Undirrituðu fjárfestingarsamning vegna stálendurvinnslu 7. maí 2012 15:52 Oddný G Harðardóttir, Arthur Gudmundsson og Eyþór Arnalds að lokinni undirritun. Mynd/iðnaðarráðuneytið.is
Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra og fulltrúar GMR Endurvinnslunnar ehf. undirrituðu í dag fjárfestingarsamning vegna stálendurvinnslu á Grundartanga samkvæmt tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins. Samningurinn byggir á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi og er þetta fimmti fjárfestingarsamningurinn sem gerður er á grundvelli þessara laga. GMR Endurvinnslan mun endurvinna brotamálma sem falla til við ýmsa framleiðslu á Íslandi og framleiða úr þeim nýtanlegt hráefni. Fyrst og fremst er um að ræða endurvinnslu á stáli sem fellur til við rekstur hérlendra álvera. Hráefnið nýtist m.a. áliðnaði á Íslandi auk þess sem markaður er fyrir það erlendis. Félagið GMR Endurvinnslan ehf. er í eigu íslenskra aðila og er Strokkur Energy stærsti hluthafinn. Áætlanir ganga út á að framleiða 30.000 tonn af endurunnu stáli. Allir samningar um fjármögnun og búnað eru frágengnir. Gert er ráð fyrir að félagið hefji rekstur í nýju verksmiðjuhúsnæði á Grundartanga í desember 2012. Heildarfjárfestingarkostnaður er 10,2 milljónir evra og gert er ráð fyrir 20 starfsmönnum í fullu starfi. Orkuþörfin er 6,5 MW og er sú orka til staðar í raforkukerfinu. Samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar er verkefnið ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Möguleiki er á að auka framleiðslugetu verksmiðjunnar umtalsvert vegna umsvifa á alþjóðlegum markaði. Fyrir liggja arðsemisútreikningar frá Íslandsstofu sem sýna að stálendurvinnslan sé þjóðhagslega hagkvæm út frá hagsmunum íslensks efnahagslífs og samfélags, t.d. út frá atvinnusköpun, byggðaþróun, útflutningi, skatttekjum, nýsköpun og aukinni þekkingu.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira