Tæplega 3.000 biðja um endurútreiking gjaldeyrislána 21. október 2010 09:25
Tæplega 3.000 viðskiptavina Íslandsbanka hafa nú þegar sent beiðni um endurútreikning. Viðskiptavinir geta valið hvort inneign hjá Íslandsbanka sé endurgreidd eða lögð inná höfuðstól láns. Meirihluti viðskiptavina velur að láta inneign ganga inná höfuðstól lánsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en þann 1. október síðastliðinn opnaði Íslandsbanki Fjármögnun fyrir endurútreikninga á hluta af bílalánum, bílasamningum og kaupleigusamningum í erlendri mynt, rúmum 2 vikum eftir úrskurð Hæstaréttar um vaxtaþátt slíkra lána. Viðskiptavinir sem hafa verið greiðendur á láni frá útgáfudegi hafa síðan þá getað skoðað stöðu lánsins á vefsvæði Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/fjarmogun og gengið frá beiðni um endurútreikning. Þeir viðskiptavinir sem hafa ofgreitt til Íslandsbanka Fjármögnunar á lánstíma og eiga rétt á endurgreiðslu, geta valið um að láta upphæðina ganga inná höfuðstól lánsins eða fá hana greidda inn á reikning. Um rúmlega 7.000 lán er að ræða í þessum fyrsta áfanga. Endurútreikningarnir hafa fengið mjög góðar viðtökur frá viðskiptavinum og nú hafa tæplega 3.000 þeirra sent inn beiðni um endurútreikning í gegnum heimasíðu bankans eða með því að hafa beint samband við starfsmenn. Um 60% þeirra sem hafa ofgreitt hafa ákveðið að láta endurgreiðsluna ganga inn á höfuðstól lánsins, en 40% hafa kosið að fá hana greidda inná reikning. Ný lánsskjöl verða send til þeirra viðskiptavina sem hafa sent beiðni um endurútreikning og munu þau berast á næstu dögum. „Við erum afar ánægð með það hversu vel gengur að taka við beiðnum um endurútreikninga. Meirihluti þeirra sem eiga inni hjá okkur hafa ákveðið að láta endurgreiðsluna ganga inná höfuðstól lánsins og lækka þannig skuldsetninguna, sem er að mínu mati skynsamleg leið," segir Ingvar Stefánsson, yfirmaður Íslandsbanka Fjármögnunar. „Nú er næsta skref að endurútreikna lán sem hafa verið uppgreidd hjá okkur og varðandi yfirteknu lánin þá er meðhöndlun þeirra vonandi að skýrast með nýju lagafrumvarpi viðskiptaráðherra."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira