Fleiri fréttir

Dogma endurgerð af Chuck Norris-mynd

Kvikmyndin Zero Dark Thirty segir frá leit Bandaríkjahers að Osama bin Laden, leiðtoga al-Kaída. Myndin er tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna og verður frumsýnd annað kvöld.

Virðingavottur við æskuslóðirnar

"Mig langaði að setja rætur mínar á mig, ef svo má segja, og fannst frábært að geta sameinað Svíþjóð og Patreksfjörð í einni mynd. Ég bjó fyrstu ár ævi minnar í Svíþjóð og ber enn sterkar taugar til landsins. Hver hefur ekki gaman af munntóbaki, íshokkíi og lélegum bröndurum?“ segir tónlistarmaðurinn Smári Tarfur Jósepsson, sem leikur með hljómsveitinni Ylju um þessar mundir, um nýtt húðflúr sem hann fékk sér á mánudag.

Morrissey aflýsir tónleikum

Tónlistarmaðurinn Morrissey hefur aflýst tveimur tónleikum sínum vegna veikinda. Morrissey átti að koma fram á tónleikum í Las Vegas hinn 9. febrúar og í Phoenix kvöldið eftir.

Einn af þeim villtari

Við tónlistarfíklar þurfum alltaf að vera að hlusta á eitthvað nýtt. Aðgengi að nýrri tónlist hefur aldrei verið betra. Það er t.d. hægt að streyma sig í hel (afsakið orðbragðið) á tónlistarsíðum eins og gogoyoko og Tónlist.is og eins er hægt að hala niður út í hið óendanlega.

Óskilgreind fegurð

Nick Cave & the Bad Seeds sendir frá sér sína fimmtándu hljóðversplötu, Push the Sky Away, í næstu viku. Hljómsveitin fagnar 30 ára afmæli sínu á þessu ári.

Maður ársins hjá Harvard

Kiefer Sutherland hefur verið valinn Hasty Pudding-maður ársins hjá Harvard-háskólanum í Bandaríkjunum. Leikarinn verður heiðraður fyrir framlag sitt til skemmtanabransans við hátíðlega athöfn á föstudag.

Í svartnættinu er myrkrið mest

"Síðan koma einnig slæmir dagar. Þá horfi ég á yngsta soninn og þoli ekki tilhugsunina um tilvist hans. Ég finn að það er rangt að hugsa svona, veit að það sé ekki heilbrigt, enda er ég að reyna að laga það. En það er meira en að segja það. Stundum finnst mér ég vera að drukkna, finnst ég troða marvaða út í hið endalausa og sé ekkert land fram undan."

Í íþróttabuxum á Óskarnum

Leikkonan Jennifer Lawrence er tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Silver Linings Playbook. Hún gæti komið á óvart í fatavali á stóra kvöldinu.

Kasólétt á ströndinni

Fótboltaeiginkonan Coleen Rooney er komin aftur í frí á Barbados en stutt er síðan hún var þar síðast. Hún er þar með syni sínum Kai og sýnir vaxandi óléttubumbuna í fallegu bikiníi.

Of feitar til að stunda kynlíf

52 prósent svarenda sögðust hafa minna sjálfstraust vegna vaxtarlagsins og því ekki mikill vilji fyrir því að stunda kynlíf með maka. Fleiri konur kenndu þó þreytu um að þær vildu ekki sofa hjá maka sínum.

Ráðin til Viðskiptablaðsins

Lára Björg Björnsdóttir rithöfundur hefur verið ráðin sem blaðamaður á Viðskiptablaðið. Hún starfaði í utanríkisráðuneytinu í fjögur ár eftir að hún útskrifaðist úr sagnfræði við HÍ. Þá vann hún við ritstörf, blaðamennsku og í Landsbankanum. Síðast var Lára skrifstofustjóri Vefpressunnar.

Já, takk! Epísk brúðarlína

Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr er langt frá því að vera óaðlaðandi í nýrri auglýsingaherferð Victoria's Secret. Þar sýnir Miranda brúðarlínu nærfatarisans og gerir það vel.

Uppselt á Sónar Reykjavík

Tilkynnt í morgun. Notast verður við fjögur svið í Hörpu og verður spilað á þeim samtímis. Hluta af bílastæðinu í kjallara Hörpunnar breytt í næturklúbb

Stelpurnar í Girls mæta í kvöld

Önnur þáttaröð af frumlegu gamanþáttaröðinni Girls hefst á Stöð 2 í kvöld. Stelpurnar í Girls hafa slegið í gegn með sínum hráa húmor og þykja ferskur andblær.

Ofgerir sér á meðgöngunni

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian lét hafa eftir sér fyrir stuttu að hún óttaðist mjög að bæta miklu á sig á meðgöngunni en hún gengur nú með sitt fyrsta barn.

Á forsíðu i-D í 20 ár

Í tilefni þess að Kate Moss hefur setið á forsíðu i-D Magazine með reglulegu millibili í tuttugu ár setti tímaritið fjórar mismunandi myndir af Moss á forsíðu vorútgáfu þess þetta árið.

Örlygur Smári og Pétur svara fyrir sig

Mikið hefur verið rætt um líkindi lags okkar, Ég á líf, og lagsins "I am cow" síðustu daga. Við höfum ekki farið varhluta af þeirri umræðu. Í upphafi hlógum við bara að þessari samlíkingu en nú þykir okkur komið mál að linni. Alla vega þeirri umræðu að verið sé að væna okkur um lagastuld. Það að láta þjófkenna sig saklausan er ekkert gamanmál og nístir á endanum að innstu hjartarótum.

Candice Swanepoel fyrir Swarovski

Victoria's Secret engillinn og fegurðardísin Candice Swanepoel situr fyrir í auglýsingaherferð fyrir hið virta skartgripafyrirtæki Swarovski.

Pjattrófurnar á uppleið

"Við erum á 18. hæð í Höfðatorgi með útsýni yfir austur borgina, fjallagarðinn og Úlfarsfell - hrein fegurð," segir Margrét Gústavsdóttir sem á og rekur vefinn Pjatt.is eða Pjattrófurnar sem hún opnaði í febrúar árið 2009. Hefur útsýnið áhrif á vinnuframlagið? "Algjörlega. Ekki spurning. Vinnustaðan skiptir ekki minna máli en heimilið. Fallegt umhverfi er fyrir öllu. Þegar maður er svona hátt uppi hefur maður líka rosalega yfirsýn," segir Margrét og hlær.

Húðin verður frískari og mjúk sem silki

"Ég á endalaust mikið af augnskuggum og varalitum. Um leið og ég uppgötvaði snyrtivörur var í raun ekki aftur snúið," segir Marín Manda Magnúsdóttir...

Ég er svo heppin að hann elskar mig

Leikkonan Drew Barrymore byrjaði að deita Will Kopelman í byrjun árs 2011 og þau giftu sig í júní í fyrra. Drew segist vera yfir sig ástfangin af honum Will sínum.

Er meðlimur í hlaupagengi frá Lundúnum

Petra Bender er meðlimur í Run Dem Crew hlaupagenginu. Hópurinn er styrktur af Nike og telur um 150 meðlimi. Petra segir skemmtilegra að hlaupa í hóp.

Íslendingar eru heppnir í þetta skiptið

Tískuprinsinn Marc Jacobs mun hanna umbúðir Coke Light í ár og fetar þar með í fótspor Jean Paul Gaultier sem hannaði skemmtilegar umbúðir utan um gosdrykkinn í fyrra. "Jean Paul Gaultier náði mér auðveldri í fyrra svo það gefur að skilja að ég er mjög spennt að drekka Marc Jacobs kók þetta árið. Íslendingar eru heppnir í þetta skiptið því að í fyrsta sinn verður hægt að nálgast vöruna í íslenskum verslunum. Vei," skrifar Elísabet Gunnarsdóttir tískubloggari Trendnet.is.

Úr tælensku fangelsi á Hamborgarabúlluna

Brynjar Mettinisson, sem sat í fangelsi í Tælandi í yfir ár, er byrjaður að vinna á Hamborgarabúllunni við Geirsgötu samkvæmt fréttavef Eiríks Jónssonar.

Fullmótuð heild ógerðra verka

Ógerðu verkin nefnist sýning myndlistarmannsins Þórodds Bjarnasonar í Safnaskálanum á Akranesi. Sýningin er óvenjuleg að því leyti að hún samanstendur af verkum sem enn hafa ekki verið fullkláruð.

Mundi hiklaust veðja á Gunnar Nelson

„Gunni er á mjög hraðri uppleið og er töluvert meira en bara efnilegur, hann er einn af bestu mönnum í heimi í gólfglímu. Mér finnst fólk þó eiga til að gleyma því að allt getur gerst í svona bardaga. Það geta allir tapað.“

Mikilvægt að lifa í raunveruleikanum

Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant gefur út nýja plötu í mars. Hann flutti til Íslands fyrir rúmu ári síðan eftir að hafa nýlega greinst með HIV-veiruna.

Hermikrákur af Guðs náð

Liðsmenn The Bootleg Beatles voru fljótir að slá á mögulegar efasemdarraddir um ágæti þeirra er þeir mættu á svið í Eldborgarsalnum í Hörpu á sunnudagskvöld.

Missti 39 kg

"Ég hef frá barnsaldri glímt við aukakílóin, orkuleysi, þreytu og pirring og hef reynt margt í gegnum tíðina en án árangurs. Ég var þó dugleg að mæta í ræktina og hamaðist mikið þar en ég skildi hins vegar ekki af hverju vigtin fór bara upp," segir Rakel Erna Skarphéðinsdóttir, 21 árs nemi á fyrsta ári í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, sem hefur misst hvorki meira né minna en 39 kíló.

Vilborg ræðir hinstu daga eiginmannsins

"Það hjálpar mér að lesa mína eigin pistla en mér finnst engu að síður súrrealískt að lesa þá. Stundum finnst mér eins og einhver annar hafi skrifað þetta," þetta segir Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur, í viðtali við Ásgeir Erlendsson í Ísland í dag í kvöld strax að loknum fréttum. Vilborg hefur vakið mikla athygli fyrir opinskáar bloggfærslur um baráttu eiginmanns hennar, Björgvins Ingimarssonar, við illvígt krabbamein í heila. Vilborg hefur í bloggfærslum sínum skrifað um hinstu daga Björgvins og lagt áherslu á mikilvægi þess að fólk ræði um dauðann. Sjúkdómur Björgvins hefur ágerst hratt á síðustu dögum og um helgina var Björgvin fluttur á líknardeildina í Kópavogi. Hún segir mikilvægt að börnin séu þátttakendur í þessu ferli og segir að allir séu duglegir að minna sig á að hlúa að sjálfri sér í þessari erfiðu baráttu. Viðtalið við Vilborgu má sjá í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:54.

Þessar kunna þetta

Ljóshærða leikkonan Diane Kruger kann svo sannarlega að klæða sig. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian stígur hins vegar stundum feilspor.

Hápunktar tískuvikunnar í Kaupmannahöfn

Tískuvikunni í Kaupmannahöfn lauk á sunnudaginn. Sýningar hjá frændum okkar Dönum hafa fengið frábær viðbrögð í erlendum fjölmiðlum, en Style.com, einn virtasti tískumiðill heims tók þátt í vikunni í fyrsta sinn í ár. Þar gerðu tískublaðamenn úttekt á sýningunum og settu myndir af þeim stærstu inn á heimasíðu sína.

Nýtt par?

Listafólkið Snorri Ásmundsson og Ásdís Sif Gunnarsdóttir hafa sést mikið saman að undanförnu og sagan segir að þau eru nýtt par. Ásdís, sem er barnsmóðir Ragnars Kjartassonar myndlistarmanns, heldur úti vefsíðunni Asdissifgunnarsdottir.com. Heimasíða Snorra er Snorriasmundsson.com. Snorra var boðið af Vincent Vlasblom stofnanda Suriname listahátíðarnnnar að taka þátt í sýningu sem fram fer í Amazon á tveggja ára fresti. Snorri sem fer út í lok febrúar mun dvelja þar næstu tvo mánuðina þar sem hann leyfir sköpunarkraftinum að njóta sín.

Þessi pía er alveg með'etta

Leikkonan Morena Baccarin datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar hún hreppti hlutverk Jessicu Brody í þáttunum Homeland, eiginkonu hins stríðshrjáða Nicholas Brody.

Mæðgur á tískutoppnum

Tískugyðjan Victoria Beckham var óaðfinnanleg er hún rölti út af JFK-flugvelli um helgina. Dóttir hennar, Harper Seven, var að sjálfsögðu með í för.

Heimsfræg krúttsprengja

Nýbökuðu foreldrarnir Shakira og Gerard Pique deildu mynd af syni sínum, Milan Pique Mebarak í gegnum UNICEF-heimasíðuna fyrir stuttu en snáðinn er tveggja vikna.

Giselle Bundchen er nýtt andlit Chanel

Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er nýtt andlit Chanel snyrtivörulínunnar Les Beiges. Bundchen er 32 ára gömul tveggja barna móðir sem hefur sigrað fyrirsætuheiminn, en hún er hefur verið hæst launaðsta fyrirsæta heims síðustu árin. Hinn heimsfrægi tískuljósmyndari Mario Testino myndaði Giselle fyrir Chanel.

Stjörnurnar styðja dag rauða nefsins

Stjörnuhönnuðurinn og bítladóttirin Stella McCartney hefur hannað línu af stuttermabolum til styrktar dags rauða nefsins. Bolirnir eru fimm talsins og þá prýða myndir af frægum einstaklingum í gegnum tíðina, svo sem Bítlarnir, Marilyn Monroe og Kate Moss, öll að sjálfsögðu með rauð nef. Bolirnir eru framleiddir í Afríku úr 100% lífrænni bómull.

Sjá næstu 50 fréttir