Hafnar athugasemdum um óeðlileg hagsmunatengsl 13. janúar 2009 15:45 Arna Schram.
Blaðamannafélagið vinnur að málum fyrrverandi starfsmanna Viðskiptablaðsins með sama hætti og unnið var að málum varðandi þrotabú gamla Fréttablaðsins, segir Arna Schram, formaður blaðamannafélags Íslands. Fréttablaðið bendir á það í dag að 15 fyrrverandi starfsmenn Viðskiptablaðsins hafi leitað til Blaðamannafélags Íslands. Fólkið hefur ekki fengið greidd laun né uppsagnafrest eftir að Framtíðarsýn, sem var rekstrarfélag blaðsins, óskaði eftir greiðslustöðvun. Það mun því koma í hlut Blaðamannafélagsins að gera kröfu í bú Framtíðarsýnar fyrir hönd þeirra ef Framtíðarsýn verður tekið til gjaldþrotaskipta.Hefur oft sótt réttindi gagnvart vinnuveitanda sínum Arna er hins vegar í hópi þeirra starfsmanna sem fengu starf hjá Myllusetri, nýju útgáfufélagi blaðsins, eftir að það tók við blaðinu. Hún hefur því fengið greitt umsamið kaup og kjör. Sem formaður Blaðamannafélagsins mun hún því þurfa að sækja réttindi fyrir fyrrverandi samstarfsmenn sína af fjölmiðlinum sem hún starfar hjá. Arna segir að þetta skapi ekki óeðlileg hagsmunatengsl. Hún hafi starfað hjá þremur fjölmiðlum. Hjá öllum þessum miðlum hafi félagið með einum eða öðrum hætti þurft að sækja rétt félagsmanna í ýmsum málum. Arna segir að það fyrirkomulag hafi orðið ofan á hjá Blaðamannafélaginu að formaður vinni ekki á skrifstofu félagsins heldur á fjölmiðlum. Þetta sé að mörgu leyti mjög gott fyrirkomulag en hafi þann ókost að formaður geti lent í alls kyns stöðu gegn atvinnurekendum. Vill að upplýst verði um eigendur Viðskiptablaðsins Ekki hefur verið upplýst um það hverjir nýir eigendur að Viðskiptablaðinu eru. Arna gagnrýnir þetta fyrirkomulag. „Ég hef aldrei legið á þeirri skoðun minni að mér finnst það rétt að upplýsingar um eignarhald fjölmiðla séu opinberaðar," segir Arna. Hún bendir þó á að það hafi komið fyrir áður að eignarhald á fjölmiðlum hafi verið óljóst um tíma. Hún bendir á Fréttablaðið máli sínu til stuðnings.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira