Töluvert dregur úr tekjuhalla hins opinbera 10. september 2012 09:07
Tekjuhalli hins opinbera á öðrum ársfjórðungi ársins var 12,3 milljarðar króna sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma í fyrra er hann var 18,6 milljarðar króna. Tekjuhallinn nam 2,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 6,7% af tekjum hins opinbera. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heildartekjur hins opinbera hækkuðu um ríflega 10% milli 2. ársfjórðungs í fyrra og í ár eða úr 166,3 milljörðum króna í 183,4 milljarða króna. Skatttekjur og tryggingagjöld skiluðu hinu opinbera 157,5 milljörðum króna samanborið við 142,1 milljarð króna á sama ársfjórðungi 2011. Tekjuhækkunin skýrist fyrst og fremst af rúmlega 8 milljarða króna aukningu í tekjusköttum og ríflega 3 milljarða króna aukningu í vöru- og þjónustusköttum. Heildarútgjöld hins opinbera hækkuðu um 5,9% á sama tíma eða úr 184,8 milljörðum króna 2011 í 195,7 milljarða króna 2012. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun sem áætluð eru 64,3 milljarðar króna, kaup á vöru og þjónustu 48,8 milljarðar króna og félagslegar tilfærslur til heimila 33,5 milljarðar króna. Útgjaldahækkunin milli tímabilanna skýrist fyrst og fremst af 4,7 milljarða króna aukningu í launakostnaði, ríflega 3 milljarða króna hækkun í vaxtagjöldum og 1,4 milljarða króna aukningu í fjárfesting. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.938 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins eða sem svarar 111,2% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 804 milljarða króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem svarar 46,1% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 42,2% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi í fyrra og 35,5% á sama ársfjórðungi 2010. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs versnaði því um 117 milljarða króna milli 2. ársfjórðungs 2011 og 2012.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira