Viðskipti innlent

Geta flutt íslensk hlutabréf í Össuri yfir á danska markaðinn

Íslendingar sem eiga hlutabréf í Össuri hf. geta nú flutt bréf sín af íslenska markaðinum og yfir á danska markaðinn í kauphöllinni í Kaupmannahöfn það er breytt skráningu bréfanna úr íslenskum krónum og yfir í danskar.

Seðlabanki Íslands hefur veitt heimild til þessa að beiðni Össurar og nær hún til allra hluthafa, sem hafa eignast hlutabréf í Össuri fyrir 1. nóvember í ár. Áður var heimildin bundin við bréf sem voru keypt fyrir 1. apríl í fyrra.

Eftir sem áður þarf sérstaka undanþágu frá Seðlabankanum til að flytja bréf í Össuri frá Danmörku til Íslands, að því er segir í tilkynningu um málið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×