Fleiri fréttir

Norski olíusjóðurinn tapar stórfé á HQ Bank

Norski olíusjóðurinn hefur tapað stórfé á kaupum sínum í sumar á hlutum í sænska bankanum HQ Bank. Sænska fjármálaeftirlitið yfirtók HQ Bank í lok ágúst og síðan var bankinn seldur Carnegie bankanum.

Landsbankinn lokaður, nema í Austurstræti

Í tilefni kvennafrídagsins hefur Landsbankinn ákveðið að loka öllum útibúum bankans kl. 14 í dag, nema útibúinu við Austurstræti þar sem hefðbundin þjónusta verður veitt. Í tilkynningu frá bankanum segir að þar verði þó einungis karlar við afgreiðslu.

Smábátasjómenn kanna stofnun eigin lífeyrissjóðs

Landssamband smábátasjómanna (LS) hefur falið framkvæmdastjóra sínum að kanna kosti þess og galla að stofna lífeyrissjóð smábátasjómanna. Þetta var samþykkt á aðalfundi LS fyrir helgina en mikil óánægja kom fram gagnvart lífeyrissjóðnum Gildi sem félagsmenn LS hafa hingað til greitt í.

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir ráðin forstjóri Actavis

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir verður forstjóri Actavis á Íslandi í kjölfar skipulagsbreytinga hjá félaginu, sem þegar hafa tekið gildi. Hún situr sem fyrr í framkvæmdastjórn Actavis Group og mun jafnframt stýra margvíslegum verkefnum á heimsvísu, m.a. í Japan, Kína, á Indlandi og víðar.

Suður- Kóreumenn hættir við að kaupa Elkem í Noregi

Stálfyrirtækið Posco í Suður-Kóreu er hætt við að kaupa Elkem í Noregi sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Raunar segir forstjóri Posco að þeir hafi aldrei í alvöru verið að íhuga að kaupa Elkem.

Ekki átti að rýra réttindin

Höfuðstólslækkun bílalána sem boðið var upp á hjá Íslandsbanka í byrjun árs gekk til baka í nokkrum tilvikum við endurútreikning lána eftir dóm Hæstaréttar í sumar. Búið er að birta endurútreikning í heimabanka fimm til sex þúsund viðskiptavina Íslandsbanka. Nokkrir viðskiptavina bankans hafa kvartað vegna málsins.

Vexti settar skorður í sjávarútvegi og orku

Fréttaskýring Hvaðan á hagvöxturinn að koma? Hagvöxtur hér á landi þarf nær örugglega að vera sprottinn af aukinni framleiðslu skiptanlegra gæða, en svo nefnist á máli hagfræðinnar varningur og þjónusta sem léttilega má flytja á milli landa. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands.

Heiðar hótar málshöfðun gegn DV

Heiðar Már Guðjónsson, fyrrverandi starfsmaður Novators, ætlar að stefna DV fyrir meiðyrði verði fréttir, þess efnis að hann hafi skipulagt árás á íslensku krónuna árið 2007 ásamt alþjóðlegum vogunarsjóðum, ekki dregnar til baka.

LVMH kaupir 14% hlut í Hermes

Franska lúxusvörukeðjan LVMH ætlar að kaupa um 14% hlut í Hermes veskjaframleiðandanum á 1,45 milljónir evra. LVMH ætlar samt hvorki að reyna yfirtöku á fyrirtækinu né hafa áhrif á rekstur þess, eftir því sem Reuters fréttastofan fullyrðir.

Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina

„Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfestingasjóðurinn Auður 1, sem heyrir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki

Ístak semur um byggingu Búðarhálsvirkjunar

Landsvirkjun og Ístak hf. undirrituðu í dag samning um byggingu Búðarhálsvirkjunar. Verkið var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu og voru tilboð opnuð þann 26. ágúst 2010.

Vísar því á bug að Íbúðalánasjóður sé óbilgjarn

Ásta H. Bragadóttir, starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að sjóðurinn hafi ekki gengið fram af óbilgirni gagnvart fjölskyldum í greiðsluvanda með því að krefjast nauðungarsölu á íbúðum vegna langvarandi vanskila eigenda sem ekki hafa náð samkomulagi um greiðsluerfiðleikaaðstoð.

Nýir eigendur að Ölgerðinni

Auður I fagfjárfestasjóður ásamt meðfjárfestum leggja til nýtt hlutafé og eignast 36% í Ölgerðinni. Í tilkynningu segir að samhliða muni Arion banki eignast 20% í félaginu og Andri Þór Guðmundsson, forstjóri og Októ Einarsson, stjórnarformaður ásamt fjórum framkvæmdastjórum Ölgerðarinnar eiga 44% í félaginu eftir endurskipulagningu.

Spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í nóvember

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 0,50 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 3. nóvember næstkomandi. Við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana í 4,25% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 5,75%.

Fullsnemmt að segja botninum náð á fasteignamarkaði

Það er mat greiningar Arion banka að full snemmt sé að segja að botninum hafi verið náð á fasteignamarkaði þrátt fyrir að nýbirtar tölur Þjóðskrár Íslands gefi til kynna 0,4% hækkun fasteignaverðs í september frá fyrri mánuði.

Söluferli Sjóvár á lokastigum

Söluferlið á tryggingafélaginu Sjóvá er nú á lokasprettinum en aðeins vantar samþykki Seðlabankans. Kaupendur eru Heiðar Már Guðjónsson og Ársæll Valfells, lífeyrissjóðir, Arion banki og fleiri fjárfestar.

Sex.com slegið á tæpar 1500 milljónir

Sex.com, sem er jafnan álitið vera á meðal verðmætustu léna í heiminum, var nýlega slegið á 13 milljónir bandaríkjadala á uppboði. Upphæðin nemur tæplega 1500 milljónum króna. Eigandi lénsins, fyrirtækið Escom LLC, er gjaldþrota. Það var fyrirtækið Clover Holdings Ltd sem var hæstbjóðandi í lénið. Escom keypti lénið á 14 milljónir bandaríkjadala árið 2006, að því er ABC fréttastofan greinir frá.

Hátt í 9 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 8,8 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,3% í 1 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,5% í 6,2 ma. viðskiptum.

Hamborgarar gáfu vel af sér

Hagnaður McDonald's hamborgarakeðjunnar jókst á þriðja ársfjórðungi. Ástæðan er rakin til breytinga á matseðli McDonalds í Bandaríkjunum og lengri opnunartíma í Evrópu.

Scott Belsky í Salnum á morgun

Metsöluhöfundurinn Scott Belsky heldur morgunverðarfund í Salnum á morgun klukkan 8:30. Belsky er sérfræðingur á sviði framkvæmda og framleiðni, og að hans sögn er hæfileikinn til að fylgja skapandi verkefnum eftir til enda engum meðfæddur. „Að framkvæma hugmyndir er kunnátta sem verður að þróa með skipulagi og með stuðningi samstarfsmanna og samfélags hvers og eins,“ segir í tilkynningu.

Hafnarfjörður á Jólaþorp

Einkaleyfastofa hefur nú staðfest að vörumerkið Jólaþorp er eign Hafnarfjarðarbæjar. Bærinn kærði fyrri úrskurð um að um almennt heiti væri að ræða. Almenna heitið er jólamarkaður en heitið Jólaþorp hefur 7 ára markaðsfestu og á því byggist staðfesting Einkaleyfastofu nú.

Nokia sparkar 1800 starfsmönnum

Þótt afkoma Nokia fyrirtækisins sé betri en vænst hafi verið til og hlutabréf í fyrirtækinu hafi hækkað um 8,6 prósent, ætla stjórnendur þess að skera verulega niður í rekstri.

Lokahnykkur á fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair

Lokið er endanlega samningum um fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair Group hf. sem tilkynnt var um í sumar. Skjalagerð tók mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, en í morgun voru allir samningar undirritaðir.

Milljónamæringum fjölgar um 35.000 í Noregi milli ára

Samkvæmt álagningarseðlum skattsins í Noregi fjölgaði milljónamæringum í landinu, mælt í norskum krónum, um 35.000 í fyrra miðað við árið áður. Yfir 60.000 Norðmenn voru með meir en eina miljón norskra kr. í tekjur í fyrra.

Tæplega 3.000 biðja um endurútreiking gjaldeyrislána

Tæplega 3.000 viðskiptavina Íslandsbanka hafa nú þegar sent beiðni um endurútreikning. Viðskiptavinir geta valið hvort inneign hjá Íslandsbanka sé endurgreidd eða lögð inná höfuðstól láns. Meirihluti viðskiptavina velur að láta inneign ganga inná höfuðstól lánsins.

Kaupmáttur hefur aukist um 2,2% á liðnu ári

Vísitala kaupmáttar launa í september 2010 er 107,7 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,2%.

Sögufrægt hótel í New York til sölu

Hið sögufræga Chelsea hótel í New York er til sölu. Á þessu hóteli samdi Dylan Thomas ljóð sín, söngkonan Janice Joplin bjó þar löngum og Sid Vicious bassaleikari Sex Pistols framdi sjálfsmorð þar.

Íslenskum auðmönnum fer fjölgandi

Íslenskum auðmönnum fer fjölgandi samkvæmt upplýsingum í Tíund, tímariti Ríkisskattstjóra. Þar segir að rösklega 3,600 manns hafi átt meira en hundrað milljónir króna hver, í fyrra.

Óvíst hvort hann bjóði í Haga

viðskipti Jóhannes Jónsson, löngum kenndur við Bónus, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann leggi fram tilboð eða kaupi hlut í Högum þegar fyrirtækjasamstæðan verður skráð á hlutabréfamarkað eftir áramót.

Sjá næstu 50 fréttir