Viðskipti innlent

Barist um sætin í Íslandsbanka

Níu framboð eru um sjö sæti í bankaráði Íslandsbanka sem kosið verður um á hluthafafundi 3. nóvember næstkomandi. Hópur hluthafa sem í eru bankaráðsmenninrnir Karl Wernersson, Einar Sveinsson og Jón Snorrason telur sig hafa sterka stöðu og eigi fyrir fimm mönnum í bankaráðið. Auk þeirra eru í hópnum Steinunn Jónsdóttir sem einnig býður sig fram til setu í bankaráðinu. Þessi hópur taldi allt þar til í gær að Straumur myndi tilnefna tvo menn í bankaráðið sem ekki hefðu setið þar áður og að sjálfkjörið yrði í bankaráðið. Framboð Helga Magnússonar og Guðmundar B. Ólafsssonar, sem eiga sæti í bankaráðinu, kom því þessum aðilum á óvart. Þar á bæ er framboðið túlkað sem að þrýstingur hafi komið frá eigendum Landbankans innan Straums um að Helgi settist í bankaráðið. Innan Straums er því neitað að nokkurt samkomulag hafi legið fyrir um menn og fylking Straums hafi alltaf talið sig eiga fyrir þremur í bankaráðið. Auk Helga og Guðmundar er Úlfar Steindórsson fulltrúi Straums í framboði til bankaráðsins. Helgi og Guðmundur mynduðu í raun meirihluta í bankaráðinu með Víglundi Þorsteinssyni og Orra Vigfússyni. Hin fylkingin býður, auk bankaráðsmannanna þriggja og Steinunnar, fram Ólaf B. Thors, fyrrverandi forstjóra Sjóvár-Almennra, og Róbert Melax, stofnanda Lyfju og aðaleiganda Skífunnar. Báðar fylkingarnar telja sig eiga vísan stuðning í hópi annarra hluthafa. Straumur fjárfestingarbanki á samkvæmt eignarhlut fyrir tveimur mönnum. Fjármálaeftirlitið á eftir að úrskurða um hæfi Straums sem kjölfestufjárfestis í Íslandsbanka og fram til þess tíma getur Straumur ekki nýtt atkvæðisrétt sinn yfir tíu prósent. Líklegt er að ef ekki liggi fyrir niðurstaða Fjármálaeftirlitsins muni Straumur selja bréf til vilhalls aðila til að atkvæðarétturinn falli ekki dauður. Vika er til hluthafafundar og má allt eins má búast við að fylkingarnar reyni að styrkja stöðu sína fram að fundi, bæði með því að biðla til hluthafa og hugsanlega með frekari kaupum bréfa í bankanum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×