Fleiri fréttir Skipti tapa 400 milljónum á sölu Tæknivara Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Tæknivörum ehf. til Eignarhaldsfélagsins Tækni ehf. Með umsjón söluferlisins fór MP banki og er kaupverðið trúnaðarmál á milli aðila. Sölutap Skipta vegna sölunnar er áætlað um 400 milljónir króna. 9.8.2011 15:00 Wall Street opnar í plús Markaðir á Wall Street opnuðu í plús eftir hádegið eins og raunar síðustu utanmarkaðaviðskipti höfðu bent til. Dow Jones hækkaði um 1% og Nasdag um 1,5%. 9.8.2011 13:53 Fáránlegasti dagurinn á markaðinum í 12 ár Frá bjartsýni til örvæntingar aftur og aftur. Henrik Drusebjerg forstöðumaður Nordea Markets hefur aldrei séð annað eins á 12 ára ferli sínum í fjármálageiranum. Hann segir daginn í dag þann fáránlegasta sem hann hafi upplifað á markaðinum á þessum ferli sínum. Þá er meðtalinn tíminn haustið 2008 þegar Lehman Brothers féll og fjármálakreppan hófst. 9.8.2011 13:38 Millibankalán í Evrópu á leið í frostið Mælingar sýna að evrópskir bankar eru orðnir mun tregari en áður að lána hvor öðrum. Þetta er það sama og gerðist í aðdraganda að falli Lehman Brothers haustið 2008 sem talið er marka upphafið að fjármálakreppunni sem hófst þá. 9.8.2011 13:10 Tvær hagnýtar námskeiðslínur á sviði reksturs og þjónustu Endurmenntun Íslands býður upp á tvær spennandi og hagnýtar námskeiðslínur. Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþættir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukkustunda nám," segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. 9.8.2011 12:23 Gróska í Forsælu Hlín Gunnarsdóttir sótti námskeiðslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, og sér ekki eftir því. 9.8.2011 12:23 Mikil aðsókn í Förðunarskólann 9.8.2011 12:23 Lífeyrissjóðir tapa tugum milljarða í hruninu Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa að öllum líkindum tapað tugum milljarða kr. á hruninu sem stendur yfir á helstu hlutabréfamörkuðum heimsins. 9.8.2011 12:05 Miklar sveiflur fyrir opnun markaða á Wall Street Miklar sveiflur hafa verið á verði hlutabréfa í utanmarkaðsviðskiptum í Bandaríkjunum fyrir opnun markaðanna á Wall Street eftir hádegið. 9.8.2011 11:45 Gullforði Íslands hækkaði um milljarð í júlí Gullforði Íslands hækkaði um milljarð kr. í júlímánuði. Verðmæti gullforðans nemur nú rétt rúmum 12 milljörðum kr. 9.8.2011 11:11 Verðlækkanir á korni framundan Töluverðar verðlækkanir á korni eru framundan eða um 10%. Þetta skýrist m.a. af verulegri aukningu á kornuppskeru Rússlands í ár. 9.8.2011 11:05 Eins og að hlusta á Atla Húnakonung ræða um mannréttindi George Monbiot dálkahöfundur hjá Guardian segir að þegar ESB segi Íslendingum og Færeyingum að þeir eigi að stunda "ábyrga nútíma fiskveiðistjórnun" sé það eins og að þurfa að hlusta á fyrirlestur um mannréttindi hjá Atla Húnakonungi. 9.8.2011 10:22 Skuldatryggingaálag Íslands rýkur upp að nýju Skuldatryggingaálag Íslands hefur rokið upp að nýju á síðustu tveimur dögum. Álagið mælist nú 297 punktar samkvæmt CMA og Bloomberg fréttaveitunni og birt er á vefsíðunni keldan.is. 9.8.2011 10:06 Fjögur AAA fyrirtæki eftir í Bandaríkjunum Sem stendur eru fjögur fyrirtæki í Bandaríkjunum með lánshæfiseinkunnina AAA, það er hærri einkunn en landið sjálft. Þetta eru Automatic Data Processing, Exxon Mobil, Johnson & Johnson og Microsoft. 9.8.2011 09:48 Viðsnúningur reyndist svikalogn, staðan hríðversnar Viðsnúningurinn á mörkuðum í morgun reyndist svikalogn. Utanmarkaðsviðskipti í morgun gáfu til kynna að markaðir vestanhafs myndu opna í grænum tölum en það hefur snúist við og nú sýna þessi viðskipti að opnunin verður í rauðum tölum. 9.8.2011 09:39 Olíuverðið hrapar áfram, gullverðið hækkar Heimsmarkaðsverð á olíu heldu áfram að hrapa á mörkuðum heimsins. Bandaríska léttolían er komin niður í 78 dollara á tunnuna og hefur lækkað um 3,65% í morgun. Brent olían er komin í rúma 100 dollara á tunnuna og hefur einnig lækkað um tæp 4% í morgun. 9.8.2011 09:21 Vöruskiptin hagstæð um yfir 10 milljarða í júlí Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí síðastliðnum var útflutningur 52,5 milljarðar króna og innflutningur 42,1 milljarður króna. Vöruskiptin í júlí voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 9.8.2011 09:02 Fréttaskýring: Skuldakreppan í Evrópu magnast Hlutabréfaverð hefur hrunið í helstu kauphöllum að undanförnu. Að baki liggja áhyggjur af framtíð evrusvæðisins og hagvaxtarhorfum á Vesturlöndum. Jafnframt virðast fjárfestar verða sífellt svartsýnni á að það takist að leysa fyrirliggjandi vanda. Fréttablaðið heldur áfram að fjalla um titringinn á mörkuðum og tekur hér fyrir evrópsku skuldakreppuna. 9.8.2011 08:55 Orðrómur um 10 milljarða dollara gróða á lánshæfislækkun Dularfullur fjárfestir eða vogunarsjóður er sagður hafa hagnast um 10 milljarða dollara, eða um tæplega 1.160 milljarða kr. á því að veðja á að Standard & Poor´s lækkaði topplánshæfiseinkunn Bandaríkjanna. George Soros þykir líklegur sem þessi fjárfestir. 9.8.2011 08:48 Viðsnúningur í vændum á mörkuðum vestanhafs Viðsnúningur er í vændum á mörkuðum vestanhafs þegar þeir opna eftir hádegið. Þetta kemur fram á CNN Money þar sem vísað er í utanmarkaðsviðskipti fyrir opnunina. 9.8.2011 08:10 Fjármálaráðuneytið segir aðeins hálfa sögu um Spkef Árný J. Guðmundsdóttir lögfræðingur segir að fjármálaráðuneytið segi aðeins hálfa söguna hvað varðar lagalegar heimildir ráðuneytisins til að stofna Spkef sparisjóð. Árný hefur fjallað um málefni Spkef í Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu þar sem fram kom að lagaheimildir hafi skort fyrir stofnun Spkef. 9.8.2011 08:00 Heimsmarkaðsverð á olíu hríðlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðlækkað undanfarna daga. Brent olían er komin niður í 102,5 dollara á tunnuna en þegar verð hennar var hæst í febrúar s.l. náði það 127 dollurum á tunnuna. 9.8.2011 07:48 Markaðir rétta aðeins úr kútnum Óróinn á fjármálamörkuðum heldur áfram og hefur verð á hlutabréfum lækkað mikið í Asíu í morgun en verðið fór þó hækkandi við lok viðskipta. Evrópumarkaðir voru einnig nokkuð stöðugir við opnun. 9.8.2011 07:44 Skuldakreppan gæti haft nokkur áhrif á íslenskt hagkerfi Miklar skuldir vestrænna ríkja og kreppan sem fylgir þeim gætu haft nokkur áhrif á íslenskt hagkerfi. Líklegt er að þrýstingur komi á verð okkar helstu útflutningsvara, en verulegur hluti sjávarafurða og ferðaþjónustu okkar telst til munaðarvara. Með slíkar vörur hefur minnkun á eftirspurn allajafna mikil áhrif til verðlækkunar. 9.8.2011 07:39 Bensínið lækkar enn frekar Íslensku olíufélögin fóru eitt af öðru að lækka eldsneytisverð í gær, bensínlítrann um tvær krónur og dísellítrann um eina krónu. Olíuverð á heimsmarkaði hefur lækkað ört undanfarna sólarhringa í takt við lækkun á verðbréfamörkuðum og samkvæmt því gæti eldsneytisverð lækkað enn frekar hér á landi á næstu dögum. 9.8.2011 07:05 SÍMEY - skref til framtíðar Á Eyjafjarðarsvæðinu er fjöldi námskeiða í boði, bæði styttri og eins lengri námskeið sem veita starfsréttindi eða rétt til náms á hærri skólastigum. 9.8.2011 12:23 Góður undirbúningur fyrir háskóla Menntastoðir er krefjandi námsleið í boði hjá Mími símenntun. "Nám í menntastoðum er fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi en eru orðnir 23 ára og vilja komast inn í undirbúningsdeildir háskólanna," segir Anney Þ. Þorvaldsdóttir verkefnastjóri. 9.8.2011 12:23 Grunnstoðir - fyrir nemendur með lestrarerfiðleika 9.8.2011 12:23 Rosalega góður félagsskapur í SÍMEY Ég var síðast í námi í öldungadeild Gaggans fyrir 25 árum þannig að það var mikið átak fyrir mig að stökkva aftur af stað.“ segir Ágústína Söebech, sem unnið hefur í Frístund í Síðuskóla í rúm tíu ár. 9.8.2011 12:23 Markaðir hrynja Hlutabréfverð í Bandaríkjunum hefur ekki verið lægra í rúmlega tvö ár, eða síðan í desember 2008. Þegar markaðir lokuðu í dag hafði Dow Jones-vísitalan lækkað 632 stig eða um 5,5 prósent. 8.8.2011 20:40 Slitastjórn Kaupþings ætlar á eftir Hreiðari Má Æðstu stjórnendur Kaupþings sem skulduðu bankanum mest vegna hlutabréfakaupa hafa lítinn vilja sýnt til að semja um skuldirnar ólíkt þeim sem voru með lægri fjárhæðir. Slitastjórn Kaupþings telur að Hreiðar Már Sigurðsson hafi ekki réttilega stofnað félag utan um skuldir sínar. 8.8.2011 18:30 Fjármálaráðherra mátti stofna Spkef samkvæmt neyðarlögunum Fjármálaráðherra var heimilt samkvæmt neyðarlögunum svonefndu að stofna Spkef sparisjóð í því skyni að taka við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík. Þetta er áréttað á vef ráðuneytisins í tilefni af umfjöllun um að fjármálaráðherra hafi ekki haft slíka heimild. Ráðherra vísar í fyrstu grein laga númer 125 frá 2008, iðulega nefnd neyðarlög, máli sínu til stuðnings. Í greininni segir: „Við sérstakar og mjög óvenjulegar aðstæður á fjármálamarkaði er fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að reiða fram fjármagn til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yfirtaka fjármálafyrirtæki eða þrotabú þess í heild eða að hluta." Á vefnum segir að augljóslega sé rangt að halda því fram að heimildir fjármálaráðherra samkvæmt framangreindu ákvæði séu bundnar við að stofna hlutafélag fremur en sparisjóð. Hugtakið fjármálafyrirtæki sé ekki bundið við tiltekið félagaform, en samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki geta fjármálafyrirtæki verið annað hvort hlutafélög eða sparisjóðir. 8.8.2011 15:43 Forstjóri Sjóvár hættir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Lárus var ráðinn til Sjóvár fyrir tæpum tveimur árum í kjölfar endurskipulagningar á félaginu og veitti því forystu á erfiðum tímum. Lárus segist hafa ákveðið að hætta í framhaldi af því að ný stjórn tók við félaginu „Vandasömu en árangursríku breytingaferli er lokið og ég tel eðlilegt að nýir eigendur með nýjar áherslur ráði forstjóra. Sjóvá stendur traustum fótum með góðan vátryggingarekstur. Viðskiptavinir hafa staðið með félaginu og það eru spennandi tímar framundan. Ég vil þakka öllu starfsfólki Sjóvár afar gott og metnaðarfullt samstarf og lít stoltur og ánægður um öxl," segir hann í tilkynningu frá Sjóvá. Erna Gísladóttir stjórnarformaður Sjóvá, segir Lárus hafa unnið mikilvægt starf fyrir fyrirtækið. „Lárus hefur unnið mjög mikilvægt starf fyrir Sjóvá. Hann var ráðinn til að stýra fyrirtækinu í gegnum ólgusjó óvissu og umbreytinga og það fórst honum vel úr hendi. Við óskum Lárusi velfarnaðar," segir hún. Ólafur Njáll Sigurðsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs er staðgengill forstjóra. 8.8.2011 15:16 Lækkun á Wall Street eins og spáð hafði verið Verð á hlutabréfum lækkaði við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eins og búist hafði verið við. Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni á föstudaginn eftir að markaðir lokuðu og spár um lækkun gengu eftir. Dow Jones vísitalan lækkaði um tæp tvö prósent í fyrstu viðskiptum dagsins klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og Nasdaq vísitalan lækkaði um 3,35 prósent. 8.8.2011 13:46 Laun meðalmanns hækka á níu mánaða fresti Laun meðalstarfsmanns á Íslandi breytast á níu mánaða fresti, en nánast allar launabreytingar hér á landi eru hækkanir. Að meðaltali nemur hver launahækkun rúmum sex prósentum. 8.8.2011 13:14 Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. 8.8.2011 12:13 Evrópumarkaðir taka við sér Hlutabréf á mörkuðum um allan heim hafa lækkað í morgun eftir að Standard og Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn var. Í Evrópu hækkaði verðið þó þegar liðið hefur á morguninn. 8.8.2011 07:39 Verðfall á mörkuðum í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu og í Ástralíu lækkuðu mikið í morgun en þetta voru fyrstu markaðirnir til að opna eftir að Standard & Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn. 8.8.2011 06:59 Útflutningsverðmætið mun hækka um 16 milljarða Útflutningsverðmæti sjávarafurða mun hækka um 16 milljarða króna á þessu ári frá því síðasta og um fjóra milljarða króna til viðbótar á árinu 2012. Þetta kemur fram í greiningu sjávarútvegsteymis Íslandsbanka í dag. Aukningin nemur því um 9% og mun hafa jákvæð áhrif á þjóðarbúið. Aukningin er tilkomin vegna aukinna aflaheimilda, og þá aðallega í þorski, alþjóðlegum verðhækkunum á fiski og stöðugri krónu. 7.8.2011 14:07 Bresk sveitarfélög fá um 90% til baka Nú er búist við því að sveitastjórnir sem lögðu peninga inn á reikninga íslenskra banka í Bretlandi fyrir bankahrun muni fá um 90% af fé sínu til baka. 7.8.2011 13:57 Hittast á neyðarfundi til að ræða stöðuna á mörkuðum Stjórn Seðlabanka Evrópu mun koma saman á neyðarfundi í dag til þess að ákveða hvort bankinn eigi að kaupa skuldir ítalska ríksins til þess að reyna að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum. Robert Peston, viðskiptafréttamaður hjá BBC fréttastofunni, segir að stjórnin sé klofin í afstöðu sinni til málsins. 7.8.2011 10:58 Vandinn í Evrópu bráðari en í Bandaríkjunum Matsfyrirtækið Standard og Poors lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna úr efsta þrepi í næstefsta seint í gærkvöld. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur segir að afleiðingarnar verði fyrst og fremst pólitískar. Skuldavandinn í Evrópu sé mun bráðari en skuldavandinn í Bandaríkjunum. 6.8.2011 12:10 Lánshæfismat Bandaríkjanna lækkað Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfismat bandaríska ríkisins í gærkvöld. Matið var fært úr efsta þrepi, eða AAA í næstefsta þrep sem er AA+, með neikvæðum horfum. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem lánshæfismat Bandaríkjanna er lækkað. Ástæðan er áhyggjur af hallarekstri Bandaríkjanna. 6.8.2011 07:30 Íslensk skyndibitakeðja í útrás Saffran veitingastaðakeðjan opnaði sinn fyrsta veitingastað erlendis í dag. Staðurinn er í Orlando, skammt frá Florida Mall. Á vefsíðu Saffran kemur fram að staðurinn er byggður í samræmi við staðina á Íslandi lítur því svipað út. 5.8.2011 23:14 Obama: Við munum komast í gegnum þetta Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýjum tölum um atvinnuþáttöku/atvinnuleysi sem birtust í Bandaríkjunum í dag. Hann leggur áherslu á að skapa þurfi enn fleiri störf til þess að efnahagslífið blómstri. 5.8.2011 21:33 Sjá næstu 50 fréttir
Skipti tapa 400 milljónum á sölu Tæknivara Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Tæknivörum ehf. til Eignarhaldsfélagsins Tækni ehf. Með umsjón söluferlisins fór MP banki og er kaupverðið trúnaðarmál á milli aðila. Sölutap Skipta vegna sölunnar er áætlað um 400 milljónir króna. 9.8.2011 15:00
Wall Street opnar í plús Markaðir á Wall Street opnuðu í plús eftir hádegið eins og raunar síðustu utanmarkaðaviðskipti höfðu bent til. Dow Jones hækkaði um 1% og Nasdag um 1,5%. 9.8.2011 13:53
Fáránlegasti dagurinn á markaðinum í 12 ár Frá bjartsýni til örvæntingar aftur og aftur. Henrik Drusebjerg forstöðumaður Nordea Markets hefur aldrei séð annað eins á 12 ára ferli sínum í fjármálageiranum. Hann segir daginn í dag þann fáránlegasta sem hann hafi upplifað á markaðinum á þessum ferli sínum. Þá er meðtalinn tíminn haustið 2008 þegar Lehman Brothers féll og fjármálakreppan hófst. 9.8.2011 13:38
Millibankalán í Evrópu á leið í frostið Mælingar sýna að evrópskir bankar eru orðnir mun tregari en áður að lána hvor öðrum. Þetta er það sama og gerðist í aðdraganda að falli Lehman Brothers haustið 2008 sem talið er marka upphafið að fjármálakreppunni sem hófst þá. 9.8.2011 13:10
Tvær hagnýtar námskeiðslínur á sviði reksturs og þjónustu Endurmenntun Íslands býður upp á tvær spennandi og hagnýtar námskeiðslínur. Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþættir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukkustunda nám," segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. 9.8.2011 12:23
Gróska í Forsælu Hlín Gunnarsdóttir sótti námskeiðslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, og sér ekki eftir því. 9.8.2011 12:23
Lífeyrissjóðir tapa tugum milljarða í hruninu Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa að öllum líkindum tapað tugum milljarða kr. á hruninu sem stendur yfir á helstu hlutabréfamörkuðum heimsins. 9.8.2011 12:05
Miklar sveiflur fyrir opnun markaða á Wall Street Miklar sveiflur hafa verið á verði hlutabréfa í utanmarkaðsviðskiptum í Bandaríkjunum fyrir opnun markaðanna á Wall Street eftir hádegið. 9.8.2011 11:45
Gullforði Íslands hækkaði um milljarð í júlí Gullforði Íslands hækkaði um milljarð kr. í júlímánuði. Verðmæti gullforðans nemur nú rétt rúmum 12 milljörðum kr. 9.8.2011 11:11
Verðlækkanir á korni framundan Töluverðar verðlækkanir á korni eru framundan eða um 10%. Þetta skýrist m.a. af verulegri aukningu á kornuppskeru Rússlands í ár. 9.8.2011 11:05
Eins og að hlusta á Atla Húnakonung ræða um mannréttindi George Monbiot dálkahöfundur hjá Guardian segir að þegar ESB segi Íslendingum og Færeyingum að þeir eigi að stunda "ábyrga nútíma fiskveiðistjórnun" sé það eins og að þurfa að hlusta á fyrirlestur um mannréttindi hjá Atla Húnakonungi. 9.8.2011 10:22
Skuldatryggingaálag Íslands rýkur upp að nýju Skuldatryggingaálag Íslands hefur rokið upp að nýju á síðustu tveimur dögum. Álagið mælist nú 297 punktar samkvæmt CMA og Bloomberg fréttaveitunni og birt er á vefsíðunni keldan.is. 9.8.2011 10:06
Fjögur AAA fyrirtæki eftir í Bandaríkjunum Sem stendur eru fjögur fyrirtæki í Bandaríkjunum með lánshæfiseinkunnina AAA, það er hærri einkunn en landið sjálft. Þetta eru Automatic Data Processing, Exxon Mobil, Johnson & Johnson og Microsoft. 9.8.2011 09:48
Viðsnúningur reyndist svikalogn, staðan hríðversnar Viðsnúningurinn á mörkuðum í morgun reyndist svikalogn. Utanmarkaðsviðskipti í morgun gáfu til kynna að markaðir vestanhafs myndu opna í grænum tölum en það hefur snúist við og nú sýna þessi viðskipti að opnunin verður í rauðum tölum. 9.8.2011 09:39
Olíuverðið hrapar áfram, gullverðið hækkar Heimsmarkaðsverð á olíu heldu áfram að hrapa á mörkuðum heimsins. Bandaríska léttolían er komin niður í 78 dollara á tunnuna og hefur lækkað um 3,65% í morgun. Brent olían er komin í rúma 100 dollara á tunnuna og hefur einnig lækkað um tæp 4% í morgun. 9.8.2011 09:21
Vöruskiptin hagstæð um yfir 10 milljarða í júlí Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí síðastliðnum var útflutningur 52,5 milljarðar króna og innflutningur 42,1 milljarður króna. Vöruskiptin í júlí voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 9.8.2011 09:02
Fréttaskýring: Skuldakreppan í Evrópu magnast Hlutabréfaverð hefur hrunið í helstu kauphöllum að undanförnu. Að baki liggja áhyggjur af framtíð evrusvæðisins og hagvaxtarhorfum á Vesturlöndum. Jafnframt virðast fjárfestar verða sífellt svartsýnni á að það takist að leysa fyrirliggjandi vanda. Fréttablaðið heldur áfram að fjalla um titringinn á mörkuðum og tekur hér fyrir evrópsku skuldakreppuna. 9.8.2011 08:55
Orðrómur um 10 milljarða dollara gróða á lánshæfislækkun Dularfullur fjárfestir eða vogunarsjóður er sagður hafa hagnast um 10 milljarða dollara, eða um tæplega 1.160 milljarða kr. á því að veðja á að Standard & Poor´s lækkaði topplánshæfiseinkunn Bandaríkjanna. George Soros þykir líklegur sem þessi fjárfestir. 9.8.2011 08:48
Viðsnúningur í vændum á mörkuðum vestanhafs Viðsnúningur er í vændum á mörkuðum vestanhafs þegar þeir opna eftir hádegið. Þetta kemur fram á CNN Money þar sem vísað er í utanmarkaðsviðskipti fyrir opnunina. 9.8.2011 08:10
Fjármálaráðuneytið segir aðeins hálfa sögu um Spkef Árný J. Guðmundsdóttir lögfræðingur segir að fjármálaráðuneytið segi aðeins hálfa söguna hvað varðar lagalegar heimildir ráðuneytisins til að stofna Spkef sparisjóð. Árný hefur fjallað um málefni Spkef í Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu þar sem fram kom að lagaheimildir hafi skort fyrir stofnun Spkef. 9.8.2011 08:00
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðlækkað undanfarna daga. Brent olían er komin niður í 102,5 dollara á tunnuna en þegar verð hennar var hæst í febrúar s.l. náði það 127 dollurum á tunnuna. 9.8.2011 07:48
Markaðir rétta aðeins úr kútnum Óróinn á fjármálamörkuðum heldur áfram og hefur verð á hlutabréfum lækkað mikið í Asíu í morgun en verðið fór þó hækkandi við lok viðskipta. Evrópumarkaðir voru einnig nokkuð stöðugir við opnun. 9.8.2011 07:44
Skuldakreppan gæti haft nokkur áhrif á íslenskt hagkerfi Miklar skuldir vestrænna ríkja og kreppan sem fylgir þeim gætu haft nokkur áhrif á íslenskt hagkerfi. Líklegt er að þrýstingur komi á verð okkar helstu útflutningsvara, en verulegur hluti sjávarafurða og ferðaþjónustu okkar telst til munaðarvara. Með slíkar vörur hefur minnkun á eftirspurn allajafna mikil áhrif til verðlækkunar. 9.8.2011 07:39
Bensínið lækkar enn frekar Íslensku olíufélögin fóru eitt af öðru að lækka eldsneytisverð í gær, bensínlítrann um tvær krónur og dísellítrann um eina krónu. Olíuverð á heimsmarkaði hefur lækkað ört undanfarna sólarhringa í takt við lækkun á verðbréfamörkuðum og samkvæmt því gæti eldsneytisverð lækkað enn frekar hér á landi á næstu dögum. 9.8.2011 07:05
SÍMEY - skref til framtíðar Á Eyjafjarðarsvæðinu er fjöldi námskeiða í boði, bæði styttri og eins lengri námskeið sem veita starfsréttindi eða rétt til náms á hærri skólastigum. 9.8.2011 12:23
Góður undirbúningur fyrir háskóla Menntastoðir er krefjandi námsleið í boði hjá Mími símenntun. "Nám í menntastoðum er fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdentsprófi en eru orðnir 23 ára og vilja komast inn í undirbúningsdeildir háskólanna," segir Anney Þ. Þorvaldsdóttir verkefnastjóri. 9.8.2011 12:23
Rosalega góður félagsskapur í SÍMEY Ég var síðast í námi í öldungadeild Gaggans fyrir 25 árum þannig að það var mikið átak fyrir mig að stökkva aftur af stað.“ segir Ágústína Söebech, sem unnið hefur í Frístund í Síðuskóla í rúm tíu ár. 9.8.2011 12:23
Markaðir hrynja Hlutabréfverð í Bandaríkjunum hefur ekki verið lægra í rúmlega tvö ár, eða síðan í desember 2008. Þegar markaðir lokuðu í dag hafði Dow Jones-vísitalan lækkað 632 stig eða um 5,5 prósent. 8.8.2011 20:40
Slitastjórn Kaupþings ætlar á eftir Hreiðari Má Æðstu stjórnendur Kaupþings sem skulduðu bankanum mest vegna hlutabréfakaupa hafa lítinn vilja sýnt til að semja um skuldirnar ólíkt þeim sem voru með lægri fjárhæðir. Slitastjórn Kaupþings telur að Hreiðar Már Sigurðsson hafi ekki réttilega stofnað félag utan um skuldir sínar. 8.8.2011 18:30
Fjármálaráðherra mátti stofna Spkef samkvæmt neyðarlögunum Fjármálaráðherra var heimilt samkvæmt neyðarlögunum svonefndu að stofna Spkef sparisjóð í því skyni að taka við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík. Þetta er áréttað á vef ráðuneytisins í tilefni af umfjöllun um að fjármálaráðherra hafi ekki haft slíka heimild. Ráðherra vísar í fyrstu grein laga númer 125 frá 2008, iðulega nefnd neyðarlög, máli sínu til stuðnings. Í greininni segir: „Við sérstakar og mjög óvenjulegar aðstæður á fjármálamarkaði er fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að reiða fram fjármagn til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yfirtaka fjármálafyrirtæki eða þrotabú þess í heild eða að hluta." Á vefnum segir að augljóslega sé rangt að halda því fram að heimildir fjármálaráðherra samkvæmt framangreindu ákvæði séu bundnar við að stofna hlutafélag fremur en sparisjóð. Hugtakið fjármálafyrirtæki sé ekki bundið við tiltekið félagaform, en samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki geta fjármálafyrirtæki verið annað hvort hlutafélög eða sparisjóðir. 8.8.2011 15:43
Forstjóri Sjóvár hættir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Lárus var ráðinn til Sjóvár fyrir tæpum tveimur árum í kjölfar endurskipulagningar á félaginu og veitti því forystu á erfiðum tímum. Lárus segist hafa ákveðið að hætta í framhaldi af því að ný stjórn tók við félaginu „Vandasömu en árangursríku breytingaferli er lokið og ég tel eðlilegt að nýir eigendur með nýjar áherslur ráði forstjóra. Sjóvá stendur traustum fótum með góðan vátryggingarekstur. Viðskiptavinir hafa staðið með félaginu og það eru spennandi tímar framundan. Ég vil þakka öllu starfsfólki Sjóvár afar gott og metnaðarfullt samstarf og lít stoltur og ánægður um öxl," segir hann í tilkynningu frá Sjóvá. Erna Gísladóttir stjórnarformaður Sjóvá, segir Lárus hafa unnið mikilvægt starf fyrir fyrirtækið. „Lárus hefur unnið mjög mikilvægt starf fyrir Sjóvá. Hann var ráðinn til að stýra fyrirtækinu í gegnum ólgusjó óvissu og umbreytinga og það fórst honum vel úr hendi. Við óskum Lárusi velfarnaðar," segir hún. Ólafur Njáll Sigurðsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs er staðgengill forstjóra. 8.8.2011 15:16
