Fleiri fréttir

Bjargvættur sýnd á Íslandi

"Ég kem alltaf til landsins á sumrin til að fara í laxveiði í Borgarfirði eins og sannur Íslendingur," segir kvikmyndagerðarkonan Erla B. Skúladóttir sem er búsett í Bandaríkjunum og hefur þar í landi sópað að sér verðlaunum fyrir stuttmynd sína Bjargvættur.

Mokkastell frá Kristianíu

Heru Björk Þórhallsdóttur söngkonu áskotnaðist uppáhaldsstellið sitt á markaði í Kristjaníu. "Ég var á gangi með Gísla vini mínum um Kristjaníu og við vorum bara að skoða hvað var á borðstólum. Þá sá ég lítið mokkastell á einum básnum, bara sá það og andaðist á staðnum.

Feng Shui nýst um orkuflæði

Feng Shui fræðin eru mikil og flókin og verða ekki rakin til hlítar hér en í meginatriðum gengur Feng Shui út á orkuflæðið í kringum okkur og hvernig á að halda því við. Ef maður ætlar að taka fræðin alvarlega er grundvallaratriði að losa sig við allt dót á heimilinu sem ekki er í notkun því það hindrar orkuflæðið.

Brotna styttan verður sem ný

Flestir kannast við að hafa beinlínis grátið úr sorg þegar uppáhaldsstyttan eða skálin fór í gólfið og mölbrotnaði. Titrandi úr gremju týnir fólk saman brotin og ef styttan er ekki því verr farin er límið sótt og hafist handa við að klastra styttunni saman. Árangurinn er dæmdur til að mislukkast.

Spítaladvölin verður löng

Talsmenn söngkonunnar Courtney Love segja að hún muni þurfa að dveljast á spítala fram yfir næstu mánaðamót. Söngkonan átti að mæta í réttarsalinn á föstudaginn þegar dæma átti í einu af þremur málum hennar.

Væl-on

Strákarnir í 70 mínútum hafa vakið athygli með grínútgáfu sinni af sjónvarpsþætti stúlknasveitarinnar Nælon sem sýndur er á Skjá einum. Þeir kalla sig Væl-on.

Graham leikur í Scrubs

Leikkonan Heather Graham mun koma við sögu í átta þáttum í fjórðu þáttaröð Scrubs sem hefst í Bandaríkjunum í haust. Mun hún leika hæfan sálfræðing sem á sjálfur í mestu vandræðum í einkalífinu.

Franz og The Streets tilnefndar

Skoska rokkhljómsveitin Franz Ferdinand og The Streets eru á meðal þeirra sem hafa verið tilnefndar til bresku Mercury-verðlaunanna.

Fundaði með Þórólfi

Götumúsíkantinn Jójó, eða James Clifton eins og hann í raun heitir, þekkir mannlífið á götum borgarinnar betur en flestir. Eftir tuttugu ára spilamennsku um allan heim, segist hann handviss um að miðbærinn væri betri staður ef bílunum fækkaði.

Svefnherbergið í eldhúsið

"Þessa dagana hugsa ég bara um að skipuleggja eldhúsið mitt, lítið annað þar sem ég er að skipta á því og svefnherberginu mínu," segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona sem stendur í miðjum framkvæmdum og hefur snúið heimili sínu á hvolf í kjölfarið.

Ævintýrahús í garðinum

Litlar stúlkur dreymir gjarnan um dúkkuhús í garðinum en fæstar sjá drauminn rætast á sama hátt og Rakel Stefánsdóttir, 6 ára Hafnarfjarðarmær, sem á sitt eigið litla einbýlishús með öllu í garðinum við Herjólfsgötu 10 í Hafnarfirði.

Allir leggja til vinnu og efni

"Við erum 16 manns sem búum hér í fjórum íbúðum og samkomulagið er sérdeilis gott. Þessvegna ákváðum við að byggja sameiginlegan pall og hafa hann út við grindverkið en ekki upp við glugga," segir Gunnar Hrafn Gunnarsson sem keppist við að smíða stóran pall í garðinum við Barmahlíð 53 í Reykjavík.

Teiknað af Kjartani Sveinssyni

Fasteignasalan Fasteignamiðlun er nú með í sölu glæsilegt 236,7 fermetra einbýlishús að Bollagörðum 2 á Seltjarnarnesi á einni hæð ásamt 23,20 fermetra sólskála auk 59,30 fermetra tvöfalds, innbyggðs bílskúrs. Samtals er húsið sem sagt 319,20 fermetrar.

Will Smith stöðvar Spider-Man

Vísindaspennumyndin I, Robot með Will Smith í aðalhlutverki fór vel af stað í Bandaríkjunum um helgina en hún halaði inn 53.3 milljónir dollara á frumsýningarhelgini og batt þar með enda á tveggja vikna sigurgöngu Spider-Man 2 sem aðsóknarmesta myndin vestanhafs.

Pink tók veðmáli

Það er nú ekki af þeim skafið drengjunum í 70 mínútum á Popptíví að þeir eru sniðugir, uppátækjasamir og alveg bandbrjálaðir á tímum. Um helgina lögðu þeir Pétur Jóhann, Auðunn Blöndal og ofurhuginn Hugi upp í langferð til Graz í Austurríki þar sem stóð til að hitta tónlistarkonuna Pink.

Kúrekar norðursins komnir á bak

Kúrekar norðursins gerðu garðinn frægan fyrir margt löngu og merki þeirra reis sem hæst í samnefndri kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar.

Enska blómarósin sigraði heiminn

Hin 19 ára gamla Keira Knightley er vinsælasta breska kvikmyndastjarnan nú um stundir. Bresku blöðin halda ekki vatni yfir henni og hæfileikum hennar og bandarískir fjölmiðlar hafa einnig veitt henni mikla eftirtekt.

Brandararnir gera ljóskur heimskar

Skrýtlur um heimskar „blondínur“ valda því að ljóshærðar konur verða vitlausari en annað kvenfólk. Þetta er fullyrt í niðurstöðum þýskrar rannsóknar sem hópur sálfræðinga stóð fyrir.

Shrek er mættur aftur

Græna tröllið Shrek sneri öllum sætu Disney-útgáfum gömlu ævintýranna á hvolf í drepfyndinni tölvuteiknimynd sem bar nafn hans og kom í bíó árið 2001.

Miðasala á James Brown byrjar vel

Miðasala hófst í gærkvöldi á tónleika James Brown, guðföður sálartónlistarinnar, sem haldnir verða hér á landi 28. ágúst.

O\'Neil fór í ferð um daginn.

Djömmuðu á EM á kostnað ESB

Bogi Ragnarsson og Jón Eiríksson voru ráðnir sem starfsmenn Evrópukeppninnar í fótbolta í Portúgal. Strákarnir unnu í fjóra daga af tveggja mánaða ótrúlegri ferð þar sem allt var borgað fyrir þá. Kærastan hans Boga er hundfúl út í hann enda kemst hann ekki niður á jörðina eftir ferðina og talar ekki um neitt annað.

Fótboltaveisla hjá Snorra

"Þetta verður fótboltaveisla í opinni dagskrá," segir sjónvarpsmaðurinn Snorri Már Skúlason en hann verður verkefnisstjóri yfir enska boltanum á Skjá einum í vetur og hefst handa við undirbúning í vikunni.

Brúðkaupsafmæli á Wendys

Það fer ekki mikið fyrir flottheitunum þegar Edwardshjónin halda upp á brúðkaupsafmæli sín. Varaforsetaefni demókrata, John Edwards og kona hans halda bráðlega upp á 27. brúðkaupsafmæli sitt á skyndibitastaðnum Wendys.

Guðfaðir sálartónlistar

"Guðfaðir sálartónlistarinnar" James Brown heldur tónleika, á Íslandi í næsta mánuði. Hann mun spila í Laugardalshöll laugardagskvöldið 28. ágúst. Með honum á sviðinu verða 17 manns, söngvarar, dansarar og hljóðfæraleikarar.

Atast í Pink í Austurríki

Auðunn Blöndal er nú staddur út í Graz ásamt þeim Pétri Jóhanni og Huga Jens (Ofurhuga) í 70 mínútum. Þar ætla piltarnir að hitta tónlistarkonuna Pink en hún verður með tónleika á Íslandi 10 og 11. ágúst.

Repúblikanar vilja ekki Heinz

Ný tegund tómatsósu er komin á markað í Bandaríkjunum, sérstaklega ætluð Repúblíkönum. W tómatsósa er ætluð íhaldsmönnum, sem ekki geta lengur hugsað sér að kaupa vinsælustu tómatsósutegundina, Heinz.

Árekstur á tónleikasumrinu mikla

Miðað við stöðugt streymi erlendra listamanna hingað til lands, hlaut það að gerast að tveir stórir tónleikar myndu lenda á sama degi. Nú, þegar Pink hefur tilkynnt um aukatónleika í Laugardalshöll, er ljóst að hún og 50 Cent verða með tónleika á sama degi, 11. ágúst, í Egilshöll.

Mjórra og lengra Prins Póló

Vanafastir Prins Póló unnendur hafa líklegast tekið eftir því að pólska súkkulaðikexið hefur tekið nokkrum breytingum.

Áhuginn blossaði um leið og gosið

Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð er ein þeirra fáu sem fæst við skermagerð af alvöru á okkar landi. Hún hefur á valdi sínu ótal mismunandi stíla og aðferðir eftir því hvert efnið er, lagið á lampanum og óskir kaupandans.

Bókaskápurinn fékk sérherbergi

Margrét Pétursdóttir, leikari og leikstjóri, var búin að vera á hrakhólum með vinnuaðstöðu árum saman er hún tók að lokum áræðna ákvörðun. Hún er alsæl með árangurinn.

Leysast upp í þvottavélinni

Komnir eru á markaðinn sérstakir pokar til að setja óhreinan þvott í sem er mengaður af einhverju sem fólk vill síður snerta.

Ljóskur eru ekki heimskar

Þýsk sálfræðirannsókn hefur sýnt fram á að ljóshærðar konur taka sér lengri tíma til að leysa gáfnapróf en dökkhærðar eftir að hafa heyrt ljóskubrandara á undan verkefnalausninni. Kemur þar í ljós að ljóshærðar konur haldi alls ekki að þær séu heimskar. En eftir að hafa lesið um sig neikvæða brandara, fari þær sér hægar í prófum, til þess að vera vissar um að gera ekki mistök.

Átti ekki fyrir sjampói um tíma

Söngkonan Heiðrún Anna Björnsdóttir hefur verið búsett í Englandi um langt skeið. Heiðrún var á síðasta áratug þekkt fyrir leik í kvikmyndinni Nei er ekkert svar og söng með hljómsveitinni Cigarette. DV hitti á Heiðrúnu þegar hún var í stuttu stoppi hér í síðustu viku.

Skjólstæðingur 50 Cent

Það styttist í að bandaríski rapparinn 50 Cent komi fram fyrir okkur Íslendinga í Egilshöll. 50 Cent er hluti af G-Unit krúinu, en annar meðlimur þess, Lloyd Banks, var að senda frá sér sína fyrstu plötu, The Hunger For More. Hún fór beint á topp Billboard-listans í síðustu viku. Trausti Júlíusson tékkaði á kappanum.

Baltasar bíður eftir svari

"Það fara að koma stórtíðindi," segir leikstjórinn Baltasar Kormákur aðspurður um næsta leikstjórnarverkefni sitt, Little Trip to Heaven, en Baltasar bíður nú eftir svari frá leikkonu sem hann vonast til að fari með aðalhlutverk í kvikmyndinni.

Courtney á spítala

Söngkonan Courtney Love var lögð inn á spítala á föstudag, sama dag og dómari lýsti því yfir að hún væri "flóttamaður" eftir að hún mætti ekki á tilsettum tíma í réttarsalinn.

Hver er Gino Sydal?

Rapparinn Gino Sydal er 24 ára, hálfur Íslendingur og hálfur Bandaríkjamaður. Hann verður á meðal þeirra sem tekur þátt í stærstu hipphoppveislu Íslandssögunnar í Egilshöll 11. ágúst.

Eldheitt S&M myndband á Netinu

Leikkonan fagra Cameron Diaz stendur í leiðindarmáli þessa dagana þar sem sjóðheitt myndband, sem tekið var af henni þegar hún var 19 ára óþekkt leikkona, er komið á internetið.

Fiskar í tjörn

Kannski hafa veðurfarsbreytingar undanfarins áratugar stígið okkur Íslendingum til höfuðs. Að minnsta kosti hafa þær fyllt okkur von og metnaði þegar lýtur að garðhirðu og aukið uppátækjasemi til muna.

Vantsniðurinn notalegur

Jóhannes Lange er trésmiður á eftirlaunum sem býr yfir vetrartímann í Torreveja á Spáni ásamt eiginkonu sinni Auði.

Tímabundin endurkoma

Valdís Gunnarsdóttir tók við af Ágústi Héðinssyni í sumarafleysingum og verður út vikuna á Mix 91,1.

Bowie á batavegi

David Bowie er á góðum batavegi og virðist ekki hafa látið hjartaaðgerðina sem bjargaði líf hans í síðasta mánuði draga sig of mikið niður.

Rabba minnst á Grafíktónleikum

Grafík hélt tvenna tónleika í Alþýðuhúsinu á Ísafirði í gærkvöld. Rafn heitinn Jónsson, trommuleikari, tók þátt í að skipuleggja tónleikana en hans var minnst með mínútu þögn í upphafi tónleikanna.Tónleikarnir voru vel sóttir og varð að halda tvenna svo að allir sem vildu, fengju að heyra sveitina taka sum vinsælustu lög sín.

Sjá næstu 50 fréttir