Fleiri fréttir

Krónan í frjálsu falli

Gengi krónunnar virðist sem í frjálsu falli. Hún hefur nú fallið um 4,4 prósent innan dagsins. Evran hefur aldrei verið dýrari.

Krónan fellur um 2,5 prósent

Gengi krónunnar hefur fallið um rúm 2,5 prósent í dag. Vísitalan stendur í 167,3 stigum. Evran kostar nú 130 krónur og hefur aldrei verið dýrari.

Segir Seðlabankann eitt af helstu efnahagsvandamálunum

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir að eitt af helstu efnahagsvandmálum þjóðarinnar í dag sé að Seðlabanki Íslands þverskallist við að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar. Dæmi um það sé sú töf sem orðin er á margumræddri lántöku ríkissjóðs til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Icelandair á flug

Gengi hlutabréfa í Icelandair hækkaði um 2,95 prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Fyrirhugað er að félagið segi upp hátt í þrjú hundruð starfsmönnum vegna erfiðleika í rekstri. Þá hækkaði gengi 365 um 0,86 prósent, Glitnis um 0,31 prósent og Straums um 0,1 prósent.

Gengið heldur áfram að falla

Gengi krónunnar hélt áfram að falla í fyrstu viðskiptum dagsins í morgun. Gengisvísitalan hækkaði um 0,4% og veiktist krónan sem því nemur. Er gengisvísitalan nú 164,5 stig.

Neyðarfundur um olíukreppu skilaði litlu í dag

Gjá hefur myndast milli olíusöluríkja og kaupenda á vesturlöndum vegna deilna um hvað valdi síhækkandi olíuverði á heimsmarkaði. Neyðarfundur leiðtoga olíurframleiðsluríkja og helstu iðnríkja heims um olíukreppuna skilaði litlum árangi í dag.

Sádí Arabar lækka olíuverð

Sádí Arabar tilkynntu í morgun að þeir hefðu aukið olíuframleiðslu sína um nærri tíu milljón tunnur á dag til að lækka olíuverð. Neyðarfundur vegna síhækkandi olíuverðs hófst í Jedda í Sádí Arabíu í morgun.

Debenhams lengir greiðslufrest til birgja

Breska fataverslunarkeðjan Debenhams hefur sent birgjum sínum þau skilaboð að greiðslufrestur keðjunnar til birja verði 96 dagar. Ástæðan ku vera erfiðarleikar á markaði eftir því sem fram kemur í Sunday Times í morgun.

Búist við að olíuframleiðsla aukist í júlí

Sádí Arabía og fleiri OPEC ríki ætla að auka olíuframleiðslu til að mæta eftirspurn, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar. Sádí Arabía mun auka framleiðslu um 9,7 milljónir tunnur á dag í júlí. Þetta er mesta framleiðsluaukning í marga áratugi.

Woolworths: Risaeðla í útrýmingarhættu

Leið bresku verslanakeðjunnar Woolworths hefur legið niður á við síðustu sex ár. Verslunin, sem á rætur að rekja til Bandaríkjanna, fagnar aldarafmæli á næsta ári. Breska dagblaðið Telegraph telur ólíklegt að þau verði mikið fleiri.

Fjármálaráðherra segist skilja áhyggjur af háum stýrivöxtum

„Við erum að opna möguleika fyrir bankana. Það vita það allir að bankarnir hafa átt erfitt með lausafé og við erum að gera okkar til að hjálpa í því," segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra um gagnrýni Hreiðars Más Sigurðssonar forstjóra Kaupþings.

DeCode snerti lægsta gildi

Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar fór í 77 sent á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum en það er lægsta gengi bréfanna frá upphafi.

Fall á bandarískum hlutabréfamarkaði

Gengi hlutabréfa lækkaði verulega á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Fallið orsakast af mikilli hlutabréfasölu fjárfesta, sem nú óttast að bankar og fjármálafyrirtæki beri með sér fleiri lík í lestinni sem geti valdið frekari afskriftum. Þá hækkaði olíuverð nokkuð eftir mikla verðlækkun í gær.

Icelandair hækkaði mest í Kauphöllinni

Icelandair tók flugið í Kauphöllinni í dag þegar gengi bréfa í félaginu hækkaði um 3,53 prósent. Gengið endaði í 15,25 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra í vikunni. Þá hækkaði gengi bréfa í Færeyjabanka um rétt rúmt prósent.

Viðsnúningur á hlutabréfamarkaði

Gengi bréfa í Icelandair hefurhækkað um 3,19 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Heldur hefur hins vegar dregið úr hækkun dagsins eftir því sem liðið hefur nær lokun hlutabréfamarkaðar.

Eðlileg og skynsamleg viðbrögð við stöðunni

Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóa Íslands, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á fasteigna- og fjármálamarkaði, sem kynntar voru í gær, eðlileg og skynsamleg viðbrögð við þeirri stöðu sem uppi er.

Nauðsynlegt að eyða óvissu í efnahagsaðgerðum stjórnarinnar

Greining Glitnis segir að nauðsynlegt sé að eyða óvissu í kringum efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem fyrst. Er þar átt við enn hefur ekki verið kynnt hvort fjármögnun þessara aðgerða muni fara fram með frekari útgáfu í íbúðabréfaflokkum sem nú þegar eru til staðar eða hvort að nýir flokkar verða gefnir út.

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel í fyrra

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu 2007. Heildarniðurstaða ársins er betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og er fjárhagurinn traustur.

Skuldatryggingarálag ríkisins tók kipp upp á við

Það eru ekki einvörðungu skuldatryggingaálög viðskiptabankanna þriggja sem hafa verið að hækka upp á síðkastið. Skuldatryggingaálag á skuldbindingar ríkissjóðs til fimm ára tók kipp upp á við í gærmorgun eftir að hafa haldist nokkuð stöðugt frá því í lok apríl.

Jafet: Lánardrottnar Eimskips munu fara fram á aðgerðir

Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Veigs, segir í samtali við Vísi að sú staðreynd, að Eimskip uppfylli ekki fjárhagskvaðir allra lánasamninga sinna vegna lágs eiginfjárhlutfalls, sé slæm fyrir félagið ef það verður viðvarandi ástand.

Gengið heldur áfram að styrkjast

Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í morgun eða um 1,35%. Fór gengisvísitalan aftur undir 160 stig og er nú 159,5 stig.

Verðbólga á Indlandi mælist 11 prósent

Verðbólga mælist nú ellefu prósent á Indlandi, samkvæmt tölum hagstofu landsins. Verðbólgutölur sem þessar hafa ekki sést í þrettán ár. Hún var 8,75 prósent í mánuðinum á undan.

Eimskip uppfyllir ekki skilyrði lánardrottna

Eimskip uppfyllir ekki fjárhagskvaðir allra lánasamninga sinna eftir því sem fram kemur í afkomutilkynningu félagsins vegna lágs eiginfjárhlutfalls. Eigið fé félagsins er nú rétt rúmir 36 milljarðar sem gerir 14,4% eiginfjárhlutfall. Í afkomutilkynningunni segir að almennt sé kveðið á um hærra eiginfjárhlutfall en það í lánasamningum.

Þrettán milljarða tap hjá Eimskip

Eimskip tapaði rétt tæpum þrettán milljörðum á öðrum ársfjórðungi samkvæmt afkomutilkynningu sem barst Kauphöllinni nú undir miðnætti. Tapið skýrist að mestum hluta af níu milljarða afskrift félagsins á breska fyrirtækinu Innovate.

Kínverjar hækka eldsneytisverð um 18 prósent

Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um rúma fjóra dali á tunnu eftir að stjórnvöld í Kína ákváðu að hækka verð á eldsneyti og díselolíu um átján prósent. Markmiðið er að draga úr eldsneytiskaupum og slá á verðbólgu í landinu.

Bréf í AMR ruku upp um 15 prósent

Gengi hlutabréfa í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR rauk upp um rúm fimmtán prósenta á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag eftir að olíuverð lækkaði.

Varaði við ástandinu fyrir tveimur árum síðan

Í tilefni kvenréttindadagsins ræddi Vísir við Dr. Herdísi Þorgeirsdóttur, prófessor við Háskólann á Bifröst, um stöðu kvenna í stjórnum fyrirtækja. Hún segir að sú staða sem er uppi núna þar sem ungir karlmenn eru helst í framvarðasveitinni sé ekki góð og að Tengslanets-ráðstefnan Völd til kvenna hafi varað við ástandinu árið 2006.

Þorbjörn Atli í lok dags

Þorbjörn Atli Sveinsson hjá Greiningardeild Kaupþings var gestur Sindra Sindrasonar í lok dags hér á Vísi.

Bréf Færeyjabanka hækkaði mest í dag

Gengi bréfa í Færeyjabanka hækkaði um 2,86 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkunin á markaðnum í dag. Gengi bréfa í Bakkavör hækkað um 1,91 prósent og bréf 365 um 1,74 prósent.

Kínverjar hækka olíuverð

Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega í dag eftir að fréttist að Kínverjar hyggist hækka verðið. Reiknað er með því að hærra verð muni draga úr eftirspurn eftir olíu á Kínamarkaði.

Sjóðsstjórar Bear Stearns handteknir

Tveir fyrrum stjóðsstjórar hjá bandaríska fjárfestingabankanum Bear Stearns voru handteknir í morgun vegna gruns um sviksamlegt athæfi í verðbréfaviðskiptum og fyrir að leyna upplýsingum. Þeir eru taldir hafa með ábyrgðalausum hætti hafa valdið því að sjóðir þeirra lentu í þroti en það leiddi meðal annars til gjaldþrots Bear Stearns.

Marel selur í Danmörku

Marel hefur náð samkomulagi um sölu á fyrirtæki í Danmörku sem starfrækt er undir merkjum Scanvaegt Norfo til Nienstedt G.m.b.H. Salan kemur til með að hafa lítil áhrif á veltu og hagnað Marel Food Systems fyrir árið 2008.

Hamleys opnar í Jórdaníu

Breski leikfangarisinn Hamleys, sem er í eigu Baugs Group og stýrt af Íslendingnum Guðjóni Karli Reynissyni, hefur opnað nýja glæsiverslun á Mecca Street í Amman, höfuðborg Jórdaníu.

Tveir af þremur stærstu hluthöfum FL Group úr stjórn

Þrír af mest áberandi viðskiptamönnum Íslands á undanförnum árum, Jón Ásgeir Jóhannesson, Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason, hurfu á einu bretti út úr stjórn FL Group í morgun. Pálmi og Hannes eru báðir í hópi þriggja stærstu hluthafa félagsins.

Sjá næstu 50 fréttir