Viðskipti innlent

Nauðsynlegt að rifta samningi um kísilverksmiðju

Fjárfestingasamningar vegna kísilverksmiðju í Helguvík voru undirritaðir í febrúar árið 2011.
Fjárfestingasamningar vegna kísilverksmiðju í Helguvík voru undirritaðir í febrúar árið 2011.
Magnús Garðarsson forstjóri Íslenska kísilfélagsins og Tomahawk Development segir að félögin hafi neyðst til að segja upp samningi sínum við Globe Specialty Metals um byggingu kísilverksmiðju í Helguvík.

Bloomberg greindi frá málinu fyrr í dag. Í yfirlýsingu frá Magnúsi segir að samningnum hafi verið rift vegna vanefnda Globe Specialty Metals á samningnum. Magnús segist harma þessi málalok, sérstaklega í ljósi þess að samstarfið hafi gengið vel þangað til í janúar á þessu ári.

Til að geta haldið verkefninu gangandi hafi þeir hinsvegar verið nauðbeygðir til að rifta samningnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×