Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útlit fyrir mjög erfitt ár Útlit er fyrir að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja verði mjög erfiður í ár, meðal annars sökum sterks gengis íslensku krónunnar. Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í gær . Fram kom í Hálf-fimm fréttum KB banka í gær að raungengi gagnvart Bandaríkjadal hafi ekki verið lægra í þrettán ár og aðrir gjaldmiðlar hafa einnig lækkað hratt gagnvart krónunni. 15.3.2005 00:01
Landsbankinn selur Og fjarskipti Landsbankinn og Burðarás hafa selt hlut sinn í Og fjarskiptum, eiganda Og Vodafone og 365 fjölmiðlanna. Landsbankinn hefur átt langa samleið með fyrirtækinu frá kaupum í Íslandssíma fyrir um fimm árum síðan. 15.3.2005 00:01
Kaupa flugfélagið Sterling Eigendur Iceland Express hafa fest kaup á norræna lágfargjaldaflugfélaginu Sterling. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Pálmi Haraldsson, annar aðaleigenda Iceland Express, segir í viðtali við blaðið að kaupverðið hafi verið um 5 milljarðar króna. 14.3.2005 00:01
Óvíst með samruna félaganna Pálmi Haraldsson, annar tveggja aðaleigenda lágfargjaldaflugfélagsins Iceland Express, segir að viðræður um kaup á norræna flugfélaginu Sterling hafi staðið yfir síðan á síðari hluta síðasta árs. Hann vill ekki tjá sig um hvort stefnt sé að samruna félaganna og segir uppsagnir ekki á döfinni til að hagræða í rekstri þeirra. 14.3.2005 00:01
Hagvöxtur eykst milli ára Hagvöxtur var 5,2 prósent í fyrra samkvæmt áætlun Hagstofunnar. Þetta er einu prósentustigi meiri hagvöxtur en árið 2003. Einkaneysla jókst hins vegar um 7,5 prósent og fjárfestingar um tæp 13 prósent sem leiddi til 70 milljarða króna viðskiptahalla. 14.3.2005 00:01
Sjálfkjörið í stjórn SÍF Sjálfkjörið er í stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda á aðalfundi félagsins á föstudag, en til stendur að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm. Í tilkynningu frá SÍF kemur fram að Ólafur Ólafsson, núverandi stjórnarformaður, og stjórnarmennirnir Aðalsteinn Ingólfsson og Guðmundur Hjaltason bjóði sig áfram fram, en Hartmut M. Krämer, stjórnarmaður Kingfisher plc, Toupargel SA og Herlitz AG, og Nadine Deswasiere, framkvæmdastjóri hjá Nestlé í Frakklandi, koma væntanlega ný inn í stjórnina. 14.3.2005 00:01
Sádar vilja auka olíuframleiðslu Sádi-Arabar hafa mælt með því við önnur OPEC-ríki að framleiðsla á olíu verði aukin til að lækka verð á henni, en það hefur sjaldan verið hærra en um þessar mundir. Fulltrúar olíuframleiðsluríkjanna hittast á fundi á miðvikudag en á honum hyggjast Sádar leggja til að framleiðslan verði aukin um tvö prósent, í 27,5 milljónir tunna á dag. 14.3.2005 00:01
Vextir standa í stað Vextir íbúðalánasjóðs munu að öllum líkindum ekki lækka, eins og greiningardeild Landsbankans spáði fyrir helgi. Í útboði Íbúðalánasjóðs á föstudag bárust tilboð að nafnvirði 19 milljarða króna. Ákveðið var að taka tilboðum í bréf að nafnvirði 11 milljarða, sem er einum milljarði meira en áætlað var. 14.3.2005 00:01
Mikill hagvöxtur Að mati Hagstofunnar var 5,2 prósenta hagvöxtur í fyrra. Hagvöxturinn er því heldur meiri en gert hafði verið ráð fyrir en mikill vöxtur í einkaneyslu er helsti drifkraftur hagvaxtar. 14.3.2005 00:01
Brynjólfur segir sig úr stjórnunum Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, hefur sagt sig úr stjórnum Bakkavarar, Almenna lífeyrissjóðsins og Sindra hf. Hann segist, í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu, gera þetta með heildarhagsmuni Símans í huga og til þess að söluferli fyrirtækisins verði hafið yfir allan vafa. 13.3.2005 00:01
