Viðskipti innlent

Verðbólgan er innbyggð í íslenska hagkerfið

Stöðugleiki er ekki til í íslenska hagkerfinu þar sem verðbólgan er innbyggð í kerfið.

Sýnt er fram á þetta í mjög athyglisverðri umfjöllun í nýjasta fréttabréfi fjármálafyrirtækisins Júpiters. Bent er á að ekki komi á óvart að verðtryggðar eignir þeirra banka sem veitt hafa húsnæðislán í stórum stíl á Íslandi eru talsvert umfram verðtryggðar skuldbindingar. Í dag er þessi munur raunar 144 milljarðar í plús fyrir bankanna. Engar reglur gilda um verðtryggingarjöfnuð banka öfugt við gjaldeyrisjöfnuðinn.

Sem kunnugt er vegur fasteignaverð ansi þungt í útreikningi á verðbólgunni sem verið hefur 4,7% að meðaltali á ári frá 1991 til 2011. Tilvist verðtryggingar, sem tekur mið af þróun vísitölu neysluverðs, gerir bönkum kleift að búa til mikinn hagnað með því að dæla út nýjum húsnæðislánum með engu hámarki á lánsfjárhæð og háu veðhlutfalli ólíkt Íbúðalánasjóði sem miðaði við fasteignamat.

Ekki er loku fyrir það skotið að einhverjir íslensku bankanna hafi leikið þennan leik um og upp úr miðbiki síðasta áratugar þegar stærsta fasteignabóla íslenskrar hagsögu hóf að blása út, að því er segir í fréttabréfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×