Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir hálf milljón farþega um Leifsstöð Samtals komu 501,3 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar-júlí í ár borið saman við 424,5 þúsund farþega á sama tímabili í fyrra. 5.8.2011 09:29
Nýskráningar bíla aukast um tæp 50% milli ára Nýskráningar bíla í janúar-júlí í ár voru 4.008 miðað við 2.684 í janúar-júlí árið áður, þ.e. jukust um 49,3% frá fyrra ári. 5.8.2011 09:26
Kortaveltan jókst um 6,7% á fyrri helmingi ársins Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar til júní í ár um 6,7% miðað við sama tímabil í fyrra. 5.8.2011 09:23
Gistinóttum fjölgar um 16% milli ára í júní Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010. Þetta er aukning um 16% milli ára. 5.8.2011 09:06
Vöruskiptin 21 milljarði lakari en í fyrra Fyrstu sex mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 285,0 milljarða króna en inn fyrir 242,8 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 42,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. 5.8.2011 09:02
Silfuræði runnið á almenning í Danmörku Miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði á silfri í ár hafa valdið því að silfuræði er runnið á frændur vora Dani. 5.8.2011 08:14
Stjórn Pandóru hélt upplýsingum leyndum Í ljós er komið að stjórn skartgripaframleiðendans Pandóru í Danmörku hélt leyndum viðkvæmum markaðsupplýsingum í uppgjöri sínu fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. 5.8.2011 08:05
Engar hópuppsagnir í júlí Engar hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júlí síðastliðnum. Þetta er í fyrsta sinn frá hruninu að ekki er tilkynnt um hópuppsögn í einstökum mánuði. Hinsvegar hefur töluvert verið að draga úr hópuppsögnum á þessu ári miðað við árið í fyrra og árið 2009 þegar þær voru í hámarki. 5.8.2011 07:50
Tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna fá matarmiða Aldrei í sögunni hafa fleiri Bandaríkjamenn þurft á matarmiðum að halda frá hinu opinbera til að geta átt í sig og á. Alls þiggja tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna slíka matarmiða. 5.8.2011 07:47
Martröðin heldur áfram á hlutabréfamörkuðum Martröðin á hlutabréfamörkuðum heimsins hélt áfram í nótt en þá hröpuðu vísitölur á Asíumörkuðum. Það kom í kjölfar versta dagsins á Wall Street síðan í botni fjármálakreppunnar fyrir rúmum tveimur og hálfu ári síðan. 5.8.2011 07:28
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Heimsmarkaðsverð á olíu er nú í frjálsu falli svipað og hlutabréfamarkaðir heimsins. Tunnan af Brent olíunni er komin niður í 105,6 dollara og hefur þar með öll hækkun ársins á henni gengið til baka. 5.8.2011 07:21
Grunuð um brot í starfi Franskur dómstóll ætlar að rannsaka embættisverk Christine Lagarde, nýs framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, frá þeim tíma sem hún var fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde er grunuð um að hafa þrýst á fyrrverandi ríkisbankann Credit Lyonnais um að fallast á bindandi málamiðlun í deilu við Adidas-auðkýfinginn Bernard Tapielle sem hann hafði tapað fyrir rétti. 5.8.2011 05:15
Íslenska krónan of hátt skráð samkvæmt Big Mac vísitölunni Íslenska krónan er allt of hátt skráð gagnvart stórum erlendum gjaldmiðlum- allavega ef við tökum mið af Big Mac vísitölunni. Nærbuxnavísitalan bendir til að hagkerfið sé í kreppu, en sé þó að taka við sér. 4.8.2011 21:00
Algjör óvissa um endurheimtir Seðlabankans Algjörlega óvíst er hvort tæplega helmingurinn af neyðarláni sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi í miðju hruni, jafnvirði rúmlega fjörutíu milljarðar króna, fáist greiddur að fullu. Fyrir fjárhæðina mætti reisa tuttugu meðalstór fangelsi. 4.8.2011 20:30
Vandi evrusvæðisins bitnar óhjákvæmilega á Íslendingum Hlutabréfamarkaðir hrundu í dag og sérfræðingar beggja vegna Atlantsála óttast annað efnahagshrun. Doktor í hagfræði segir vanda evrusvæðisins óhjákvæmilega bitna á Íslendingum. 4.8.2011 19:45
Mikil lækkun á hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðir víða um heim hríðféllu í dag og er ástæðan talin vera sú að fjárfestar hafi áhyggjur af því að hagvöxtur verði hægari en áður var talið. Menn hafa líka áhyggjur af skuldavanda Evrópuríkja, svo sem Ítalíu og Spánar. Ástandið er grafalvarlegt og vestanhafs óttast menn að önnur dýfa fylgi á eftir kreppunni 2007 og 2008. 4.8.2011 16:23
Barroso segir að evrukreppan smiti út frá sér Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varar við því að skuldakreppa evruríkjanna sé að breiðast út til ríkja utan myntbandalagsins. Í bréfi til ríkisstjórna innan Evrópusambandsins hvatti hann til þess að evrusvæðinu yrði veittur fullur stuðningur. 4.8.2011 15:35
Hættir sem forstjóri Bankasýslunnar Elín Jónsdóttir forstjóri Bankasýslu ríkisins hefur sagt starfi sínu lausu og verður staðan auglýst laus til umsóknar um næstu helgi. Bankasýsla ríkisins er stofnun sem heyrir undir fjármálaráðherra og fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Stofnunin tók til starfa í ársbyrjun 2010 og hefur Elín gegnt starfi forstjóra frá upphafi. 4.8.2011 14:04
Reynir að róa markaði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, reynir nú að róa markaði en skuldastaða Ítalíu er slæm. Gagnrýnendur forsætisráðherrans segja hann sjálfan hlut vandans. 4.8.2011 13:50
Grunur um að framkvæmdastjóri AGS hafi misbeitt valdi Franskur dómstóll rannsakar nú hvort Christine Lagarde, nýr yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hafi misnotað vald sitt í stöðu fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde er sökuð um að hafa þrýst á banka í deilum við kaupsýslumann sem studdi kosningabaráttu Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands. Fréttaritari BBC segir að málið sé mjög neyðarlegt fyrir Lagarde. Einungis um mánuður er síðan hún tók við embætti framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að Dominique Strauss Kahn hætti. 4.8.2011 12:53
Óbreyttir vextir á Bretlandi þrátt fyrir verðbólguskot Englandsbanki hefur ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,5% þrátt fyrir mikið verðbólguskot í landinu. Verðbólgan á Bretlandi mælist nú yfir 4% sem er tvöfalt hærra en verðbólgumarkmið bankans er. 4.8.2011 11:21
VÍS verður bakhjarls Hofs Vátryggingafélag Íslands og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin. Vel á annað hundrað þúsund gesta heimsóttu Hof á fyrsta starfsári en húsið var opnað í lok síðasta sumars. Hof skipar mikilvægan sess í menningar- og tónlistarlífi Norðlendinga þar sem boðið er upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytta viðburði. Fyrir vikið hefur menningarviðburðum fjölgað mjög á Norðurlandi sem hefur ekki eingöngu haft jákvæð áhrif á menningarlífið heldur samfélagið í heild, svo sem verslun, þjónustu og aðra atvinnuuppbyggingu. Hof er eitt af helstu kennileitum Akureyrar og er VÍS stoltur bakhjarl Hofs. "Það er okkur hjá VÍS mikið ánægjuefni að verða bakhjarlar Hofs og styðja þannig við metnaðarfullt starf þeirra í listum og menningu á Norðurlandi. Sem bakhjarl Hofs á Akureyri, Borgarleikhússins í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands leggur