Fleiri fréttir Um 4 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 14,2 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 4,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 8,5 ma. viðskiptum. 20.10.2010 15:52 Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkuð Matsfyrirtækið Standard og Poor's hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr BB með neikvæðum horfum í BB+ með neikvæðum horfum. 20.10.2010 15:51 Skorið niður hjá hirð drottningar Elísabet II, drottning Breta, má sætta sig við frystingu launa á næsta ári og árið 2012 er gert ráð fyrir að framlög breska ríkisins til hirðarinnar allrar verði skorin niður um 14% árið eftir. Þetta kemur fram á norska viðskiptavefnum e24. 20.10.2010 13:59 Mesta eignaaukning hjá vogunarsjóðum í þrjú ár Á þriðja ársfjórðungi ársins hafa vogunarsjóðir séð fram á mestu aukningu á eignum undir þeirra stjórn á síðustu þremur árum. Að meðaltali jukust eignir vogunarsjóða heimsins um rúm 5% á ársfjórðungnum. Í heildina nemur aukningin 120 milljörðum dollara eða ríflega 13.000 milljörðum kr. 20.10.2010 11:01 Vísitala íbúðaverðs í borginni hækkaði um 0,4% í september Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303,9 stig í september og hækkar um 0,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði lækkaði hún um 3,2%. 20.10.2010 10:00 Vísitala byggingarkostnaðar lækkar um 2% Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2010 er 100,9 stig sem er lækkun um 2,0% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í nóvember 2010. 20.10.2010 09:01 Actavis í dómsmáli vestan hafs vegna brota gegn einkaleyfum Svissneska lyfjafyrirtækið Galderma hefur hafið mál gegn Actavis fyrir dómstóli í Wilmington í Delaware í Bandaríkjunum. 20.10.2010 08:23 Tekjutap vegna hruns kolmunnastofnsins 3,5 milljarðar Tekjutap útgerða og sjómanna, og þar með þjóðarbúsins, vegna niðurskurðar á kolmunnakvóta á næsta ári, nemur að minnsta kosti þremur og hálfum milljarði króna. 20.10.2010 07:43 Erfiðara að viðhalda kröfum Skuldir fyrnast á tveimur árum í stað fjögurra áður, samkvæmt nýju frumvarpi. Á föstudag á að leggja fyrir ríkisstjórn frumvarp um gengistryggð lán og lyklafrumvarp. Samið við banka um stöðu ábyrgðarmanna. 20.10.2010 06:00 Allsherjarmisnotkun Landsbankans kærð 20.10.2010 00:01
Tekinn með allt niðrum sig 18.10.2010 00:01 Ríkasti maður Indlands fluttur í hús á 27 hæðum Mukesh Ambani, ríkasti maður Indlands, flutti í dag nýtt hús ásamt fjölskyldu sinni. Ekki er um hefðbundið einbýlishús að ræða því nýja húsið er á 27 hæðum og á þakinu er ekki einn heldur þrír þyrlupallar. Húsið er metið á 630 milljónir punda eða jafnvirði um 111 milljarða íslenskra króna. 17.10.2010 22:45 Hafnar því að sjóðurinn hafi brotið lög Framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins hafnar því alfarið að sjóðurinn hafi gerst brotlegur við lög með fjárfestingum sínum fyrir hrun. Hann segir mistök að keypt var skuldabréf í þeim tilgangi að Kaupþing og Glitnir héldu velli. 17.10.2010 18:45 Katrín fundar með orkumálaráðherra Rússlands Sergey Shmatko, orkumálaráðherra Rússlands, er á leið í opinbera heimsókn til Íslands, ásamt sendinefnd, til fundar við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og fulltrúa íslenskra orkufyrirtækja til að ræða frekara tvíhliða samstarf landanna á sviði orkumála. Fundurinn fer fram í iðnaðarráðuneytinu á morgun. Shmatko mun einnig funda með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. 17.10.2010 13:20 Sjá næstu 50 fréttir
Um 4 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 14,2 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 4,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 8,5 ma. viðskiptum. 20.10.2010 15:52
Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkuð Matsfyrirtækið Standard og Poor's hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr BB með neikvæðum horfum í BB+ með neikvæðum horfum. 20.10.2010 15:51
Skorið niður hjá hirð drottningar Elísabet II, drottning Breta, má sætta sig við frystingu launa á næsta ári og árið 2012 er gert ráð fyrir að framlög breska ríkisins til hirðarinnar allrar verði skorin niður um 14% árið eftir. Þetta kemur fram á norska viðskiptavefnum e24. 20.10.2010 13:59
Mesta eignaaukning hjá vogunarsjóðum í þrjú ár Á þriðja ársfjórðungi ársins hafa vogunarsjóðir séð fram á mestu aukningu á eignum undir þeirra stjórn á síðustu þremur árum. Að meðaltali jukust eignir vogunarsjóða heimsins um rúm 5% á ársfjórðungnum. Í heildina nemur aukningin 120 milljörðum dollara eða ríflega 13.000 milljörðum kr. 20.10.2010 11:01
Vísitala íbúðaverðs í borginni hækkaði um 0,4% í september Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303,9 stig í september og hækkar um 0,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði lækkaði hún um 3,2%. 20.10.2010 10:00
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar um 2% Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2010 er 100,9 stig sem er lækkun um 2,0% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í nóvember 2010. 20.10.2010 09:01
Actavis í dómsmáli vestan hafs vegna brota gegn einkaleyfum Svissneska lyfjafyrirtækið Galderma hefur hafið mál gegn Actavis fyrir dómstóli í Wilmington í Delaware í Bandaríkjunum. 20.10.2010 08:23
Tekjutap vegna hruns kolmunnastofnsins 3,5 milljarðar Tekjutap útgerða og sjómanna, og þar með þjóðarbúsins, vegna niðurskurðar á kolmunnakvóta á næsta ári, nemur að minnsta kosti þremur og hálfum milljarði króna. 20.10.2010 07:43
Erfiðara að viðhalda kröfum Skuldir fyrnast á tveimur árum í stað fjögurra áður, samkvæmt nýju frumvarpi. Á föstudag á að leggja fyrir ríkisstjórn frumvarp um gengistryggð lán og lyklafrumvarp. Samið við banka um stöðu ábyrgðarmanna. 20.10.2010 06:00
HS orka afhendi Norðuráli 250 MW „Við erum í óformlegum viðræðum. Meðan mál eru enn fyrir gerðardómi er þetta ekki á formlegum nótum,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS orku um viðræður við Norðurál um afhendingu orku til álvers Norðuráls í Helguvík. 19.10.2010 17:18
Það kostar Breta 8 milljónir að eignast barnabarn Það kostar skildinginn að ala upp barn. En nú hefur það líka komið í ljós að það er líka rándýrt að eignast barnabarn. Rannsókn, sem sagt er frá í Daily mail, sýnir að ömmur og afar verji að meðaltali 50 þúsund sterlingspundum í fyrsta barnabarnið sitt 19.10.2010 16:34
14,3 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 1,1% í dag í 14,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 1,6% í 9,5 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 4,4 ma. viðskiptum. 19.10.2010 16:25
Meira en helmingur telur að laun muni standa í stað Um 52% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins telja að laun muni standa í stað á næstu 6 mánuðum en 45% telja að laun muni hækka. 19.10.2010 15:48
Búist við að um 500 þúsund missi vinnuna Búist er við því að um 500 þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi missi vinnuna á næstunni, samkvæmt tillögum sem David Cameron forsætisráðherra er með á teikniborðinu. 19.10.2010 15:00
IFS telur að verðbólga lækki í 3,1% Vísitala neysluverðs lækkar um 0,5% í október samkvæmt spá IFS greiningar. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,1%. Hagstofan mælir vísitölu neysluverðs í þessari viku, mánudag fram á föstudag, en niðurstöðurnar verða birtar þriðjudaginn 27. október 2010. Í október í fyrra hækkaði neysluverðsvísitala um 1,14% eða um 14,6% á ársgrundvelli. 19.10.2010 12:49
Metan lán sett á markað Landsbankinn hefur sett á markað Metan-lán sem ætluð eru þeim sem vilja breyta bíl sínum í metan bíl. Lánin eru hluti af þeirri hugmyndafræði bankans að marka sér skýrari umhverfisstefnu en áður. 19.10.2010 12:09
L´Oreal losar sig við Andie MacDowell Leikkonan Andie MacDowell er ekki lengur andlit snyrtivörurisans L´Oreal. Hin fimmtuga bandaríska leikkona var látin róa og í staðinn hefur L´Oreal ráðið hina tíu árum yngri bresku leikkonu Rachel Weisz. 19.10.2010 10:29
Spáir minnstu verðbólgu frá sumrinu 2005 Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki í október um 0,4% frá septembermánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna úr 3,7% í 3,0% og hefur þá ekki verið minni síðan í júní 2005. 19.10.2010 09:57
SFO hefur lokið rannsókn á JJB Sports og Sports Direct Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar eða Serious Fraud Office (SFO) hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum JJB Sports og Sports Direct. SFO ákvað að gefa ekki út ákærur en segir í tilkynningu að rannsókn á einstaklingum sem tengdust þessum viðskiptum og fyrirtækjum haldi áfram. 19.10.2010 09:18
Stærð norska olíusjóðsins orðinn 57.000 milljarðar Norski olíusjóðurinn hefur náð því að verða 3.000 milljarðar norskra kr. eða 57.000 milljarðar kr. að stærð í fyrsta sinn í 14 ára langri sögu sinni. 19.10.2010 09:01
Vita ekkert um íslenskt eignarhald á erlendum útgerðum Sjávarútvegs- og landúnaðarráðuneytið hefur enga hugmynd um íslenskt eignarhald á erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum. Ráðuneytinu ber heldur ekki að safna slíkum upplýsingum saman að eigin sögn. 19.10.2010 08:14
Könnun: 70% Dana ánægðir með skattabyrði sína Nú skoðanakönnun sýnir að sjö af hverjum tíu Dönum borga hæstu skatta heimsins með ánægju eða telja að skattabyrðin sé hæfileg fyrir þá. 19.10.2010 07:17
Von um lausn Icesavedeilunnar lækkar skuldatryggingaálagið Svo virðist sem fréttir um hagstæða niðurstöðu í yfirstandandi Icesave viðræðum hafi lækkað nokkuð skuldatryggingaálag Íslands. 19.10.2010 07:14
Seldi daginn eftir að ríkið ákvað að bjarga ekki hluthöfum í hruninu Fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Baldur Guðlaugsson, sem nú hefur verið ákærður fyrir innherjasvik, fundaði með samráðshópi um fjármálastöðugleika og viðbúnað, degi áður en hann seldi öll hlutabréf sín í Landsbankanum, fyrir um 192 milljónir króna, samkvæmt ákæruskjali. 18.10.2010 20:08
Segir stjórnmálamenn eigi ekki að líða fyrir stöðu sína Landsbankinn segir í yfirlýsingu um afskriftir á skuldum Nónu ehf., að þær hafi verið eðlilegar og að fyrrverandi eða núverandi stjórnmálamenn eigi ekki að líða fyrir stöðu sína. 18.10.2010 18:48
Hagar hugsanlega seldir erlendum fjárfestum Arion banki er að hefja formlegt söluferli á verslanafyrirtækinu Högum, sem á Bónus, Hagkaup og ýmsar tískuverslanir. Fyrsta skrefið verður að bjóða til sölu kjölfestuhlut en fjölmörg evrópsk fyrirtæki hafa sýnt Högum áhuga. 18.10.2010 18:35
Ríkisstjórn Bretlands fer að fordæmi Phillips Green Ríkisstjórn Bretland er að íhuga að fara að ráði auðjöfursins Phillips Green um að fresta greiðslum til viðskiptavina sinna. Ríkisstjórn Bretlands óskaði eftir því við Green að hann skilaði tillögum um sparnað í ríkisfjármálum. 18.10.2010 16:47
Tæplega 7 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 6,8 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 3,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 3,2 ma. viðskiptum. 18.10.2010 16:44
Róltól til sýnis í Kringlunni Fyrstu GSM farsímarnir sem seldir voru hér á landi árið 1994 eru til sýnis í verslun Símans í Kringlunni. Þróun símkerfisins allt til dagsins í dag er sýnd. Það er Síminn og Græn framtíð sem stendur að baki sýningunni. 18.10.2010 14:15
Ólöglegt að segja einstæðri móður upp Í Danmörku er ólöglegt að reka konur úr starfi á grundvelli þess að þær eru einstæðar mæður, samkvæmt dómi sem kveðinn var upp nýlega. 18.10.2010 13:56
Greining Arion banka spáir 3% verðbólgu í október Greiningardeild Arion banka spáir því að verðlag í október hækki um 0,5%. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 3% samanborið við 3,7% í september. 18.10.2010 11:23
Kauphöllin kynnir nýja vefþjónustu fyrir almenna fjárfesta NASDAQ OMX hefur tilkynnt um nýja vefþjónustu fyrir almenna fjárfesta sem fylgjast með norræna verðbréfamarkaðnum. 18.10.2010 11:07
Verðbólgan heldur áfram að hjaðna hérlendis Verðbólgan hér á landi var 5,1% í september samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og Hagstofa Íslands birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,8 prósentustig milli mánaða en hún var 5,9% hér á landi í ágúst samkvæmt vísitölunni. 18.10.2010 10:37
Framleiðendur lúxusvara komnir út úr kreppunni Lúxusvörur seljast sem aldrei fyrr aðeins ári eftir að margir framleiðendur þessara vara römbuðu á barmi gjaldþrots vegna fjármálakreppunnar. 18.10.2010 10:10
Apple gæti orðið verðmætasta fyrirtæki heimsins í dag Tölvurisinn Apple gæti orðið verðmætasta fyrirtæki heimsins í dag. Þá leggur Apple fram ársfjórðungsuppgjör sitt og sérfræðingar reikna með að hagnaðurinn af rekstrinum nemi um 5 milljörðum dollara eða um 550 milljörðum króna. 18.10.2010 09:06
Þrotabú Lehman Brothers hefur greitt 110 milljarða í laun Skilanefndir bankanna hér á landi hafa af mörgum þótt dýrar á fóðrum. Upphæðirnar blikna þó og blána í samanburði við hvað rekstur þrotabús Lehman Brothers hefur kostað kröfuhafana. 18.10.2010 07:48
Arion banka heimilt að auka við eignarhlut sinn í Valitor Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Arion banka heimild til að auka við eignarhlut sinn í greiðslukortafyrirtækinu Valitor og fara með hlut sinn yfir 50%. 18.10.2010 06:47
Uppsagnir verða minni en starfsfólkið óttast Starfsmenn í verksmiðju Bakkavarar í bænum Bourne í Englandi hafa áhyggjur af væntanlegum niðurskurði og telja störf um þrjú hundruð manns í hættu. 18.10.2010 06:00
FME krefst skýringa á okri í tryggingum Tryggingafélagið Vörður rukkaði viðskiptavin í síðustu viku um 725.396 krónur fyrir tryggingu á bifhjóli. Gjöldin voru endurskoðuð þegar eigandi hjólsins setti sig í samband við félagið sem lækkaði þá iðgjaldið um rúma hálfa milljón króna. 18.10.2010 05:30
Virkja verður hugmyndaauðgi starfsfólks fyrirtækja „Fyrirtæki standa almennt ekki frammi fyrir vandamálum á borð við fjárþurrð eða sjóðstreymi heldur skorti á hugmyndum. Þar sem hugmyndir kvikna ekki, þar er vandamál,“ segir Haraldur U. Diego, einn aðstandenda fundar um mikilvægi sköpunargleði á vinnustöðum sem haldinn var síðastliðinn föstudag. Húsfyllir var á fundinum. 18.10.2010 03:00
Ríkasti maður Indlands fluttur í hús á 27 hæðum Mukesh Ambani, ríkasti maður Indlands, flutti í dag nýtt hús ásamt fjölskyldu sinni. Ekki er um hefðbundið einbýlishús að ræða því nýja húsið er á 27 hæðum og á þakinu er ekki einn heldur þrír þyrlupallar. Húsið er metið á 630 milljónir punda eða jafnvirði um 111 milljarða íslenskra króna. 17.10.2010 22:45
Hafnar því að sjóðurinn hafi brotið lög Framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins hafnar því alfarið að sjóðurinn hafi gerst brotlegur við lög með fjárfestingum sínum fyrir hrun. Hann segir mistök að keypt var skuldabréf í þeim tilgangi að Kaupþing og Glitnir héldu velli. 17.10.2010 18:45
Katrín fundar með orkumálaráðherra Rússlands Sergey Shmatko, orkumálaráðherra Rússlands, er á leið í opinbera heimsókn til Íslands, ásamt sendinefnd, til fundar við Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og fulltrúa íslenskra orkufyrirtækja til að ræða frekara tvíhliða samstarf landanna á sviði orkumála. Fundurinn fer fram í iðnaðarráðuneytinu á morgun. Shmatko mun einnig funda með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. 17.10.2010 13:20