Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ölgerðin endurnýir bílaflotann Ölgerðin hefur fengið afhenta þrjá Mercedes-Benz Actros flutningabíla. Ölgerðin mun endurnýja bílaflota sinn all verulega á næstunni og á næstu vikum fær fyrirtækið fjóra Actros bíla til viðbótar og tvo metanknúna Sprinter bíla. 8.5.2012 12:47
Ákvörðun tekin á næstu dögum um framtíð slitastjórnar Dróma Héraðsdómur Reykjavíkur ætlar strax á næstu dögum að taka afstöðu til þess hvort Dróma, slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans, verði vikið frá störfum. 8.5.2012 12:07
Ástralar grípa til aðgerða vegna skulda Fjármálaráðherra Ástralíu, Wayne Swan, segir að ríkisfjármálum Ástralíu verði komið á réttan kjöl á næstu tveimur árum, en stefnt er að því að rekstrarafgangur verði upp á 1,5 milljarða Ástralíudala, sem jafngildir um 187,5 milljörðum króna. 8.5.2012 11:48
Greining spáir 25 punkta hækkun Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans sem er 16. maí. Verða daglánavextir bankans þá 6,25%, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 5,25%, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum 5,0% og innlánsvextir 4,25%. 8.5.2012 11:44
Sögðu lán til stjórnenda Kaupþings jafn trygg og annarra Veð fyrir lánum til stjórnenda Kaupþings voru veikari en hjá öðrum viðskiptavinum bankans þó hinu gagnstæða hafi verið haldið fram í árshlutauppgjöri bankans á árinu 2008, að því er fram komi í máli lögmanns þrotabús Kaupþings fyrir dómi í dag. Þrotabúið krefst þess að Sigurður Einarsson greiði 550 milljónir. 7.5.2012 19:15
Undirrituðu fjárfestingarsamning vegna stálendurvinnslu Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra og fulltrúar GMR Endurvinnslunnar ehf. undirrituðu í dag fjárfestingarsamning vegna stálendurvinnslu á Grundartanga samkvæmt tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins. Samningurinn byggir á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi og er þetta fimmti fjárfestingarsamningurinn sem gerður er á grundvelli þessara laga. 7.5.2012 15:52
Netþjónar í sjálfsafgreiðslu Nýherji býður nú viðskiptavinum í betaprófanir á tölvuskýi félagsins. Þar geta viðskiptavinir sett upp netþjóna í sjálfsafgreiðslu og aðeins greitt fyrir þær klukkustundir sem þjónarnir eru í notkun. Engin fjárbinding er í búnaði fyrir viðskiptavini þar sem hann er vistaður í tölvuskýi Nýherja, sem annast allar uppfærslur, öryggi og viðhald. 7.5.2012 13:57
Krefjast þess að Sigurður greiði 550 milljónir Þrotabú Kaupþings krefst þess að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, greiði til baka 550 milljónir króna vegna persónulegra ábyrgða á lánum til hans. Lögmaður þrotabúsins sagði fyrir dómi í morgun að Sigurður ætti ekki að geta sloppið undan þessum greiðslum. 7.5.2012 12:00
Borgin kaupir bíla fyrir 300 milljónir Reykjavíkurborg hyggst kaupa nýja bíla fyrir rúmlega 300 milljónir í ár. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að tilgangurinn með því að kaupa nýja bíla sé að fá sparneytnari og umhverfisvænni bíla í flotann og samnýta bílana betur. Erindi frá framkvæmda- og eignasviði borgarinnar var afgreitt í borgarráði á fimmtudaginn. 7.5.2012 13:00
Auðugur Dani er annar stærsti landeigandi á Bretlandseyjum Danskur auðmaður er orðinn næststærsti jarðeigandinn á Bretlandseyjum. Hann á orðið meiri jarðir þar en Karl Bretaprins. 7.5.2012 11:17
Tæplega 2,7 milljarðar greiddir til íbúðaeigenda Ríkissjóður greiddi út tæplega 2,7 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda um síðustu mánaðamót vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra. Vaxtaniðurgreiðsla er greidd út í tvennu lagi. Fyrri greiðslan var greidd út 1. maí og seinni greiðslan verður 1. ágúst næstkomandi. Það voru rétt rúmlega 90 þúsund húseigendur sem fengu vaxtagreiðslu um síðastliðin mánaðarmót og var greiðsla á mann að meðaltali 30 þúsund krónur. 7.5.2012 09:52
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkar áfram í Danmörku Gjaldþrotum fyrirtækja í Danmörku fækkaði áfram í apríl s.l. þriðja mánuðinn í röð. Hafa gjaldþrotin ekki verið færri í einum mánuði síðan í árslok árið 2008 að því er kemur fram í nýjum tölum frá dönsku hagstofunni. 7.5.2012 09:12
Veltan á gjaldeyrismarkaði sú minnsta síðan í júní í fyrra Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í apríl s.l. nam 6 milljörðum kr. sem er 53,1% minni velta en í fyrra mánuði. Raunar þarf að fara aftur til júní í fyrra til að finna minni veltu á þessum markaði en var í apríl. 7.5.2012 09:00
Allir Evrópumarkaðir opnuðu í rauðum tölum Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir í rauðum tölum í morgun og fylgdu þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt. 7.5.2012 08:16
Byggingafélag námsmanna selur eignir sínar á Laugarvatni Byggingafélag námsmanna ætlar að selja allar eigur sínar á Laugarvatni eða samtals 26 íbúðir í þremur fjölbýlishúsum og eignarhlut félagsins í nýja gufubaðinu á staðnum. 7.5.2012 06:57
Hlutabréfamarkaðir í mínus, evran fellur og olíuverð lækkar Fyrstu afleiðingar kosningaútrslitanna í Frakklandi og Grikklandi voru að hlutabréfamarkaðir í Asíu tóku dýfu í nótt, evran veiktist og heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að falla. 7.5.2012 06:31
Besta frumsýningarhelgi allra tíma - stefnan tekin á Avatar Frumsýningarhelgi kvikmyndarinnar "The Avengers“ í Bandaríkjunum var vægast sagt góð - myndin sló öll met og þénaði rúmlega 200 milljón dollara eða um 25 milljarða króna. 6.5.2012 20:28
Buffet ætlar ekki að fjárfesta í Facebook Warren Buffet, einn þekktasti og ríkasti fjárfestir heims, segir að hann ætli ekki að kaupa hlutabréf í Facebook þegar fyrirtækið fer á hlutabréfamarkað. Þetta sagði Buffet, sem er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Berkshire Hathaway, rétt áður en hluthafafundur hófst í Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta er þar samankominn til þess að hlýða á Buffet fjalla um hugleiðingar sínar varðandi fjárfestingar og stöðu markaðarins. 6.5.2012 19:58
David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi samkvæmt nýjum lista sem Sunday Times hefur tekið saman. Hinn 37 ára gamli knattspyrnumaður, sem leikur með LA Galaxy, á eignir að andvirði 160 milljónir sterlingspunda, eða tæpa 33 milljarða króna. 6.5.2012 17:47
Bandaríkjamenn óðir í ofurhetjurnar Ofurhetjurnar í „The Avengers" hafa slegið enn eitt metið. Kvikmyndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í gær og halaði hún inn 80.5 milljón dollurum eða rúmum 10 milljörðum króna en það er önnur besta opnun kvikmyndasögunnar. 5.5.2012 17:23
Bakkavararbræður líklegastir til að kaupa Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir hafa tryggt sér 25 prósenta hlut í Bakkavör Group gegn því að gefa eftir meirihluta í stjórn félagsins. Afgangurinn, um 75 prósenta hlutur, verður í eigu íslenskra kröfuhafa sem breyta kröfum sínum í nýtt hlutafé. Svissneski risabankinn Credit Suisse telur að sá hluti verði seldur fljótlega og að líklegustu kaupendur hans séu bræðurnir. Gangi það eftir munu þeir eignast félagið sem þeir í raun misstu, samkvæmt skilmálum nauðasamninga félagsins, að nýju. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að vel komi til greina að selja hlutinn til annarra aðila. 5.5.2012 07:00
Fréttaskýring: Söguleg skráning FB á markað Stefnt er að skráningu Facebook á markað 18. maí næstkomandi en samfélagsmiðillinn verður með einkennið FB á markaðsvaktinni í Bandaríkjunum. Skráningin er um margt söguleg en um er að ræða langsamlega umfangsmestu skráningu internetfyrirtækis í sögunni þegar horft er til markaðsvirðis við skráningu. 4.5.2012 23:03
Telja líklegast að bakkavarabræður eignist Bakkavör á ný Sérfræðingar svissneska risabankans Credit Suisse telja líklegast að Ágúst og Lýður Guðmundssynir séu að fara eignast ráðandi hlut í Bakkavör á nýjan leik, en fyrirtækið er nú nánast að öllu leyti undir stjórn lífeyrissjóða og banka. 4.5.2012 18:30
Glitnir og tólf lífeyrissjóðir ná samkomulagi um skuldauppgjör Glitnir hf. og tólf lífeyrissjóðir ásamt undirsjóðum þeirra hafa náð samkomulagi um skuldauppgjör. Um er að ræða rammasamkomulag sem felur í sér að hver lífeyrissjóður um sig og Glitnir hf. munu gera upp kröfur sem aðilar eiga hvor á annan með sambærilegum hætti. 4.5.2012 17:57
Icelandair group tapaði 13,2 milljónum bandaríkjadala Tap Icelandair group á fyrsta ársfjórðungi nam 13,2 milljónum bandaríkjadala eða tæplega tveimur milljörðum króna. Á móti kemur að mikill innri vöxtur sog 21 % tekjuaukning frá sama tímabili í fyrra. Það skýrist helst á aukningu ferðamanna til Íslands. Handbært fé frá rekstri var 86,1 milljón dala og er eiginfjárhlutfall félagsins 31 %. 4.5.2012 17:24
Sports Direct opnar í sumar á Smáratorgi Breska íþróttavörukeðjan Sports Direct áformar að opna verslun á Smáratorgi í Kópavogi í sumar. Í tilkynningu frá versluninni segir að hún muni bjóða mikið úrval og öll helstu merki á borð við Nike og Adidas verða í boði. Sports Direct er ein stærsta íþróttavörukeðja Bretlands með um 400 verslanir. 4.5.2012 16:53
Tilboði Björgólfs Thors hafnað Tilboði Björgólfs Thors Björgólfssonar og fleiri aðila í Vivacom, stærsta farsímafélag Búlgaríu, hefur verið hafnað vegna þess að það þótt vera of lágt. Björgólfur Thor átti fyrirtækið á árunum 2005 til 2007 og er það nú metið á 1,4 milljarða dollara eða um 175 milljarða króna. Þrjú tilboð bárust í farsímafélagið þar á meðal frá Turkcell, stærsta farsímafyrirtæki Tyrklands. Tilboðin þrjú þóttu öll vera og lág og var öllum hafnað. 4.5.2012 16:36
Nauðsynlegt að rifta samningi um kísilverksmiðju Magnús Garðarsson forstjóri Íslenska kísilfélagsins og Tomahawk Development segir að félögin hafi neyðst til að segja upp samningi sínum við Globe Specialty Metals um byggingu kísilverksmiðju í Helguvík. 4.5.2012 15:55
Samningi um kísilverksmiðju rift Íslenska kísilfélagið, sem áformar að reisa kísilverksmiðju í Helguvík, hefur rift samningum við bandaríska félagið Globe Specialty Metals. Félögin höfðu uppi áform um að reisa verksmiðjuna saman en auk þess kemur félagið Tomahawk Development að verkefninu. 4.5.2012 13:45
Atvinnuleysi mælist 8,1 prósent í Bandaríkjunum Um 115 þúsund störf urðu til í Bandaríkjunum í apríl, samkvæmt tölum sem birtar voru í morgun, en atvinnuleysi mælist nú 8,1 prósent. Það er minnkun frá stöðunni sem var í mars, en þá mældist atvinnuleysið 8,2 prósent. 4.5.2012 13:32
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu þessa stundina og hefur verðið verið í frjálsu falli frá því síðdegis í gærdag. 4.5.2012 10:24
Íslandsbanki stækkar tvo skuldabréfaflokka Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta í Kauphöllinni í mars 2012. 4.5.2012 09:30
Gistinóttum á hótelum í mars fjölgar um 38% Gistinætur á hótelum í mars voru 134.000 samanborið við 97.300 í mars í fyrra. Þetta er 38% aukning milli ára. 4.5.2012 09:08
Vöruskiptin hagstæð um 9,4 milljarða í apríl Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir apríl s.l. var útflutningur 50,2 milljarðar króna og innflutningur 40,8 milljarðar króna. Vöruskiptin í mánuðinum voru því hagstæð um 9,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 4.5.2012 09:04
Aukning ferðamanna tvöföld í apríl miðað við meðtalið í 11 ár Ferðamönnum til landsins fjölgaði tvöfalt meira í apríl en nemur meðaltali síðustu 11 ára. 4.5.2012 07:58
Bensín og dísilolía komin undir 260 krónur á lítrann Atlantsolía lækkaði eldsneytisverð um röskar tvær krónur í morgun og er bensínlítrinn nú kominn rétt niður fyrir 260 króna markið, og sama er að segja um dísilolíuna, sem félagið lækkaði um tvær krónur. 4.5.2012 07:48
Aðeins ein hópuppsögn tilkynnt frá áramótum Engar hópuppsagnir voru tilkynntar til Vinnumálastofnunnar í apríl síðastliðnum. Þar með hefur aðeins verið tilkynnt um eina hópuppsögn til stofnunarinnar frá áramótum en það var í febrúar. 4.5.2012 06:41
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið síðasta sólarhringinn og er nú komið á svipaðar slóðir og skömmu eftir áramótin. 4.5.2012 06:37
Samsung Galaxy S III er mættur Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti hulunni af nýjasta snjallsíma sínum í dag, Galaxy S III. Samsung er stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar og eru Galaxy símarnir vinsælustu vörur fyrirtækisins. 3.5.2012 23:30
Facebook metið á 85 til 95 milljarða dala Verðmæti Facebook er á bilinu 85 til 95 milljarðar dala, samkvæmt því verði sem hlutir í fyrirtækinu verða skráðir á, að því er upplýst var í dag. Hlutir í fyrirtækinu, sem líklega verður skráð á markað undir einkenninu FB hinn 18. maí, verða skráðir á bilinu 28 til 35 dali. 3.5.2012 22:04
Aukinn hraði með Ljósneti Síminn stefnir að því að tengja nær 80% heimila við nýja þjónustuleið. Með Ljósneti eru hús tengd við ljósleiðara með koparstrengjum síðasta spölinn. Er bæði hraðara og ódýrara en ADSL-tenging. 3.5.2012 21:00
Ein af hverjum fimm tölvum sýkt Samkvæmt niðurstöðum úr nýrri rannsókn inniheldur ein af hverjum fimm Mac-tölvum einhverja tegund óværu. Það er töluvert hærra hlutfall en fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós. 3.5.2012 20:42
Ríkissjóður fær 124 milljarða að láni Ríkissjóður Íslands gekk í dag frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð einum milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum íslenskra króna. Mikil tímamót fyrir Ísland og jákvætt fyrir íslenskt efnahagslíf, segir fjarmálaráðherra. 3.5.2012 19:42
Íslenskur hugbúnaður sigraði í Rio de Janeiro Hugbúnaðarlausnin CityDirect sem þróuð er af ICEconsult ehf. sigraði í alþjóðlegri samkeppni LivingLabs-Global í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. 3.5.2012 15:28
Skuldabréfaútgáfa spænska ríkisins á ríflega 4 prósent vöxtum Spænska ríkið lauk í dag við skuldabréfaútgáfu upp á liðlega 2,5 milljarða evra á að meðaltali 4,04 prósent vöxtum, að því er breska ríkisútvarpið BBC greindi frá í dag. Það eru töluvert hærri vextir en ríkinu bauðst í síðustu útgáfu en þá voru vextirnir 2,6 prósent. 3.5.2012 14:29