Fleiri fréttir

Engin áætlun til um afnám hafta

Stjórnvöld hafa sem stendur enga áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, en Seðlabankinn tilkynnti að hann hefði horfið frá fyrri áætlun í ræðu sem flutt var yfir lokuðum hópi hinn 7. október síðastliðinn. Forsætisráðherra segir að unnið sé að því að afnema höftin sem fyrst.

Hvatti viðskiptavini til stöðutöku gegn krónunni

Glitnir banki hvatti viðskiptavini sína til að taka stöðu gegn krónunni í Morgunkorni greiningardeildar bankans frá árinu 2007 á sama tíma og stór huti viðskiptavina Glitnis átti allt sitt undir gengisstöðugleika íslensku krónunnar.

Gamma: GBI lækkaði lítillega í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 5,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 1,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 3,8 ma. viðskiptum.

Greining: Össur hf. afléttir gjaldeyrishöftunum

Þetta er fyrisögnin á umfjöllun greiningar Arion banka um þá heimild sem Seðlabankinn hefur veitt íslenskum eigendum hlutabréfa í Össuri hf. að flytja bréf sín yfir í kauphöllina í Kaupmannahöfn og fá þau samhliða skráð í dönskum krónum.

Hagfræðingar Seðlabankans voru hræddir við almenningsálitið

Seðlabankastjóri var að vísa til umræðunnar í þjóðfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar bankans hefðu verið skammaðir fyrir of svartsýnar spár og að þeir hefðu því ekki þorað að setja fram réttar spár um samdrátt í landsframleiðslu á árinu 2006.

Gengi krónunnar styrkist á óvenjulegum tíma

Gengi krónunnar hefur verið að styrkjast í morgun og stendur gengisvísitalan í 204,5 stigum í augnablikinu. Þetta er gengisstyrking upp á 0,6% frá því í gærdag. Hinsvegar ætti gengið að standa í stað eða jafnvel veikjast eins og málum er háttað.

Nafni Saga capital breytt

Nafni Saga Capital Fjárfestingarbanka hefur verið breytt og mun bankinn eftirleiðis heita Saga Fjárfestingarbanki.

Orkugjaldið orðið næsthæst hjá Orkuveitu Reykjavíkur

Svonefnt orkugjald, sem tekið er fyrir dreifingu á hverri kílówattsstund til notenda, er orðið næsthæst hjá Orkuveitu Reykjavíkur eftir gjaldskrárhækkun um síðustu mánaðamót, samkvæmt útreikningum Orkuvaktarinnar. Dreifing RARIK, eingöngu í dreifbýli, er aðeins hærri.

Ríkisskattstjóri skoðar 60 mál vegna söluréttasamninga

Um sextíu mál eru í vinnslu hjá Ríkisskattstjóra varðandi skattálagningu á söluréttasamninga og fer þeim fjölgandi. Lægsta endurákvörðunin í málunum nemur tugum milljóna en hæsta hálfum milljarði króna. Ríkisskattstjóri vann í dag í annað sinn mál fyrir héraðsdómi vegna samninganna.

Kröfu Bjarka Diego hafnað - áfrýjar til Hæstaréttar

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Bjarka H. Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi, en hann höfðaði mál á hendur Ríkisskattstjóra vegna skattálagninga á söluréttarsamningum af hlutabréfum í Kaupþingi.

Fréttaviðtal: Útgerðin greiðir mikið til ríkisins

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, fór hörðum orðum um breytingar á aflamarkskerfinu, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna fyrir helgi. Hann sagði meðal annars að ef hugmyndir sjávarútvegsráðherra næðu fram að ganga, væri grundvöllur aflamarkskerfisins brostinn.

Skinney-Þinganes: 3,6 milljarðar í hagnað - 2,5 í afskriftir

Skinney-Þinganes hagnaðist um 3,6 milljarða króna í fyrra; en afskriftir hjá dótturfélagi námu tveimur og hálfum milljarði króna. Hagnaður sex stórútgerða í fyrra nam ríflega fjórföldum skattgreiðslum útgerðarinnar í heild.

Geir H. Haarde neitar að bera vitni

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, neitaði að bera vitni í skaðabótamáli hlutdeildarskírteinishafa í peningarmarkaðssjóðum gegn Ríkissjóði Íslands en aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur dag.

Greining spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun

Greining Íslandsbanka spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun hjá Seðlabankanum á miðvikudag. Þetta er í takt við spá greiningar Arion banka en greining MP banka gerir ráð fyrir 0,75 prósentustiga lækkun.

Marel dregur úr áhættu gagnvart íslensku krónunni

Marel hefur ákveðið að bjóða eigendum skuldabréfaflokkanna MARL 06 1 og MARL 09 1 að endurkaupa þessi skuldabréf. Um er að ræða einu eftirstandandi skuldir félagsins í íslenskum krónum. Samtals er heildarvirði þessara skuldabréfa rúmir sex milljarðar kr. Með þessu ætlar Marel að draga úr gengisáhættu gagnvart íslensku krónunni.

Mestu olíulindir í 34 ár fundust við Brasilíu

Yfirvöld í Bfrasilíu hafa tilkynnt um risvaxinn olíulindafund undan ströndum landsins. Meira magn af olíu hefur ekki fundist í heiminum síðan 1976 þegar olía fannst á Cantarell svæðinu í Mexíkóflóa.

Enn er framlengt í endurskipulagningu Farice

Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og dótturfélag þess, Farice hf., vinna enn að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna í samvinnu stærstu kröfuhafa þeirra og hluthafa.

Reiknar með 0,75 prósentustiga vaxtalækkun

Greining MP Banka reiknar með því að á miðvikudaginn kemur muni peningastefnunefnd Seðlabankans ákveða að lækka vexti um 0,75 prósentustig. Þetta yrði í þrettánda sinn sem vextir lækka frá því að nefndin tók við vaxtaákvörðunarhlutverkinu fyrir hálfu öðru ári.

Kvikmyndaverið MGM lýst gjaldþrota

Kvikmyndaverið MGM hefur lýst sig gjaldþrota. Þar með er lokið áralangri baráttu þessa sögufræga kvikmyndavers við að halda sér á floti en skuldirnar námu 4 milljörðum dollara eða tæpum 450 milljörðum króna undir lokin.

Eignarnám HS orku nánast út af borðinu

Ólíklegt er að starfshópur ríkisstjórnarinnar um eignar­hald á orkufyrirtækjum geti komist að þeirri niðurstöðu sem stjórnin lagði honum í hendur.

Sjá næstu 50 fréttir