Fleiri fréttir

BF2 umfjöllun

Nýlega kom út þriðji leikurinn í Battlefield seríunni, Battlefield 2, og er maður dreginn til Mið Austurlanda og Kína til að berjast þar upp á líf og dauða. Í þetta skiptið ertu klæddur upp sem hermaður framtíðarinnar, árið 2010, sem Bandarískur Landgöngu-liði eða hermaður hjá Kínversku PLA(Peoples Liberation Army) eða MEC (Middle Eastern Coalition).

Kvikmynd um Splinter cell?

Í fréttatilkynningu frá Dreamworks kvikmyndaverinu er sagt frá að þeir séu stutt frá því að eignast kvikmyndaréttinn af tölvuleikjum Tom Clancy um Splinter cell. Munu Dreamworks tefla fram David Pyne(The Manchurian candidate) sem leikstjóraefni fyrir komandi kvikmynd um Sam Fisher og leyniaðgerðir hans með Third Echelon í háspennu, hátæknivæddum ævintýrum hans.

Destroy all Humans

Þegar ég heyrði fyrst um Destroy all humans þá brosti ég aðeins, svo fékk ég leikinn í hendurnar og byrjaði að brosa meira. Á endanum var ég byrjaður að skellihlæja. Það myndast brosviprur einfaldlega þegar ég hugsa til leiksins. Í Destroy all humans leikur þú Cryptosporidum 137 frá plánetunni Furon sem er sentur til jarðar til þess að bjarga Cryptosporidum 136 og fá þér nokkra safaríka heila í leiðinni.

Viðtal við Icegaming klanið

Icegaming klanið hefur verið boðið að keppa á World Tour Stop í Sheffield á Bretlandseyjum í september næstkomandi. GEIM sló á þráðinn í talsmann Icegaming, Þórð Þorsteinsson og fræddist aðeins um starfsemi klansins.

Halo færir sig upp á silfurtjaldið

Samkvæmt frétt úr skemmtiiðnaðar blaðinu Variety hafa Universal og 20th Century Fox komist að samkomulagi um að framleiða kvikmynd eftir hinum vinsæla skotleik Halo sem Xbox spilarar ættu að þekkja vel. Myndin á að vera komin í bíó innan við tvö ár samkvæmt heimildum.

Ryu Ga Gotoku tilkynntur formlega

Þeir sem áttu Dreamcast tölvuna sálugu frá Sega ættu að þekkja til leiksins Shenmue sem er talinn dýrasti leikur sögunnar. Í þeim leik var allt gert til að búa til lifandi heim með sterkum söguþræði og heilsteyptum karakterum.

Fullt af leikjum á útgáfudegi PSP

Sama dag og PSP leikjatölvan kemur út hér á landi þann fyrsta September næstkomandi, kemur út fjöldi leikja frá hinum ýmsu framleiðendum.  Sjaldan eða aldrei hefur útgáfa verið jafn öflug í upphafi nokkurrar tölvu og PSP, þannig að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Nintendo DS lækkar í Bandaríkjunum

Nintendo hafa ákveðið að lækka verðið á Nintendo DS leikjavélinni um 20 dollara í Bandaríkjunum 21. Ágúst næstkomandi. Vélin mun þá kosta 129.99 dollara (rúmar 8.000 krónur) og kemur lækkunin í tíma fyrir útgáfu á Nintendogs sem er nýjasta æðið í Japan. Ekki er komið á hreint hvort lækkun er að vænta á næstunni í Evrópu en GEIM mun fylgjast með þeirri þróun. Nintendo DS hefur setið á toppnum á öllum sölulistum í Japan síðustu fjóra mánuði.

Sanctuary kynnir 5 titla fyrir PSP

Sanctuary Visual Entertainment hafa tilkynnt um fimm titla sem fyrirtækið mun gefa út fyrir Sony PSP vélina sem kemur á markað í Evrópu 01. september næstkomandi.

Manager 2006 Staðfestar nýjungar

Sports Interactive og SEGA hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu varðandi þær nýjungar sem staðfestar eru í Football Manager 2006 á PC/Mac. Gaurarnir hjá Sports Interactive hafa unnið hörðum höndum að því að gera þessa næstu útgáfu sem besta.

Pokémon Emerald kemur í október

Nú er kominn útgáfudagur fyrir Pokémon Emerald fyrir Game Boy Advance í Evrópu. Pokémon sjúklingar ættu að merkja 21. október í dagatalið sitt því þá lendir Emerald í Evrópu í hinni gríðarlega vinsælu Pokémon seríu.

Big Mutha Truckers 2

Truck me Harder er eins og titillinn bendir til, framhaldsleikur Big Mutha Truckers. Núna höldum við áfram að fylgja Jackson fjölskyldunni í gegnum öll hennar ævintýri. Ættmóðirin sjálf hefur verið handtekinn fyrir skattsvik, og nú þurfa börnin hennar að finna leið til að múta kviðdómendunum svo Ma Jackson sleppi við fangelsisvist.

Kaldara kaffi er komið út

Eins og allir ættu að vita hafa Rockstar Games svo sannarlega verið í vandræðum undanfarið eftir að Hot Coffe kóðinn kom í ljós og leysti úr læðingi falda kynlífsleiki í GTA San Andreas. Nú hafa Rockstar séð að sér og gefið út "plástur" til að hreinsa öll PC eintök af leiknum.

Ridge Racer 6 verður að netleik

Upplýsingar um Ridge Racer 6 fyrir Xbox360 hafa nú borist frá framleiðanda leiksins Namco. Ridge Racer er gamall í hettunni í kappakstursleikja geiranum en í fyrsta sinn mun leikurinn verða fjöldaspilunarhæfur fyrir leikjatölvu. Með Xbox Live munu spilarar keppa á móti hvorum öðrum yfir netið, niðurhala nýjum tólum og tækjum.

Conflict skiptir um nafn

Nýjasti leikurinn í hinni vinsælu skotleikjaseríu Conflict hefur nú skipt um nafn en upphaflega átti næsti leikur að heita Conflict: Global Terror. Eidos hafa endurskýrt leikinn Conflict: Global Storm og mun hann koma á markað 30. september á PS2, Xbox og PC.

Rallíleikir tilbúnir fyrir PSP

Codemasters hafa tilkynnt að Colin McRae Rally 2005 Plus og TOCA Race Driver 2 verði tilbúnir fyrir útgáfu á PSP vélinni frá Sony fyrsta september 2005. Leikirnir eru mjög heitir kappakstursleikir og því góð viðbót fyrir vélina.

Nokia með nýja útgáfu af N-Gage

Nokia risinn hefur tilkynnt um silfur útgáfu á N-Gage leikjasímanum sínum fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríkumarkað. Risinn mun halda áfram að styðja við leikjasímann með frekari útgáfu á titlum eins og One, System Rush, Pathway to Glory, Ikusa Islands og High Seize.

Boiling Point: Road To Hell

Það eru ekki margir leikir sem blanda saman fyrsta persónu skotleik við hlutverka leiki, en Boiling Point: Road to Hell nær þeim leikjaranda ansi vel. Þegar ég las fyrst um leikinn þá fékk ég dágóðann áhuga á honum, og varð ekki fyrir vonbrigðum með hugmyndina. Hinnsvegar eru villurnar of margar í honum fyrir minn smekk, og verð ég að segja að partur af leiknum hverfur úr sviðsljósinu útaf þessum villum.

Vandræðin virðast aldrei hætta

Það sem byrjaði með Hot Coffee hneykslinu virðist engan enda ætla að taka. Leikur sem Rockstar Games eru að vinna að þarf núna að sæta hörðum árásum frá Bullying Online, vegna þess að hann er sagður ýta undir einelti í skólum. 

Sjá næstu 50 fréttir