Viðskipti innlent

Fitch Ratings hættir að meta gömlu bankana þrjá

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að það muni ekki birta frekari lánshæfiseinkunnir eða greiningar vegna gömlu bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans.

Þetta á einnig við um dótturfélög þessara banka eins og t.d. Singer & Friedlander í Bretlandi sem var í eigu Kaupþings.

Samhliða þessu hefur Fitch staðfest síðustu einkannir sínar á bönkunum þremur en þær eru D eða gjaldþrot.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×