Viðskipti innlent

Hagfræðingar Seðlabankans voru hræddir við almenningsálitið

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Már var að vísa til umræðunnar í samfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar Seðlabankans hefðu ekki þorað að setja fram spár sínar árið 2006.
Már var að vísa til umræðunnar í samfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar Seðlabankans hefðu ekki þorað að setja fram spár sínar árið 2006.

Seðlabankastjóri var að vísa til umræðunnar í þjóðfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar bankans hefðu verið skammaðir fyrir of svartsýnar spár og að þeir hefðu því ekki þorað að setja fram réttar spár um samdrátt í landsframleiðslu á árinu 2006.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, var meðal framsögumanna á haustráðstefnu KPMG á fimmtudaginn. Í ræðu sinni sagði Már að hagfræðingar seðlabankans hefðu strax á árinu 2006 spáð fyrir um mikinn samdrátt sem varð hér á landi í landsframleiðslu á síðasta ári. Þeir hefðu ekki þorað að setja fram réttar spár og hefðu í raun verið skammaðir fyrir þær spár sem settar voru fram.

„Allt frá árinu 2006 var spáð því að það yrið samdráttur á árinu 2009. Að vísu var ekki verið að spá mjög miklum tölum hér framan af, kannski 2- 3 prósent, en starfsfólk bankans segir mér að líkönin hafi skilað miklu hærri tölum, þau þorðu bara ekki setja þær fram og voru nú mikið skömmuð fyrir þessar spár," sagði Már.

Fréttastofa óskaði eftir skýringum á því hvað seðlabankstjóri átti við í ræðu sinni og hver það hefði verið sem hefði skammað sérfræðinga bankans. Þau svör bárust frá skrifstofu bankastjóra að Má hefði verið tjáð að á sínum tíma hefði verið nefnt í almennri umræðu í samfélaginu að bankinn væri of svartsýnn í sínum spám. Á töflu sem Már sýndi á ráðstefnunni á fimmtudag kom fram samdráttur á árinu 2009 í spá sem sett hafði verið fram á árinu 2006. Þessum spám hefði ekki verið vel tekið af einhverjum í samfélaginu. Í svörum bankans segir jafnframt að seðlabankastjóri hafi ekki nákvæmar upplýsingar um þessa umræðu í samfélaginu, enda hafi hann ekki verið á landinu þegar hún fór fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×