Vilja byggja heilsuþorp á Flúðum fyrir Kínverja og hagsmunasamtök 19. janúar 2012 16:02 Frá Flúðum. „
Þetta er jákvætt og skemmtilegt verkefni og passar vel við ímyndina okkar, segir Jón G. Valgeirsson, sveitastjóri á Flúðum, en dagblaðið Sunnlenska greindi frá því í dag að kínverskir fjárfestar vilja byggja upp heilsuþorp á Flúðum og leggja til þess 6,5 til 7 milljarða króna. Sveitarfélagið mun leggja til landið Gröf sem er um sjö hektara svæði við Litlu-Laxá. Að sögn Jóns mun sveitarfélagið ekki leggja til fé í uppbygginguna, eingöngu landið. Málið hefur verið samþykkt hjá bæjarstjórn auk þess sem viljayfirlýsing hefur verið gefin út. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið yfir í árabil. Sá sem fer fyrir verkefninu er fyrrverandi þingmaðurinn Árni Gunnarsson, en hann er formaður stjórnar Heilsuþorpsins á Flúðum ehf. Í Sunnlenska í dag er rætt við Árna. Þar segir að fyrirtæki Árna hafi átt í viðræðum við kínverska fyrirtækið CSST International um að gerast hluthafi í Heilsuþorpinu og taka þátt í byggingu þjónustukjarna þar sem yrði meðal annars fjöldi íbúðabygginga ásamt þjónustubyggingu sem myndi hýsa læknaþjónustu, veitingahús, líkamsrækt, nudd, hótel og fleira. Áform um bygginguna hafa verið kynnt umhverfisráðuneytinu og í gangi er rannsókn á náttúrufari og fornleifaskráning innan lands Grafar, þar sem byggð hefur verið í aldaraðir. Viðskiptahugmyndin byggir meðal annars á því að byggðir verða kofar sem hagsmunasamtök munu eiga. Kínverjarnir hafa einnig áhuga á að senda fólk hingað til lands í þeim tilgangi að landar þeirra geti notið heilsuþorpsins. Rætt hafi verið við ferðaskrifstofur erlendis sem selja fólki heilsutengda þjónustu og þær sýnt verkefninu mikinn áhuga. „Þetta er afar stórt fyrirtæki," segir Árni um CSST International í viðtali við Sunnlenska. Eftir því sem næst verður komist hefur fyrirtækið í auknum mæli fjármagnað ýmis verkefni í Kína, Ástralíu og víðar en hefur einnig sérhæft sig í rafrænni og stafrænni tækni.
Tengdar fréttir Kínverjar vilja reisa heilsuþorp á Flúðum fyrir 6-7 milljarða Kínverskir aðilar vilja leggja fjármuni í byggingu heilsuþorps á Flúðum, að líkindum um 6,5 til 7 milljarða króna. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.is. 19. janúar 2012 15:30 Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Kínverjar vilja reisa heilsuþorp á Flúðum fyrir 6-7 milljarða Kínverskir aðilar vilja leggja fjármuni í byggingu heilsuþorps á Flúðum, að líkindum um 6,5 til 7 milljarða króna. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.is. 19. janúar 2012 15:30