Fleiri
FL spáð miklu tapi á þriðja fjórðungi 20.10.2007 00:01 Dropinn dýrkeyptur 20.10.2007 00:01 Fasteignaverð hækkar enn Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,8% í september samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins, eftir því sem fram kemur í Hálf-fimm fréttum Kaupþings. 19.10.2007 17:13 Askar Capital byggir borgarhluta á Indlandi Askar Capital ætlar að taka þátt í uppbyggingarverkefnum á Indlandi í samstarfi við Nikhil Ghandi, einn þekktasta athafnamann Indverja. Tryggvi Þór Herbergsson, forstjóri Askar, segir bankann hafa fjárfest í fyrstu eigninni en í kjölfarið muni rísa nýr borgarhluti sem skipulagður er og hannað frá grunni með tileyrandi afþreyingu og öryggisgæslu. 19.10.2007 15:40 Sjá næstu 50 fréttir
Víða getur nætt um fólk Við Smáratorg í Kópavogi er að rísa hæsta bygging landsins og gnæfir þar yfir nærsveitir. Á efstu hæð verður forláta veitingastaður og sjálfsagt unun að horfa yfir. Mikil er eftirvæntingin því heyrst hefur af því að þegar hafi verið lögð inn pöntun fyrir jólahlaðborð starfsmanna deCODE í turninum. 24.10.2007 00:01
Lífsstíll fremur en áhugamál Í hátt í tuttugu ár hefur Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, stundað hestamennsku af miklu kappi. Hann kynntist henni sem unglingur í sveit og keypti sér sinn fyrsta hest þegar hann var ekki nema sextán ára. „Hestamennskan var mér alltaf mjög nærri, þrátt fyrir að mitt fólk vissi ekki hvað sneri fram og hvað aftur á hestum. Hún togaði hins vegar alltaf í mig, allt frá þessum tíma.“ 24.10.2007 00:01
Engin kreppa á toppnum Á meðan sala á „venjulegum“ bílum dregst saman eykst sala á bílum sem kosta yfir fimm milljónir króna. Bílasalar merkja engan samdrátt í eftirspurn. 24.10.2007 00:01
Sófi fyrir nýsköpun Um þessar mundir er Klak nýsköpunarmiðstöð að flytja af efstu hæð Nýherja í Borgartúni í efstu hæðina á húsi Háskólans í Reykjavík við Kringluna sem áður hýsti Morgunblaðið. Í húsakynnum Klaks getur að líta forláta sófasett úr leðri, Chesterfield. Settið mun hafa verið eign ungs stjórnmálamanns sem nýverið settist á þing og gegnir hárri stöðu. 24.10.2007 00:01
Sprotafyrirtækin stíga fram úr skugganum Fjárfestingaþing Seed Forum fer fram á föstudag. Þetta er í sjötta sinn sem þing sem þetta er haldið í Reykjavík en þar kynna fulltrúar íslenskra og erlendra sprotafyrirtækja sig fyrir fjárfestum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson spjallaði við framkvæmdastjóra Seed Forum, og kynnti sér fyrirtækin. 24.10.2007 00:01
Forstjóri SPRON ánægður með fyrsta daginn í kauphöllinni Forstjóri SPRON segist vera ánægður með fyrsta dag sjóðsins í kauphöllinni. Hann segist ekki hafa áhyggjur af því þótt hlutabréf í sjóðnum hafi fallið um rúm 11 prósent frá opnun markaðar til lokunar. 23.10.2007 16:59
Icelandic Group stærst í Evrópu Icelandic Group er orðið stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu og hefur þar með skotið spænska risanum Pescanova aftur fyrir sig. Þetta er niðurstaða úttektar sem IntraFish hefur látið gera. 23.10.2007 15:45
Afkoma Handelsbanken á pari við væntingar Sænski Handelsbanken hagnaðist um rúma 2,5 milljarða króna, jafnvirði 24 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er sextán prósenta aukning frá sama tíma í fyrra og lítillega yfir væntingum markaðsaðila. 23.10.2007 16:49
Rúmlega helmingur tekna bankanna erlendis frá Um 54 prósent tekna íslensku viðskiptabankanna á fyrri hluta ársins kom erlendis frá samkvæmt hálfs árs uppgjöri þeirra. Þá mátti rekja 45 prósent heildareigna bankanna til erlendra dótturfélaga og um helmingur starfsmanna bankanna starfaði í útlöndum. 23.10.2007 16:27
Olíuverð lækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði talsvert á fjármálamörkuðum í dag eftir að viðræður hófust á milli stjórnvalda í Tyrklandi og Kúrda í norðurhéruðum Írak. Þá spilar inní að gert er ráð fyrir að olíubirgðir hafi aukist á milli vikna í Bandaríkjunum. 23.10.2007 16:20
SPRON féll um 10% á fyrsta degi Hlutabréf í SPRON virðast hafa verið of hátt metin á fyrsta degi í kauphöllinni því þau hafa fallið um tæp 10% frá opnun markaðarins. Við opnun stóðu þau í 18,9 á hlut en nú við lokun var gengið komið í 16,7 á hlut. 23.10.2007 15:34
Kaupþing toppar "300 stærstu" listann Kaupþing banki er í fyrsta sæti á "300 stærstu" lista Frjálsrar verslunnar sem kom út í dag. Raunar var Kaupþing einnig í fyrsta sæti í fyrra og ekki eru miklar breytingar á fimm efstu sætum listans. Velta Kaupþings er áberandi mest eða tæpir 306 milljarðar kr. Í öðru sæti kemur Landsbankinn með veltu upp á 185 milljarða kr. 23.10.2007 14:27
Bakkavör er stærsti vinnuveitandinn Bakkavör Group er stærsti vinnuveitandi landsins en hjá fyrirtækinu vinna nú tæplega 16.000 manns. Flestir starfsmennirnir vinna á vegum fyrirtækisins erlendis. Þetta kemur fram í nýjustu útgáfu Frjálsrar verslunnar af bókinni "300 stærstu". 23.10.2007 14:05
Hagvöxtur áfram - ekkert stopp Hagvöxtur áfram - ekkert stopp. Þetta segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningadeildar Kaupþings en greiningardeild gaf í morgun út hagvaxtarspá fyrir árin 2007-2010. 23.10.2007 12:53
Gengið sterkt út árið að mati Kaupþings Greiningardeild Kaupþings banka gerir ráð fyrir að gengi krónunnar verði fremur sterkt út árið og að gengisvísitalan sveiflist í kringum 116 stig. Mesta óvissan lýtur að framgangi alþjóðlegra vaxtamunaviðskipta og má fastlega gera ráð fyrir áframhaldandi sveiflum. 23.10.2007 12:47
Mikil spenna á vinnumarkaði Mikil spenna á íslenskum vinnumarkaði um þessar mundir kemur berlega fram í örum launahækkunum. Atvinnurekendur reyna að halda í fólk sitt með launahækkunum og laða að nýtt starfsfólk með freistandi launatilboðum. Fjallað er um málið í Morgunkorni Glitnis 23.10.2007 11:58
Ólöglegt niðurhal stöðvað Lögregluyfirvöld í Bretlandi og Hollandi hafa lokað einni stærstu sjóræningjavefsíðu tónlistar í heiminum. Gerðar voru húsleitir í nokkrum íbúðum í Amsterdam og einni í Teesside þegar alþjóðalögreglan Interpol réðist til atlögu gegn meðlimavefsíðunni OiNK. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Bretlandi í tengslum við málið í morgun. 23.10.2007 11:30
Úrvalsvísitalan lækkar lítilega Úrvalsvísitalan hefur lækkað lítilega í morgun eða um 0.80% og stendur nú í 8.235 stigum. Exista hefur hækkað mest eða um 1,67%. 23.10.2007 11:20
Lífleg viðskipti með SPRON-hluti Nokkuð lífleg viðskipti hafa verið með hluti í SPRON í kauphöllinni í morgun á fyrsta degi sparisjóðsins þar. Fjöldi viðskipta er nú kominn í 139 og markaðvirði þeirra nemur 750 milljónum kr. Kaupgengið er 16,5 23.10.2007 11:13
Meðallaun í Straumi-Burðarás 22,7 milljónir kr. Straumur-Burðarás er það fyrirtæki landsins sem gerðir hæstu meðallaunin á landinu. Samkvæmt bók Frjálsrar verslunnar "300 stærstu" er hver starfsmanna Straums-Burðarás með 22,7 milljónir kr. í árslaun að meðaltali. 23.10.2007 10:53
Nýr tvíhliða samningur um tekjuskatt Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra undirritar í dag fyrir hönd íslenska ríkisins nýjan tvíhliða samning við Bandaríkin um tekjuskatt. Frá þessu er greint á fréttavef Nasdaq. 23.10.2007 09:58
Nike kaupir Umbro Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur fest kaup á Umbro, helsta keppinaut sínum í Bretlandi og er kaupverðið rúmlega 30 milljarðar kr. Nokkur aðdragandi hefur verið að kaupunum því í síðustu viku gaf Umbro út yfirlýsingu um að áhugi væri fyrir kaupum á félaginu. 23.10.2007 09:16
Kristján hættur hjá FL Group Kristján Kristjánsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina í gær. Kristján, sem áður var í Kastljósi Sjónvarpsins, var ráðinn til starfa hjá félaginu í fyrrahaust og hefur því starfað hjá félaginu í rétt rúmt ár. 23.10.2007 09:10
Hlutabréf hækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir skell á föstudag. Fjárfestar biðu með eftirvæntingu eftir uppgjöri tæknifyrirtækja, ekki síst Apple, sem skilaði afar góðum afkomutölum. 22.10.2007 21:14
Afkoma Apple langt umfram væntingar Bandaríski tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Apple hagnaðist um 904 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 55,7 milljarða íslenskra króna, á þriðja fjórðungi, sem er fjórði fjórðungur félagsins, samanborið við 542 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er 67 prósenta aukning á milli ára og langt umfram spár fjármálasérfræðinga. 22.10.2007 21:01
MP Pension opnar í Litháen MP Pension Fund Baltic opnaði við hátíðlega viðhöfn í Vilníus þann 11. október síðastliðinn. Ramūnas Stankevičius, framkvæmdastjóri félagsins, kynnti þar meginmarkmið og verkefni félagsins en markmið þess er að örva frjálsan lífeyrissparnað í Litháen og upplýsa litháískt samfélag um ágæti lífeyrissjóða. 22.10.2007 15:52
Úrvalsvísitalan niður um tæp tvö prósent Íslensku fyrirtækin sem skráð eru í Kauphöllina fóru ekki varhluta af alþjóðlegu lækkanaferli á hlutabréfamörkuðum í dag. Gengi bréfa í FL Group féll um 4,36 prósent en gengi bréfa í Existu um 3,67 prósent. Gengi bréfa í einungis tveimur félögum hækkaði eftir daginn, í Flögu og Föroya banka. 22.10.2007 15:39
News Corp. verðmætasta fjölmiðlaveldið News Corp. er nú orðið verðmætasta fjölmiðlaveldi heims en það er að mestu í eigu Rupert Murdoch. Við niðursveifluna á mörkuðum vestan hafs á föstudag fór New Corp. framúr Time Warner hvað verðmætið varðar. 22.10.2007 14:14
Sheffield Wednesday bloggarar í vandræðum Æstir áhangendur breska knattspyrnuliðsins Sheffield Wednesday gætu átt yfir höfði sér himinháar sektir vegna ummæla sem féllu á spjallsíðu félagsins. Þar kepptust menn við að hrauna yfir stjórnendur félagsins sem þóttu ekki standa sig sem skyldi við reksturinn. 22.10.2007 10:58
Rauður dagur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hefur lækkað talsvert frá því viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,99 prósent. Gengi bréfa í Exista lækkaði um sex prósent skömmu eftir að viðskipti hófust en næstmest í FL Group, sem fór niður um fimm prósent. 22.10.2007 10:31
Pétur frá Glitni til Símans Pétur Þ. Óskarsson, forstöðumaður kynningarmála hjá Glitni, hefur verið framkvæmdastjóri samskiptasviðs Skipta, móðurfélags Símans, Skjásins, Mílu, Þjónustufyrirtækisins Já og fleiri félaga. 22.10.2007 09:56
Lækkun á flestum hlutabréfamörkuðum Hlutabréfavísitölur hafa lækkað víða um heim í dag í kjölfar lækkunar á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum á föstudag en fjárfestar óttast að óróleiki á fjármálamörkuðum geti dregið úr hagvexti. Gengi bandaríkjadals er sömuleiðis komið í lægstu lægðir gagnvart evru. 22.10.2007 09:22
Hefnd þróunarlandanna Það er ekki ólíklegt að það hafi ískrað kátínan í fulltrúum þriðja heims landa á fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem hófst í Washington í gær. 21.10.2007 17:12
Baugur ætlar að opna um 300 verslanir í Þýskalandi Baugur ætlar á næstu árum opna um 300 tískuvöruverslanir í Þýskalandi. Þá er fyrirtækið einnig að skoða markaði á Indlandi fyrir mögulega útrás. 21.10.2007 12:12
Stjórnarformaður Northern Rock fýkur Stjórnarformaður breska bankans Northern Rock hefur axlað ábygð á óförum bankans og sagt af sér. 20.10.2007 17:41
Verðmat á AMR lækkar Bandarískur greinandi mælir með því í nýju verðmati á bandaríska flugrekstrarfélaginu AMR, móðurfélagi American Airlines, stærsta flugfélagi Bandaríkjanna, að fjárfestar bæti við eignasafn sitt í félaginu. Þetta er lækkun á verðmati félagsins en í fyrri spá var mælt með kaupum á bréfunum. 20.10.2007 12:15
Baugur sagt bjóða 180 milljarða í Saks Baugur Group er sagt koma sterklega til greina sem einn af hugsanlegum kaupendum á bandarísku lúxusversluninni Saks en breska blaðið Times taldi í gær líkur á að félagið myndi gera tilboð upp á þrjá milljarða dala í keðjuna á næstunni. Þetta jafngildir 180 milljörðum íslenskra króna. 20.10.2007 08:00
Gengi Google aldrei hærra Hagnaður bandaríska netleitarrisans Google nam tæpum 1,1 milljörðum dala, rúmum 66 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er heilum 46 prósentum meira en félagið skilaði í kassann í fyrra og nokkru yfir væntingum markaðsaðila. 20.10.2007 06:00
Jákvæðir fyrir einkavæðingu Vilji Svía til að einkavæða er fyrir hendi svo framarlega sem ferlið er gagnsætt og ljóst er að allir sitji við sama borð. Þetta sagði Karin Forseke, fyrrverandi forstjóri sænska fjárfestingabankans Carnegie, á fundi sem Sænsk-íslenska verslunarráðið hélt í gær. 20.10.2007 06:00
Vilja slá skjaldborg um Sparisjóð Vestmannaeyja Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Vestmannaeyja vilja koma í veg fyrir að Sparisjóður Vestmannaeyja verði yfirtekinn líkt og gerðist í Hafnarfirði. Bæjarstjórnin heitir á stjórn og stofnfjáreigendur að standa saman og sækist eftir að kaupa stofnfjárbréf til að gæta að hagsmunum bæjarfélagsins. 20.10.2007 06:00
Spá meiri hagvexti Samtök atvinnulífsins telja að líkur séu á að hagvöxtur á árinu 2007 mælist yfir fimm prósent en ekki innan við eitt prósent eins og fjármálaráðuneytið heldur fram. 20.10.2007 05:00
Fasteignaverð hækkar enn Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,8% í september samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins, eftir því sem fram kemur í Hálf-fimm fréttum Kaupþings. 19.10.2007 17:13
Askar Capital byggir borgarhluta á Indlandi Askar Capital ætlar að taka þátt í uppbyggingarverkefnum á Indlandi í samstarfi við Nikhil Ghandi, einn þekktasta athafnamann Indverja. Tryggvi Þór Herbergsson, forstjóri Askar, segir bankann hafa fjárfest í fyrstu eigninni en í kjölfarið muni rísa nýr borgarhluti sem skipulagður er og hannað frá grunni með tileyrandi afþreyingu og öryggisgæslu. 19.10.2007 15:40
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur