Fleiri fréttir

Margmenni á fyrsta Airwaves-gigginu í gær

Það fer ekki á milli mála að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er hafin og miðborgin er full af erlendum sem innlendum tónlistarunnendum. Það var stappfullt á Kex Hostel í hádeginu í gær þegar ein vinsælasta hljómsveit landsins, GusGus, steig á stokk og söng fyrir veðurbarða tónleikagesti. Svo mikið var stuðið að undir lokin voru flestir farnir að dilla sér við dansvæna tóna GusGus og lofuðu tónleikarnir góðu fyrir framhaldið á tónlistarhátíðinni.

Matt Damon og Douglas leika elskendur

Matt Damon mun leika ungan elskhuga Michael Douglas í kvikmyndinni Behind the Candelbra sem fjallar um ævi tónlistarmannsins Liberace. Myndin á að gefa góða mynd af lífi þessa listamanns sem klæddist skrautlegum búningum uppi á sviði. Myndin mun jafnframt fjalla um sérstakt samband Liberace og Scotts Thorson.

Samstarf við Hammond

Rokksveitin The Vaccines, með Árna Hjörvar Árnason á bassanum, gefur út nýja smáskífu 4. desember. Þar verður lagið Wetsuit af fyrstu plötu sveitarinnar, What Did You Expect From The Vaccines?, og einnig Tiger Blood sem var tekið upp í samvinnu við Albert Hammond Jr., gítarleikara The Strokes.

Pantaðu tíma hjá tannsa núna!

Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, gerir töluvert af því að þamba kaffi og svo reykir hún eins og strompur. Kaffiþambið og nikótínneyslan skín í gegn þegar hún brosir eins og sjá má á myndunum. Tennur leikkonunnar eru langt frá því að vera í stíl við perluhvít stellin sem stjörnurnar í Hollywood skarta því brosið hennar Lindsay er gult með brúnum blæ sem fer fram hjá fáum þegar hún brosir.

Simon flytur Graceland

Paul Simon fagnar 25 ára afmæli goðsagnakenndu plötunnar Graceland með tónleikaferðalagi á næsta ári. Graceland, sem jafnan er valin ein af bestu plötum poppsögunnar í þess háttar kosningum, kom út árið 1986 en árið eftir lagði Simon upp í tónleikaferðalag til að kynna hana.

Idol-stjarna vinsælust í Bandaríkjunum

Síðasti sigurvegari American Idol, Scotty McCreery, er nú í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Nýjasta plata hans ber heitið Clear as Day.

Sló í gegn hjá írönskum leigubílstjóra

Forlagið gekk í gær frá samningum við brasilískt forlag um útgáfu á barnabókinni Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Bókin er því væntanleg í öllum byggðum heimsálfum nema einni, Eyjaálfu, því útgáfa hennar hefur þegar verið skipulögð í Norður-Ameríku á næsta ári.

Allt gengur upp hjá Lay Low

Lay Low toppar sig á frábærri plötu. Lögin eru góð, útsetningarnar ferskar og hugmyndaríkar og hljómurinn er hlýr og gamaldags, en platan er tekin upp á segulband.

Situr ekki í leðursætum

Dýravinurinn Tobey Maguire afþakkaði afnot af bíl sem honum var boðinn af því hann vildi ekki sitja í leðursætum bílsins. Maguire er í Ástralíu við upptökur á kvikmyndinni The Great Gatsby og kvikmyndaverið lét honum í té glænýjan Mercedes Benz til að rúnta um á.

Spears fær falleinkunn í Svíþjóð

Poppprinsessan Britney Spears fær skelfilega dóma hjá dönskum og sænskum fjölmiðlum eftir tónleika sína þar í vikunni. Það var á mánudaginn sem Spears tróð upp í Herning í Danmörku og sögðu danskir gagnrýnendur hana vera jafn kynþokkafulla á sviði og „strætóstoppistöð í rigningu“.

Vorlína Fendi 2012

Karl Lagerfeld sem stýrir tískuhúsinu Fendi sýndi nýju vor- og sumarlínuna í París á dögunum sem skoða má í myndasafni...

Beyonce: Ég er víst ólétt

Söngkonan Beyonce Knowles, 30 ára, blæs á háværar sögusagnir um að hún gangi ekki með barn í raunveruleikanum. Sjónvarpsviðtal við hana sem sjá má hér, var sýnt nýliðna helgi á ástralskri sjónvarpsstöð, þar sem magi hennar lítur út fyrir að vera gervi...

Stöðugt stuð í bíóhúsum borgarinnar

Það ríkir mikil frumsýningargleði í kvikmyndahúsum um þessar mundir og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Eins og kemur fram hér til hliðar verða tvær íslenskar kvikmyndir frumsýndar en auk þess verða myndir eftir Almodóvar og Woody Allen teknar til sýninga.

Flíkur úr dánarbúum

Guðlaugur og Hrafnkell í Captain Fufanu velja föt fyrir sviðið með það að leiðarljósi að geta afklæðst.

Duttu í Airwaves-lukkupott

Þrjár bandaríska hljómsveitir unnu samkeppni um að spila á hátíðinni Iceland Airwaves. Þær dvelja hér á landi í heila viku og verður allur kostnaður þeirra greiddur.

Herra Ísland

Mugison er viðkunnanlegasti tónlistarmaður landsins, kann ekki að gefa út lélegar plötur og fyllir tónleikastaði um allt land. Oft. Hann er herra Ísland og gleðst yfir því að eldri konur séu byrjaðar að mæta aftur á tónleikana hans, en þær vildu ekki sjá pungsveitt rokkið af plötunni Mugiboogie. Nýja platan Haglél er ljúfsár og angurvær og er mest selda plata landsins um þessar mundir.

Tónlistin eins og Trójuhestur

Draumpoppararnir í Beach House spila í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Sveitin hefur verið að semja efni á nýja plötu og eru þetta fyrstu tónleikar hennar í tvo og hálfan mánuð.

Framvarðasveitin

Snillingarnir í ADHD leika lausum hala á landamærum rokks og djass. Á heildina litið er þetta fyrirtaks plata sem ætti að höfða jafnt til djass- og rokkáhugafólks.

Semja ný lög í sumarbústað

Mammút hefur verið að semja lög á næstu plötu sína í sumarbústað uppi í sveit. „Við leigðum ódýran sumarbústað fyrir utan bæinn, pínkulítinn. Við erum búin að fara þangað tvisvar í sumar og höfum verið í viku, tíu daga í senn,“ segir söngkonan Katrín Mogensen. „Það hefur gengið mjög vel. Það var algjörlega frábær ákvörðun.“ Upptökur á nýju plötunni hefjast í næsta mánuði.

Ellen og Tobbi: Hann sér framtíð tískunnar fyrir sér í þrívídd

„Þetta var skemmtilegt ferli og gaman að vinna að þessari mynd með CCP, sem fjallar á margan hátt um framtíð tískunnar,“ segir Ellen Loftsdóttir, en hún leikstýrði nýverið heimildarmynd um samstarf tölvuleikjaframleiðandans og stílistans Nicola Formichetti, ásamt kærasta sínum Þorbirni Ingasyni.

Svona gerir þú ofninn fallegri

Ofnar geta verið ansi leiðinleg fyrirbæri og ekki erum við öll svo heppin að hafa hita í gólfinu hjá okkur. En við þurfum nú samt á þeim að halda, sérstaklega á okkar yndislega landi þar sem getur orðið ansi kalt á vetrarkvöldum...

Faðir í fyrsta sinn

Jack Osbourne á von á sínu fyrsta barni, en fréttirnar sagði hann í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan. „Ég er spenntur og smá stressaður,“ sagði Osbourne, en vika er síðan Osbourne tilkynnti trúlofun sína og Lisu Stelly. Barnið verður fyrsta barnabarn rokkarans Ozzy Osbourne og ku vera mikil gleði á heimilinu.

Ætlum ekki að vera aular fyrir framan áhorfendur

Kvikmyndaleikstjórarnir Óskar Jónasson og Ólafur Jóhannesson vöknuðu báðir með hnút í maganum á mánudagsmorgun enda stór stund fram undan, þeir eru að frumsýna myndir sínar.

Þrjú hundruð biðu eftir miðum

Að minnsta kosti þrjú hundruð manns voru í biðröð við verslun Smekkleysu á Laugavegi í fyrrinótt og í gærmorgun. Þar vonuðust þeir til að fá miða á Biophilia-tónleika Bjarkar sem voru haldnir í Hörpu í gærkvöldi. Aðeins tvö hundruð miðar voru í boði fyrir fólk sem þegar hafði keypt sér miða á Airwaves-hátíðina og því var mikilvægt að mæta tímanlega á staðinn.

Finndu þinn minnihlutahóp á Háskólatorgi

„Við ætlum að hjálpa fólki að finna sinn minnihlutahóp og hólfa fólk niður, eins maður gerir ósjálfrátt í hversdeginum,“ segir Eva Björk Kaaber, einn meðlima framandverkaflokksins Kvissbúmmbang sem stendur fyrir innsetningu í tengslum við Jafnréttisdaga Háskóla Íslands.

Tónlistarblaðið Popp kynnir Poppskúrinn á Vísi

Popp kemur út með breyttu sniði í dag og leggur nú áherslu á tónlist en ekki dægurmál almennt eins og það hefur gert undanfarin misseri. Í staðinn fyrir að koma út mánaðarlega kemur Popp út aðra hverja viku.

Hausttískan: Þykkt, loðið og hlýtt

Haustvörurnar flæða nú inn í tískuverslanir um allt land. Á tískupöllunum síðasta vetur mátti sjá mikið af fallegum, þykkum peysum, stórum úlpum og settlegum handtöskum. Föstudagur fór á stúfana og fann nokkrar fallegar flíkur fyrir haustið.

Topp fimm buxurnar í fataskápnum

Ingibjörg Rósa Harðardóttir hefur starfað í fatabransanum síðan hún var 17 ára gömul en nú er hún einn af rekstrarstjórum NTC verslunarkeðjunnar.

Finnur efnivið í skart hér og þar

Kristjana Jenný Ingvarsdóttir útstillingahönnuður hannar og selur fylgihluti og gjafavörur undir nafninu Mydesign. Fylgihlutirnir eru að mestu unnir úr endurunnu efni svo sem stáli, messing, tré og gömlu skarti.

Á rauða dreglinum í 66°Norður úlpu

Leikstjórinn og leikarinn Eli Roth, 39 ára, var klæddur í svarta úlpu frá 66°Norður á rauða dreglinum á frumsýningu myndarinnar The Thing í Los Angeles í gærkvöldi...

Hell-víti öflugt

Fínt rokk með elektróník í bland sem ætti að njóta sín til fullnustu á tónleikum. Hellvar er orðið fimm manna band og fyrir vikið hafa áherslunar breyst og rokkið orðið meira áberandi þó svo að rafpælingarnar séu aldrei langt undan.

Fagna Reykjavik Rocks

Haldið verður útgáfuteiti í dag til að fagna útgáfu bókarinnar Reykjavik Rocks. Bókin er kynningarrit í léttum dúr um Reykjavík vorra daga og meðal helstu höfunda efnis í bókinni eru Hallgrímur Helgason, Örn Úlfar Sævarsson og Jón Atli Jónasson.

Hræðist bótox

Ég nota ekki bótox. Það hræðir mig. Hugsunin við að nál sé stungið í ennið á mér fær mig til að líða illa, segir leikkonan Salma Hayek, 45 ára...

Góðir gestir á opnun Kára Sturlu

Tónleikahaldarinn Kári Sturluson opnaði sína fyrstu ljósmyndasýningu á mánudaginn í Kex Hosteli. Góðir gestir mættu á opnunina og samfögnuðu með honum.

Mæðrastyrksnefnd fær 250 bíómiða á Þór

Snædís Baldursdóttir 7 ára, afhenti, fyrir hönd Títans fjárfestingafélags, Senu og CAOZ, Ragnhildi Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Mæðrastyrksnefndar 250 aðgöngumiðmiða á kvikmyndina Hetjur Valhallar - Þór ásamt 250 gjafamiðum fyrir poppi og gosi...

Borgríki frumsýnd á föstudag

Vísir frumsýnir hér glænýtt sýnishorn úr harðsoðna spennutryllinum Borgríki. Mikil eftirvænting ríkir fyrir frumsýningu myndarinnar sem er næstkomandi föstudag, 14. október.

Sveppi og Þorsteinn mala gull í kvikmyndahúsunum

Sverrir Þór Sverrisson og Þorsteinn Guðmundsson eru kóngarnir í íslenskri kvikmyndagerð það sem af er þessu ári. Okkar eigin Osló og Algjör Sveppi og töfraskápurinn eru einu íslensku myndirnar sem hafa náð að rjúfa 10 þúsund og 20 þúsund gesta múrinn en tíu íslenskar myndir verða væntanlega frumsýndar á þessu ári.

Bæ bæ ljóska - halló brúnetta

Leikkonan Kate Hudson, 32 ára, er orðin dökkhærð eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni í New York við tökur á myndinni...

Vilja heimsyfirráð á netinu

Vefsíðan Live Project ætlar að gera tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves góð skil. Framtíðarsýn stofnenda síðunnar er að gera hana þá skemmtilegustu á netinu. Það verður nóg að gerast á íslensku vefsíðunni Live Project í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst í dag. Live Project er rauntíma myndbrota- og ljósmyndasíða þar sem allir geta deilt upplifun sinni í beinni útsendingu. Mennirnir á bak við hana eru Benedikt Freyr Jónsson, Hörður Kristbjörnsson og Daníel Freyr Atlason.

Liv Tyler naut lífsins í Þríhnúkagíg

Bandaríska leikkonan Liv Tyler brá undir sig betri fætinum seinnipart mánudags og fór ásamt kærastanum sínum, ljósmyndaranum Theo Wenner, og tveimur öðrum vinum sínum að skoða hinn magnaða Þríhnúkagíg í Bláfjöllum.

150 lög bárust í Eurovision

„Þetta er svipaður fjöldi og hefur verið undanfarin ár,“ segir Elísabet Linda Þórðardóttir, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu. Í kringum 150 lög bárust í Söngvakeppni Sjónvarpsins, Eurovision, en umsóknarfrestur rann út á mánudag.

Sjá næstu 50 fréttir