Fleiri fréttir

Stutthærðar stjörnur

Það er vor í lofti og tískupekingar vestanhafs hafa ekki undan að leggja línurnar fyrir komandi sumar.

Starfar með Karen og RaCharm

Rapparinn Ástþór Óðinn hefur gefið út lagið Beautiful Struggle sem hann syngur með íslensku söngkonunni Karen Skinner.

Hönnunarveisla í Bláa lóninu

Glæsileg hönnunarsýning Sub-zero Couture fór fram í Bláa lóninu á föstudagskvöld. Þetta var ein stærsta og veglegasta hönnunarsýning sem haldin hefur verið hér á landi. Fjöldi erlendra fjölmiðlamanna mun mæta og fjalla um viðburðinn....

Gæfa fylgir Blúshátíðarfólki

"Þegar menn spila á Blúshátíð þá fer "mojoið“ í gang,“ segir Halldór Bragason, skipuleggjandi Blúshátíðar í Reykjavík sem verður haldin í níunda sinn um páskana.

Strembið forsetastarf? - Obama orðinn ansi gráhærður á 3 árum

Hárið á Barack Obama Bandaríkjaforseta hefur gránað ansi hratt líkt og meðfylgjandi myndir sýna. Myndin til vinstri, sem sýnir leiðtogann vel dökkhærðan, var tekin þann 20. janúar árið 2009 þegar hann var settur í embætti forseta. Hin myndin er öllu nýrri, tekin af vel grásprengdum Obama á blaðamannafundi í Rósagarðinum við Hvíta húsið í fyrradag.

Kynlífsórar kvenna aukast

Samkvæmt nýjum rannsóknum aukast kynlífsórar kvenna í kringum þann tíma tíðahringsins þegar egglos á sér stað.

53 ára Madonna er með´etta

Madonna, 53 ára, stillti sér upp með leikaranum Jimmy Fallon við svokallaðan Facebook vegg sem er staðsettur í höfuðstöðvum Facebook í New York á föstudaginn...

Kannski sé ég draumaprinsinn

Eru ástarsögur ómerkilegt rusl en skvísubækur raunsönn lýsing á lífi nútímakvenna? Er mikill munur á kvenhetjum í þessum bókmenntagreinum eða er þetta allt sama tóbakið? Friðrika Benónýsdóttir rýndi í bækur um konur og ástina.

Elskar popp

Söngkonan Rihanna segist njóta þess að borða góðan mat en poppkorn er í mestu uppáhaldi hjá henni um þessar mundir.

Hermir eftir fótboltaköppum

„Hann er ótrúlega góður og hljómar alveg eins og þeir,“ segir Kristján I. Gunnarsson sem stjórnar nýjum útvarpsþætti, Félagarnir, á FM 957 ásamt Ásgrími Guðnasyni.

Að slá í gegn með nýju nafni

Lengi hefur tíðkast að Íslendingar, sem vilja slá í gegn, taki upp svokölluð meik-nöfn sem henta betur alþjóðasamfélaginu en hin ástkæru, ylhýru. Kjartan Guðmundsson rifjaði upp nokkur dæmi um slíkt í gegnum tíðina.

Kokteilboð til heiðurs Elettru Wiedemann

Ofurfyrirsætan Elettra Wiedemann er stödd á landinu með pop-up veitingastað sinn Goodness. Fyrirsætan er andlit Lancome og sló Lancome á Íslandi upp kokteilboði á Icelandair Hotel Reykjavík Natura henni til heiðurs á fimmtudagskvöldið.

Saman í ástarsenu

Sharon Stone og kólumbíska leikkonan Sofia Vergara úr sjónvarpsþáttunum Modern Family leika tvíkynhneigðar ástkonur í nýrri gamanmynd. Stone leikur lækni sem fer í ástarleik með Vergara og persónu úr fylgdarþjónustu sem John Turturro leikur. Myndin nefnist Fading Gigolo og hefjast tökur í New York í apríl. Turturro verður einnig leikstjóri, auk þess sem annar kunnur leikstjóri, Woody Allen, fer með lítið hlutverk melludólgs.

Segir Japani stóra

tíska Fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld er staddur í Japan um þessar mundir þar sem hann sýnir haustlínu Chanel á tískuvikunni í Tokyo. Lagerfeld er þekktur fyrir óvægna hreinskilni sína og lét nokkur orð falla um japönsku þjóðina.

Æfir stíft fyrir tónleika

Lady Gaga hefur verið í stífum æfingum fyrir tónleikaferð sína um heiminn, Born This Way Ball, sem hefst í næsta mánuði. Fyrstu tónleikarnir verða í Seúl í Suður-Kóreu 27. apríl. Í tónleikaferðinni verður risastór miðaldakastali hluti af sviðsmyndinni.

Uppskrift að draumaprinsi

Yfirskvísa skvísubókanna, Carrie Bradshaw úr Sex and the City, verður ástfangin af Mr. Big í bókinni og þar af leiðandi í fyrstu seríu sjónvarpsþáttanna sem á henni byggja. Mr. Big fylgir nákvæmlega forskrift ástarsagnanna um það hvernig draumaprins skuli vera:

Vilja hittast með börnin

Fyrirsætan Miranda Kerr kveðst ekki hitta vinkonur sínar úr bransanum með börn sín. Þetta sagði hún í spurningaþætti á Victoria‘s Secret-heimasíðunni.

Mamma hrifin af hárflúrinu

Hárflúr er ný tískubóla í hárgreiðslubransanum og fara vinsælir þess vaxandi. Tómas Hlíðarsson byrjaði að fá sér hárflúr í tengslum við grímubúning en varð svo hrifinn að hann fær sér núna reglulega nýtt munstur rakað í hárið.

Fylgihlutir sem tekið er eftir

"Við opnuðum á Höfðatorgi fyrir rúmu ári en okkur fannst vanta svona verslun í flóruna. Við leggjum mikla áherslu á að velja litríkar og áberandi vörur en höfum auk þess gæði og fallega hönnun að leiðarljósi," segir Bryndís Björg Einarsdóttir sem rekur verslunina Kastaníu ásamt Ólínu Jóhönnu Gísladóttur.

Mæðgur keppa í kraftlyftingum

Borghildur Erlingsdóttir kraftlyftingakona var kjörin Íþróttamaður Seltjarnarness 2011 núna í febrúar síðastliðnum og segir hún viðurkenninguna mikla fyrir sig og aðrar kraftlyftingakonur.

Reiðubúinn að deyja

Ricky Martin er reiðubúinn til að deyja fyrir konuna sem eignaðist tvíburasyni hans. Þeir heita Matteo og Valentino og fæddust árið 2008 með hjálp staðgöngumóður.

Hefur ofurtrú á góðum svefni

Ég hleð batteríin með því að sofa vel en ég hef ofurtrú á góðum svefni. Ég fer í í jóga í Jógastúdíóinu...

Hönnunarveisla í Bláa lóninu

Glæsileg hönnunarsýning Sub-zero Couture fer fram í Bláa lóninu á föstudagskvöld. Þetta er ein stærsta og veglegasta hönnunarsýning sem haldin hefur verið hér á landi. Fjöldi erlendra fjölmiðlamanna mun mæta og fjalla um viðburðinn...

Borgarstjóradóttir í dúndur formi

Borgarstjóradóttirin Margrét Edda Gnarr, 23 ára, hefur náð góðum árangri á mörgum sviðum þrátt fyrir ungan aldur, m.a. í söng, taekwondo og nú síðast í fitness. Hún náði 4. sæti í D-flokki á Arnold Classic fitness- og vaxtarræktarmóti í Bandaríkjunum á dögunum...

Fær ekki frið

Leikkonan Katie Holmes, 33 ára, var mynduð yfirgefa heimili sitt í New York ásamt móður sinni í gær. Eins og sjá má fær leikkonan ekki frið frá ljósmyndurum, eða paparössum eins og þeir eru kallaðir, sem sitja um heimili hennar og eiginmannsins Tom Cruise. Hún tekur áreitinu hinsvegar með einstakri ró eins og sjá má ef myndirnar eru skoðaðar.

Dásamleg dívusala á laugardag

Leikkonunar Edda Björgvins, Helga Braga og söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, eða Diddú eins og margir kalla hana, hafa opnað fataskápana sína fyrir alþjóð en þær ætla að selja fötin sín og fylgihluti í anddyri Gamla bíó á morgun, laugardag. Vinkonurnar brugðu á leik þegar Lífið hitt þær til að forvitnast um Dívusöluna...

Opnaði heimasíðu fyrir foreldra

Þóra Sigurðardóttir rithöfundur sem er nýflutt til Íslands eftir 5 ára dvöl á Bahamas hefur opnað vefsvæði fyrir foreldra...

Frumsýning La bohème

Óperan La bohème eftir Puccini sem var frumsýnd í Hörpu á föstudagskvöldið er sérlega skemmtileg uppfærsla þar sem saman fer fagur söngur og skemmtileg leikstjórn...

Vill draga úr reykingum

Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, ætlar að leggja fram tæpa 28 milljarða króna til að draga úr reykingum í Kína, Indlandi og í öðrum þróunarríkjum.

Álíka hugrökk og Jack Bauer

Kiefer Sutherland segir að persónan sem hann leikur í nýjum sjónvarpsþáttum, Touch, sé álíka hugrökk og Jack Bauer sem hann lék í spennuþáttunum 24.

Heldur með Megan Fox

Írski gamanleikarinn Chris O‘Dowd segist ekki skilja af hverju fólk gerði svo mikið úr gömlum ummælum Megan Fox í garð leikstjórans Michael Bay, en leikkonan talaði ekki vel um Transformers-leikstjórann.

Skaupsstjórinn stígur á svið

"Þetta er mikið ævintýri,“ segir leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson, sem hefur leikstýrt áramótaskaupinu á RÚV síðustu ár.

Einn á báti

Hasarleikarinn Jason Statham kveðst ekki njóta aðstoðar umboðsmanns vegna þess að hann kýs að sjá um þau mál sjálfur.

Crowe líklegur sem Nói

Leikstjórinn Darren Aronofsky á nú í samningaviðræðum við leikarann Russell Crowe um að fara með aðalhlutverkið í næstu kvikmynd leikstjórans, Noah.

Framleiðslu á Luck hætt

Framleiðslu hefur verið hætt á bandarísku sjónvarpsþáttunum Luck sem fjalla um veðhlaup. Ástæðan er sú að þrír hestar hafa meiðst við tökurnar og í framhaldinu hefur þurft að lóga þeim.

Ekki hrifinn af Rihönnu

Rokkgoðin Gene Simmons og Tommy Lee eru ekki aðdáendur söngkonunnar Rihönnu ef marka má ummæli sem þeir létu falla fyrir stuttu.

Láta ljós sitt skína í Gúglaðu betur

Þeir sem telja sig vita öll svörin í spurningaþættinum Gettu betur geta látið ljós sitt skína þau kvöld sem þátturinn fer fram. Náman stendur nú annað árið í röð fyrir keppninni Gúglaðu betur á Facebook-síðu sinni en hún hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu.

Potter-leikari í fangelsi

Harry Potter-leikarinn Jamie Waylett, sem fór með hlutverk hins illgjarna Vincents Crabbe, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir dólgslæti og að vera með þýfi undir höndum.

Söngkona Galaxies stofnar stjörnufræðifélag

Védís Vandíta Guðmundsdóttir, tónlistarkennari og meðlimur í hljómsveitinni Galaxies, er stofnandi og stjórnarmeðlimur nýstofnaðs Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja. Fyrsti fundur félagsins fór fram í byrjun vikunnar og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum.

Segir aðdáendum að slappa af

Leikstjórinn Michael Bay náði að reita aðdáendur teiknimyndanna Teenage Mutant Ninja Turtles til reiði þegar hann sagði að þær yrðu utan úr geimnum í nýrri kvikmynd.

Poppdrottning snýr aftur

Madonna er mætt til leiks enn á ný með sína tólftu hljóðversplötu. Hún er sú fyrsta á ferli hennar sem kemur ekki út hjá Warner.

María Birta stefnir á fallhlífarstökk

Tökum á íslensku kvikmyndinni XL er lokið í bili en leikkonan María Birta Bjarnadóttir fer með annað af aðalhlutverkunum í henni. Myndin er í leikstjórn Marteins Þórssonar og fjallar um þingmann sem berst við áfengissýki og er skikkaður í meðferð af yfirmanni sínum.

Hamingjusamir horfa á Hannað fyrir Ísland

Meðfylgjandi myndir voru teknar í frumsýningarteiti í Laugarásbíó á vegum hönnunarþáttarins Hannað fyrir Ísland. Eins og sjá má var hamingjan allsráðandi á frumsýningunni...

Lady Gaga í fjölmiðlabann

Söngkonan skrautlega Lady Gaga er orðin þreytt á fjölmiðlum og ætlar að hunsa þá á næstunni. Eftir að sjónvarpsviðtal sem Oprah Winfrey tók við hana verður sýnt ætlar hún hætta að tala við fjölmiðla.

Sjá næstu 50 fréttir