Leikjavísir

Rallíleikir tilbúnir fyrir PSP

Codemasters hafa tilkynnt að Colin McRae Rally 2005 Plus og TOCA Race Driver 2 verði tilbúnir fyrir útgáfu á PSP vélinni frá Sony fyrsta september 2005. Leikirnir eru mjög heitir kappakstursleikir og því góð viðbót fyrir vélina. Báðir leikirnir munu bjóða uppá fjöldaspilun. Colin McRae mun innihalda fjöldaspilun fyrir 8 spilara en TOCA mun innihalda fjöldaspilun fyrir 12 spilara samtímis og má búast við að leikirnir muni seljast vel. Einnig verða skemmtilegir fídusar í leiknum eins og að senda “replay” eða “sýnishorn” á aðra PSP spilara. Leikirnir bjóða uppá margar keppnir í ýmsum löndum og hefur Codemasters tilkynnt að þeir muni nýta PSP tæknina til fullnustu til að bjóða uppá frábæra kappaksturs upplifun fyrir báða titlana.
TOCA
TOCA
Colin McRae
Colin McRae
Colin McRae





Fleiri fréttir

Sjá meira


×