Lækkun á Wall Street eins og spáð hafði verið Verð á hlutabréfum lækkaði við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eins og búist hafði verið við. Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni á föstudaginn eftir að markaðir lokuðu og spár um lækkun gengu eftir. Dow Jones vísitalan lækkaði um tæp tvö prósent í fyrstu viðskiptum dagsins klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og Nasdaq vísitalan lækkaði um 3,35 prósent. 8.8.2011 13:46
Laun meðalmanns hækka á níu mánaða fresti Laun meðalstarfsmanns á Íslandi breytast á níu mánaða fresti, en nánast allar launabreytingar hér á landi eru hækkanir. Að meðaltali nemur hver launahækkun rúmum sex prósentum. 8.8.2011 13:14
Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. 8.8.2011 12:13
Evrópumarkaðir taka við sér Hlutabréf á mörkuðum um allan heim hafa lækkað í morgun eftir að Standard og Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn var. Í Evrópu hækkaði verðið þó þegar liðið hefur á morguninn. 8.8.2011 07:39
Verðfall á mörkuðum í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu og í Ástralíu lækkuðu mikið í morgun en þetta voru fyrstu markaðirnir til að opna eftir að Standard & Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn. 8.8.2011 06:59
Útflutningsverðmætið mun hækka um 16 milljarða Útflutningsverðmæti sjávarafurða mun hækka um 16 milljarða króna á þessu ári frá því síðasta og um fjóra milljarða króna til viðbótar á árinu 2012. Þetta kemur fram í greiningu sjávarútvegsteymis Íslandsbanka í dag. Aukningin nemur því um 9% og mun hafa jákvæð áhrif á þjóðarbúið. Aukningin er tilkomin vegna aukinna aflaheimilda, og þá aðallega í þorski, alþjóðlegum verðhækkunum á fiski og stöðugri krónu. 7.8.2011 14:07
Bresk sveitarfélög fá um 90% til baka Nú er búist við því að sveitastjórnir sem lögðu peninga inn á reikninga íslenskra banka í Bretlandi fyrir bankahrun muni fá um 90% af fé sínu til baka. 7.8.2011 13:57
Hittast á neyðarfundi til að ræða stöðuna á mörkuðum Stjórn Seðlabanka Evrópu mun koma saman á neyðarfundi í dag til þess að ákveða hvort bankinn eigi að kaupa skuldir ítalska ríksins til þess að reyna að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum. Robert Peston, viðskiptafréttamaður hjá BBC fréttastofunni, segir að stjórnin sé klofin í afstöðu sinni til málsins. 7.8.2011 10:58
Vandinn í Evrópu bráðari en í Bandaríkjunum Matsfyrirtækið Standard og Poors lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna úr efsta þrepi í næstefsta seint í gærkvöld. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur segir að afleiðingarnar verði fyrst og fremst pólitískar. Skuldavandinn í Evrópu sé mun bráðari en skuldavandinn í Bandaríkjunum. 6.8.2011 12:10
Lánshæfismat Bandaríkjanna lækkað Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfismat bandaríska ríkisins í gærkvöld. Matið var fært úr efsta þrepi, eða AAA í næstefsta þrep sem er AA+, með neikvæðum horfum. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem lánshæfismat Bandaríkjanna er lækkað. Ástæðan er áhyggjur af hallarekstri Bandaríkjanna. 6.8.2011 07:30
Íslensk skyndibitakeðja í útrás Saffran veitingastaðakeðjan opnaði sinn fyrsta veitingastað erlendis í dag. Staðurinn er í Orlando, skammt frá Florida Mall. Á vefsíðu Saffran kemur fram að staðurinn er byggður í samræmi við staðina á Íslandi lítur því svipað út. 5.8.2011 23:14
Obama: Við munum komast í gegnum þetta Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýjum tölum um atvinnuþáttöku/atvinnuleysi sem birtust í Bandaríkjunum í dag. Hann leggur áherslu á að skapa þurfi enn fleiri störf til þess að efnahagslífið blómstri. 5.8.2011 21:33
Vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki að þýskri fyrirmynd Viðskipti innlent