eru við hann, fastir starfsmenn eru um 1.300 og stundakennarar um 2.000 og því um 17 þúsund manns sem eiga erindi í hann reglulega. „Það er athyglisvert að við gerðum könnun fyrir hrun og einnig eftir hrun og hlutfall þeirra sem komu á einkabíl lækkaði um 3%. Það var nú ekki meira," segir Ingjaldur, en kannanirnar voru gerðar árin 2007 og 2010. Til stendur að gera samgöngusamning við starfsmenn um að þeir auki vistvænar samgöngur. Þá er stefnt að samgöngusamningi við Strætó sem gefur starfsmönnum um 20% afslátt á árskorti.

Vill jafna launamun milli borgarstarfsmanna og annarra

Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg fær tólf hundruð króna hærri árslaun ef hann er karl heldur en kona. Formaður starfsmannafélags borgarinnar vill bæta upp launamun milli starfsmanna borgarinnar og á almennum vinnumarkaði og segir gremju ríkja meðal félagsmanna.

Fyrirkomulag launahækkana meingallað

Félag forstöðumanna ríkisstofnana segir að sú ákvörðun Guðbjartar Hannessonar, velferðarráðherra, að hækka laun Bjarnar Zoega, forstjóra Landspítalans, sé til marks um að fyrirkomulag launaákvarðana forstöðumanna ríkisstofnana sé meingallað.

Landsbankabónus í sjálfheldu

Algjör óvissa er um hvernig kaupréttarkerfi starfsmanna Landsbankans verður útfært. Rætt hefur verið um það innan Landsbankans að kaupréttirnir, sem nú eru nálægt því að vera þriggja milljarða króna virði, dreifist á alla starfsmenn bankans.

Iceland Express flýgur til Bandaríkjanna á nýjan leik

Iceland Express tilkynnti í dag að félagið muni hefja áætlunarflug til Bandaríkjanna á nýjan leik næsta sumar. Flogið verður daglega til Boston frá byrjun júní. Áfangastöðum í Evrópu verður fækkað um sex en um leið verður tíðni aukin á þá staði sem flogið verður á miðað við það sem áður var, að því er segir í tilkynningu frá flugfélaginu. Nýir áfangastaðir í Evrópu verða Osló og Frankfurt í Þýskalandi.

Upplýsingatæknibúskapur Neyðarlínunnar hjá Nýherja

Neyðarlínan hefur samið við Nýherja um rekstur á upplýsingatæknibúskap sínum samkvæmt tilkynningu frá Nýherja. Samningurinn felur í sér rekstur á netkerfum, netþjónum, símkerfi og notendaþjónustu á tölvubúnaði fyrir alla starfsmenn Neyðarlínunnar.

Landsbankinn mun ekki taka yfir Sparisjóð Svarfdæla

Sparisjóður Svarfdæla og Landsbankinn hafa náð samkomulagi um að fallið verði frá kaupum Landsbankans á rekstri og eignum sparisjóðsins þar sem Tryggingasjóður hefur fallist á að leggja sparisjóðunum til nýtt stofnfé og veita víkjandi lán þannig að Sparisjóður svarfdæla uppfylli skilyrði Fjármálaeftirlitsins um 16% eiginfjárhlutfall.

Skammtímalækningum Seðlabanka Evrópu vel tekið

Yfirlýsingar Mario Draghi, seðlabankastjóra Evrópu, á vaxtaákvörðunarfundi í gær, hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Innihaldið kom heldur ekki á óvart, þ.e. að Seðlabanki Evrópu ætlaði sér að styðja við skulduga ríkissjóði í Evrópu með kaupum á ríkisskuldabréfum, þegar þörf væri á, með það að markmiði að lækka vaxtaálag og liðka þannig fyrir endurfjármögnun á markaði.

Sjá næstu 50 fréttir