Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um yfir 10 milljarða í júlí

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí síðastliðnum var útflutningur  52,5 milljarðar króna og innflutningur 42,1 milljarður króna. Vöruskiptin í júlí voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Vöruskiptin í júlí í ár eru meir en tvöfalt hagstæðari en þau voru í sama mánuði í fyrra þegar afgangurinn nam 4,6 milljörðum kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×