Viðskipti innlent

Hagnaður íslenskra fyrirtækja 16 prósent af tekjum árið 2006

MYND/Hari

Rekstrarhagnaður tæplega 23.300 fyrirtækja sem voru í rekstri bæði árin 2005 og 2006 nam 16,2 prósent af tekjum árið 2006 og 14,4 prósent árið 2005. Þetta sýna nýjar tölur Hagstofunnar.

Þar kemur einnig fram að hagnaður af reglulegri starfsemi þessara fyrirtækja var 8,7 prósent af tekjum árið 2006 og 14,7 prósent árið 2005.

Í yfirlitinu eru fyrirtæki í öllum atvinnurekstri að meðtöldum fyrirtækjarekstri hins opinbera, þar með talin fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga sem rekin eru í hlutafélags- eða samlagsformi svo og orku-, veitu- og fjölmiðlafyrirtæki, en önnur starfsemi hins opinbera er undanskilin. Starfsemi lífeyrissjóða er einnig undanskilin.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×