Courtney á spítala 12. júlí 2004 00:01
Söngkonan Courtney Love var lögð inn á spítala á föstudag, sama dag og dómari lýsti því yfir að hún væri "flóttamaður" eftir að hún mætti ekki á tilsettum tíma í réttarsalinn. Love átti að mæta fyrir dómara í Los Angeles á föstudagsmorgun til þess að svara fyrir þær sakir að hafa ráðist að konu með lífshættulegt vopn. Atvikið átti sér stað 25. apríl þegar Love á að hafa slegið konu niður með járnvasaljósi og flösku. Lögfræðingur Love sagði blaðamönnum fyrir utan réttarsalinn að hann hefði enga hugmynd um af hverju söngkonan hefði ekki séð sér fært að mæta. Hann hafði þá fyrirskipað henni að fljúga frá New York til Los Angeles kvöldið áður. "Ég dreg bara þá ályktun að hún hafi ekki haft tækifæri til þess að ná seinna flugi," sagði hann. Síðar var gefin út fréttatilkynning þar sem fram kom að Love hefði verið lögð inn á spítala vegna vandræða í legi. "Þetta var ekki sjálfsmorðstilraun og ekki vegna eiturlyfja," sagði talsmaður hennar. "Þetta er vegna vandræða í legi og hún þurfti að gangast undir aðgerð. Þessar upplýsingar eru þó í gegnum annan aðila, ég hef ekki talað við hana frá því í gærkvöldi. Þá kvartaði hún undan sársauka, en hafði ekki leitað sér læknisaðstoðar." Þegar Love mætti ekki í réttarsalinn gaf hann út handtökuskipan á hana og sagði að tryggingargjaldið yrði 10,6 milljónir króna.
Menning Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Fleiri fréttir Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein