Fleiri fréttir

Fjögur fordæmi fyrir leiðinni sem Nubo fer

Hvorki Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, né Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sögðust vita til þess að niðurstaða vegna kaupa Huangs Nubo lægi fyrir og að málið yrði kynnt í ríkisstjórn á föstudaginn. Vísir náði tali af þeim Ögmundi og Steingrími nú í kvöld.

Saksóknari telur að dæma hefði átt Geir fyrir víðtækari brot

Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, telur að afnema eigi ákæruvald Alþingis þegar kemur að brotum gegn lögum um ráðherraábyrgð, og færa slíkar rannsóknir í hefðbundinn farveg sakamála. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari telur að dæma hefði ár Geir fyrir víðtækari brot en hann var dæmdur fyrir.

Ögmundur hefur ekkert heyrt um samninginn um Grímsstaði

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekkert heyrt um samning sem gerður verður við kínverska ráðherrann Huang Nubo og til stendur að ræða á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag. Samkvæmt samningnum, sem greint var frá í kvöldfréttum RÚV, munu sveitarfélög ræða á Norðurlandi og Austurlandi kaupa landið og leigja Nubo það. Samningurinn verður til fjörutíu ára og mun Nubo greiða fyrir leiguna fyrirfram. Þannig verða kaupin á landinu fjármögnuð.

Selja hlut í HS Veitum hf.

Eigendur að 34,38% hlut í HS Veitum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Reykjanesbæjar, Orkuveitu Reykjavíkur, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga.

Saumavélin til sýnis

Saumavélin, ein fyrsta IBM fartölvan, sem kom á markað árið 1984, verður sýnd á afmælisráðstefnu Nýherja, sem fer fram á Hótel Nordica á morgun. Á ráðstefnunni verður hægt að sjá búnað frá árdögum fartölvuvæðingarinnar; fyrstu vélarnar með innbyggðu geisladrifi og fyrstu vélarnar með innbyggðu þráðlausu neti.

Kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin

Það stefnir í kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin. Tölvuleikjaframleiðandinn Activision boðaði komu tölvuleiksins Call of Duty: Black Ops 2 um miðbik nóvember en um svipað leyti fer Halo 4 í almenna sölu.

RIM opinbera snjallsíma og stýrikerfi

Kanadíski farsímaframleiðandinn Research in Motion hefur opinberað nýtt stýrikerfi fyrir BlackBerry snjallsímana. RIM einblínir nú á smáforrit og hugbúnaðarþróun í baráttu sinni við iPhone og Android snjallsímana.

Bauhaus opnar á laugardaginn

Svissneska byggingavörukeðjan Bauhaus opnar verslun hérlendis á laugardaginn næstkomandi. Um 100 starfsmenn hafa verið ráðnir til vinnu en um 2500 manns sóttu um starf hjá versluninni fyrr á árinu. Starfsmennirnir hafa síðustu vikur unnið hörðum höndum að því að taka á móti vörum og raða í hillur í 22 þúsund fermetra verslun við Vesturlandsveg. Fyrirtækið hugðist opna verslun hér á landi í lok árs 2008 en frestaði þeim áætlunum þegar bankahrunið skall á.

Borgin áfrýjar í Landsvakamálinu

Reykjavíkurborg ætlar að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms í Landsvakamálinu til hæstaréttar. Borgin tapaði tólf hundruð milljónum á peningamarkaðssjóðum Landsbankans í hruninu. Málið snýst um eign borgarinnar í peningamarkaðssjóði á vegum Landsbankans sem Landsvaki hafði umsjón með. Borgin átti um fjóra milljarða í sjóðnum en þegar honum var slitið en eftir hrun fengust tæplega sjötíu prósent greidd út eða tæpir þrír milljarðar. Aðeins nokkrum dögum fyrir fall bankans hafði borgin óskað eftir því að peningarnir yrðu fluttir úr sjóðnum en úr því varð ekki. Héraðsdómur hafnaði kröfu reykjavíkurborgar í síðasta mánuði en fram kemur í ársreikningi borgarinnar sem var birtur á mánudag að málinu verði áfrýjað til hæstaréttar. Borgin hefur jafnframt stefnt Landsvaka til greiðslu skaðabóta vegna málsins en aðalmferð í því máli hefur verið frestað fram á haust..

Xbox 360 leikjatölvan bönnuð í Þýskalandi

Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola Mobility hefur fengið lögbann á nokkrar vörur tæknifyrirtækisins Microsoft í Þýskalandi. Það var dómstóll í Mannheim sem komst að þessari niðurstöðu í dag.

