Glitnir kynnir sparnaðarleið tengda umverfissjóði 25. júní 2008 10:22
Glitnir kynnti í dag nýja sparnaðarleið sem félagið tengir umhverfismálum, þá sérstaklega endurnýjanlegri orku og sjálfbærum sjávarútvegi. Eftir því sem segir í tilkynningu frá bankanum nefnist sparnaðarleiðin Save&Save og verða vextirnir með þeim hæstu sem eru í boði á hverjum markaði fyrir sig. Leiðin var kynnt á Íslandi og í Noregi í dag en hér á landi verða vextir á óbundnum Save&Save reikningi 15 prósent.Glitnir hyggst sem fyrr segir tengja þessa sparnaðarleið umhverfismálum og mun stofna nýjan sjóð sem nefnist Glitnir Globe - Sustainable Future Fund, eða sjálfbær sjóður fyrir sjálfbæra þróun. Þannig mun sjóðurinn stækka í réttu hlutfalli við fjölda viðskiptavina í Save&Save, en Glitnir greiðir 0,1 prósent ofan á vexti innstæðu á Save&Save reikningum á ársgrundvelli og renna þeir fjármunir í Glitnir Globe sjóðinn.Glitnir segir í tilkynningunni að markmiðið með Save&Save sé að auka innlán á öllum mörkuðum sem Glitnir starfar á og gangi áætlanir bankans eftir muni Glitnir Globe sjóðurinn hafa um hálfan milljarð króna til ráðstöfunar innan fárra ára.Áætlað er að sjóðsstjórn Glitnir Globe veiti árlega fé til verkefna sem tengjast þróun á sviði endurnýjanlegrar orku og sjálfbærum sjávarútvegi, hvort sem um er að ræða rannsóknarverkefni, viðskiptahugmyndir eða fræðsluverkefni.Í stjórn sjóðsins verða sex manns, dr. Rajendra K. Pachauri, hagfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi, Johan Olva Koss, fyrrverandi ólympíumeistari í skautahlaupi og framkvæmdastjóri samtakanna "Right To Play", dr. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Árni Magnússon, framkvæmdastjóri á orkusviði Glitnis og fyrrverandi ráðherra, og hjónin Grete og Jack Waitz. Grete er heimsþekkt íþróttakona sem hefur sigrað í New York maraþoninu níu sinnum og þau hjón hafa unnið náið með Krabbameinsfélaginu í Noregi.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira