Fleiri fréttir Viðurkennir bótox notkun Leikkonan Courteney Cox, sem viðurkennir fúslega að hún hafi látið sprauta bótoxi í andlitið á sér, var mynduð ómáluð í andliti í Hollywood í vikunni. Bótox er æðislegt og hræðilegt líka. Ég meina þeir fundu upp þetta efni sem getur látið þig líta út fyrir að vera brjálaða í skapinu ef þú notar það ekki sparlega. Ég fór einu sinni til læknis og hann sagði: Heyrðu setjum smá hér og hér og líka örlítið hérna og veistu mér leið alveg hræðilega. Ég meina, ég er leikkona og þarf að geta hreyft á mér andlitið. Þegar fólk byrjar að krukka í enninu á sér og getur ekki lyft augabrúnunum þá er mál til komið að endurskoða hlutina. Það er ekki eins og ég hafi ekki prófað bótox - en mér fannst það hræðilegt, sagði Courteney. 27.8.2011 08:58 Forbes velur áhrifamestu konurnar Tímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir 100 áhrifamestu konurnar í heiminum. Á listanum er að finna bæði nöfn úr stjórnmálum og skemmtanabransanum. 27.8.2011 08:30 Portman snýr aftur Natalie Portman er sögð eiga í viðræðum um að leika í sinni fyrstu kvikmynd síðan hún eignaðist son sinn, Aleph, í júní. Hin þrítuga leikkona er að íhuga að leika aðalhlutverkið í dramanu Adaline. 27.8.2011 08:00 Upplausn á heimili Smith-hjónanna Eitt frægasta, og hingað til traustasta, hjónaband Hollywood stendur völtum fótum þessa dagana. Leikaraparið Will Smith og Jada Pinkett Smith er að skilja ef marka má bandaríska miðla og hefur fréttaflutningur af málefnum þeirra tekið á sig nýja mynd undanfarna daga. 27.8.2011 08:00 Ghostbusters 3 verður gerð Þriðja Ghostbusters-myndin verður gerð með eða án Bills Murray. Að sögn leikarans Dans Aykroyd er frábært handrit komið á borðið og aðeins á eftir að hefja tökur. Þær eru fyrirhugaðar næsta vor. „Það má ekki gleyma því að Ghostbusters er stærri en allir hlutar hennar, þrátt fyrir að Billy [Murray] hafi áður verið í aðalhlutverki og lagt sitt af mörkum,“ sagði hann. Ghostbusters 3 hefur verið í pípunum í heilan áratug en aldrei hefur myndin litið dagsins ljós. Núna virðist biðin loksins vera á enda, 22 árum eftir að önnur myndin kom út. 27.8.2011 07:30 Urban Outfitters myndar á Íslandi „Þau eru alveg heilluð af Íslandi og í skýjunum enda er búið að ganga mjög vel,“ segir Tanja Berglind Hallvarðsdóttir, framleiðandi hjá True North. 27.8.2011 07:00 Vill giftast Madonnu Nýr kærasti söngkonunnar Madonnu, Brahim Zaibat, er aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall en þrátt fyrir það er hann tilbúinn að ganga í hjónaband með söngkonunni. Þessu heldur tímaritið Enquirer fram. 27.8.2011 06:00 Einfalt og litríkt Haustlína Blumarine er einföld og kvenleg. Þá er litagleðin allsráðandi eins og sjá má í myndasafni. 26.8.2011 19:34 Kossarnir gerast ekki fallegri Leikkonan Kate Hudson, 32 ára, kyssir unnusta sinn, Matthew Bellamy, innilega á kaffihúsi í London eins og sjá má í myndasafni. Með í för er sonur þeirra, Bingham Hawn Bellamy, sem fæddist 9. júlí síðastliðinn. Þá má einnig sjá mynd sem hún póstaði á Twitter síðuna sína af sér með drenginn í fanginu. 26.8.2011 18:31 Ballaða frá Jones í boði Ballaða Alans Jones og Írisar Hólm, Stay With Me, er núna fáanleg á síðunni Tónlist.is en lagið fór í útvarpsspilun fyrr í sumar. Allur ágóðinn rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Myndband við lagið er væntanlegt um miðjan næsta mánuð. Þar verður þemað ást en ekki brúðkaup eins og áður var fyrirhugað. Lagið er eftir Jones, sem er með fleiri járn í eldinum. Hann er að skipuleggja tónleika á Nítjándu hinn 1. desember. Meðal flytjenda verða Jóhanna Guðrún, Haffi Haff og Bryndís Ásmundsdóttir. 