Fleiri fréttir

Og hvað svo?
Hann var ábúðarfullur embættismaður Reykjavíkurborgar sem var í beinni útsendingu í Kastljósinu þann 13. okt síðastliðinn. „Ég er bara miður mín“ voru hans fyrstu viðbrögð eftir að hafa horft á tvö innslög um kynþáttafordóma í skólum á Ísland.

Öryrkjar eru allskonar
Það að vera í vinnu og hvað þú gerir er stór hluti af sjálfsmynd fólks og hefur mikil áhrif á mat annarra. Þetta sést vel þegar fólk hittist og yfirleitt er fljótt spurt hvað viðmælandinn gerir. Út frá þessu svari er viðmælandinn gjarnan metinn.

Að vera eða ekki vera í fjöleignarhúsum hæfur
Að undanförnu hefur mikið verið rætt og ritað um nágrannaerjur í fjöleignarhúsum, sbr. nýlega grein mína á þessum vettvangi um um „Fjölbýli í blíðu og stríðu“ og umfjöllun á Stöð 2 sl. sunnudag. Hefur í umræðunni gætt misskilnings um meint rétt- og úrræðaleysi íbúðareiganda í fjöleignarhúsa vegna ónæðisvaldandi granna og réttarstöðu aðila í þýðingarmiklum atriðum.

Tollkvótaútboð og hagur neytenda
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, (SAFL) hefur undanfarið reynt að gera lítið úr þeim búsifjum, sem hækkanir á útboðsgjaldi, sem matvælainnflytjendur þurfa að greiða fyrir tollkvóta, valda neytendum.

Hvað eiga handklæði og skrásetningargjöld sameiginlegt?
Það er okkur Íslendingum mikilvægt að varðveita íslenska tungu. Við erum iðin við að búa til nýyrði, iðin við að leiðrétta þágufallssýki þó þörfin á því sé ekki endilega mikil. Við erum líka iðin við að nota orð sem lýsa nákvæmlega því sem fólk myndi einmitt halda að þau þýði.

Þetta reddast ekki
Heilbrigðisstéttir hafa varað við því árum saman að stærsta auðlind heilbrigðiskerfisins, starfsfólkið, fari þverrandi. Talað hefur verið fyrir daufum eyrum og nýafstaðinn heimsfaraldur hefur furðu litlu breytt hvað það varðar. Þá er mikilvægt að minna á að það er ekki heilbrigðiskerfinu sjálfu að þakka hversu vel Ísland kom út úr faraldrinum heldur fólkinu sem þar starfar.

Hvað gerist þegar vindinn lægir?
Vindorkutækni hefur sótt í sig veðrið undanfarin ár og treyst sig í sessi sem mikilvægur hluti af lausninni við loftslagsvandanum, enda þurfa þjóðir heims að skipta úr kolum, bensíni og olíu yfir í orkuvinnslu úr endurnýjanlegum auðlindum. Vindmyllur eru þó ekki fullkomin tækni og uppbyggingu vindafls geta fylgt áskoranir og vaxtarverkir.

Meðferðin á Sólveigu Önnu
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er eldklár kona og hörkudugleg. Hún er einnig gegnheil í baráttu sinni fyrir bættum kjörum láglaunafólks, bæði karla og kvenna. Sólveig Anna skreytir sig ekki með háskólagráðum en byggir málflutning sinn samt á staðreyndum og sérstaklega góðu jarðsambandi við aðstæður félagsmanna Eflingar. Hún er útsjónarsöm og pragmatísk og hefur sýnt sig að vera slyng samningakona.

Sjúkraþjálfaravaktin
Nú stendur til boða að fá tíma hjá sjúkraþjálfara á kvöldin alla virka daga á Læknavaktinni. Til að bóka tíma er annað hvort hægt er að mæta beint á vaktina eða bóka tíma á www.noona.is. Ekki þarf tilvísun frá lækni.

Tími umhleypinga
Fátt er oftar rætt á Íslandi en veðrið. Íslendingar sem dvelja erlendis spyrja iðulega um veðrið á Íslandi og hafa oft furðu mikinn áhuga á því. Römm er veðurtaugin, enda ekki skrýtið þar sem veðurfar hefur í gegnum aldirnar haft mikil áhrif á daglegt líf og afkomu Íslendinga.

Það er mismunandi heitt
Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu um samanburð á orkukostnaði heimila fyrir síðasta ár. Byggðastofnun hefur áður gefið út slíkar skýrslur og hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sambærilegum fasteignum víða um land.

Þetta reddast ekki
Heilbrigðisstéttir hafa varað við því árum saman að stærsta auðlind heilbrigðiskerfisins, starfsfólkið, fari þverrandi. Talað hefur verið fyrir daufum eyrum og nýafstaðinn heimsfaraldur hefur furðu litlu breytt hvað það varðar.

Guð hvað mér líður illa!
Mig langar til að byrja þessa grein á stuttri könnun á meðal lesenda: Rétt upp hönd ef þú hefur hreint og beint logið til um einhvers konar líkamleg veikindi á borð við ælupest eða flensu til að geta verið heima frá skóla eða vinnu af því að þér líður bara rosalega illa andlega?

Strætósamgöngur milli KEF og RVK eru óboðlegar
Ég lagði í gær fram fyrirspurn til innviðaráðherra um almenningssamgöngur til Keflavíkuflugvallar. Hún lætur frekar lítið yfir sér en snertir mál sem er mikilvægara en það virðist í fyrstu.

Við erum öll Efling
Staðreyndir í kjarabaráttu Eflingar er það eina sem við verðum að einblína á. Þá staðreynd að laun verkafólks duga ekki til framfærslu. Finnst okkur þessi staðreynd ásættanleg? Ef svarið er nei, þá styðjum við kjarabaráttu verkafólks innan Eflingar. Þetta er ekki flóknara. Það er allt í veröldinni samofið og verkfall Eflingar kemur því okkur öllum við. Við erum öll Efling.

Tímabært að hefja ráðningar erlends starfsfólks?
Bókunarstaða ferðaþjónustunnar lofar svo sannarlega góðu fyrir næsta ár og líkur á harðri samkeppni um hæft starfsfólk eru miklar. Til að vel takist til þarf að huga snemma að því að ráða starfsfólk og veita því góða þjálfun.

Ófriður í lífi láglaunamanneskju
Það er enginn friður fólginn í því að vera láglaunamanneskja. Það er enginn friður fólginn í því að geta ekki borðað út mánuðinn.

27,6% þjóðarinnar drekkur ekki áfengi
Einhver sagði að vikan milli jóla og nýárs væri besta vika ársins. Þá ætlast enginn til neins af þér, öll markmið liggja í þægilegum dvala á leið til endurskoðunar, þú hefur áorkað hinu og þessu á árinu sem er að líða og í þessa einu stuttu viku er engin pressa.

Að sjá skóginn fyrir trjánum
Alþjóðlegar virðiskeðjur eru órjúfanlegur hluti af vegferð flestra íslenskra fyrirtækja. Því er mikilvægt að átta sig á öllum snertiflötum virðiskeðjunnar og að líta til hvaða áhrif starfsemin hefur út fyrir landsteinana, ekki einungis út frá vernd umhverfisins heldur líka hinum stoðum sjálfbærrar þróunar: félagslegri velferð og efnahagsvexti.

Höfum við Íslendingar efni á að sleppa því að veita ungu fólki endurhæfingu?
Fyrir rúmu ári síðan birtum við stöllur grein á vef Vísi sem bar heitið „Fjárfesting í fólki”. Í greininni vitnuðum við í tillögur að endurhæfingastefnu sem gefnar voru út árið 2020 af Heilbrigðisráðuneytinu og tillögur um mótun og innleiðingu starfsgetumats sem gefnar voru út 2019 af Félagsmálaráðuneytinu.

Verðtryggðu launin mín
Síðastliðin 11 ár hef ég starfað í Lúxemborg og búið við ýmiskonar framandi forréttindi svosem efnahagslegan stöðugleika og fyrirsjáanleika.

Áfengislögin og réttarvitund almennings
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áform sín um að afnema hið fortakslausa bann sem áfengislög leggja við framleiðslu áfengis til einkaneyzlu og leyfa þannig heimabrugg áfengis með gerjun (framleiðslu bjórs og víns).

Mólok heimtar barnfórnir
Í Gamla testamentinu er að finna fordæmingar Guðs í garð ýmissa siða sem Ísraelsmönnum var bannað að ástunda samkvæmt lögmáli Móse. Einn slíkur siður er barnfórnir, en guðinum Mólok mun hafa verið færðar slíkar fórnir í von um einhvers konar efnisleg gæði. Líkt og mörg önnur minni úr Biblíunni þá hefur fordæmingin á Mólok lifað með mannkyninu inn í nútímann og stundum er vísað til Móloks þegar fjallað er um hvers kyns skammsýnar og grimmilegar fórnir.

Hugleiðing um síðustu fötin og hvernig við tölum um dauðann við börn
Dauðinn er stórt orð; sterkt og gildishlaðið, jafnvel óhugnanlegt. Þrátt fyrir að dauðinn geti falið í sér ákveðna líkn þá tengjum við hann eðlilega við eitthvað sem er sárt. Orð eins og missir, sorg, vanlíðan og e.t.v. áhyggjur eru orð sem koma strax upp í huga mér.

Verðbólga í boði Stjórnvalda og Seðlabankans
Nú liggur fyrir að helsti drifkraftur verðbólgu, sem nú mælist, eru gjaldskrárhækkanir hins opinbera og stýrivaxtahækkanir Seðlabankans.

Leitin að innsæinu
Á mínum yngri árum og jafnvel fram yfir fertugsaldurinn var ég í sporum sem ég óska engum að standa í - sporum sem ég hélt lengi vel að ég einn stæði í, en áttaði mig svo síðar að fjölmargir ýmst standa í eða hafa staðið í, hvort sem er til langs tíma eða tímabundið.

Fjárhagslegt ofbeldi á vinnumarkaði
Þökk sé #MeToo hreyfingunni þá hefur umræða um ofbeldi og birtingarmyndir þess færst í aukana á öllum miðlum, sem og einstaklinga á milli.

Eru skuldir þínar að aukast um hálfa milljón eða meira á mánuði?
Þann 25. janúar sl. birtist frétt á Vísi, sem byggði á nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þar sem sagði meðal annars að 86% allra nýrra húsnæðislána hjá bankastofnunum landsins væru verðtryggð.

Tíu ár af Fáðu já
Í dag eru nákvæmlega 10 ár síðan Fáðu já-stuttmynd um mörkin milli ofbeldis og kynlífs var frumsýnd í Bíó Paradís og síðan í öllum skólum á landinu. Myndin hlaut gríðarlega athygli og var um hana fjallað í flestum fjölmiðlum, beinar útsendingar voru frá frumsýningu og sýningum í skólum og mikil umræða skapaðist í samfélaginu.

Er siðferði heilbrigðisstétta geðþóttarákvörðun hverju sinni?
Á undanförnum misserum hafa ýmis erfið mál komið upp innan heilbrigðiskerfisins sem fær fólk til að staldra við og velta fyrir sér siðferðilegum spurningum um gildi, ábyrgð og trúverðugleika innan heilbrigðiskerfisins.

Fjölbýli í blíðu og stríðu
Húseigendafélagið hefur langa og mikla reynslu í málum fjölbýlishúsa og samskiptum eigenda og íbúa þeirra.

Velsæld og árangur á framsýnum vinnustað
Af hverju ætti það að skipta máli að huga að velsæld starfsmanna? Rannsóknir segja okkur svo enginn vafi sé á að það að huga vel að starfsmönnum er lykilatriði að árangri.

Nýtum tækifæri – opnum samtalið
Heilbrigðiskerfið stendur á tímamótum. Á sama tíma og það tekst á við stórar áskoranir hefur hröð nýsköpun og þróun í heilsu- og líftækni á síðustu árum hér á landi opnað ný tækifæri. Með því að nýta þau getum við tekist betur á við þessar áskoranir.

Nýjar upplýsingar um erlenda netverslun landsmanna
Lengi hefur verið skortur á upplýsingum um erlenda netverslun landsmanna en mikið hefur verið leitað til Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) eftir þeim upplýsingum. Undanfarið árið hefur RSV unnið að því, í samstarfi við tollsviði Skattsins, að greina pakkasendingar einstaklinga til landsins sem skilgreina má sem erlenda netverslun. Í kjölfarið kynnir rannsóknasetrið nú til leiks Netverslunarvísi RSV.

Óréttmæt þvingunaraðgerð gegn lágtekjufólki
Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur verður miðlunartillaga ríkissáttasemjara ekki felld nema 25 prósent félagsmanna í stéttarfélagi greiði atkvæði gegn henni.

Garðavogur?
Svæðisskipulagsnefnd sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu fékk fyrir skömmu til umsagnar tillögu um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar. Tillagan hefur með hagsmuni Garðabæjar að gera og snertir um leið hagsmuni Kópavogsbúa.

Laun fyrir að kúka í kassa
Að gefnu tilefni, skoðun mín á mismunun á td. listamannalaunum og stöðu þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu.

Hamingjan er það sem allir sækjast eftir
Hamingjan er það sem allir sækjast eftir, en hvernig skilgreinum við hamingjuna? Ég hef aldeilis ekkert einhliða svar við því. Umræðan og auglýsingarnar á öllum fréttamiðlum snýst um að höndla hamingjuna með einum eða öðrum hætti.

Hatursorðræða og umsögn Reykjavíkurborgar
„Og alltaf eigum við að greina snjómokstursþjónustuna og vetrarþjónustuna með augum kynjaðrar starfs- og fjárhagsáætlunar, og okkur skortir dáldið upp á það, því miður“, sagði borgarfulltrúi Vinstri-Grænna (VG) í ræðustól borgarstjórnar í umræðum 3. janúar sl. um fyrirkomulag snjóruðnings í Reykjavík. Já, greining snjómokstursþjónustu út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunargerð er nánast jafn mikilvæg, ef ekki mikilvægari, en það að sinna snjómokstri vel.

Vegna fyrirhugaðrar upptöku á notkun rafbyssa við löggæslustörf á Íslandi
Íslandsdeild Amnesty International ítrekar fyrri hvatningar til íslenskra stjórnvalda að taka tillit til þeirra athugasemda sem samtökin hafa gert við notkun rafbyssa. Deildin hvetur stjórnvöld til þess að innleiða ekki notkun þeirra við löggæslustörf á Íslandi fyrr en farið hefur verið að tilmælum sem fram koma í skýrslum Amnesty International og að fram fari ítarleg og óháð rannsókn á notkun rafbyssa og áhrifum þeirra.

Með lögum skal land byggja en ekki með ólögum eyða
Þann 23. janúar síðastliðinn kom Alþingi saman í fyrsta sinn eftir jólafrí. Eina málið á dagskrá er hið umdeilda útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem frumvarpið er lagt fram heldur það fimmta og er Jón Gunnarsson fjórði ráðherrann til að leggja það fram.

Hverjir „trakka“ okkur og börnin okkar – og hvað svo?
Í tilefni alþjóðlegs dags persónuverndar

Delluathvarf Stefáns
Í átökum fólks á milli verður atburðarásin stundum furðuleg. Þegar mikið er undir skiptir miklu máli að geta sýnt fram á hvers vegna þitt sjónarmið skiptir máli. Stundum verður kappið of mikið og beinum eða óbeinum blekkingum er beitt, sem verða stundum til fyrir misskilning.

Farsæld til framtíðar
Hvernig búum við börn og ungmenni best undir lífið sem bíður þeirra? Hvaða veganesti kemur sér best fyrir æsku landsins? Hvaða ábyrgð bera skólar landsins, kennarar, frístundaheimili og frístundafulltrúar í þeim efnum?

Vg leggur smábátasjómenn á höggstokkinn!
Vg er því miður í mínum huga hreinn og klár svikaflokkur. Flokkur sem boðaði bjartari tíð fyrir bothættar sjávarbyggðir og kvótalitlar útgerðir, fyrir kosningarnar 2021. Margur bar þá von í brjósti að þegar Svandís Svavarsdóttir (Vg) settist í ráðherrastól myndi hún beita sér fyrir auknu réttlæti og bjartari tímum sjávarbyggðanna. Sú von var andvana fædd.