Fjármálaráðuneytið segir aðeins hálfa sögu um Spkef 9. ágúst 2011 08:00
Árný J. Guðmundsdóttir lögfræðingur segir að fjármálaráðuneytið segi aðeins hálfa söguna hvað varðar lagalegar heimildir ráðuneytisins til að stofna Spkef sparisjóð. Árný hefur fjallað um málefni Spkef í Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu þar sem fram kom að lagaheimildir hafi skort fyrir stofnun Spkef. Í gær birtist yfirlýsing frá fjármálaráðuneytinu, þar sem fullyrt er að lagaheimild hafi verið fyrir hendi, þ.e. að samkvæmt „neyðarlögunum“ hafi fjármálaráðuneytinu verið heimilt að stofna fjármálafyrirtæki. Jafnframt segir að hugtakið fjármálafyrirtæki sé ekki bundið við tiltekið félagaform, en samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki geta fjármálafyrirtæki verið annað hvort hlutafélög eða sparisjóðir. Árný hefur sent frá sér svar við þessari yfirlýsingu. Þar segir að fjármálaráðuneytið falli í þá gryfju að segja hálfa söguna og vísa aðeins í hluta lagaákvæðis. Þegar lagaákvæði eru túlkuð verður að líta til þeirra í heild. Þannig segir í lok ákvæðisins: „Fyrirtæki sem stofnað er samkvæmt þessari grein hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt ákvæðum 1. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki.“ Viðskiptabankar verða einungis reknir sem hlutafélög. Síðan segir Árný: „Þannig er ljóst þegar 1. gr. „neyðarlaganna“ er lesin í heild, að fjármálaráðuneytið gat aðeins stofnað fjármálafyrirtæki með starfsleyfi frá upphafi með því að stofna viðskiptabanka og þar með hlutafélag. Hefði fjármálaráðuneytið viljað stofna sparisjóð hefði ráðuneytið hins vegar þurft að stofna félag sem hefði orðið að sækja um starfsleyfi sem sparisjóður til FME á hefðbundinn hátt. Það var ekki gert. Það er einnig ljóst að fjármálaráðuneytið og FME eru tvísaga um lagagrunn fyrir stofnun og starfsleyfisskyldum rekstri SpKef sparisjóðs. Þannig staðfesti Gunnar Andesen í samtali við Morgunblaðið þann 5. ágúst sl. að lagaheimild hefði ekki verið til staðar en FME hefði beitt lögjöfnun frá neyðarlögunum. Engin þörf var að beita lögjöfnun ef fjármálaráðuneytið hefði haft heimild í settum lögum. Er því ljóst að fjármálaráðuneytið hefur ekki svarað efnislega athugasemdum mínum varðandi skort á heimildum við stofnun og eftirfarandi starfsemi Spkef sparisjóðs.“
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira