Fleiri fréttir

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert frá því fyrir helgina. Bandarísk léttolían hefur lækkað um 2% og er komin niður í 98 dollara á tunnuna, Brentolían er komin niður í 110 dollara á tunnuna að nýju og hefur lækkað um rúmt prósent.

Kína reiðir sig 175,6% á Bandaríkin

Gordon Chang, sérfræðingur viðskiptatímaritsins Forbes í málefnum Kína og Asíu, segir að nýjustu tölur um vöruskiptajöfnuð Kína sýna að samband landsins við Bandaríkin sé að verða enn nánara en áður.

Hætta dreifingu á stelpu- og strákaís

Dreifingu á stelpu og strákaísum frá Emmessís hefur verið hætt vegna harðra viðbragða neytenda. Kvörtunum hefur ringt inn til framleiðandans sem íhugar nú alvarlega að stöðva framleiðslu vörunnar til frambúðar.

Bandaríkin sektuðu Icelandair

Samgönguráðuneytið í Bandaríkjunum sektaði Icelandair um 50 þúsund dali í síðustu viku fyrir að hafa brotið lög um flugsamgöngur og reglur ráðuneytisins um auglýsingar á verði flugferða. Upphæðin samsvarar 6,2 milljónum íslenskra króna.

Andrés prins kynnti sér íslenska framleiðslu

Íslenska fyrirtækið Mentor vakti verðskuldaða athygli á BETT sýningunni í Bretlandi fyrr í mánuðinum. Það voru ekki ómerkari menn en Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem heimsóttu íslenska básinn á sýningunni. Á sýningunni er öll helsta tækni í menntamálum kynnt. Mentor var þar til að kynna hugbúnað sitt sem einfaldar nemendum að setja sér markmið í námi og vinna eftir þeim.

Smíða fleiri borpalla sem ráða við Drekann

Olíufélög leggja nú aukna áherslu á smíði borpalla fyrir heimskautasvæði og mikið hafsdýpi. Fyrirsjáanlegur skortur á slíkum borpöllum gæti þó valdið því að enginn verði á lausu fyrir Drekasvæðið á næstu árum.

Norski bankinn DNB vill eignast Íslandsbanka

Norski bankinn DNB er einn þeirra sem aflað hefur upplýsinga um Íslandsbanka með möguleg kaup á banknum í huga. Formaður slitstjórnar Glitnis, eiganda bankans, segir of snemmt að segja til um það hvort bankinn verði seldur.

Sjálfstæð gagnvart kröfuhöfum

Monica Caneman hefur verið stjórnarformaður Arion banka í tæp tvö ár. Hún sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá upplifun sinni á íslenska bankageiranum, krefjandi verkefnum og að það megi vel kenna bönkunum um margt sem gerðist á Íslandi fyrir hrun.

Glæsihýsi Hannesar til sölu á 190 milljónir

Umtalað húsnæði Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi 11, í hjarta Reykjavíkur, er komið á sölu. Húsnæðið hefur orðið tilefni töluverðrar fjölmiðlaumfjöllunar, ekki síst vegna umfangsmikilla breytinga á húsinu og húsi númer 9 sem Hannes átti einnig.

Besti janúarmánuður í fimmtán ár

Það er útlit fyrir að þessi mánuður verði besti janúarmánuður í Kauphöllinni á Wall Street síðustu fimmtán árin. Óstöðugleikinn hefur ekki verið minni á markaðnum síðan í júlí síðastliðnum.

Yfir 800 milljarða hagnaður á þremur mánuðum

Hagnaður Microsoft, stærsta hugbúnaðarfyrirtækis í heimi, nam 6,64 milljörðum dollara á síðustu þremur mánuðum síðasta árs, eða sem nemur 823 milljörðum króna. Það er örlítil hagnaðarminnkun frá sama tímabili ársins á undan.

Rétt rúmlega helmingur andvígur upptöku evrunnar

Vefsíðan Andríki kannaði viðhorf Íslendinga til upptöku evrunnar sem gjaldmiðils Íslands. Helstu niðurstöður eru þær að 28 prósent landsmanna eru fylgjandi upptöku evru sem gjaldmiðils. Aftur á móti eru 52 prósent því andvíg. Hinsvegar eru 20 prósent hvorki fylgjandi né andvíg.

