Viðskipti innlent

SAS ætlar að bjóða upp á flug á milli Íslands og Stokkhólms

Síðustu ár hefur Icelandair verið eina félagið sem hefur séð sér hag í að bjóða upp á ætlunarflug héðan til Stokkhólms. Nú ætlar hins vegar SAS að blanda sér í slaginn og bjóða upp á fjórar ferðir í viku frá Stokkhólmi en þó aðeins yfir aðal ferðamannatímabilið samkvæmt ferðavefnum túristi.is.

Fyrsta ferðin verður farin 22. júní og sú síðasta 14. ágúst. Anders Lindström, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir í samtali við Túrista að mikil eftirspurn sé eftir ferðum til Íslands yfir sumarmánuðina og því hafi beinu flugi milli Stokkhólms og Reykjavíkur verið bætt við sumardagskrána. SAS flýgur hins vegar hingað allt árið um kring frá Osló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×