Ólafur og Dorrit í fyrstu ferðinni til Prag

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú, verða farþegar í fyrstu ferð Iceland Express til Prag, höfuðborgar Tékklands. Þann 16. maí næstkomandi hefur félagið flug til borgarinnar, sem er einn vinsælasti áfangastaður í Evrópu.

Fara fram á yfirmat í Aurum-málinu

Sexmenningarnir, sem stefnt er í svokölluðu Aurum-máli slitastjórnar Glitnis, vísa á bug verðmati dómkvaddra matsmanna, sem hljóðar upp á núll til 929 milljónir króna, samanborið við þá sex milljarða sem Glitnir lánaði fyrir kaupum á hlut Fons í félaginu Aurum Holding.

Icelandair og Iceland Express aldrei verið stundvísari

Meira en níu af hverjum tíu flugum, til og frá landinu, stóðust áætlun síðari hluta aprílmánaðar. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is en þar segir jafnframt að stundvísin hafi ekki verið jafn góð frá því að síðan hóf að reikna stundvísistölur sínar fyrir tæplega ári síðan. Brottfarir Iceland Express og Icelandair frá Keflavík fóru í loftið á réttum tíma í 97 prósent tilvika á tímabilinu og komur til landsins voru líka nær alltaf á áætlun. Tafir í mínútum talið voru því sárafáar.

Risastór samningur við fyrirtæki í Kína

Fyrirtækið Marel gekk nýlega frá sölu fyrirtækisins í fiskiðnaði með samningum við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína. Um er að ræða nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður sérstaklega sniðin að þörfum kínverskra fiskframleiðenda.

Fékk þrettánfalt matsverð fyrir hlut í Aurum Holding

Rúmlega fjórðungshlutur í breska félaginu Aurum Holding, sem Glitnir lánaði FS38 ehf. sex milljarða króna til að kaupa í júlí 2008, var 464 milljóna króna virði þegar viðskiptin áttu sér stað. Því var kaupverðið þrettánfalt raunvirði hlutarins. Þetta er niðurstaða dómkvaddra matsmanna í skaðabótamáli sem slitastjórn Glitnis rekur gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni, Lárusi Welding og þremur fyrrum starfsmönnum Glitnis.

Hanna Birna: Borgarbúar greiða fyrir stóraukinn rekstrarkostnað

Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir að niðurstöður ársreiknings borgarinnar sem lagður var fram í dag staðfesti mun lakari afkomu en áætlanir hafi gert ráð fyrir, "ónógt aðhald, ófullnægjandi árangur í hagræðingu og almennt ranga forgangsröðun í þágu kerfisins en á kostnað fólksins."

Rekstur RÚV í samræmi við áætlanir

Hagnaður Ríkisútvarpsins ohf. á reikningstímabilinu 1. september 2011 til 29. febrúar 2012 nam 9 milljónum króna sem er í samræmi við áætlanir félagsins. Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins 5.660 milljónum króna, bókfært eigið fé í lok reikningstímabilsins er 746 milljónir króna og eiginfjárhlutfall félagsins er 13,2%. Hlutfall dagskrár- og framleiðslukostnaðar af rekstrartekjum hækkaði í 71% úr 64% frá síðasta árshlutauppgjöri.

Formaður LL: Stjórnarlaun Framtakssjóðsins of há

Arnar Sigurmundsson, formaður Landsamtaka lífeyrissjóða, segir að laun stjórnarmanna Framtakssjóðs Íslands hafi verið hækkuð alltof of mikið á aðalfundi sjóðsins sem fram fór 17. apríl sl. Laun almennra stjórnarmanna voru hækkuð um 80 prósent, úr 100 þúsund krónum í 180 þúsund.

Kröfu Seðlabankans um frávísun máls Más hafnað

Kröfu Seðlabanka Íslands, um að vísa frá máli Más Guðmundssonar gegn bankanum, var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag. Aðalmeðferð í máli Más gegn bankanum fer fram 14. september nk., að því er dómari ákvað við uppkvaðninguna í dag.

SFO sögð niðurlægð vegna aðgerða gegn Vincent Tchenguiz

Breska efnahagsbrotadeildin (Serious Fraud Office) stendur frammi fyrir því að verða „niðurlægð" vegna aðgerða sinna gegn Vincent Tchenguiz, bróður Robert Tchenguiz, sem var einn af stærstu skuldurum Kaupþings fyrir hrun bankans.

Eignasafnið hjá ríkustu konu Bandaríkjanna dregst saman

Markaðsvirði eigna ríkustu konu Bandaríkjanna samkvæmt lista Forbes tímaritsins, Christy Walton, hefur nokkuð síðustu daga, eða sem nemur 77,8 milljónum dala, tæplega 9 milljörðum króna. Það sér þó ekki högg á vatni, en heildareignir Walton eru metnar á 18,9 milljarða dala, eða sem nemur ríflega 2.300 milljörðum króna.

Ársreikningur borgarinnar: Lakari niðurstaða en áætlað var

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 var kynntur í dag og kemur þar fram lakari niðurstaða an áætlað hafði verið. Í tilkynningu frá borginni segir að þessi verri staða skýrist af hærri lífeyrisskuldbindingum, gengistapi og verðbólgu. Hallinn hjá borginni, A- og B- hluta nam 4,7 milljörðum á árinu. "Meginástæður fyrir því má rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga upp á tæpa 4,4 milljarða sem var áætluð 600 milljónir, gengistaps og til aukins fjármagnskostnaðar vegna verðbólgu á árinu. Þessir óvissuþættir valda lakari niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir en jákvæð tíðindi felast í því að aðgerðir Orkuveitu Reykjavíkur hafa skilað miklum árangri," segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Íslenskur hugbúnaður valinn fyrir De Bazaar

Stærsti innanhússmarkaður Evrópu, De Bazaar, hefur valið hugbúnað frá íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail til að halda utan um allan rekstur markaðarins og til endurbæta greiðsluferla sína enn frekar en orðið var.

Spánn í djúpri kreppu - neikvæður hagvöxtur

Spænska hagkerfið dróst saman um 0,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er í takt við væntingar sérfræðinga, en spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerir ráð fyrir að hagkerfi Spánar muni minnka um 1,8 prósent á þessu ári.

Nýherji efnir til ráðstefnu í tilefni afmælis

Talið er að um 79% smærri og meðalstórra fyrirtækja muni nota að minnsta kosti eina tölvuskýþjónustu árið 2014. Þetta er á meðal þess sem fram kemur á 20 ára afmælisráðstefnu sem Nýherji efnir til á fimmtudaginn kemur.

Plastprent í opið söluferli

Framtakssjóður Íslands hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka hf. að annast formlegt söluferli vegna fyrirhugaðrar sölu á öllu hlutafé Plastprents ehf. sem er í 100% eigu sjóðsins.

Yfir 11% Íslendinga glíma við íþyngjandi húsnæðiskostnað

Árið 2011 vörðu 11,3% Íslendinga yfir 40% ráðstöfunartekna sinna í húsnæðiskostnað. Þeir sem voru líklegastir til að búa við verulega íþyngjandi húsnæðiskostnað voru ungt fólk, þeir sem bjuggu í óniðurgreiddu leiguhúsnæði, bjuggu einir eða voru í lægsta tekjufimmtungi.

Vöruskiptin hagstæð um 28 milljarða á 1. ársfjórðungi

Fyrstu þrjá mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 156,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 128 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 28,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 30,3 milljarða á sama gengi.

Þjóðhagsstofnun endurreist en SÍ og FME ekki sameinuð

Öll stjórnsýsla sem tengist peningastefnu landsins, þar með talinn Seðlabanki Íslands, verður færð undir fjármálaráðuneytið, gangi hugmyndir um breytingar á ráðuneytum eftir. Þar með hefur verið fallið frá hugmyndum um sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins, en það síðarnefnda verður á forræði nýs atvinnuvegaráðuneytis.

Kínverjar og Rússar ætla að hanna flugvél saman

Kínverjar og Rússar undirrituðu í dag viðskiptasamninga á milli þjóðanna sem er talinn vera um 15 milljarða dollara virði. Meðal þess sem var undirritað var hönnun á nýrri farþegaþotu, en samningarnir ná einnig til orkuiðnaðar og samskiptatækni.

Samsung hagnaðist um 585 milljarða á þremur mánuðum

Tæknirisinn Samsung er orðinn stærsti framleiðandi fyrir farsíma, þar með talið snjallsíma. Nokia hefur til þessa verið stærsti framleiðandi farsíma og hefur haldið þeim árangri síðan 1998. Á fyrsta fjórðungi þessa árs tók Samsung fram úr Nokia, en fyrirtækið framleiddi 93 milljónir síma samanborið við 83 milljónir hjá Nokia.

Sjá næstu 50 fréttir