Evran veikist og dollar styrkist

Þó íslenska hagkerfið sé um margt ágætlega varið fyrir væringum á alþjóðamörkuðum, m.a. vegna gjaldeyrishafta, þá hafa sveiflur á mörkuðum erlendis birst undanfarin misseri í því hvert gengi krónunnar er gagnvart helstu erlendu gjaldmiðlum.

Algjör Sveppi vinsælasta íslenska myndin - bíógestum fækkar á milli ára

Bíógestum fækkar hér á landi um tæp 3 prósent á milli ára samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Heildartekjur fara hinsvegar upp um eitt prósent miðað við árið 2010. Árið 2011 voru seldir ein og hálf milljón bíómiða yfir rétt tæplega einn og hálfan milljarð króna í kvikmyndahúsum á Íslandi.

Íslensk steinsteypa vekur athygli í Abu Dhabi

Umhverfisvæn steinsteypa sem Ólafur H. Wallevik prófessor hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og erlendir samstarfsaðilar hafa þróað hefur vakið mikla athygli á Heimsþingi hreinnar orku sem nú stendur yfir í Abu Dhabi.

Aflaverðmætið jókst um 13 milljarða milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 127,2 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins í fyrra samanborið við 114 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 13,2 milljarða króna eða 11,6% á milli ára.

Danska bankahrunið að verða stærra en það íslenska

Ef einn danskur banki, eða sparisjóður, í viðbót kemst í þrot í Danmörku er danska bankahrunið orðið meira en það íslenska. Þetta kemur fram í umfjöllun danska viðskiptaritsins Ugebrevet A4. Þegar hafa 10 danskir bankar fallið frá hruninu haustið 2008.

Allir starfsmenn IKEA í heiminum fá bónus

Ingvar Kamprad stofnandi og aðaleigandi IKEA verslunarkeðjunnar segir að allir 126.000 starfsmenn IKEA í heiminum, þar á meðal á Íslandi, eigi að fá bónusa í samræmi við árangur keðjunnar.

Meirihluti landsmanna andvígur evrunni

Liðlega helmingur landsmanna, eða 52 prósent, er andvígur því að taka upp evruna sem gjaldmiðil landsins, samkvæmt könnun, sem MMR gerði fyrir Andríki. 28 prósent eru þvi fylgjandi og 20 prósent eru því hvorki fylgjandi né andvíg.

Einn þingmaður tók Warren Buffett á orðinu

Ofurfjárfesturinn Warren Buffett skoraði nýlega á þingmenn Repúblikanaflokksins að gefa hluta af launum sínum í ríkissjóð til að styrkja afleita stöðu sjóðsins. Buffett myndi leggja fram sömu upphæð sjálfur. Einn þeirra tók Buffett strax á orðinu.

Forstjóri Icelandair segir Inspired by Iceland hafa skipt sköpum

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að markaðsherferðin Inspired by Iceland, sem ráðst var í eftir að gosinu í Eyjafallajökli lauk, hafi skipt sköpum til að rétta af ferðamannaiðnaðinn eftir áfallið sem dundi yfir með gosinu. Hann segir að hrun hafi blasað við í bókunum á ferðum til Íslands áður en ráðist var í herferðina.

Róbert Spanó var ráðgjafi verjanda Baldurs Guðlaugssonar

Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjanda Baldurs Guðlaugssonar ráðgjöf um málarekstur á hendur honum eftir að gefin var út ákæra í málinu, en Róbert hefur gagnrýnt niðurstöður Hæstaréttar um að heimila rannsókn málsins eftir að Fjármálaeftirlitið hafði tilkynnt Baldri að rannsókn væri lokið.

Markaðir einkenndust af grænum tölum

Hlutabréfamarkaðir einkenndust víðast hvar af grænum tölum í dag. Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu á bilinu 1 til 2 prósent, þar af nam hækkun Nasdaq vísitölunnar 0,67 prósentum.

Vilja byggja heilsuþorp á Flúðum fyrir Kínverja og hagsmunasamtök

"Þetta er jákvætt og skemmtilegt verkefni og passar vel við ímyndina okkar, segir Jón G. Valgeirsson, sveitastjóri á Flúðum, en dagblaðið Sunnlenska greindi frá því í dag að kínverskir fjárfestar vilja byggja upp heilsuþorp á Flúðum og leggja til þess 6,5 til 7 milljarða króna. Sveitarfélagið mun leggja til landið Gröf sem er um sjö hektara svæði við Litlu-Laxá.

Guðmundur Arnar til Wow

Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Wow air. Meginverkefni hans hjá Wow verður að byggja upp markaðsstarf félagsins bæði heima og erlendis en Wow hefur, sem kunnugt er, flug frá Íslandi til 12 áfangastaða í Evrópu þann 1. júní næstkomandi. Guðmundur hefur starfað hjá Icelandair frá árinu 2006. Hann er menntaður hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Vodafone segir upp 28 manns

Stjórnendur fjarskiptafyrirtækisins Vodafone sögðu í dag upp 28 manns. Ástæðan er sögð vera hagræðing í rekstri. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir miklar kostnaðarhækkanir hafa dunið á fyrirtækinu á undanförnum misserum. Þær hagræðingaraðgerðir sem þegar hafi verið gripið til hafi ekki dugað og því hafi þurft að grípa til þessara aðgerða.

eBay með methagnað fyrir jól í fyrra

Netfyrirtækið eBay skilaði methagnaði á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Heildartekjurnar á fyrrnefndu tímabili námu tæplega tveimur milljörðum dollara, tæplega 260 milljörðum króna, samanborið við 559 milljónir dollara tekjur árið undan, eða sem nemur tæplega 72 milljörðum króna. Tekjurnar því meira en þrefölduðust.

4,5 milljónir mótmæltu SOPA hjá Google

Tölvurisinn Google segir að fjórar og hálf milljón manna hafi skrifað undir áskorun til þingmanna á Bandaríkjaþingi þess efnis að komið verði í veg fyrir að tvö frumvörp sem tryggja eiga hugverkarétt á Netinu verði samþykkt.

Verslunarmenn og iðnaðarmenn vilja að samningarnir haldi

Bæði Landssamband íslenskra verslunarmanna og Samiðn vilja að kjarasamningar sem ASÍ gerði í maí í síðastliðnum mánuði haldi, en tekin verður ákvörðun um það á morgun hvort samningunum verður sagt upp eða ekki. ASÍ mun halda formannafund i dag þar sem sjónarmiðum Samiðnar verður komið á framfærum. Miðstjórn Samiðnar skorar hins vegar á ríkisstjórnina að breyta orðum í athafnir og standa við gefin fyrirheit um eflingu atvinnulífs og jöfnun lífeyrisréttinda.

Íslandsbanki veitir nýsköpunarstyrki upp á 8 milljónir

Íslandsbanki hefur ákveðið að styrkja sprotafyrirtækið GÍRÓ um þrjár milljónir króna og menntastofnanir innan íslenska sjávarklasans svokallaða um fimm milljónir. Bankinn hefur lagt áherslu á þessi tvö svið í sinni starfsemi, þ.e. orkuiðnað og sjávarútveg.

Spáir því að verðbólgan fari í 6,2%

Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan fari í 6,2% í janúar. Þetta er umtalsverð hækkun frá desember þegar verðbólgan mældist 5,3%.

Tapa alltaf á fyrsta og fjórða í skjóli tekna sumarsins

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að Icelandair tapi nær alltaf á fyrsta og fjórða ársfjórðungi, vetrarflugið sé þannig. Hins vegar borgi það sig að vera með öfluga starfsemi yfir veturinn því það skili sér margfalt yfir sumartímann.

Indverjar tvöfalda tolla á innflutningi á gulli og silfri

Stjórnvöld á Indlandi hafa ákveðið að hækka innflutningstolla á gulli um 90% og á silfri um 100%. Þar sem Indland er annar stærsti innflytjandi heimsins á gulli er talið að þetta muni hafa áhrif til lækkunnar á heimsmarkaðsverði þess.

Kodak sækir um greiðslustöðvun

Eastman Kodak, fyrirtækið sem fann upp myndavélar eins og þær eru í núverandi mynd, hefur sótt um greiðslustöðvun. Það þýðir að lánadrottnar fyrirtækisins geta ekki sótt um að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið mun því fá gálgafrest til þess að endurskipuleggja fjárhag sinn. BBC fréttastofan segir að fyrirtækið sé hætt, í það minnsta um stundarsakir, að þróa myndavélar og er nú mest í framleiðslu á tölvuprenturum. Fyrirtækið hefur átt í mestu erfiðleikum með að halda í við samkeppnisaðila um að þróa starfræna tækni.

Sjá næstu 50 fréttir