Leikjavísir

Pokémon Emerald kemur í október

Nú er kominn útgáfudagur fyrir Pokémon Emerald fyrir Game Boy Advance í Evrópu. Pokémon sjúklingar ættu að merkja 21. október í dagatalið sitt því þá lendir Emerald í Evrópu í hinni gríðarlega vinsælu Pokémon seríu. Leikurinn gerist í fantasíuveröldinni Hoenn og er markmiðið að halda jafnvægi á milli Kyogre og Goudon sem hafa verið vaktir til lífsins af Team Aqua og Team Magma. Rayquaza spilar mikilvægt hlutverk til að klára leikinn. Mikið af nýjungum munu vera í leiknum og til dæmis er í fyrsta skipti hægt að ná Kyogre og Goudon ásamt Rayquaza í sama leiknum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×