VÍS sitt af mörkum til stuðnings lista- og menningarlífi landsmanna, bæði norðan og sunnan heiða," sagði Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá VÍS, við undirritun samningsins. "Við hjá Hofi fögnum því að fá VÍS til liðs við okkur. Framundan er spennandi menningarvetur; tónleikar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, myndlistarsýningar og margt fleira verður á boðstólum og því fjölbreytt dagskrá í boði fyrir landsmenn alla," sagði Karl Frímannsson, formaður stjórnar Menningarfélagsins Hofs, við sama tilefni. 4.8.2011 11:06
Íslenska leiðin var bara ódýrari en sú írska Ekkert land eyddi jafnmiklu í bankakerfið og Ísland, að frátöldu Írlandi, á árunum 2007 til 2009 vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu OECD um Ísland, en fjallað er um málið í nýjasta tölublaði Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál. 4.8.2011 11:00
Kröfuhafar hafa tapað 7.400 milljörðum á Íslandi Kröfur erlendra lánastofnana á íslenska banka og önnur fyrirtæki hafa minnkað um 7.378 milljarða króna frá hruni íslenska bankakerfisins í október 2008. Einungis 15,5% krafna þeirra á íslensk fyrirtæki eru enn í bókum þeirra. Það þýðir að erlendu lánastofnanirnar reikna með því að hafa tapað 84,5% af öllum kröfum sínum á Ísland. 4.8.2011 09:48
Vextir hækka á spænskum skuldabréfum Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum hækkuðu töluvert í útboði sem fór fram í morgun. Skuldabréf til þriggja og fjögurra ára seldust fyrir samtals rúmlega 3,3 milljarða evra eða um 545 milljarða kr. 4.8.2011 09:38
Hagstofan gefur út Ísland í tölum Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út enskan bækling, Iceland in figures 2011, þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er sextándi árgangur bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna. 4.8.2011 09:27
Skuldamál Alterra eru Jarðvarma óviðkomandi Jarðvarmi, félag í eigu lífeyrissjóðanna, hefur sent frá sér athugasemd vegna frétta um málefni HS Orku. Þar segir að skuldamál Alterra, áður Magma Energy, séu Jarðvarma óviðkomandi. 4.8.2011 08:26
Tap útgáfufélags snýst í hagnað á milli ára Hagnaður 365 miðla, útgáfufélags Fréttablaðsins, árið 2010 var 360 milljónir króna eftir skatta og handbært fé frá rekstri 1.106 milljónir. Eigið fé var rúmir tveir milljarðar um áramót. Eru þetta upplýsingar úr ársreikningi 365 miðla ehf. fyrir árið 2010. 4.8.2011 08:15
Telja útilokað að forða Ítalíu frá skuldakreppu Það er nánast útilokað að forða því að Ítalía lendi í skuldakreppu. Aðeins mjög mikill hagvöxtur í landinu getur komið í veg fyrir slíkt og hann er ekki í sjónmáli. 4.8.2011 07:51
Randi Zuckerberg hættir hjá Facebook Randi Zuckerberg markaðsstjóri Facebook hefur látið af störfum hjá vefsíðunni en Randi er systir stofnenda Facebook, Mark Zuckenbergar. 4.8.2011 07:46
Áfram verulega aukning á fasteignaviðskiptum Fasteignaviðskipti halda áfram að aukast verulega milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Þannig var 446 kaupsamningum þinglýst í borginni í júlí og heildarveltan nam rúmum 12 milljörðum króna. Þetta er aukning um tæp 60% bæði hvað varðar fjölda samninga og heildarveltu frá því í júlí í fyrra. 4.8.2011 07:38
Hamborgarar, varalitur og nærbuxur gefa mynd af hagkerfinu Big Mac vísitalan fagnar tuttugu og fimm ára afmæli sínu um þessar mundir, en vísitalan er einföld leið til að meta hvort gjaldmiðlar séu rétt skráðir hver gagnvart öðrum. Vísitalan ruddi brautina fyrir fjölda óvenjulegra mælistikna á hagkerfið. 3.8.2011 12:30
Segir fjárfestingu lífeyrissjóða renna í vasa Ross Beaty Fjárfesting lífeyrissjóðanna í HS Orku fór að stórum hluta til forstjóra móðurfélags HS Orku. Þetta fullyrðir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, og vitnar í Ross Beaty sjálfan. 3.8.2011 12:00
Faxaflóahafnir greiða eigendum 173 milljónir í arð Faxaflóahafnir hafa greitt eigendum sínum arð fyrir árið 2011 og er þetta í annað sinn sem slíkt er gert. Arðurinn nemur 173 milljónum kr. sem er sama upphæð og greidd var í fyrra þegar arður var greiddur í fyrsta sinn. 3.8.2011 10:49
Upplýsir um stærstu tölvuárás sögunnar Í nýrri skýrslu frá tölvufyrirtækinu McAfee er greint frá því að óþekkt ríki hafi staðið fyrir umfangsmestu tölvuárás sögunnar. 3.8.2011 09:35
Seðlabanki Sviss setur stýrivexti sína niður í núll Seðlabankinn í Sviss hefur ákveðið að færa stýrivexti sína niður í núllið. Þetta er gert vegna gífurlegrar ásóknar fjárfesta í svissneska franka eins og oft gerist þegar órói er á fjármálamörkuðum. 3.8.2011 09:11
Seðlabankinn tapar milljörðum á Pandóruhruni Seðlabanki Íslands gæti tapað allt að einum milljarði danskra kr. eða um 22 milljörðum kr. á hruni hlutabréfa í danska skartgripafyrirtækinu Pandóru í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 3.8.2011 08:41
Bandaríkin halda lánshæfiseinkunn sinni Matsfyrirtækin Moody´s og Fitch Ratings hafa ákveðið að Bandaríkin haldi topplánshæfiseinkunn sinni AAA en hún er sett á athugunarlista með neikvæðum horfum. Standard & Poor´s hefur einnig sett einkunnina á athugunarlista. 3.8.2011 07:24
Allir markaðir í rauðum tölum Markaðir í Asíu lokuðu allir í rauðum tölum í nótt og fylgdu þar með í kjölfar Wall Street í gærkvöldi. 3.8.2011 07:22
Hagstæðasta tilboði í Sjóvá var tekið Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að fullyrðingar um að hagstæðasta tilboði hafi ekki verið tekið eru rangar. Þegar kaupsamningur við núverandi kaupendahóp var undirritaður lá ekki fyrir gilt tilboð frá öðrum sem hægt var að taka afstöðu til. 3.8.2011 07:03
Seðlabankinn býðst til að kaupa evrur Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfi. Útboðið er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. 2.8.2011 16:44
Sigrún Ragna er forstjóri VÍS Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur ráðið Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá Íslandsbanka, í starf forstjóra VÍS og Lífís. Sigrún Ragna hóf störf hjá Íslandsbanka við stofnun hans í október 2008 er hún var ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók sæti í framkvæmdastjórn. 2.8.2011 16:38
Apple gæti tvöfaldað markaðshlutdeild sína með iPhone 5 Talið er að Apple, sem framleiðir iPhone-símana, geti tvöfalda markaðshlutdeild sína þegar nýjasti síminn frá þeim kemur út í september. 2.8.2011 15:31
VÍS eignast 80% hlut í Öryggismiðstöðinni Nýlega var gengið frá kaupum VÍS á hlut Exista í Öryggismiðstöð Íslands. Fyrr á árinu hafði VÍS eignast lítinn hlut og er eignahlutur VÍS í Öryggismiðstöðinni nú samanlagt um 80%. Framkvæmdastjóri Öryggismiðstöðvarinnar og helstu stjórnendur félagsins ráða yfir um 20% hlut í félaginu, eftir því sem fram kemur á vef VÍS. 2.8.2011 13:28
Ford innkallar 1,2 milljónir pallbíla Bílaframleiðandinn Ford hefur ákveðið að innkalla 1,2 milljónir pallbíla vegna ryðvandamála. Bandaríska umferðaröryggiseftirlitið telur að festingar á eldsneytistönkum geti auðveldlega rygðað og því sé ekki forsvaranlegt að hafa bílana á götunni. Samkvæmt frétt á norska viðskiptavefnum e24.no er um að ræða F-150 og F-250 bíla sem framleiddir eru árin 1997-2004 og Lincoln Blackwood frá árunum 2002-2003. 2.8.2011 13:04