Viðskipti innlent

Ríkissjóður fær 124 milljarða að láni

Ríkissjóður Íslands gekk í dag frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð einum milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum íslenskra króna.
Ríkissjóður Íslands gekk í dag frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð einum milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum íslenskra króna.
Ríkissjóður Íslands gekk í dag frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð einum milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum íslenskra króna. Mikil tímamót fyrir Ísland og jákvætt fyrir íslenskt efnahagslíf, segir fjarmálaráðherra.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að skuldabréfin beri fasta vexti og séu gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 6,0%. „Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4 milljörðum Bandaríkjadala. Fjárfestahópurinn samanstendur aðallega af fagfjárfestum frá Bandaríkjunum og Evrópu. Skuldabréfaútgáfan kom í framhaldi kynningarherferðar í Bandaríkjunum og Evrópu. Umsjón var í höndum Deutsche Bank, J.P. Morgan og UBS Investment Bank," segir í tilkynningunni.

„Við erum með þessu að fylgja eftir vel heppnaðri skuldabréfaútgáfu frá því í fyrra á bréfum sem gefin voru út til skemmri tíma. Viðbrögð fjárfesta eru mjög ánægjuleg, eftirspurn er tvisvar sinnum meiri en í síðustu skuldabréfaútgáfu og fjöldi þátttakenda í útboðinu er einnig tvöfalt meiri en þá. Þetta er fyllilega í samræmi við stefnumörkun okkar í lánamálum ríkisins þar sem markmiðin eru meðal annars þau að tryggja aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta," segir Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×