OgVodafone eignast Norðurljós 28. október 2004 00:01
Og Vodafone og Norðurljós verða sameinuð undir merkjum Og Vodafone en félagið hefur eignast 90 prósent í Norðurljósum. Innan Norðurljósa starfa ljósvakamiðlar Íslenska útvarpsfélagsins og dagblöð Fréttar, Fréttablaðið og DV. Gunnar Smári Egilsson verður framkvæmdastjóri Norðurljósa en Sigurður G. Guðjónsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Íslenska útvarpsfélagsins, hefur látið af störfum. Og Vodafone kaupir Norðurljós á 3,6 milljarða króna og hluthafar í Norðurljósum eignast hlut í Og Vodafone á móti. Með þessu móti eru fjölmiðlar Norðurljósa því komnir á hlutabréfamarkað. Eiríkur Jóhannesson, forstjóri Og Vodafone, segir að með kaupunum sé verið að tryggja báðum félögunum slagkraft í samkeppni. "Við sem fjarskiptafyrirtæki erum að tryggja okkur aðgang að mjög miklu og góðu efni til þess að veita áfram og ég vona að við séum að tryggja þessum miðlum gott aðgengi að fólki og skilvirkari dreifileiðir," segir hann. Fjölmiðlar Norðurljósa munu áfram starfa sem sjálfstæðar einingar og segir Eiríkur að sameiningin sé "fyrst og fremst sóknarsameining" þótt alltaf sé litið til þess að laga hluti til í rekstri þegar sameiningar verða. Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa og Og Vodafone, vonast til þess að halda megi hluthafafundi um miðjan nóvember þar sem endanlega verði gengið frá sameiningunni. Hann á ekki von á því að miklar breytingar verði á rekstri þeirra eininga sem starfa innan fyrirtækisins. "Bæði þessi fyrirtæki eru í nokkuð góðum rekstri í dag. Það eru hins vegar ýmis tækifæri sem liggja í því að þau starfi nánar saman og það verða einhverjar breytingar sem leiða af því," segir hann og bætir við: "Að stærstum hluta munu almennir starfsmenn ekki verða mikið varir við þessi kaup." Gunnar Smári Egilsson tekur í svipaðan streng. "Þrátt fyrir að yfirstjórn Fréttar og Íslenska útvarpsfélagsins hafi verið sameinuð þá munu fjölmiðlar í eigu fyrirtækjanna í raun fjarlægjast með sjálfstæðari ritstjórnum. Við munum hins vegar stilla saman markaðs- og sölustarf, fjármál og annan rekstur og sækja þangað aukið afl til að styrkja núverandi miðla annars vegar og hins vegar til að stofna til nýrra," segir Gunnar Smári. Skarphéðinn segir að þróun á þessum markaði sé í þá átt að fjarskiptafélög og fjölmiðlar starfi sífellt nánar saman og sameinist. Þetta hafi flýtt fyrir þessum viðskiptum. Sigurður G. Guðjónsson kveður Norðurljós og segir Skarphéðinn að framlag hans til félagsins hafi verið mikilsvert. "Sigurður kom inn í fyrirtækið á mjög erfiðum tíma. Hann vann mjög gott starf og á hans tíma í Norðurljósum var fyrirtækinu snúið úr því að vera gjaldþrota yfir í að vera í ágætum rekstri," segir hann.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira