Fleiri
Saman á Hawaii 20.9.2006 16:00 Fagnaður á svið á ný Leikritið Fagnaður eftir breska leikskáldið og Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter fer aftur á svið Þjóðleikhússins og verður fyrsta sýningin næstkomandi sunnudag. 20.9.2006 16:00 Safnhaugur í heilastað Flæmski rithöfundurinn Sylvía Vanden Heeden líkir höfuðinu á sér við safnhaug. Þar sé allt fullt af handahófskenndum upplifunum en í óreiðunni verða samt til frjósamar afurðir og ein þeirra er sagan um Rebba og Héru. 20.9.2006 15:15 Oprah Winfrey í Hvíta húsið Oprah Winfrey sem forseti? Kannski fjarlægur möguleiki en þó ekki. Reynsla af afþreyingariðnaðinum er ekki talin vera löstur á þeim sem vilja bjóða sig fram til forsetaembættis í Bandaríkjunum. Ronald Reagan var jú sem kunnugt er leikari í Hollywood áður en hann sneri sér að stjórnmálunum og Arnold Schwarzenegger var vanari því að sprengja upp vélmenni úr framtíðinni en að stjórna Kaliforníu. 20.9.2006 15:00 Tíguleg uppgjöf fyrir efninu Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson hefur tilkynnt með formlegum hætti að verki hans sem kennt er við stúku Hitlers sé lokið og hann muni ekki, eins og lýst hafði verið yfir, "eiga við né endurbyggja" verkið frekar. 20.9.2006 14:30 Nelson handtekinn 20.9.2006 14:15 Músíkalskur fundur við meistarana Píanóleikarinn Peter Máté heldur tónleika í TÍBRÁR-tónleikaröð Salarins í kvöld. Á efnisskránni eru verk eftir Janácek, Chopin, Bartók, Hjálmar H. Ragnarsson, Schubert og Franz Liszt. Í tilkynningu frá listamanninum segir að flest verkanna séu ættuð frá Austur-Evrópu. "Tónmál verkanna eru nátengd mállýsku og sérstökum framburði á tungu höfundanna, til dæmis móravísku Janáceks og ungversku Bartóks, og með það í huga er skemmtilegt að velta fyrir sér óvenjulegum hendingum í verkunum." 20.9.2006 14:00 Hnífamaður ruddist inn í stúdíó X-ins "Ég get ekki ímyndað mér hvað þessi maður taldi sig eiga sökótt við mig. Hann á að hafa sagt að ég hafi gert grín að sér í þættinum Blautt malbik á föstudagskvöldið," segir rapparinn og útvarpsmaðurinn Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA eins og hann er oftast kallaður. 20.9.2006 13:00 Fergie ver Díönu 20.9.2006 12:45 Paris veldur vonbrigðum Þrátt fyrir ágætis dóma og mikið auglýsingaflóð virðast bandarískir kaupendur ekki vera ginkeyptir fyrir fyrstu plötu hótelerfingjans Parisar Hilton, "Paris". 20.9.2006 12:30 Borgfirðingar stoltir af sonum sínum "Ég verð að segja nei við þessu, einfaldlega vegna þess að við höfum ekki rætt þetta," svarar Steinn Eiríksson, sveitarstjóri í Borgarfjarðarhreppi, þegar hann er inntur eftir því hvort til standi að nefna einhver kennileiti eftir nýjustu stjörnu byggðarinnar, Magna Ásgeirssyni. "Við erum hins vegar rosalega stolt af Magna og því sem hann hefur afrekað og ekkert útilokað að við gerum eitthvað fyrir Magna en þá í fullu samráði við hann," heldur Steinn áfram. "Þetta er jú líka spurning um hvað hann vill," bætir sveitarstjórinn við. 20.9.2006 12:30 Alcan keypti upp eina tónleika hjá Bó „Við erum bakhjarlar þessara tónleika og keyptum eina upp sem verða á laugardaginn klukkan fimm, þeir fyrstu í röð þriggja,“ útskýrir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan álversins í Straumsvík. „Björgvin er náttúrlega einn af helstu sonum Hafnafjarðar og svo skemmtilega vill til að þegar álverið hóf framleiðslu á áli árið 1969 var Björgvin kjörinn Poppstjarna Íslands,“ segir Hrannar. 20.9.2006 12:15 Vala Matt hætt í Veggfóðri Ein ástsælasta sjónvarpskona landsins, Valgerður Matthíasdóttir, hefur ákveðið að hætta með sjónvarpsþátt sinn Veggfóður sem hefur verið á dagskrá Stöðvar 2 undanfarið. Vala hefur um árabil frætt Íslendinga um það nýjasta í hönnun og innanhúsarkitektúr og því augljóst að það verður sjónarsviptir af henni á þeim vettvangi. 20.9.2006 12:00 Leiður á viðtölum Noel Gallagher, gítarleikari og aðallagasmiður Oasis, er orðinn hundleiður á að fara í blaðaviðtöl. Segir hann að litli bróðirinn Liam sleppi við allar slíkar skyldur. Jafnframt segist hann myndu hætta í sveitinni ef hann fengi ekki svona vel borgað. 20.9.2006 11:30 Gagnrýnir Hollywood Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson hefur nú gagnrýnt Hollywood fyrir að setja of mikla pressu á leikkonur að vera of mjóar. Scarlett segir að kynþokki kvenna felist ekki í holdafari og að henni sjálfri finnist ekki fallegt að stelpur líti út eins og strákar, en svo virðist þegar stúlkur eru grindhoraðar. 20.9.2006 11:00 Sjá næstu 50 fréttir
Gjafmildir leikarar Brad Pitt og Angelina Jolie eru augljóslega ekki á flæðiskeri stödd því parið gaf nýverið tvær milljónir Bandaríkjadala, sem samsvara tæplega 150 milljónum íslenskra króna, til Global Action for Children og samtakanna Lækna án landamæra en þetta kemur fram í tilkynningu frá talsmanni skötuhjúanna. Í yfirlýsingu sem Trevor Neilson, ráðgjafi Pitt-Jolie sjóðsins, las upp fyrir fjölmiðla kemur fram að Jolie hafi lengi fylgst með læknum og hjúkrunarfólki vinna starf við ótrúlegar aðstæður. „Og ég dáist að framtaki þeirra,“ segir í yfirlýsingunni. 22.9.2006 13:00
Fyrsta plata Ívars Tónlistarmaðurinn og fyrrverandi knattspyrnukappinn Ívar Bjarklind gefur í byrjun nóvember út sína fyrstu sólóplötu, sem nefnist Blóm eru smá. Ívar var áður í hljómsveitinni Mír, sem gaf á sínum tíma út eina plötu og tvö lög. Að sögn Ívars er hans eigin tónlist lágstemmdari og meiri popptónlist en Mír var að gera og meiri áhersla er lögð á melódíur. Upptökustjóri plötunnar er Skagamaðurinn Orri Harðarson, sem gaf einmitt út eigin sólóplötu á síðasta ári. Um trommuleik sér hinn margreyndi Birgir Baldursson. 22.9.2006 12:30
Cliff Richard spilar í Höllinni Söngvarinn og goðsögnin Sir Cliff Richard heldur tónleika í Laugardalshöll hinn 28. mars á næsta ári. 22.9.2006 12:00
Stórtónleikar á Nasa Cod Music og Forma, samtök átröskunarsjúklinga ætla að efna til stórtónleika á Nasa laugardaginn 23. september næstkomandi. Tónleikarnir verða endapunkturinn á gríðarlega mikilli dagskrá dagsins Ímynd 2006 sem Forma stendur fyrir í Borgarleikhúsinu og á Nasa. 22.9.2006 11:55
Frumlegur unghönnuður Hönnuðurinn Una Mist Óðinsdóttir fékk afhentan smíðagrip, sérlegt prinsessuhálsmen, frá gullsmiðnum Sif Ægisdóttur á dögunum. Una Mist tók þátt í teiknisamkeppni sem gullsmíðastofan og galleríið Hún og hún á Skólavörðustíg stóð fyrir á Menningarnótt og varð hlutskörpust að þessu sinni. 22.9.2006 11:30
Eitthvað pólskt fyrir alla Pólverjar eru stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi og tvær hugsjónakonur ákváðu að tími væri kominn til þess að kynna menningu Póllands betur hér á landi. 22.9.2006 11:00
Börn reyna við Óskarinn Kvikmyndin Börn eftir Ragnar Bragason og Vesturportshópinn er fulltrúi Íslands í forvali til tilnefninga um Óskarsverðlaunin fyrir bestu erlendu kvikmyndina 2007. 22.9.2006 10:00
Diaz kærir ljósmyndara Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú kæru sem leikkonan Cameron Diaz lagði fram gegn ljósmyndara en þar sakar hún hann um að hafa ógnað lífi sínu og limum. Atvkið átti sér stað fyrir utan hús vinar Diaz og unnustu hennar Justin Timberlake og segir Diaz að þegar parið hafi verið að fara heim hafi ljósmyndari komið aðvífandi og viljað taka myndir af skötuhjúunum en fékk ekki. 22.9.2006 10:00
Afhending Sjónlistarorðunnar Sjónlistarorðan 2006 verður afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Sjónlist er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Forms Ísland samtaka hönnuða og Sambands íslenskra myndlistarmanna. Markmið verkefnisins er að veita verðlaun á sviði sjónlista og beina þannig sjónum að framúrskarandi framlagi myndlistarmanna og hönnuða starfandi á Íslandi og íslenskra sjónlistamanna erlendis, stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistamanna á Íslandi. 22.9.2006 09:00
Leikrit og mynd í smíðum „Ég var í endurhæfingu á þeim stórkostlega stað Reykjalundi, svo það er búið að gefa manni start,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður. Hann er nú óðum að braggast eftir erfið veikindi og með ýmis járn í eldinum; bæði er hann með leikrit í bígerð auk þess sem til stendur að kvikmynda bók eftir hann. 22.9.2006 08:00
Sumarið er búið Markmið fyrstu tónlistarhátíðar Gagnaugans er að bjóða upp á háklassa tónlist með íslenskum og erlendum flytjendum en unnendur harðkjarnamúsíkur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í Helli Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar úti á Hólmaslóð í kvöld. 21.9.2006 17:30
Skilinn við Eddu Já, það er rétt, ég hætti hér í næsta mánuði, segir Kristján Bjarki Jónasson, þróunarstjóri Eddu, sem er á förum frá forlaginu. Hann er hins vegar ófáanlegur til að gefa nokkuð upp um ástæður brotthvarfs síns. Það eru alltaf ástæður fyrir öllu en ekkert sem ég vil ræða opinberlega við fjölmiðla. Kristján, sem er bókmenntafræðingur að mennt, kveður forlagið eftir margra ára starf, þau síðustu sem þróunarstjóri fyrirtækisins. 21.9.2006 16:45
Nýir straumar á stórtónleikum Hljómsveitirnar Ske, Langi Seli og Skuggarnir og Jeff Who? munu troða upp á stórtónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag. 21.9.2006 16:15
Myndgerðar náttúrulifanir Myndlistarkonan Steinunn Marteinsdóttir er með mörg járn í eldinum. Þessa dagana standa yfir sýningar á verkum hennar í Listasafni Reykjanesbæjar og og um helgina verður önnur opnuð í Listasal Mosfellsbæjar. 21.9.2006 15:45
Minnst sem hetju Rúmlega fimm þúsund manns voru viðstaddir minningarathöfn um ástralska „krókódílafangarann“ Steve Irwin, sem lést fyrir tveimur vikum. Athöfnin var haldin í heimaríki hans, Queensland, og var sjónvarpað um alla Ástralíu. 21.9.2006 15:30
Kvikmynd Dags Kára frestað Mikil eftirvænting ríkir í kringum nýjustu mynd Dags Kára Péturssonar, Good Heart. Þegar hefur verið tilkynnt að bandaríski tónlistamaðurinn Tom Waits leiki eitt af aðalhlutverkunum en á móti honum verður Ryan Gosling. Dagur Kári og félagarnir hjá kvikmyndafyrirtækinu Zik Zak sem framleiða myndina virðast hafa veðjað á réttan hest því stjarna þess síðarnefnda verður skærari með hverjum deginum sem líður í Hollywood. 21.9.2006 15:00
J-Lo í tæknifrjóvgun Jennifer Lopez hefur ákveðið að fara í tæknifrjóvgun til að draumur hennar um að eignast börn geti ræst. Söng- og leikkonan kunna er gift söngvaranum Marc Anthony og hafa þau sett stefnuna á að eignast tvö börn saman. J-Lo hefur heimsótt heilsugæslustöð í Los Angeles sem sérhæfir sig í tæknifrjóvgunum og rætt við starfsfólk og sjúklinga þar. 21.9.2006 14:00
Íslendingar á Nordisk Panorama Stutt- og heimildarmyndahátíðin Nordisk Panorama verður að þessu sinni haldin í Árósum í Danmörku dagana 22.-27. september en á hátíðinni koma saman kvikmyndagerðarmenn frá Norðurlöndunum og sýna þar það nýjasta í stutt- og heimildarmyndagerð. 21.9.2006 13:30
Vill ekkieiturlyf Keith Richards, gítarleikari The Rolling Stones, er hættur að nota eiturlyf. Segir hann að þau séu of veik fyrir sinn smekk. 21.9.2006 13:15
Islam spilar fyrir stjörnurnar Það styttist í sögulega endurkomu Yusuf Islam, betur þekkts sem Cat Stevens, en lagahöfundurinn heldur sína fyrstu tónleika í Fortune Forum Club í London. Samkvæmt fréttavefnum contactmusic.com ætla fjölmargar stjörnur að heiðra Islam með nærveru sinni og nægir þar að nefna fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Bill Clinton, og leikarahjónin Michael Douglas og Catherine Zeta Jones auk milljarðamæringsins Richards Branson. Staðurinn er þekktur fyrir að safna fé sem notað er í baráttunni gegn fátækt og hefur fræga fólkið lagt sitt á vogarskálarnar í því brýna verkefni. 21.9.2006 13:00
Gekk bölvanlega að semja lag fyrir KF Nörd Raunveruleikaþátturinn KF Nörd hóf göngu sína á Sýn fyrir ekki margt löngu og hefur hlotið ágætis viðtökur sjónvarpsáhorfenda. Í þætti kvöldsins reyna strákarnir fyrir sér á nýjum vettvangi en eins og öllum frægum liðum sæmir verður KF Nörd að hafa sitt einkennislag. 21.9.2006 12:45
Frumlegur og flottur fararskjóti Loga Bergmanns Logi Bergmann sjónvarpsmaður vakti mikla athygli þegar hann kom á dögunum, flottari en nokkru sinni, brunandi til vinnu á vægast sagt frumlegum fararskjóta. Þetta er einhvers konar millistig reiðhjóls og mótorhjóls reiðhjól með mótor MoPed. 21.9.2006 12:15
Endurkoma Molanna vekur athygli Endurkoma Sykurmolanna hefur vakið mikla athygli hér heima og nú hafa erlendir fjölmiðlar komist á snoðir um þessa fyrstu tónleika sveitarinnar í fjórtán ár. Vefútgáfa danska blaðsins Politiken greinir frá tónleikunum á forsíðu sinni og vísar til opinberrar vefsíðu Bjarkar, bjork.com. „Það er með stolti að við kynnum tónleika í tilefni af 20 ára afmæli smáskífunnar Birthday í Reykjavík hinn 17. nóvember,“ skrifar Politiken og hleypur á hundavaði yfir feril sveitarinnar og þá fjallar vefur norska dagblaðsins Dagbladet einnig um endurkomuna. 21.9.2006 12:00
Blóðbönd gera það gott í Kanada Leikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirsson er nýkominn heim frá kvikmyndahátíðinni í Toronto þar sem hann sýndi kvikmynd sína Blóðbönd sem hefur hlotið enska titilinn Thicker Than Water. Myndin var sýnd fjórum sinnum, þrisvar fyrir almenning og einu sinni fyrir blaðamenn og fagfólk. „Þetta gekk mjög vel og fólk virtist ná tengslum við söguna,“ segir Árni Ólafur en vissi þó ekki hvernig gengið hefði að selja myndina. 21.9.2006 11:30
Ávanabindandi hrukkubani Þær eru margar aðferðirnar sem finna má til að líta betur út en það sem hefur vakið mesta athygli og er mest notað af konum nú til dags er hrukkubaninn botox. Nú telja vísindamenn að efnið sé ávanabindandi. Botox virkar aðeins í ákveðinn tíma, eða fjóra til sex mánuði, og því nauðsynlegt fyrir konur sem vilja halda andliti sínu lausu við hrukkur að endurtaka botox-meðferðina. 21.9.2006 11:00
Alþjóðleg hátíð í örum vexti Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku en nærri áttatíu myndir verða sýndar þá ellefu daga sem hátíðin stendur. Fjöldi erlendra gesta er væntanlegur á hátíðina sem hefur vakið athygli utan landsteinanna. 21.9.2006 10:00
Alveg ekta "Liederabend" Félagarnir Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda ljóðatónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Á dagskrá eru ljóðasöngvar eftir Franz Schubert og Richard Strauss. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð þeirra um landið en þeir hafa áður gert víðreist saman enda starfað saman í tvo áratugi. 21.9.2006 09:00
Aldrei verið jafn lifandi Bryndís Björgvinsdóttir og Orri Jökulsson lögðu upp í mikla ævintýraferð í sumar þegar þau héldu til austurstrandar Gvatemala og unnu á vafasömu munaðaraleysingjahæli. 21.9.2006 08:00
Tekur við af Cruise Leikarinn Brad Pitt er hugsanlega að fara að taka hlutverk Tom Cruise í framhaldsmyndinni Mission Impossible en verið er að undirbúa tökur á fjórðu myndinni. 20.9.2006 18:00
Sonur dregur föður að landi Tilkynnt var um útgáfu á ófullgerðri sögu rithöfundarins J.R.R. Tolkien fyrr í vikunni. Sagan ber heitið The Children of Hurin og mun hún koma út hjá Houghton Mifflin útgáfunni í Bandaríkunum og HarperCollins í Bretlandi. Fréttavefur dagblaðsins The Guardian greinir frá því að yngsti sonur Tolkiens, Christopher Tolkien, sem hefur helgað sig verkum föður síns síðustu þrjátíu árin, hafi fullgert söguna og að hún muni koma út næsta vor. 20.9.2006 17:00
Fagnaður á svið á ný Leikritið Fagnaður eftir breska leikskáldið og Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter fer aftur á svið Þjóðleikhússins og verður fyrsta sýningin næstkomandi sunnudag. 20.9.2006 16:00
Safnhaugur í heilastað Flæmski rithöfundurinn Sylvía Vanden Heeden líkir höfuðinu á sér við safnhaug. Þar sé allt fullt af handahófskenndum upplifunum en í óreiðunni verða samt til frjósamar afurðir og ein þeirra er sagan um Rebba og Héru. 20.9.2006 15:15
Oprah Winfrey í Hvíta húsið Oprah Winfrey sem forseti? Kannski fjarlægur möguleiki en þó ekki. Reynsla af afþreyingariðnaðinum er ekki talin vera löstur á þeim sem vilja bjóða sig fram til forsetaembættis í Bandaríkjunum. Ronald Reagan var jú sem kunnugt er leikari í Hollywood áður en hann sneri sér að stjórnmálunum og Arnold Schwarzenegger var vanari því að sprengja upp vélmenni úr framtíðinni en að stjórna Kaliforníu. 20.9.2006 15:00
Tíguleg uppgjöf fyrir efninu Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson hefur tilkynnt með formlegum hætti að verki hans sem kennt er við stúku Hitlers sé lokið og hann muni ekki, eins og lýst hafði verið yfir, "eiga við né endurbyggja" verkið frekar. 20.9.2006 14:30
Músíkalskur fundur við meistarana Píanóleikarinn Peter Máté heldur tónleika í TÍBRÁR-tónleikaröð Salarins í kvöld. Á efnisskránni eru verk eftir Janácek, Chopin, Bartók, Hjálmar H. Ragnarsson, Schubert og Franz Liszt. Í tilkynningu frá listamanninum segir að flest verkanna séu ættuð frá Austur-Evrópu. "Tónmál verkanna eru nátengd mállýsku og sérstökum framburði á tungu höfundanna, til dæmis móravísku Janáceks og ungversku Bartóks, og með það í huga er skemmtilegt að velta fyrir sér óvenjulegum hendingum í verkunum." 20.9.2006 14:00
Hnífamaður ruddist inn í stúdíó X-ins "Ég get ekki ímyndað mér hvað þessi maður taldi sig eiga sökótt við mig. Hann á að hafa sagt að ég hafi gert grín að sér í þættinum Blautt malbik á föstudagskvöldið," segir rapparinn og útvarpsmaðurinn Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA eins og hann er oftast kallaður. 20.9.2006 13:00
Paris veldur vonbrigðum Þrátt fyrir ágætis dóma og mikið auglýsingaflóð virðast bandarískir kaupendur ekki vera ginkeyptir fyrir fyrstu plötu hótelerfingjans Parisar Hilton, "Paris". 20.9.2006 12:30
Borgfirðingar stoltir af sonum sínum "Ég verð að segja nei við þessu, einfaldlega vegna þess að við höfum ekki rætt þetta," svarar Steinn Eiríksson, sveitarstjóri í Borgarfjarðarhreppi, þegar hann er inntur eftir því hvort til standi að nefna einhver kennileiti eftir nýjustu stjörnu byggðarinnar, Magna Ásgeirssyni. "Við erum hins vegar rosalega stolt af Magna og því sem hann hefur afrekað og ekkert útilokað að við gerum eitthvað fyrir Magna en þá í fullu samráði við hann," heldur Steinn áfram. "Þetta er jú líka spurning um hvað hann vill," bætir sveitarstjórinn við. 20.9.2006 12:30
Alcan keypti upp eina tónleika hjá Bó „Við erum bakhjarlar þessara tónleika og keyptum eina upp sem verða á laugardaginn klukkan fimm, þeir fyrstu í röð þriggja,“ útskýrir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan álversins í Straumsvík. „Björgvin er náttúrlega einn af helstu sonum Hafnafjarðar og svo skemmtilega vill til að þegar álverið hóf framleiðslu á áli árið 1969 var Björgvin kjörinn Poppstjarna Íslands,“ segir Hrannar. 20.9.2006 12:15
Vala Matt hætt í Veggfóðri Ein ástsælasta sjónvarpskona landsins, Valgerður Matthíasdóttir, hefur ákveðið að hætta með sjónvarpsþátt sinn Veggfóður sem hefur verið á dagskrá Stöðvar 2 undanfarið. Vala hefur um árabil frætt Íslendinga um það nýjasta í hönnun og innanhúsarkitektúr og því augljóst að það verður sjónarsviptir af henni á þeim vettvangi. 20.9.2006 12:00
Leiður á viðtölum Noel Gallagher, gítarleikari og aðallagasmiður Oasis, er orðinn hundleiður á að fara í blaðaviðtöl. Segir hann að litli bróðirinn Liam sleppi við allar slíkar skyldur. Jafnframt segist hann myndu hætta í sveitinni ef hann fengi ekki svona vel borgað. 20.9.2006 11:30
Gagnrýnir Hollywood Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson hefur nú gagnrýnt Hollywood fyrir að setja of mikla pressu á leikkonur að vera of mjóar. Scarlett segir að kynþokki kvenna felist ekki í holdafari og að henni sjálfri finnist ekki fallegt að stelpur líti út eins og strákar, en svo virðist þegar stúlkur eru grindhoraðar. 20.9.2006 11:00