Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
100 milljóna króna kröfu Baugs í SPRON hafnað Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað 109 milljóna króna kröfu sem þrotabú Baugs Group lýsti í þrotabú SPRON. Krafan var gerð vegna riftunar á 100 milljóna króna greiðslu Baugs Group hf. sem innborgun á víxilskuld þann 22. desember 2008. Krafðist þrotabú Baugs þess að peningurinn yrði greiddur til baka auk vaxta. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi að ekki væru fyrir hendi skilyrði til riftunar á greiðslunni og því er kröfu þrotabús Baugs í þrotabú SPRON hafnað. 9.2.2012 14:55
Dótturfyrirtæki Actavis stóð sig best Medis ehf, sem er dótturfyrirtæki Actavis, er það fyrirtæki sem sýndi hvað mesta árangur í rekstri fyrirtækja á Íslandi á síðasta ári að mati fyrirtækisins CreditInfo. CreiditInfo veitti í dag viðurkenningu til þeirra fyrirtækja sem sýndu framúrskarandi árangur í rekstri á síðasta ári og stóðust styrk og stöðugleikamat félagsins. Niðurstöðurnar byggja á ítarlegri greiningu sem Creditinfo vann að og veitir viðurkenningar til sigurvegara ár hvert. 9.2.2012 14:34
Samkomulag um niðurskurð í Grikklandi Grískir stjórnmálamenn hafa náð samkomulagi um niðurskurðaraðgerðir sem nauðsynlegt er að ráðast í til þess að landið geti fengið lánafyrirgreiðslu. 9.2.2012 14:23
10-11 gerir samning við Advania Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. hefur samið við Advania um heildarlausn í hugbúnaði, rekstri og þjónustu við upplýsingatækniumhverfi sitt. Í tilkynningu frá Advania segir að þar á meðal sé verslunarkerfið LS Retail og fjárhagslausnin Microsoft Dynamics NAV. "Við undirbúning samstarfsins var lögð mikil áhersla á áreiðanleika, hagkvæmni og öryggi hlutaðeigandi lausna." 9.2.2012 14:19
Arion banka hótað dagssektum Arion banki hefur frest til morgundagsins til þess að breyta skráningu á kennitölum við gjaldeyrisviðskipti ef fjárhæð þeirra er undir 1000 evrum. Bregðist bankinn ekki við þessu mun Persónuvernd leggja dagsektir á bankann vegna málsins. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar sem birtur var í dag. 9.2.2012 14:10
Rauðar tölur á íslenska hlutabréfamarkaðnum Gengi hlutabréfa í Icelandair Group, Marel og Össuri hefur lækkað skarplega í viðskiptum dagsins í íslensku kauphöllinni. Gengi bréfa í Icelandair hefur lækkað um 2,5 prósent og er gengið, þegar þetta er skrifað, 5,45. 9.2.2012 13:13
Fimmtíu milljörðum punda varið í að örva hagvöxt Breski seðlabankinn hefur ákveðið að verja fimmtíu milljörðum punda í að örva efnahagslífið og styðja við hagvöxt. Að þessu meðtöldu hefur bankinn þá sett um 325 milljarða punda inn í breskt efnahagslíf til þess að örva vöxt. 9.2.2012 12:43
Aðalhagfræðingur: Grikkir munu svíkja gefin loforð Grikkir munu ekki standa við neitt af þeim loforðum sem gefin verða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Um leið og þeir hafa fengið nýjasta neyðarlán sitt munu Grikkir steingleyma öllu sem þeir lofuðu um niðurskurð og sparnað í rekstri hins opinbera þar í landi. 9.2.2012 09:59
Hagnaður Danske Bank undir væntingum Hagnaður Danske Bank nam 1,7 milljörðum danskra króna, eða um 37 milljarðar króna eftir skatta á síðasta ári. Þetta er töluvert minni hagnaður en sérfræðingar áttu von á. 9.2.2012 09:42
Víða pottur brotinn í samningum menntamálaráðuneytisins Ríkisendurskoðun hefur gert ýmsar athugasemdir við saminga á vegum menntamálaráðuneytisins. 9.2.2012 07:47
Olís og N-1 hækkuðu líka bensínverðið Olís og N-1 hækkuðu verð á bensínlítra um þrjár krónur í gær, eftir að Skeljugnur hækkaði verðið um fimm krónur í fyrrakvöld. 9.2.2012 07:38
Real Madrid er áfram auðugasta fótboltalið heimsins Spænska úrvalsdeildarliðið Real Madrid heldur stöðu sinni sem auðugasta fótboltalið heimsins, sjöunda árið í röð. 9.2.2012 07:29
Össur hf. hagnaðist um 4,5 milljarða í fyrra Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. hagnaðist um 37 milljónir dollara eða um 4,5 milljarðar króna á síðasta ári. 9.2.2012 07:03
Verðbólgan er innbyggð í íslenska hagkerfið Stöðugleiki er ekki til í íslenska hagkerfinu þar sem verðbólgan er innbyggð í kerfið. 9.2.2012 06:58
Allt í hnút í Grikklandi Forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, tókst ekki að ná samkomulagi við forystumenn grískra stjórnmálaafla um aðgerðir í ríkisfjármálum, til þess að geta fengið 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fundi í kvöld lauk án niðurstöðu, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins BBC. 9.2.2012 00:25
Pétur Einarsson: Offramboð af viðskiptabankastarfsemi Pétur Einarsson, forstjóri Straums sem er í viðtali í nýjasta þætti Klinksins á viðskiptavef Vísis, segir offramboð vera fyrir hendi á viðskiptabankastarfsemi hér á landi. Rekstrarkostnaður sé of mikill. 8.2.2012 21:30
Pétur Einarsson: Mikilvægt að koma meiru fé í vinnu Pétur Einarsson, forstjóri Straums, eina sérhæfða fjárfestingarbankans á Íslandi, segir að þrátt fyrir breyttar aðstæður frá því sem áður var séu næg verkefni fyrir hendi við að "koma fjármagninu í arðbæra vinnu“. Þar geti Straumur gegnt mikilvægu hlutverki. 8.2.2012 20:00
Yfir 8 þúsund miðar hafa selst Breska lággjaldaflugfélagið Easy Jet ætlar að fljúga til og frá Íslandi allan ársins hring. Yfir 8000 miðar hafa selst frá því að félagið opnaði fyrir sölu hingað til lands í nóvember síðastliðnum. 8.2.2012 18:41
Gagnaverið Verne Global opnar í dag Gagnaver Verne Global opnar í dag að Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru nú liðin tæp fjögur ár síðan fyrirtækið Verne Global keypti stórar byggingar af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. 8.2.2012 13:52
Búast við stýrivaxtahækkun næst Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að hækka stýrivexti sína á öðrum fjórðungi þessa árs um 0,25 prósentur. Nefndin muni samhliða því jafnframt gefa til kynna að fleiri vaxtahækkanir séu í pípunum. Nefndin hélt stýrivöxtum óbreyttum við ákvörðun sem tilkynnt var í morgun. Greining Íslandsbanka telur að verðbólguþróunin næsta kastið verði óhagstæðari en Seðlabankinn gerir ráð fyrir, meðal annars vegna gengisþróunar krónunnar og hugsanlega vegna meiri launaþrýstings en felst í spá bankans. Þetta muni knýja fram vaxtahækkunina að okkar mati. 8.2.2012 13:21
Einn stjórnenda IBM heldur fyrirlestur í HR Einn af leiðtogum IBM, Sandy Carter, heldur fyrirlestur í Háskóla Reykjavíkur í hádeginu í dag. Hún er hér á landi á vegum Nýherja og mun fjalla um það hvers vegna samfélagsmiðlar eru mikilvægir til framtíðar. 8.2.2012 11:31
Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim Danski hagfræðingurinn Jesper Rangvid var staddur hér á landi nýverið þar sem hann var gestaprófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Rangvid, sem er prófessor við Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar, var nýverið skipaður formaður yfir rannsóknarnefnd sem mun freista þess að skýra hvort, og þá með hvaða hætti, innlendir áhrifaþættir höfðu áhrif á yfirstandandi erfiðleika fjámálalífsins þar í landi. Þó að ástandið í Danmörku sé langt í frá eins alvarlegt eða víðtækt eins og verið hefur hér á Íslandi, hafa fjármálastofnanir átt í miklum erfiðleikum. Eins og stendur hafa ellefu bankar orðið gjaldþrota frá hruninu haustið 2008. 8.2.2012 11:00
Gæti falið í sér milljarða ávinning fyrir sjóðina Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat á það hvort gögn sem lögð voru fram í umdeildu skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 hafi endurspeglað raunverulega stöðu bankans. Sjóðirnir vilja meina að þeir hafi verið blekktir til að kaupa víkjandi skuldabréf í útboðinu fyrir samtals 10,7 milljarða króna og hafa stefnt slitastjórn Glitnis vegna þessa. Undirbúningur að málarekstrinum hefur staðið yfir mánuðum saman. 8.2.2012 11:00
Óformlegar viðræður um fjármögnun og verð Formlegar söluviðræður við einn af bjóðendum í 77% hlut þrotabúa Landsbankans og Glitnis í Iceland Foods gætu hafist eftir viku til tíu daga, samkvæmt heimildum Markaðarins. Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í hlutinn rann út um síðustu mánaðamót. Reuters-fréttastofan hefur fullyrt að tveir fjárfestingasjóðir, Bain Capital og BC Partners, hafi skilað inn tilboðum. 8.2.2012 11:00
Gamla Sjóvá skilar litlu til kröfuhafa Kröfuhafar SJ Eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, hafa samþykkt nauðasamning félagsins. Í honum felst í raun að þeir fá um 7% af um 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna. Kröfuhafarnir, sem eru skilanefnd Glitnis, Landsbankinn, Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) höfðu hins vegar af því áhyggjur að sú háa tekjufærsla sem myndi myndast við gerð nauðasamningsins gæti haft í för með sér skattskuldbindingu sem félagið myndi ekki ráða við að greiða. Því gæti nauðasamningurinn í raun kallað gjaldþrot yfir gamla Sjóvá með tilheyrandi skiptakostnaði. Á því höfðu kröfuhafarnir fjórir ekki áhuga. 8.2.2012 11:00
Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi Bjórmenning á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Fjöldi og fjölbreytileiki íslensks bjórs hefur aukist mikið og þá hafa árstíðabundnar bjórtegundir orðið æ vinsælli. Um þessar mundir eru um 50 tegundir af íslenskum bjór í boði í Vínbúðum en voru ekki nema helmingur þess fyrir fáum árum. Þróunina má ekki síst rekja til tilkomu minni 8.2.2012 11:00
Telur að hagur heimilanna muni vænkast Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt minnkandi en verðbólgan helst þó enn fremur há á þessu ári, en fer eftir það lækkandi. Staða heimilanna fer hægt batnandi og eru þau að byrja að rétta úr kútnum eftir þrengingar síðustu ára. 8.2.2012 11:00
Veltan á fasteignamarkaði jókst um 74% milli ára Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2012 var 372. Heildarvelta nam 11 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,4 milljónir króna. Þetta er tæplega 70% aukning á fjölda samninga og tæplega 74% aukning á veltunni miðað við janúar í fyrra. 8.2.2012 10:55
Meiri óvissa um verðbólgu Meiri óvissa er um verðbólgu núna en áður var, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann kynnir nú forsendur að baki vaxtaákvörðunar bankans á fundi sem fram fer í húsnæði Seðlabankans. 8.2.2012 10:51
Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti í ár Á þessu ári er spáð 2,5% hagvexti, einkum fyrir tilstuðlan aukinnar fjárfestingar. Framlag einkaneyslu er auk þess nokkurt, þótt það sé umtalsvert minna en í fyrra. 8.2.2012 10:47
Lán heimila niður um 196 milljarða árið 2011 - 33 milljarðar í frosti Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna frá stofnun nýju bankanna samkvæmt tilkynningu frá Samtöku fjármálafyrirtækja (SFF). 8.2.2012 10:19
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu fer aftur hækkandi. Tunnan af bandarisku léttolíunni er komin í tæpa 100 dollara og hefur hækkað um tæp 4% á nokkrum dögum. Tunnan af Brentolíunni fór yfir 116 dollara markið í morgun. 8.2.2012 10:07
Creditinfo veitir fyrirtækjum viðurkenningu Creditinfo mun veita fimm íslenskum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur þann 9. febrúar á Hótel Sögu. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra mun afhenda fyrirtækjunum viðurkenningu fyrir hönd Creditinfo. Er þetta annað árið í röð sem Creditinfo afhendir slíkar viðurkenningar til íslenskra fyrirtækja. 8.2.2012 09:23
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 4,75%. 8.2.2012 09:02
Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir að stækka Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir hefur stækkað hratt undanfarin misseri í Bandaríkjunum. Í undantekningatilfellum borga dýrar kvikmyndir sig og er þá hægt að græða mikla ef vel tekst til. 8.2.2012 08:53
Mikil fjölgun íslenskra ferðamanna í Danmörku Ferðum Íslendinga til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið af þeim fjölda gistinátta sem hagstofa Dana merkir Íslendingum. Í heildina fjölgaði gistinóttum í Danmörku um þrjá af hundraði. 8.2.2012 08:52
Nemendur fengu allir spjaldtölvur Danska sveitarfélagið Odder spjaldtölvuvæddi alla grunnskólanema og kennara. Kennslubækurnar settar beint inn á tölvurnar frá forlögum. Nemendurnir himinlifandi. Kennararnir segja þá einbeittari. 8.2.2012 08:00
Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilkynningu segir að sætanýtingin í janúar hefur aldrei verið hærri í þeim mánuði en hún var rúm 69% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára. 8.2.2012 06:40
Gullforði Seðlabankans jókst um tæpa 1,4 milljarða Verðmæti gullforða Seðlabankans jókst um tæplega 1,4 milljarða króna í janúar. Þetta kemur fram í efnahagsreikningi Seðlabankans. 8.2.2012 06:39
Bensínverðið rýfur 250 króna múrinn Skeljungur hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í gærkvöldi og kostar hann nú tæplega 251 krónu. Þetta er í fyrsta sinn sem bensínlítrinn fer í 250 krónur. 8.2.2012 06:36
Rekstur Toyota gekk vonum framar Rekstur japanska bílaframleiðandans Toyota gekk vonum fram á síðasta fjórðungi síðasta árs þrátt fyrir að hagnaður félagsins hafi dregist saman um 13,5 prósent miðað við sama tímabil árið á undan. Hagnaður Toyota var ríflega einn milljarður dala eða sem nemur 122 milljörðum króna. Búist hafði verið við því að hagnaðurinn myndi dragast meira saman en sú varð ekki raunin. 7.2.2012 20:18
Stjórnendur Iceland Foods ekki spenntir fyrir eignastýringarsjóðum Lykilstjórnendur Iceland Foods hafa ekki áhuga á að vinna hjá fyrirtækinu verði það í eigu eignastýringarsjóða en tveir slíkir skiluðu inn bindandi tilboðum í hlut slitastjórna Landsbankans og Glitnis í Iceland. Malcolm Walker, forstjóri Iceland, tengist hvorugum sjóðnum. 7.2.2012 18:40
Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, veffyrirtækisins Hugsmiðjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. 7.2.2012 22:39
Búast við að staða heimilanna batni ASÍ gerir ráð fyrir að hagvöxtur á nýliðnu ári hafi verið 3,1% eða nokkuð meiri en búist var við. Hann megi reki til aukningar í einkaneyslu og útfutningi. Almennt er gert ráð fyrir hægfara bata með um 1,4-2% hagvexti næstu þrjú ár. 7.2.2012 14:47
Enn hækkar gengi bréfa í Icelandair Gengi bréfa í Icelandair Group í kauphöllinni heldur áfram að hækka en gengið hefur hækkað um 1,83 prósent í dag og er það nú 5,55. Í gær hækkaði gengi bréfa félagsins um 2,83 prósent. 7.2.2012 14:05