Viðskipti innlent

Vodafone segir upp 28 manns

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stjórnendur fjarskiptafyrirtækisins Vodafone sögðu í dag upp 28 manns. Ástæðan er sögð vera hagræðing í rekstri. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir miklar kostnaðarhækkanir hafa dunið á fyrirtækinu á undanförnum misserum. Þær hagræðingaraðgerðir sem þegar hafi verið gripið til hafi ekki dugað og því hafi þurft að grípa til þessara aðgerða.

Í tillkynningu frá Vodafone segir að uppsagnirnar muni ekki hafa áhrif á þjónustu við viðskiptavini, en að þeim loknum séu starfsmenn Vodafone um 390 talsins. Starfsmenn sem misstu störf sín í dag fá greidd laun út uppsagnarfrestinn og halda umsömdum hlunnindum, án þess að vinnuframlags sé óskað á móti. Þá býðst þeim einnig ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit, sér að kostnaðarlausu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×