Hagnaður Hampiðjunnar eykst mjög Hagnaður Hampiðjunnar á síðasta ári var 276 milljónir króna eða tæpum 120 milljónum meiri en árið 2003. 12.3.2005 00:01
Olíuverð lækkar enn Olíuverð hefur enn lækkað á heimsmarkaði í morgun, einkum vegna þess að olíubirgðir í Bandaríkjunum eru í hámarki. Það sló nokkuð á verðlækkunina að Alþjóðaorkumálastofnunin telur enn að olíuþörf verði mikil á næstunni. Bandaríkjadollari hefur einnig lækkað um hartnær 2,5 prósent í þessari viku gagnvart íslensku krónunni. 11.3.2005 00:01
800 milljóna hækkun hlutafjár Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að hækka hlutafé bankans um 800 milljónir króna að nafnverði og selja til núverandi hluthafa bankans. Nýir hlutir verða boðnir hluthöfum bankans til kaups í samræmi við hlutafjáreign þeirra við lok viðskipta í dag. 11.3.2005 00:01
25% íbúðalána hjá bönkunum Fjórðungur íbúðalána er nú hjá bönkunum áætlar greiningardeild Landsbankans. Þetta er aukning frá því í janúar þegar bankarnir höfðu 19% markaðshlutdeild. Íbúðalánasjóður ætti þannig að vera með 62% lánanna og lífeyrissjóðir um 13%. 11.3.2005 00:01
Krónan ekki sterkari í 12 ár Íslenska krónan hefur ekki verið sterkari frá gengisfellingunni í júní árið 1993 að sögn Greiningardeildar Landsbankans. Hún styrktist um 0,7% í dag. Bandaríkjadalur kostar nú 58,6 krónur. Landsbankinn segir líklegt að styrkingu krónunnar síðustu daga megi rekja til aukins áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum gjaldeyrismarkaði. 11.3.2005 00:01
Kaupa lyfjaverksmiðjur á Spáni Hópur íslenskra fjárfesta hefur keypt tvö spænsk lyfjafyrirtæki sem sérhæfa sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja. Íslenska fyrirtækið Invent Farma kaupir fyrirtækin, en forystumaður hópsins er Friðrik Steinn Kristjánsson, stofnandi Omega Farma sem nú tilheyrir samsteypu samheitalyfjafyrirtækisins Actavis. 11.3.2005 00:01
Skattbyrði eykst hér og í Ástralíu Ísland og Ástralía eru einu vestrænu ríkin sem hafa aukið skattbyrði undanfarin átta ár, samkvæmt nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um tekjuskatt ríkja. Í skýrslunni kemur fram að hjá öllum vestrænum ríkjum, fyrir utan Ástralíu og Ísland, hafi álögur á skattgreiðendur minnkað á tímabilinu að meðaltali um tvö prósent. 10.3.2005 00:01
Spáir 6,2 prósenta verðbólgu í ár Greiningardeild KB banka spáir 6,2 prósenta verðbólgu í ár. Rætur verðbólgunnar á þessu ári liggja einkum í miklum hækkunum á fasteignaverði sem hafa verið mjög hraðar allt frá síðasta hausti en húsnæðiskostnaður vegur rúmlega fimmtung í vísitölu neysluverðs. Greiningardeildin spáir 20 prósenta hækkun á fasteignaverði í ár. 10.3.2005 00:01
Vísitala neysluverðs hækkar Vísitala neysluverðs í nú mars hækkaði um 0,75 prósent frá fyrra mánuði og er nú 241,5 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,35 prósent á sama tíma. Vetrarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,2 prósent. Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 3,3 prósent en verð á bensíni og olíu hækkaði um 2,7 prósentustig. 10.3.2005 00:01
Enn hækkar olíuverð Heimsmarkaðsverð á olíu fór í gær yfir 55 dollara á tunnu í fyrsta sinn á þessu ári. Ástæðurnar eru sagðar mikil eftirspurn, kalt veður og veik staða dollarans. Verðið í gær fór ansi nálægt hámarki síðasta árs þegar tunnan fór hæst í tæpa 60 dollara. 10.3.2005 00:01
Netviðskipti aukast mikið í Evrópu Viðskipti á Netinu hafa aukist um heil 80 prósent í Evrópu á aðeins einu ári. Það eru einkum alls konar peningaviðskipti og heimabankastarfsemi sem og sala á flugferðum og ferðalögum sem hafa aukist gríðarlega. 10.3.2005 00:01
SÍF tapar tæplega 350 milljónum Tæplega 350 milljóna króna tap varð af rekstri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, SÍF, á árinu 2004 samanborið við rúmlega 50 milljóna króna hagnað árið á undan. Miklar breytingar urðu á rekstri fyrirtækisins á síðasta ári og jukust sölutekjur um 15,6 prósent á milli ára. 10.3.2005 00:01
Tekjur ferðaþjónustu 39 milljarðar Heildargjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar voru rúmlega 39 milljarðar króna árið 2004 og jukust um 5,4 prósent frá árinu 2003. Tekjurnar skiptast þannig að eyðsla erlendra ferðamanna innanlands var 26 milljarðar og fargjaldatekjur 13 milljarðar. 10.3.2005 00:01
Umbunað með hlutabréfum Flugleiðir hf. héldu aðalfund í dag og var nafni fyrirtækisins breytt í FL Group. Hagnaður félagsins var 3,4 milljarðar króna árið 2004 og samkvæmt tilkynningu frá félaginu hefur afkoman aldrei verið betri. Vegna þessa ákvað stjórnin að gefa hverjum starfsmanni hlutabréf í fyrirtækinu að markaðsvirði 70.000 krónur. 10.3.2005 00:01
Vextir gætu lækkað Tíu milljarðar í íbúðabréfum Íbúðalánasjóðs verða boðin út í dag. Spáð er lækkun vaxta á lánum sjóðsins. 10.3.2005 00:01
Vinsælustu fyrirtækin verðlaunuð Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Hitaveita Suðurnesja, Sparisjóðirnir og Olís eru vinsælustu fyrirtækin á Íslandi samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sem kynnt var í dag. 10.3.2005 00:01
Verðstríð lægir verðbólgu Verðbólgan á ársgrundvelli er nú 4,7 prósent en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,75 prósent milli febrúar og mars. Þetta er heldur minni verðbólga en spáð hafði verið. 10.3.2005 00:01
Ekki beðinn að víkja úr stjórnum Enginn hefur beðið forstjóra Símans um að víkja úr stjórnum Almenna lífeyrissjóðsins og Bakkavarar, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem líklegast þykir til að berjast um kaup á Símanum. Forvera hans var hins vegar skipað að víkja úr stjórnum tveggja félaga vegna einkavæðingaráforma Símans. 9.3.2005 00:01
Hreifst af Ólafi Einn þeirra sem tók sæti í stjórn Samskipa á aðalfundi félagsins í fyrradag er Flemming R. Jacobs fyrrum forstjóri danska skipafélagsins Mærsk. Jacobs er einnig stjórnarformaður skipafélagisns Neptune Orient Lines. 9.3.2005 00:01
Bakkavör hækkar hratt Bakkavör hefur hækkað um nítján prósent í Kauphöll Íslands frá því stjórnendur félagsins tilkynntu um kaup á breska matvælafyrirtækinu Geest í fyrradag. 9.3.2005 00:01
Heildarvelta Bakkavarar tífaldast Starfsmönnum Bakkavarar fjölgar úr 2500 í þrettán þúsund og heildarvelta samstæðunnar tífaldast með kaupum Bakkavarar á breska framleiðslufyrirtækinu Geest Plc. Kaupverðið nemur um 58 milljörðum íslenskra króna. 8.3.2005 00:01
Stjórnvöld eiga næsta leik Stjórnvöld eiga næsta leik, vilji þau að matvælaverð lækki frekar á Íslandi. Þetta sagði Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, á aðalfundi Samtaka verslunar og þjónustu í dag. 8.3.2005 00:01
Bakkavör stærst í heimi Bakkavör er orðin stærsti framleiðandi ferskrar, tilbúinnar matvöru í heiminum með kaupum á breska fyrirtækinu Geest, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Alls greiðir Bakkavör 70 milljarða króna fyrir Geest en Barcleys-bankinn lánar 58 milljarða sem forstjórinn segir hæsta lán sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið. 8.3.2005 00:01
Mjólkin á krónu og undir Lágvöruverslanir á matvörumarkaði seldu mjólkurlítrann á eina krónu og undir í gær. Matvöruverslanir eiga í verstríði á höfuðborgarsvæðinu. Mátti helst greina harða samkeppni í verði mjólkurvara og gosdrykkja. 8.3.2005 00:01
Bakkavör gulltryggir Geest Bakkavör mun ekki þurfa að auka hlutafé sitt vegna kaupa á Geest. Bakkavör lagði í gær fram formlegt tilboð í félagið eftir að niðurstaða áreiðanleikakönnunar Geest lá fyrir. Heildarverðmæti viðskiptanna er um 80 milljarðar króna. Bakkavör hafði heimild til hlutafjáraukningar og segir Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, að sú heimild hafi opnað þeim dyrnar. 8.3.2005 00:01
Forstjóri Boeing segir upp Harry Stonecipher, forstjóri og stjórnarformaður Boeing, hefur sagt upp starfi sínu hjá fyrirtækinu að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Farið var fram á uppsögn Stoneciphers eftir að rannsókn var gerð á sambandi hans við konu sem starfar hjá Boeing. 7.3.2005 00:01
Samherji eykur hlut sinn Samherji hefur aukið hlut sinn í Síldarvinnslunni um 10,59% og á eftir kaupin 34,78% eignarhlut í félaginu. Kaupverð eignarhlutarins var um 795 milljónir króna. Snæfugl, sem er 59% í eigu Samherja, á 12,94% eignarhlut í Síldarvinnslunni. 7.3.2005 00:01
3 milljarða hagnaður Samherja Hagnaður Samherja var 2.914 milljónir króna á sl. ári samanborið við 1.067 milljóna hagnað árið áður samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2004 sem stjórnin samþykkti á stjórnarfundi sínum í dag. 7.3.2005 00:01
Stór hluthafi í KB og Íslandsbanka Nýir eigendur eru komnir að þriðjungshlut í Olíufélaginu og með því eignast Landsbankinn dágóðan hlut í KB banka. Þar með er Landsbankinn óbeint stór hluthafi í báðum samkeppnisbönkunum, KB banka og Íslandsbanka. 7.3.2005 00:01
Stofnfé í SPRON verður stóraukið Stofnfjáreigendur geta keypt tvo nýja hluti fyrir hvern sem þeir eiga fyrir. Aðalfundur heimilaði að stofnfé yrði hækkað úr 14.480 hlutum í 100 þúsund en byrjað verður á þreföldun. Sparisjóðsstjórinn vill styrkja eigið fé sjóðsins. 7.3.2005 00:01
Átök S-hópsins og Björgólfsfeðga Sameining Sjóvíkur og SH er til sóknar á erlendum mörkuðum. Bak við sameininguna krauma átök milli S-hópsins undir forystu Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, og eigenda Landsbankans og Eimskipafélagsins. 7.3.2005 00:01
Félagsmenn eignast séreignasjóð Á aðalfundi Verzlunarmannafélgs Reykjavíkur mun stjórn félagsins leggja til að hver félagsmaður eignist séreignarsjóð hjá félaginu. 7.3.2005 00:01
Tímamót hjá Avion-flugfélaginu Avion Group hefur fengið afhenta Boeing 747-400 flugvél sem er mun sparneytnari og tæknilegri en eldri gerðir og getur borið mun meira af frakt yfir lengri vegalengd. Framkvæmdastjóri Avion segir þetta viss tímamót í rekstri félagsins. 7.3.2005 00:01
Varasjóðir VR "Með þessu erum við í raun og veru að setja allar hliðarþjónustu félagsins í einn sjóð. Sjötíu prósent iðgjalda rennur áfram til samtryggingar félagsins og fer í sjúkra- og slysadagpeninga, dagpeninga fyrir langveik börn, dánarbætur, lögfræðiaðstoð og svo framvegis," segir Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. 6.3.2005 00:01
Afskrifaði 500 milljónir af 700 Síminn borgaði tæplega 700 milljónir króna fyrir svokallaðar óefnislegar eignir í fyrra en afskrifaði rúmlega 500 þeirra í lok árs. Forstjóri Símans segir þetta ekki þýða að eignirnar hafi verið metnar of hátt. 6.3.2005 00:01
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent