Leikjavísir

Nokia með nýja útgáfu af N-Gage

Nokia risinn hefur tilkynnt um silfur útgáfu á N-Gage leikjasímanum sínum fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríkumarkað. Risinn mun halda áfram að styðja við leikjasímann með frekari útgáfu á titlum eins og One, System Rush, Pathway to Glory, Ikusa Islands og High Seize. Útgáfan sem ber heitið N-Gage QD Silver Edition kemur á markað fyrsta September og býr yfir öllum möguleikum sem “Smartphones” hafa eins og dagatal, tenglasafn, vefpóst, vafrara, Bluetooth tengingu og GPRS. Leikir sem eru fáanlegir fyrir N-Gage eru: Ashen Asphalt: Urban GT Bust-A-Move Crash Nitro Kart FIFA Soccer 2004 FIFA Soccer 2005 Pandemonium Puyo Pop Rayman 3: Hoodlum Havoc Red Faction Sega Rally Championship Shadows of Malquidious The Sims Bustin' Out Sonic Advance Super Monkey Ball Jr. Tiger Woods PGA Tour 2004 Tom Clancy's Splinter Cell Tomb Raider Tony Hawk's Pro Skater Virtua Tennis Worms World Party
Pathway To Glory
Sonic
Splinter Cell: Chaos Theory





Fleiri fréttir

Sjá meira


×