Fleiri
Íbúðalánasjóð vantar tíu milljarða króna úr ríkissjóði 3.4.2012 00:01 Inspired by Iceland lokkaði Easy Jet á klakann Forstjóri Easy Jet, sem er meðal annars lærður kennari, segir að fólk verði að hugsa ferðalög sín upp á nýtt þegar það ferðist með fyrirtækinu og flestir sem það geri líti ekki um öxl. Hún segir að kynningarherferð stjórnvalda í fyrra hafi skipt sköpum þegar tekin var ákvörðun um að koma til Íslands. 2.4.2012 19:08 Sólning seld fyrir 440 milljónir Gunnar Justinussen hefur keypt fyrirtækið Sólningu af Hömlum ehf, dótturfélagi Landsbankans, fyrir 440 milljónir króna. Gunnar rekur fyrirtækið Pitstop hér á landi. 2.4.2012 15:13 Atvinnuleysi í Evrópu mælist 10,8 prósent Atvinnuleysi á meðal Evrópusambandsríkja mælist nú 10,8 prósent að meðaltali samkvæmt tölum sem Eurostat, Hagstofa Evrópusambandsins, birti í morgun. Í janúar mældist atvinnuleysið 10,7 prósent og eykst það því lítillega frá þeim tölum. 2.4.2012 14:39 Sjá næstu 50 fréttir
Facebook kaupir Instagram Facebook hefur tilkynnt að fyrirtækið muni kaupa Instagram, sem er vinsælt app í snjallsímum. Facebook greiðir um 1 milljarð dala, eða 127 milljarða króna, í reiðufé og hlutabréf fyrir viðskiptin. Instagram fór í loftið í október 2010. Það var upphaflega hugsað fyrir iPhone en síðan fyrir Android. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, heitir því að Instagram verði þróað áfram þannig að fleiri geti notað það. 9.4.2012 17:46
Nýherji varð 20 ára Upplýsingatæknifélagið Nýherji varð 20 ára í þessari viku, en félagið hóf starfsemi sína þann 2. apríl 1992 með samruna IBM á Íslandi hf. og Skrifstofuvéla-Sund hf. 9.4.2012 11:02
Sameining FME og Seðlabanka ekki á dagskrá í bili Sameining FME og Seðlabankans er framtíðarmúsík sem er ekki á dagskrá á næstu misserum, að sögn efnahags- og viðskiptaráðherra og ósennilegt er að stigin verði skref í þá átt fyrir kosningar, en erlendir ráðgjafar stjórnvalda hafa lagt áherslu á sameiningu þessara stofnana. 8.4.2012 13:45
Snjallgleraugun eru raunveruleg - prufukeyrsla hafin Tæknirisinn Google opinberaði í vikunni áform sín um að þróa sérstök snjallgleraugu sem byggja á Android stýrikerfinu vinsæla. 7.4.2012 20:56
Deloitte segir að niðurstöður sínar fáist ekki keyptar Endurskoðendafyrirtækið Deloitte vísar því alfarið á bug að útvegsmenn hafi keypt niðurstöður sem kynntar voru á opnum fundi Útvegsmannafélags Reykjavíkur á dögunum. Fyrirtækið bendir á að Deloitte sé alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki og niðurstöður þess fáist ekki keyptar. 6.4.2012 10:58
Stefna að stærsta hlutafjárútboði sögunnar Fimm milljarðar dollara, jafnvirði um 600 milljarða króna, í formi hlutafjár í Facebook verða boðnir út í NASDAQ kauphöllinni í New York síðar á þessu ári, en um er að ræða stærsta hlutafjárútboð sögunnar á heimsvísu. Tíðindin þykja vonbrigði fyrir New York Stock Exchange kauphöllina en frá þessu er greint í Financial Times í dag. Facebook ætlar að hefja formlegar kynningar fyrir fjárfesta í maí næstkomandi að því er blaðið greinir frá. Og ætti að vera orðið tilbúið til frumskráningar í maí eða júní næstkomandi ef allt gengur eftir. 6.4.2012 09:56
Guðfaðir 911 sportbílsins er látinn Ferdinand Alexander Porsche, guðfaðir 911 sportbílsins frá Porsche og heiðursformaður stjórnar Porsche bílaframleiðandans, lést í gær í Salzburg í Austurríki. Hann var 76 ára. Þegar 911 sportbíllinn var kynntur árið 1963 með nýrri og straumlínulagaðri hönnun og stórum höfuðljósum þótti hann marka tímamót í hönnun sportbíla í heiminum. 6.4.2012 09:42
Seldi upplýsingar til hasarblaðaljósmyndara Háttsettur starfsmaður Virgin Atlantic flugfélagsins breska hefur sagt starfi sínu lausu eftir í ljós kom að hann hafði lekið upplýsingum flugferðir frægs fólks til fyrirtækis sem gerir út papparazzi ljósmyndara. Þetta þýddi að papparazzi ljósmyndararnir vissu nákvæmlega hvenær von væri á frægu fólki og gátu myndað það á leið í og úr flugi. Meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á þessu var knattspyrnumaðurinn Ashley Cole, leikkonurnar Sienna Miller, Scarlett Johansson og Gwyneth Paltrow og tónlistarmaðurinn Robbi Williams. Sir Richard Branson, eigandi Virgi Atlantic, sagði við breska fjölmiðla að fyrirtækið tæki upplýsingum mjög alvarlega og hefði hafði rannsókn á málinu innanhúss. 6.4.2012 09:46
Talsmaður Nubo: Ekkert breyst hér á landi "Við höfum ekki upplýsingar um að eitthvað hafi breyst,“ segir Halldór Jóhannsson, landslagsarkitekt og talsmaður kínverska fjárfestarins Huang Nubo hér á landi. 5.4.2012 16:16
Huang Nubo reisir heilsuþorp í Kína í stað Íslands Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo hefur gert samkomulag við yfirvöld í suðvesturhluta Kína um uppbyggingu heilsuþorps í anda þess sem hann hugðist reisa á Grímsstöðum á Fjöllum en var neitað af innanríkisráðherra á sínum tíma. 5.4.2012 15:06
SAS ætlar að bjóða upp á flug á milli Íslands og Stokkhólms Síðustu ár hefur Icelandair verið eina félagið sem hefur séð sér hag í að bjóða upp á ætlunarflug héðan til Stokkhólms. Nú ætlar hins vegar SAS að blanda sér í slaginn og bjóða upp á fjórar ferðir í viku frá Stokkhólmi en þó aðeins yfir aðal ferðamannatímabilið samkvæmt ferðavefnum túristi.is. 5.4.2012 09:46
Segir Brynjólf þurfa að íhuga stöðu sína sem framkvæmdastjóri Mörður Árnason þingmaður Samfylkinginnar segir í Fréttatímanum í dag að Brynjólfur Bjarnason fyrrum forstjóri Símans hljóti að skoða stöðu sína sem framkvæmdarstjóri Framtakssjóðs í ljósi nýjustu sektar Símans undir hans stjórn sem hljóðar upp á 440 milljónir króna. 5.4.2012 10:11
Vertu heilbrigð og falleg - án aukaefna Á hverjum degi notum við alls konar húðvörur til að hreinsa og mýkja húðina. Margar þeirra innihalda bæði ilmefni og önnur óæskileg aukaefni og úr verður kokteill af aukaefnum, sem eykur líkurnar á snertiofnæmi. 5.4.2012 11:00
Instagram loks komið fyrir Android Notendum Android-stýrikerfisins stendur nú til boða að fá smáforritið Instagram í snjallsíma sína. Náð hefur verið í forritið rúmlega milljón sinnum frá því að það var opinberað fyrr í dag. 4.4.2012 21:00
Fermingar hafa mikil áhrif á hagkerfið Fermingar hafa umtalsverð áhrif á hagkerfið á þessum tíma ársins, en yfir fjögur þúsund Íslendingar eru nú á fermingaraldri. Fréttastofa komst í raun um að fermingarveislu hafa í för með sér milljarðaveltu í hagkerfinu og skipta umtalsverðu máli fyrir kaupmenn. 4.4.2012 19:45
Rekstrarkostnaður bankanna mun hærri en á Norðurlöndunum Rekstrarkostnaður íslensku bankanna nam tæplega 64 milljörðum króna í fyrra. Þrátt fyrir smæð bankakerfisins eru íslensku bankarnir miklu dýrari í rekstri en bankar á Norðurlöndunum. Og rekstrarkostnaður sem hlutfall af landsframleiðslu nálgast Sviss, sem er eitt sérhæfðasta ríki í heimi á þessu sviði. 4.4.2012 18:46
Iceland Express gerir samning við bílaleigumiðlara Flugfélagið Iceland Express hefur gert samstarfssamning við bílaleigumiðlarann AUTO ESCAPE en fyrirtækið hefur aðgang að 800 þúsund ökutækjum í 125 löndum. 4.4.2012 15:37
Vilja svör frá Seðlabanka Íslands Samherji sendi í dag gjaldeyriseftirliti Seðlabankans bréf í dag þar sem óskað var eftir upplýsingum um húsleit hjá fyrirtækinu í síðustu viku. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá lögmanni Samherja. 4.4.2012 13:05
Stefnir í 60 prósent fjölgun ferðamanna með skemmtiferðaskipum „Þá stefnir í metfjölda skemmtiferðaskipa til landsins á komandi sumri. Samkvæmt upplýsingum Faxaflóahafna hafa nú þegar 77 erlend skemmtiferðaskip tilkynnt um komu sína komandi sumar. Áætlun Faxaflóahafna miðar við 100 þúsund erlenda gesti með skemmtiferðaskipum í sumar samanborið við 63 þúsund í fyrra. Það er 59% aukning!" 4.4.2012 10:10
Veltan á fasteignamarkaðinum jókst um 26,5% í mars Veltan á fasteignamarkaðinum í höfuðborginni jókst um 26,5% í mars miðað við sama mánuð í fyrra. Fjöldi kaupsamninga jókst um 8,8%. 4.4.2012 09:33
Sveitarfélögin skulda tæpa 570 milljarða Heildarskuldir sveitarfélaga nema 567 milljörðum króna, eða um þriðjungi af landsframleiðslu síðasta árs. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Geirssonar um skuldir sveitarfélaga og endurfjármögnun. 4.4.2012 09:12
Yfir 1,5 milljarðar liggja inni á dauðum bankareikningum Rétt rúmlega 100 þúsund innlánsreikningar hafa staðið óhreyfðir í 15 ár eða lengur í bankakerfinu. Á þessum reikningum eru samtals rúmlega 1,5 milljarðar kr. eða um 15.000 kr. á hverjum þeirra að meðaltali. 4.4.2012 08:03
Gistinóttum fjölgaði um 28% milli ára í febrúar Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 28% milli ára í febrúar. Gistinætur á hótelum í febrúar voru 102.600 samanborið við 79.900 í febrúar 2011. 4.4.2012 09:10
Vöruskiptin hagstæð um rúma 5 milljarða í mars Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir mars 2012 var útflutningur 54,4 milljarðar króna og innflutningur 49,3 milljarðar króna. 4.4.2012 09:07
Eyrir Invest eykur hlut sinn í ReMake Electric Eyrir Invest og Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins ásamt smærri hluthöfum hafa aukið við hlutafé sitt í fyrirtækinu ReMake Electric ehf. Eftir hlutafjáraukninguna á Eyrir Invest 26,2% í fyrirtækinu og Nýsköpunarsjóður 18% en markmið fyrirtækisins er að verða leiðandi á heimsmarkaði með lausnir til orkustjórnunar í heimilum og fyrirtækjum. 4.4.2012 08:17
FME samþykkir samruna Íslandsbanka og Kreditkorts Fjármálaeftirlitið (FME) hefur samþykkt samruna Íslandsbanka hf. og Kreditkorts hf. á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki. 4.4.2012 06:42
440 milljóna sekt lögð á Símann Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að leggja 390 milljóna króna sekt á Símann, en eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í dag að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum og EES samningnum með því að beita keppinauta sína samkeppnishamlandi verðþrýstingi. 3.4.2012 15:50
Hætta öllum viðskiptum við Íslendinga Deutsche Fischfang Union, dótturfélag Samherja, hefur ákveðið að hætta tímabundið öllum viðskiptum við íslenska lögaðila. DFFU er grunað um að hafa brotið lög um gjaldeyrisviðskipti eins og fram kom í fréttum í síðustu viku. 3.4.2012 15:22
Nærri fjórði hver maður án vinnu á Spáni Efnahagsvandinn á Spáni er djúpstæður, og er síst að minnka, samkvæmt hagtölum um atvinnuástandið í landinu sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í gær. Samkvæmt þeim mælist atvinnuleysið tæplega 24 prósent, eða nærri því að fjórði hver maður á vinnualdri sé án vinnu. 3.4.2012 12:00
Öllu starfsfólki LA sagt upp Leikfélag Akureyrar hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu frá og með 1. apríl. Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Leikfélagsins, segir að þetta sé gert í ljósi þess að ekki hafi náðst samningar við Akureyrarbæ um reksturinn. Hún segir að verið sé að vinna í samningum og vonandi verði hægt að ráða aftur í störfin sem fyrst. 3.4.2012 10:21
Forrit fyrir snjallsíma njóta gríðarlegra vinsælda Meira en tuttugu milljarðar smáforrita (Apps) hafa verið gerð fyrir snjallsíma eins og I phone og Android. Sum slá í gegn en önnur ekki. 3.4.2012 09:01
Mikið keypt og selt í Marel Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni námu 16,9 milljörðum króna í mars sem jafngildir 766 milljónum á dag. Til samanburðar var velta með hlutabréf 3,8 milljarðar í febrúar eða 183 milljónir á dag. 3.4.2012 11:00
Högnuðust um 1,1 milljarð Stoðir, sem áður hétu FL Group, högnuðust um 1,1 milljarð króna á síðasta ári. Helstu eignir félagsins eru 99,94% hlutur í Tryggingamiðstöðinni (TM), 40,3% hlutur í hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco og 16% hlutur í Geysi Green Energy. Þær voru metnar á 35,4 milljarða króna um síðustu áramót og eiginfjárhlutfall félagsins var 89%. TM var nýverið auglýst til sölu og því ljóst að Stoðir munu enn frekar draga saman segl sín á þessu ári. 3.4.2012 10:00
Hagnaður VÍS rúmlega 400 milljónir í fyrra Hagnaður af rekstri Vátryggingafélags Íslands (VÍS) nam 408 milljónum króna eftir skatta í fyrra, sem er tvöfalt meiri hagnaður en árið 2010 þegar hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta nam liðlega 204 milljónum króna. 3.4.2012 09:58
Bloomberg: Áratugir í afléttingu gjaldeyrishaftanna Gjaldeyrisútboð Seðlabankans ná ekki flugi vegna vantrausts fjárfesta á bankanum og áætluninni um afnám haftanna. Með núverandi fyrirkomulagi mun taka áratugi að losa um höftin og því talið ljóst að breytt verður um stefnu innan skamms. 3.4.2012 09:51
Hafa ekki uppfyllt markmiðið frá 2008 Íbúðalánasjóð vantar um tíu milljarða króna til að uppfylla markmið um eiginfjárhlutfall sjóðsins sem sett er fram í reglugerð. Íslenska ríkið mun þurfa að leggja fram upphæðina. Stefnir að því að bjóða upp á óverðtryggð lán í haust. 3.4.2012 09:00
Norðlenska greiðir arð í fyrsta sinn Á aðalfundi Norðlenska í gær var samþykkt að greiða eigandanum Búsæld ehf., félagi 540 bænda, arð að upphæð 66 milljónum króna. Þetta er í fyrsta skipti sem eigendum Norðlenska er greiddur arður af starfseminni. 3.4.2012 08:55
Gjaldeyrishöftin bæði hert og rýmkuð í senn Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um frekari breytingar á núgildandi gjaldeyrishöftum. Boðað var að frekari breytinga á lögum um gjaldeyrismál væri að vænta þegar Alþingi lokaði fyrir glufu í haftalögunum í síðasta mánuði. 3.4.2012 08:00
Mikill fjörkippur á fasteignamarkaðinum í borginni Mikil aukning varð í fjölda þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var þinglýst 114 samningum sem er 25 samningum meira en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði. 3.4.2012 07:53
Eigum heimsmet í notkun mjaltaþjóna Hlutfall mjólkur sem kemur frá mjaltaþjónabúum nemur 28,2% af heildarframleiðslu landsins sem er hæsta hlutfall mjaltaþjónamjólkur í heimi árið 2011 samkvæmt NMSM eða Samtökum norrænna afurðastöðva í mjólkuriðnaði. 3.4.2012 07:25
Hungurleikarnir halda áfram að mala gull Ekkert lát er á velgengni kvikmyndarinnar Hungurleikarnir eða The Hunger Games. 3.4.2012 06:42
Inspired by Iceland lokkaði Easy Jet á klakann Forstjóri Easy Jet, sem er meðal annars lærður kennari, segir að fólk verði að hugsa ferðalög sín upp á nýtt þegar það ferðist með fyrirtækinu og flestir sem það geri líti ekki um öxl. Hún segir að kynningarherferð stjórnvalda í fyrra hafi skipt sköpum þegar tekin var ákvörðun um að koma til Íslands. 2.4.2012 19:08
Sólning seld fyrir 440 milljónir Gunnar Justinussen hefur keypt fyrirtækið Sólningu af Hömlum ehf, dótturfélagi Landsbankans, fyrir 440 milljónir króna. Gunnar rekur fyrirtækið Pitstop hér á landi. 2.4.2012 15:13
Atvinnuleysi í Evrópu mælist 10,8 prósent Atvinnuleysi á meðal Evrópusambandsríkja mælist nú 10,8 prósent að meðaltali samkvæmt tölum sem Eurostat, Hagstofa Evrópusambandsins, birti í morgun. Í janúar mældist atvinnuleysið 10,7 prósent og eykst það því lítillega frá þeim tölum. 2.4.2012 14:39
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf