Glitnir og tólf lífeyrissjóðir ná samkomulagi um skuldauppgjör 4. maí 2012 17:57
Glitnir hf. og tólf lífeyrissjóðir ásamt undirsjóðum þeirra hafa náð samkomulagi um skuldauppgjör. Um er að ræða rammasamkomulag sem felur í sér að hver lífeyrissjóður um sig og Glitnir hf. munu gera upp kröfur sem aðilar eiga hvor á annan með sambærilegum hætti. Undir samkomulagið falla allar kröfur aðila, þar með taldar kröfur vegna gjaldmiðlavarnasamninga sem gerðir voru til að draga úr gengisáhættu í eignasöfnum lífeyrissjóðanna. Þó eru undanskildar ágreiningskröfur sem varða víkjandi og höfuðstólstryggð skuldabréf, þar sem lífeyrissjóðirnir gera kröfur á Glitni umfram það sem slitastjórn hefur samþykkt. Samkomulag er um að vísa þeim ágreiningi til úrlausnar dómstóla. Samningaviðræður um uppgjör gjaldmiðlavarnasamninga hafa staðið yfir frá árslokum 2008. Í heildina er áætlað að fjárhagsleg áhrif rammasamningsins á stöðu lífeyrissjóðanna séu innan þeirra marka sem varúðarfærslur í ársreikningum þeirra gera ráð fyrir. Þetta er þó mismunandi milli sjóða, þar sem nokkrir þeirra geta tekjufært hluta af varúðarfærslu en aðrir þurfa að auka við frá því sem áætlað var. Skýrist það af mismunandi samsetningu krafna og skuldbindinga einstakra lífeyrissjóða. Samkomulagið er mikilvægt þar sem það eyðir óvissu um eignir og skuldir aðila sem að öðrum kosti hefði þurft að útkljá með íþyngjandi og langvarandi málarekstri fyrir dómstólum.
Mest lesið Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Sjá meira