Fleiri fréttir

Útúrsnúningar Landsvirkjunar um verð

Þorsteinn Þorsteinsson skrifar

Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, svarar nýlega grein minni, "Pyrrhosar­sigrar í orkusamningum“. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að réttum staðreyndum um orkuverð sé haldið til haga.

Hvar á Ísland heima?

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Makríldeilan og viðskiptabann stjórnvalda í Rússlandi á íslenskar sjávarafurðir ýta undir holla umræðu um stöðu Íslands. Við fylgjum NATO og ESB að málum í viðskiptaþvingunum gegn stjórn Pútíns. Kreml bregst ókvæða við og það kemur illa við kaunin á okkur, einkum vegna makríls. Deilurnar við ESB torvelda okkur að fá fellda niður háa tolla á fiskinn umdeilda í ESB. Það nánast dæmir okkur úr leik á okkar traustasta markaði.

Að vera stjórnmálamaður

Bergur Ebbi Benediktsson skrifar

Ég hugsa stundum um hvernig það sé að vera stjórnmálamaður. Að vakna upp einn daginn og vera formaður einhverrar þingnefndar eða utanríkisráðherra. Ég held að það sé glatað.

Kjötvinnsla kærleikans

Jón Gnarr skrifar

Ég var svo heppinn að vera í Houston þegar hið árlega Ródeó fór þar fram. Svona Ródeó eru alþjóðlegt fyrirbæri. Þar eru sýningar og skemmtiatriði en líka verslanir og sölubásar og kynningar á landbúnaði og húsdýrum og iðnaði þeim tengdum. Ródeóið í Houston er hið stærsta í heimi. Það er á Ródeóinu þar sem ofurhugar ríða ótemjum og mannígum nautum. Hátíðin dregur að sér margar milljónir gesta

Enn er bætt í vextina

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Fagnaðarefni er að Seðlabankinn ætli að grípa til aðgerða til að takmarka vaxtamunarviðskipti. Már Guðmundsson seðlabankastjóri upplýsti á vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudag að annaðhvort stæði til að leggja skatt eða bindiskyldu á færslur í slíkum viðskiptum.

Við munum öll deyja – byrjum karpið í dag

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Sá tími rennur upp í lífi sérhvers manns að hann getur ekki annað en gefist upp. Ég vona að þið getið fyrirgefið mér ef ykkur finnst ég sýna af mér sjálfselsku

Verður þjóðinni bjargað frá sjálfri sér enn og aftur?

Einar Guðmundsson skrifar

Íslensk þjóð hefur búið við þá gæfu að eiga á síðustu áratugum nokkur stórmenni sem eru slíkar mannvitsbrekkur að engin þörf er fyrir þjóðina að hugsa sjálfstætt, enda engin eftirspurn eftir hennar hugsun lengur.

Verkfræðingurinn sem varð „Mindful“

Þórður Víkingur Friðgeirsson skrifar

Sá sem ritar þessa grein hefur lengi starfað við stjórnun á margvíslegan hátt. Stjórnun er heillandi viðfangsefni. Með réttum stjórnunaraðferðum er hægt að vinna glæsta sigra. Á sama hátt getur vanstjórnun leitt til mikils tjóns.

Aktívistinn

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Í sumar fór ég í verslun í miðbænum. Við innganginn var ég næstum gengin á kæli fullan af pilsner. Kælirinn var furðulega stór, á besta stað, upplýstur og nánast glimmer­skreyttur, svo lokkandi var hann.

Rúllugjald

Kári Stefánsson skrifar

Einu sinni lagði framsóknarráðherra nokkur fram frumvarp til laga um samræmda stafsetningu sem átti meðal annars að koma böndum á óheftan skandalista, Halldór Kiljan Laxness að nafni.

Innleiðingarhraðinn

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar

Flestum er orðið það ljóst að ekki verður lengur beðið með afgerandi aðgerðir í loftslagsmálum en einhverra hluta vegna er lítið um stórtækar aðgerðir hjá ráðamönnum.

Rangfærslur um raforkuverð

Magnús Þór Gylfason skrifar

Þorsteinn Þorsteinsson markaðsrýnir staðhæfir í grein í Fréttablaðinu í gær að Landsvirkjun hafi "hækkað raforkuverð undanfarið um tugi prósenta á matvælaframleiðendur og ýmiss konar iðnfyrirtæki“. Það er ekki rétt.

Gleðilega menningarnótt!

Dagur B. Eggertsson skrifar

Á morgun höldum við Menningarnótt í 20. sinn en hún var fyrst haldin árið 1996 og hefur stækkað jafnt og þétt síðan. Menningarnótt er stærsta og fjölmennasta einstaka hátíð sem haldin er á landinu en meira en 100.000 gestir koma í bæinn og meira en hundrað mismunandi viðburðir eru haldnir.

Eitraður útgerðarauður

Jón Steinsson skrifar

Ég hef lengi barist fyrir því að þjóðin fái fullt gjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindum sínum. Einföld og góð markaðslausn sem myndi tryggja það væri uppboð á veiðiheimildum.

Dunkin' Dónar

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Innreið Dunkin' Donuts er til marks um gjaldþrot menningar okkar.

Sérhagsmuna­gæsla fyrir nokkrar fjölskyldur

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Löggjafinn ætti að afnema sem fyrst tollvernd kjúklinga og svínakjöts því engin rök réttlæta slíka tolla sem nokkrar fjölskyldur í landinu ­njóta að mestu góðs af.

Tjón á tónlistarlífi

Halldór Halldórsson skrifar

Og enn standa skólarnir og hið öfluga menningarlíf sem þeir skapa frammi fyrir algjörri óvissu vegna andvaraleysis eða miklu frekar áhugaleysis meirihluta borgarstjórnar.

Annað tæki­færi fyrir alla?

Viktoría Hermannsdóttir skrifar

Fyrrverandi föngum tekst illa að fóta sig. Samfélagið tekur illa á móti þeim.

Tónlistartjón

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Barátta þessara skóla gengur svo illa að þeir sjá vart fyrir sér að lifa af. Hvort heldur sem borgin eða ráðuneytið veldur er ljóst að svona vinnubrögð hjá stjórnvöldum eru ólíðandi. Enginn rekstur getur lifað af sem á sífellt von á fjármunum sem síðan aldrei berast.

Kynjamyndir kynjaumræðu

Kristín A. Atladóttir skrifar

Umræðan um kynjahalla í íslenskri kvikmyndagerð tekur á sig fjölmargar myndir.

Áfellisdómur

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Gerðardómur hefur nú kveðið upp úrskurð sinn og ákvarðað kjör félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og aðildarfélögum BHM.

Að verða fyrir heimspeki

Gústav Adolf B. Sigurbjörnsson skrifar

Þann 18. júlí birti Jón Gnarr grein undir titlinum "Heimspeki er lífstíll!“. Þar mælir hann fyrir auknum umsvifum heimspekinnar í samfélaginu, en nýtir tækifærið líka til þess að atast aðeins í íslenskri heimspeki og íslenskum heimspekingum.

Samfélag eða Excel-skjal

Gunnar Axel Axelsson skrifar

Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í rekstri Hafnarfjarðarbæjar eftir efnahagshrun er mikilvægt að tryggja áframhaldandi aðhald og alltaf er svigrúm til að gera betur.

Þetta snýst ekki um ölmusu

Ellert B. Schram skrifar

Ég tek ofan fyrir Björgvin Guðmundssyni, fyrrum borgarfulltrúa og starfsmanni í utanríkisþjónustunni.

Einkavæðing útsýnis

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Frægt er úr stjórnmálasögunni þegar Sveinn Skorri Höskuldsson, þá ungur Framsóknarmaður, gerði úti um möguleika framboðs síns flokks í borgarstjórnarkosningum með því að að skrifa grein í málgagn ungra Framsóknarmanna þar sem hann líkti Esjunni við fjóshaug. Ætla mætti að þessi sýn hins þingeyska Borgfirðings á Reykjavíkurfjallið ætti sér æsta áhangendur innan borgarskipulagsins. Eða hver er sá maður sem tók þá ákvörðun að fela Esjuna? Hvar er sá hugsjónamaður og hvenær var hann kosinn til að uppfylla það loforð sitt að múra upp í Esjuna?

Plöntu- fanturinn

Berglind Pétursdóttir skrifar

Sonur minn heimtaði lítið systkini um daginn svo við fórum saman í gróðrarstöð og keyptum flotta plöntu handa honum til að leika við. Eftir undursamlegt ferli umpottunar og nafngjöf leit ég í kringum mig og mundi af hverju heimilið var plöntulaust. Plönturnar voru allar dauðar.

Stórasta hátíðin í öllum heiminum

Magnús Guðmundsson skrifar

Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi,“ sagði Dorrit Moussaieff forsetafrú á tilfinningaþrungnu augnabliki í lífi lítillar þjóðar. Karlalandsliðið í handbolta var nýbúið að tryggja sér sæti í úrslitaleik Ólympíuleikanna og það er ekki lítið afrek fyrir litla þjóð. Þessi ummæli vöktu mikla gleði í stóru hjarta lítillar þjóðar. Ekki vegna þess að þau væru mælt á örlítið bjagaðri íslensku heldur fremur vegna þess að Dorrit sagði að við værum stór. Fátt gleður smáþjóðina meira en að vera stór.

Náttúrulega

Jón Gnarr skrifar

Náttúrumynjasafnið okkar situr fast í hlekkjum hugarfars. Það virðist almennt áhugaleysi um gildi og mikilvægi safnsins og fréttir af því fá ekki mörg læk á feisbúkk.

Loftslagsbreytingar eru ekki bara í langt-í-burtu-istan

Árni Snævarr skrifar

Fyrir þá sem telja loftslagsbreytingar enn vera „erlendar fréttir“ sem komi okkar álíka mikið við og lagabreytingar um flóðhestaveiðar í Langt-í-burtu-istan, skal bent á að málsmetandi útlendingar sækja til Íslands til að sjá breytingarnar með eigin augum.

Brot úr sögu þjóðar

Sigurður Þórðarson skrifar

Ólíkt núverandi ESB-ríkjum hafa Rússar aldrei beitt Íslendinga viðskiptaþvingunum, þvert á móti losuðu þeir takið og komu okkur til bjargar þegar mest á reyndi.

Rýrari framhaldsskólar

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar

Nú eru kostirnir þrengdir og kröftug ungmenni neydd til að velja á milli skóla og krefjandi áhugamála.

Nei, Pútín

Pawel Bartoszek skrifar

Með þessum aðgerðum, sem beinast að fjórum smáríkjum, er stórveldið að þreifa fyrir sér.

Sjá næstu 50 greinar