Viðskipti innlent

Gjaldeyrishöftin bæði hert og rýmkuð í senn

Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um frekari breytingar á núgildandi gjaldeyrishöftum. Boðað var að frekari breytinga á lögum um gjaldeyrismál væri að vænta þegar Alþingi lokaði fyrir glufu í haftalögunum í síðasta mánuði.

Segja má að breytingarnar sem lagðar eru til í nýja frumvarpinu séu tvenns konar. Annars vegar eru undanþágur frá höftunum rýmkaðar og hins vegar er eftirlit með þeim hert og viðurlög við brotum gerð strangari.

Helstu breytingarnar sem lagðar eru til í nýja frumvarpinu og miða að rýmkun undanþága eru hækkun framfærsluheimilda, rýmkun endurfjárfestingaheimilda, frekari heimildir til gjaldeyrisviðskipta í tengslum við atvinnustarfsemi og rýmkun á heimild til erlendrar lántöku. Þá er gert ráð fyrir heimild fyrir innlenda aðila til kaupa á farartæki til eigin nota innanlands.

Eins og áður sagði er eftirlit með höftunum hert, til að mynda eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum vegna greiðslu vaxta, verðbóta, arðs og samningsbundinna afborgana. Þá er almenn heimild Seðlabankans til upplýsingaöflunar í þágu eftirlits hert og heimilaðar stjórnvaldssektir vegna brota hækkaðar.

Loks eru Seðlabankanum veittar heimildir til þess að setja reglur sem kveða á um undanþágur frá ákveðnum takmörkunum laganna. Þannig geti bankinn losað um takmarkanir eins og aðstæður leyfi en einnig brugðist skjótt við komi í ljós að undanþágur opni á sniðgöngumöguleika eða misnotkun.

- mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×