26.8.2011 18:00 Madonna blómstrar með unglambinu Söngkonan Madonna, 53 ára, blómstrar eins og myndirnar sýna greinilega, með nýja kærastanum, Brahim Zaibat, sem er 28 árum yngri en hún. Myndirnar voru teknar í Frakklandi. Dætur Madonnu, Mercy og Lourdes, voru einnig með í för. Sjá myndir hér. 26.8.2011 16:52 Einn dagur frumsýndur Rauða dreglinum var rennt út í London þegar nýjasta kvikmynd leikkonunnar Anne Hathaway, One Day, var frumsýnd. Myndin er byggð á skáldsögu Davids Nicholls og fjallar um tvo vini og lífshlaup þeirra á tuttugu ára tímaskeiði. Vinirnir eru leiknir af Hathaway og Jim Sturgess sem skörtuðu sínu fegursta og stilltu sér glöð upp framan við myndavélarnar í London. 26.8.2011 16:15 Emma í sambúð Leikkonan Emma Watson er byrjuð að búa með kærasta sínum Johnny Simmons. Kærustuparið, sem byrjaði saman í sumar, flutti inn í hús föður Watson í London. 26.8.2011 16:00 Endurskoðandi Forlagsins allur "Það er mikil sorg á heimilinu enda Breki einstakur köttur,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann missti í vikunni góðan vin þegar kötturinn Breki andaðist á heimili Jóhanns við Bræðraborgarstíg. Breki gegndi stöðu endurskoðanda hjá Forlaginu en hann var jarðaður í Skorradal á miðvikudag. "Hann varð fyrir nýrnabilun. Við biðum eftir kraftaverki eftir að hann varð veikur og vildum ekki láta svæfa hann en svo gerðist hið óumflýjanlega og við gátum ekki látið dýrið þjást meira.“ 26.8.2011 15:00 Játar ást sína Gamanleikarinn Jim Carrey setti nýverið á netið myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína. Töluverður aldursmunur er á þeim og þykir mörgum myndbandið því óviðeigandi. 26.8.2011 14:00 Erfitt að selja sig Morgan Spurlock er eilítið sér á báti í bandarískri heimildarmyndagerð. Hann sló fyrst í gegn með Super Size Me og hefur síðan þá verið einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims. Freyr Gígja Gunnarsson settist niður með honum og ræddi við hann um vöruinnsetningar í kvikmyndum og hvernig það er að vera fráskilinn. 26.8.2011 14:00 Nýkvæntur og lofar góðri hátíð Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur í nógu að snúast þessa dagana. Um síðustu helgi gekk hann að eiga Líneyju Úlfarsdóttur en þau eiga von á erfingja í nóvember. Hann er einnig að skipuleggja tónlistarhátíðina Melodica Acoustic sem hefst á morgun. Fleira er fram undan hjá trúbadornum knáa. Tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu verður farin í september og verða flestir tónleikarnir í Þýskalandi. 26.8.2011 13:00 Paul Young til Íslands Enski tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar 4. október. Young naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum og hefur á ferli sínum átt að minnsta kosti fjórtán lög sem hafa komist inn á vinsældalista. Þar má nefna Everytime You Go Away, Living For the Love of the Common People, Come Back And Stay, Where Ever I Lay My Hat (That"s My Home) og Senza Una Donna. Miðasala á tónleikana hefst 1. september kl. 12 á Harpa.is og í síma 528 5050. 26.8.2011 12:00 Emmsjé Gauti mætir í Vasadiskó 26.8.2011 11:15 Viltu sléttari maga? Hot fitness er fyrir konur sem vilja fá langa og fallega vöðva og konur sem vilja læra að þjálfa flata kviðvöðva, segir Anna Eiríksdóttir leikfimikennari í Hreyfingu spurð út í spennandi nýjung fyrir konur þar sem tveir boltar eru notaðir við æfingarnar. Anna sýnir í meðfylgjandi myndskeiði æfingu sem nær að virkja kviðvöðva meðal annars. Sjá meira um Hot fitness hér. 26.8.2011 11:11 Heimsfrægir afturendar (já þú last rétt) Pippa Middleton, Eva Longoria, Jennifer Lopez, Coco, Jessica Biel, Rihanna, Scarlett Johansson, Christina Hendricks, Salma Hayek, Eva Mendes, Halle Berry, Beyonce Knowles eru á meðal heimsþekktra kvenna sem hafa fengið gríðarlega mikla umfjöllun í fjölmiðlum beggja vegna Atlantshafsins þegar afturendi þeirra er annars vegar. Þá má nefna Kim Kardashian sem fór í röntgenmyndatöku til að afsanna háværar sögusagnir um að afturendi hennar væri ónáttúrulegur. Shakira er einnig í umræddum hóp en hún lét hafa eftirfarandi eftir sér: Ég vildi óska að ég væri hærri, með lengri lappir, mjórra mitti, minni afturenda og sléttara hár. 26.8.2011 10:48 Lopez hvað er í gangi hérna? Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá Jennifer Lopez, 42 ára, ásamt fjölda dansara við tökur á nýju tónlistarmyndbandi. Fegurð kemur innan frá. Þú sérð hana endurspeglast í augunum á fólki, lét Jennifer, sem var nærri dottin af baki eins dansarans eins og greinilega má sjá á myndunum, hafa eftir sér. 26.8.2011 10:18 Reyna við Íslandsmet í planki "Maður er allur endurnærður eftir gott plank, og tilfinningin eftir að hafa sett fjöldamet í planki verður örugglega sæt því samstaðan sem skapast þegar margir gera sama hlutinn er svo skemmtileg,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ, þar sem reynt verður að setja Íslandsmet í planki við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima á Miðbæjartorginu í kvöld klukkan 20. 26.8.2011 10:15 Spessi sækir hjól til Memphis „Jú, þetta er rétt, við erum að fara til Kansas. Þar ætla ég að kaupa mér pallbíl, kúrekahatt og stígvél í stíl,“ segir Spessi, ljósmyndari með meiru. Eiginkona hans, Áróra Gústafsdóttir, er að fara að setjast á skólabekk og ætlar Spessi að fljóta með. Hjónakornin fljúga út á laugardaginn en Spessi vill ekki gefa mikið upp hvað hann ætlar að gera í Bandaríkjunum fyrir utan að hann hyggst sækja þar mótorhjól sem er í geymslu í Memphis. „Elvis hefur verið að passa upp á það fyrir mig,“ segir ljósmyndarinn og hlær. 26.8.2011 10:00 Slasaður sonur Slúðurmiðlar vestan hafs voru ekki lengi að draga þá ályktun að söngkonan Christina Aguilera, 30 ára, hafi beitt Max son sinn grófu ofbeldi eftir að hann sást með glóðurauga í fangi hennar á Hawaii. Lögfræðingur Christinu sendi formlega fréttatilkynningu þar sem hann útskýrði í smáatriðum hvernig Max slasaðist á leikvelli þegar hann datt og meiddi sig en móðir hans, Christina, var fjarverandi þegar óhappið átti sér stað. Meðfylgjandi má sjá söngkonuna með Max í fanginu. 26.8.2011 09:18 Verður faðir í annað sinn Leikarinn Jason Bateman á von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni, Amöndu Anka, dóttur söngvarans Paul Anka. Fyrir á parið dótturina Francescu Noru sem er fjögurra ára gömul. 26.8.2011 09:00 Pippa skokkar Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 27 ára, var mynduð á hlaupum þegar hún fékk sér kaffibolla í gær. Pippa fær ekki stundarfrið frá ljósmyndurum sem mynda nánast hvert fótspor sem hún tekur. Þá má sjá Pippu skokka eldsnemma morguns í myndasafni en hún hleypur daglega. 26.8.2011 08:31 Vildi meira Kimberly Stewart eignaðist dóttur í vikunni og hlaut hún nafnið Delilah. Þótt Stewart og barnsfaðirinn, leikarinn Benicio del Toro, séu ekki í sambandi mun hún vera afskaplega hrifin af honum. 26.8.2011 08:00 Yfirgefur Dalvík af illri nauðsyn og flytur suður "Við erum af illri nauðsyn að flytja í bæinn,“ segir tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson. Hann hefur búið á Dalvík undanfarin fjögur ár með fjölskyldu sinni en núna verður breyting þar á. "Það er bara brjálað að gera. Ég er nánast ekkert búinn að koma til Dalvíkur síðan í janúar. Þetta var orðin hálfgerð fjarbúð og ekki nógu mikill tími með börnunum og annað. Við ákváðum að taka þetta skref núna. Maður verður að elta vinnuna þangað sem hún er,“ segir Matti. 26.8.2011 07:00 Sinead O'Connor á Airwaves Írska tónlistarkonan Sinead O'Connor heldur tónleika á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í október í haust samkvæmt kvöldfréttum RÚV. 25.8.2011 19:47 Banderas snýr aftur til Almodóvars Eftir mögur ár í Hollywood hefur Antonio Banderas snúið aftur í arma spænska leikstjórans Pedros Almodóvar því kvikmyndin La piel que habito er fyrsta kvikmynd þeirra tveggja í 21 ár. Myndin var frumsýnd í Cannes fyrr á þessu ári og fékk afbragðsgóða dóma. 25.8.2011 23:00 Elva Dögg í Innrásarhóp Elva Dögg Gunnarsdóttir hefur gengið til liðs við grínhópinn Innrásarvíkingarnir. Hún er eini uppistandarinn á Íslandi með Tourette-heilkenni. Hún er ófeimin við að gera grín að sjálfri sér og öllum kækjunum sem hún er með og bara lífinu almennt. 25.8.2011 22:00 Glaðningur fyrir ríka aðdáendur Á heimasíðu Bjarkar Guðmundsdóttur, Bjork.com, var á dögunum auglýst viðamikið Biophilia-box í tilefni af útgáfu samnefndrar plötu hennar. Þrátt fyrir að kosta hátt í eitt hundrað þúsund krónur er boxið nú þegar uppselt en það var gefið út í tvö hundruð númeruðum eintökum. Ljóst er að eingöngu alhörðustu aðdáendur söngkonunnar með mikið fé á milli handanna tryggðu sér eintak og er það væntanlegt til þeirra í pósti í lok september. 25.8.2011 21:00 Alexa í fatabransann Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum. 25.8.2011 21:00 Hefur selt 20 þúsund bækur Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur eytt öllu sumrinu í að undirbúa nýjan matarþátt fyrir Stöð 2. Samkvæmt síðustu tölum hefur hún líka selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sem komu út á þessu ári. 25.8.2011 20:00 Húðflúrmeistari keyrður niður í miðbæ Reykjavíkur „Þetta var bara eldri maður sem var eitthvað að spjalla við konuna sína og skipti um akrein á ljósunum á horni Bankastrætis og Lækjargötu án þess að gefa stefnuljós,“ segir Fjölnir Geir Bragason eða Fjölnir Tattoo eins og hann jafnan kallaður. Keyrt var á hann í miðbæ Reykjavíkur um hádegisbilið í gær. 25.8.2011 19:00 Airwaves á Akureyri Akureyringar eiga gott kvöld í vændum á laugardaginn þegar forsvarsmenn Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar blása til tónleika í bænum. 25.8.2011 18:30 Ingalls-krakki á nýrri braut Á fyrstu árum níunda áratugar síðustu aldar fylgdust sjónvarpsáhorfendur (aðallega konur) með þáttunum Húsið á sléttunni. Þar steig sín fyrstu skref ungur strákur sem hefur tekið sér sinn tíma til að komast á toppinn. 25.8.2011 18:00 Katrín Hall í dómarasætið Katrín Hall verður aðaldómari í nýjum dansþætti sem hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu í vetur. Katrín er viss um að þátturinn verði mikil lyftistöng fyrir þá ört vaxandi listgrein sem dansinn er. 25.8.2011 17:00 29,5 kg farin á 4 mánuðum Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, sem eignaðist tvíburana Monroe og Moroccan 30. apríl síðastliðinn lýsir meðgöngunni sem erfiðri líkamlegri upplifun. Mariah, sem hefur verið dugleg að setja myndir af sér á Twitter síðuna sína, lét hafa eftir sér opinberlega hvað hún er stolt af því að hafa lést um 29,5 kíló síðan hún fæddi börnin: Ég er svo stolt af sjálfri mér. Ég er það virkilega. Að ganga með tvíbura er ólíkt öllu öðru. Það er auðvelt að segja að þetta sé allt þess virði en þegar fæturnir þínir eru risastórir og óþekkjanlegir þá er þessi reynsla töluvert erfiðari en margan grunar. Nú skokkar söngkonan daglega og borðar holla fæðu á milli þess sem hún hugar að tvíburunum. Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni í fylgd einkaþjálfarans og aðstoðarkonu í Tribeca hverfi í New York. 25.8.2011 15:00 Leikarar á hestatónleikum Helga „Við ætlum að búa til hestastemningu og taka tónleikana aðeins í aðrar áttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. 25.8.2011 14:45 Kokhraustir án Frusciante Tíunda hljóðversplata Red Hot Chili Peppers kemur út á mánudaginn. Josh Klinghoffer hefur tekið við gítarleiknum af hinum óútreiknanlega John Frusciante. 25.8.2011 14:30 Gul í gær - bleik í dag Söngkonan Katy Perry, 26 ára, var mynduð á götum Los Angeles með bleikt hár. Þá má sjá söngkonuna stilla sér upp á rauða dreglinum með gult hár klædd í strumpakjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Smurfs. Katy er fyrsta konan í heiminum með fimm lög* á sama tíma á Billboard Hot 100 listanum. Michael Jackson er eini listamaðurinn sem hefur náð sama árangri. *Last Friday Night, California Girls, Firework, E.T. og Teenage Dream, sem er titill plötunnar. 25.8.2011 14:00 Nú verður kátt í höllinni Það ríkir mikil gleði við dönsku hirðina eftir að tilkynnt var um að Marie prinsessa væri barnshafandi. Hún og maðurinn hennar, Jóakim prins, eiga von á barni í janúar og verður prinsinn því brátt fjögurra barna faðir. Marie og Jóakim eiga fyrir hinn tveggja ára gamla Henrik en Jóakim eignaðist tvö börn með prinsessunni Alexöndru. Spákona heldur því fram að hjónin eigi von á strák. 25.8.2011 13:00 Eva Mendes fékk ráð hjá þjónustustúlku Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leikkonuna Evu Mendes, 37 ára, á hlaupum með hárið tekið aftur í snúð og uppáklædda yfirgefa tískuviðburð á vegum Salvatore Ferragamo. Eva hefur undanfarið fengið leiðsögn hjá ónefndri þjónustustúlku í New York hvernig hún á að bera sig við að leika þjón í myndinni The Place Beyond the Pines. 25.8.2011 12:21 Sjá næstu 50 fréttir
Viðurkennir bótox notkun Leikkonan Courteney Cox, sem viðurkennir fúslega að hún hafi látið sprauta bótoxi í andlitið á sér, var mynduð ómáluð í andliti í Hollywood í vikunni. Bótox er æðislegt og hræðilegt líka. Ég meina þeir fundu upp þetta efni sem getur látið þig líta út fyrir að vera brjálaða í skapinu ef þú notar það ekki sparlega. Ég fór einu sinni til læknis og hann sagði: Heyrðu setjum smá hér og hér og líka örlítið hérna og veistu mér leið alveg hræðilega. Ég meina, ég er leikkona og þarf að geta hreyft á mér andlitið. Þegar fólk byrjar að krukka í enninu á sér og getur ekki lyft augabrúnunum þá er mál til komið að endurskoða hlutina. Það er ekki eins og ég hafi ekki prófað bótox - en mér fannst það hræðilegt, sagði Courteney. 27.8.2011 08:58
Forbes velur áhrifamestu konurnar Tímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir 100 áhrifamestu konurnar í heiminum. Á listanum er að finna bæði nöfn úr stjórnmálum og skemmtanabransanum. 27.8.2011 08:30
Portman snýr aftur Natalie Portman er sögð eiga í viðræðum um að leika í sinni fyrstu kvikmynd síðan hún eignaðist son sinn, Aleph, í júní. Hin þrítuga leikkona er að íhuga að leika aðalhlutverkið í dramanu Adaline. 27.8.2011 08:00
Upplausn á heimili Smith-hjónanna Eitt frægasta, og hingað til traustasta, hjónaband Hollywood stendur völtum fótum þessa dagana. Leikaraparið Will Smith og Jada Pinkett Smith er að skilja ef marka má bandaríska miðla og hefur fréttaflutningur af málefnum þeirra tekið á sig nýja mynd undanfarna daga. 27.8.2011 08:00
Ghostbusters 3 verður gerð Þriðja Ghostbusters-myndin verður gerð með eða án Bills Murray. Að sögn leikarans Dans Aykroyd er frábært handrit komið á borðið og aðeins á eftir að hefja tökur. Þær eru fyrirhugaðar næsta vor. „Það má ekki gleyma því að Ghostbusters er stærri en allir hlutar hennar, þrátt fyrir að Billy [Murray] hafi áður verið í aðalhlutverki og lagt sitt af mörkum,“ sagði hann. Ghostbusters 3 hefur verið í pípunum í heilan áratug en aldrei hefur myndin litið dagsins ljós. Núna virðist biðin loksins vera á enda, 22 árum eftir að önnur myndin kom út. 27.8.2011 07:30
Urban Outfitters myndar á Íslandi „Þau eru alveg heilluð af Íslandi og í skýjunum enda er búið að ganga mjög vel,“ segir Tanja Berglind Hallvarðsdóttir, framleiðandi hjá True North. 27.8.2011 07:00
Vill giftast Madonnu Nýr kærasti söngkonunnar Madonnu, Brahim Zaibat, er aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall en þrátt fyrir það er hann tilbúinn að ganga í hjónaband með söngkonunni. Þessu heldur tímaritið Enquirer fram. 27.8.2011 06:00
Einfalt og litríkt Haustlína Blumarine er einföld og kvenleg. Þá er litagleðin allsráðandi eins og sjá má í myndasafni. 26.8.2011 19:34
Kossarnir gerast ekki fallegri Leikkonan Kate Hudson, 32 ára, kyssir unnusta sinn, Matthew Bellamy, innilega á kaffihúsi í London eins og sjá má í myndasafni. Með í för er sonur þeirra, Bingham Hawn Bellamy, sem fæddist 9. júlí síðastliðinn. Þá má einnig sjá mynd sem hún póstaði á Twitter síðuna sína af sér með drenginn í fanginu. 26.8.2011 18:31
Ballaða frá Jones í boði Ballaða Alans Jones og Írisar Hólm, Stay With Me, er núna fáanleg á síðunni Tónlist.is en lagið fór í útvarpsspilun fyrr í sumar. Allur ágóðinn rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Myndband við lagið er væntanlegt um miðjan næsta mánuð. Þar verður þemað ást en ekki brúðkaup eins og áður var fyrirhugað. Lagið er eftir Jones, sem er með fleiri járn í eldinum. Hann er að skipuleggja tónleika á Nítjándu hinn 1. desember. Meðal flytjenda verða Jóhanna Guðrún, Haffi Haff og Bryndís Ásmundsdóttir. 26.8.2011 18:00
Madonna blómstrar með unglambinu Söngkonan Madonna, 53 ára, blómstrar eins og myndirnar sýna greinilega, með nýja kærastanum, Brahim Zaibat, sem er 28 árum yngri en hún. Myndirnar voru teknar í Frakklandi. Dætur Madonnu, Mercy og Lourdes, voru einnig með í för. Sjá myndir hér. 26.8.2011 16:52
Einn dagur frumsýndur Rauða dreglinum var rennt út í London þegar nýjasta kvikmynd leikkonunnar Anne Hathaway, One Day, var frumsýnd. Myndin er byggð á skáldsögu Davids Nicholls og fjallar um tvo vini og lífshlaup þeirra á tuttugu ára tímaskeiði. Vinirnir eru leiknir af Hathaway og Jim Sturgess sem skörtuðu sínu fegursta og stilltu sér glöð upp framan við myndavélarnar í London. 26.8.2011 16:15
Emma í sambúð Leikkonan Emma Watson er byrjuð að búa með kærasta sínum Johnny Simmons. Kærustuparið, sem byrjaði saman í sumar, flutti inn í hús föður Watson í London. 26.8.2011 16:00
Endurskoðandi Forlagsins allur "Það er mikil sorg á heimilinu enda Breki einstakur köttur,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann missti í vikunni góðan vin þegar kötturinn Breki andaðist á heimili Jóhanns við Bræðraborgarstíg. Breki gegndi stöðu endurskoðanda hjá Forlaginu en hann var jarðaður í Skorradal á miðvikudag. "Hann varð fyrir nýrnabilun. Við biðum eftir kraftaverki eftir að hann varð veikur og vildum ekki láta svæfa hann en svo gerðist hið óumflýjanlega og við gátum ekki látið dýrið þjást meira.“ 26.8.2011 15:00
Játar ást sína Gamanleikarinn Jim Carrey setti nýverið á netið myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína. Töluverður aldursmunur er á þeim og þykir mörgum myndbandið því óviðeigandi. 26.8.2011 14:00
Erfitt að selja sig Morgan Spurlock er eilítið sér á báti í bandarískri heimildarmyndagerð. Hann sló fyrst í gegn með Super Size Me og hefur síðan þá verið einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims. Freyr Gígja Gunnarsson settist niður með honum og ræddi við hann um vöruinnsetningar í kvikmyndum og hvernig það er að vera fráskilinn. 26.8.2011 14:00
Nýkvæntur og lofar góðri hátíð Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur í nógu að snúast þessa dagana. Um síðustu helgi gekk hann að eiga Líneyju Úlfarsdóttur en þau eiga von á erfingja í nóvember. Hann er einnig að skipuleggja tónlistarhátíðina Melodica Acoustic sem hefst á morgun. Fleira er fram undan hjá trúbadornum knáa. Tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu verður farin í september og verða flestir tónleikarnir í Þýskalandi. 26.8.2011 13:00
Paul Young til Íslands Enski tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar 4. október. Young naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum og hefur á ferli sínum átt að minnsta kosti fjórtán lög sem hafa komist inn á vinsældalista. Þar má nefna Everytime You Go Away, Living For the Love of the Common People, Come Back And Stay, Where Ever I Lay My Hat (That"s My Home) og Senza Una Donna. Miðasala á tónleikana hefst 1. september kl. 12 á Harpa.is og í síma 528 5050. 26.8.2011 12:00
Viltu sléttari maga? Hot fitness er fyrir konur sem vilja fá langa og fallega vöðva og konur sem vilja læra að þjálfa flata kviðvöðva, segir Anna Eiríksdóttir leikfimikennari í Hreyfingu spurð út í spennandi nýjung fyrir konur þar sem tveir boltar eru notaðir við æfingarnar. Anna sýnir í meðfylgjandi myndskeiði æfingu sem nær að virkja kviðvöðva meðal annars. Sjá meira um Hot fitness hér. 26.8.2011 11:11
Heimsfrægir afturendar (já þú last rétt) Pippa Middleton, Eva Longoria, Jennifer Lopez, Coco, Jessica Biel, Rihanna, Scarlett Johansson, Christina Hendricks, Salma Hayek, Eva Mendes, Halle Berry, Beyonce Knowles eru á meðal heimsþekktra kvenna sem hafa fengið gríðarlega mikla umfjöllun í fjölmiðlum beggja vegna Atlantshafsins þegar afturendi þeirra er annars vegar. Þá má nefna Kim Kardashian sem fór í röntgenmyndatöku til að afsanna háværar sögusagnir um að afturendi hennar væri ónáttúrulegur. Shakira er einnig í umræddum hóp en hún lét hafa eftirfarandi eftir sér: Ég vildi óska að ég væri hærri, með lengri lappir, mjórra mitti, minni afturenda og sléttara hár. 26.8.2011 10:48
Lopez hvað er í gangi hérna? Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá Jennifer Lopez, 42 ára, ásamt fjölda dansara við tökur á nýju tónlistarmyndbandi. Fegurð kemur innan frá. Þú sérð hana endurspeglast í augunum á fólki, lét Jennifer, sem var nærri dottin af baki eins dansarans eins og greinilega má sjá á myndunum, hafa eftir sér. 26.8.2011 10:18
Reyna við Íslandsmet í planki "Maður er allur endurnærður eftir gott plank, og tilfinningin eftir að hafa sett fjöldamet í planki verður örugglega sæt því samstaðan sem skapast þegar margir gera sama hlutinn er svo skemmtileg,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ, þar sem reynt verður að setja Íslandsmet í planki við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima á Miðbæjartorginu í kvöld klukkan 20. 26.8.2011 10:15
Spessi sækir hjól til Memphis „Jú, þetta er rétt, við erum að fara til Kansas. Þar ætla ég að kaupa mér pallbíl, kúrekahatt og stígvél í stíl,“ segir Spessi, ljósmyndari með meiru. Eiginkona hans, Áróra Gústafsdóttir, er að fara að setjast á skólabekk og ætlar Spessi að fljóta með. Hjónakornin fljúga út á laugardaginn en Spessi vill ekki gefa mikið upp hvað hann ætlar að gera í Bandaríkjunum fyrir utan að hann hyggst sækja þar mótorhjól sem er í geymslu í Memphis. „Elvis hefur verið að passa upp á það fyrir mig,“ segir ljósmyndarinn og hlær. 26.8.2011 10:00
Slasaður sonur Slúðurmiðlar vestan hafs voru ekki lengi að draga þá ályktun að söngkonan Christina Aguilera, 30 ára, hafi beitt Max son sinn grófu ofbeldi eftir að hann sást með glóðurauga í fangi hennar á Hawaii. Lögfræðingur Christinu sendi formlega fréttatilkynningu þar sem hann útskýrði í smáatriðum hvernig Max slasaðist á leikvelli þegar hann datt og meiddi sig en móðir hans, Christina, var fjarverandi þegar óhappið átti sér stað. Meðfylgjandi má sjá söngkonuna með Max í fanginu. 26.8.2011 09:18
Verður faðir í annað sinn Leikarinn Jason Bateman á von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni, Amöndu Anka, dóttur söngvarans Paul Anka. Fyrir á parið dótturina Francescu Noru sem er fjögurra ára gömul. 26.8.2011 09:00
Pippa skokkar Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 27 ára, var mynduð á hlaupum þegar hún fékk sér kaffibolla í gær. Pippa fær ekki stundarfrið frá ljósmyndurum sem mynda nánast hvert fótspor sem hún tekur. Þá má sjá Pippu skokka eldsnemma morguns í myndasafni en hún hleypur daglega. 26.8.2011 08:31
Vildi meira Kimberly Stewart eignaðist dóttur í vikunni og hlaut hún nafnið Delilah. Þótt Stewart og barnsfaðirinn, leikarinn Benicio del Toro, séu ekki í sambandi mun hún vera afskaplega hrifin af honum. 26.8.2011 08:00
Yfirgefur Dalvík af illri nauðsyn og flytur suður "Við erum af illri nauðsyn að flytja í bæinn,“ segir tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson. Hann hefur búið á Dalvík undanfarin fjögur ár með fjölskyldu sinni en núna verður breyting þar á. "Það er bara brjálað að gera. Ég er nánast ekkert búinn að koma til Dalvíkur síðan í janúar. Þetta var orðin hálfgerð fjarbúð og ekki nógu mikill tími með börnunum og annað. Við ákváðum að taka þetta skref núna. Maður verður að elta vinnuna þangað sem hún er,“ segir Matti. 26.8.2011 07:00
Sinead O'Connor á Airwaves Írska tónlistarkonan Sinead O'Connor heldur tónleika á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í október í haust samkvæmt kvöldfréttum RÚV. 25.8.2011 19:47
Banderas snýr aftur til Almodóvars Eftir mögur ár í Hollywood hefur Antonio Banderas snúið aftur í arma spænska leikstjórans Pedros Almodóvar því kvikmyndin La piel que habito er fyrsta kvikmynd þeirra tveggja í 21 ár. Myndin var frumsýnd í Cannes fyrr á þessu ári og fékk afbragðsgóða dóma. 25.8.2011 23:00
Elva Dögg í Innrásarhóp Elva Dögg Gunnarsdóttir hefur gengið til liðs við grínhópinn Innrásarvíkingarnir. Hún er eini uppistandarinn á Íslandi með Tourette-heilkenni. Hún er ófeimin við að gera grín að sjálfri sér og öllum kækjunum sem hún er með og bara lífinu almennt. 25.8.2011 22:00
Glaðningur fyrir ríka aðdáendur Á heimasíðu Bjarkar Guðmundsdóttur, Bjork.com, var á dögunum auglýst viðamikið Biophilia-box í tilefni af útgáfu samnefndrar plötu hennar. Þrátt fyrir að kosta hátt í eitt hundrað þúsund krónur er boxið nú þegar uppselt en það var gefið út í tvö hundruð númeruðum eintökum. Ljóst er að eingöngu alhörðustu aðdáendur söngkonunnar með mikið fé á milli handanna tryggðu sér eintak og er það væntanlegt til þeirra í pósti í lok september. 25.8.2011 21:00
Alexa í fatabransann Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum. 25.8.2011 21:00
Hefur selt 20 þúsund bækur Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur eytt öllu sumrinu í að undirbúa nýjan matarþátt fyrir Stöð 2. Samkvæmt síðustu tölum hefur hún líka selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sem komu út á þessu ári. 25.8.2011 20:00
Húðflúrmeistari keyrður niður í miðbæ Reykjavíkur „Þetta var bara eldri maður sem var eitthvað að spjalla við konuna sína og skipti um akrein á ljósunum á horni Bankastrætis og Lækjargötu án þess að gefa stefnuljós,“ segir Fjölnir Geir Bragason eða Fjölnir Tattoo eins og hann jafnan kallaður. Keyrt var á hann í miðbæ Reykjavíkur um hádegisbilið í gær. 25.8.2011 19:00
Airwaves á Akureyri Akureyringar eiga gott kvöld í vændum á laugardaginn þegar forsvarsmenn Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar blása til tónleika í bænum. 25.8.2011 18:30
Ingalls-krakki á nýrri braut Á fyrstu árum níunda áratugar síðustu aldar fylgdust sjónvarpsáhorfendur (aðallega konur) með þáttunum Húsið á sléttunni. Þar steig sín fyrstu skref ungur strákur sem hefur tekið sér sinn tíma til að komast á toppinn. 25.8.2011 18:00
Katrín Hall í dómarasætið Katrín Hall verður aðaldómari í nýjum dansþætti sem hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu í vetur. Katrín er viss um að þátturinn verði mikil lyftistöng fyrir þá ört vaxandi listgrein sem dansinn er. 25.8.2011 17:00
29,5 kg farin á 4 mánuðum Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, sem eignaðist tvíburana Monroe og Moroccan 30. apríl síðastliðinn lýsir meðgöngunni sem erfiðri líkamlegri upplifun. Mariah, sem hefur verið dugleg að setja myndir af sér á Twitter síðuna sína, lét hafa eftir sér opinberlega hvað hún er stolt af því að hafa lést um 29,5 kíló síðan hún fæddi börnin: Ég er svo stolt af sjálfri mér. Ég er það virkilega. Að ganga með tvíbura er ólíkt öllu öðru. Það er auðvelt að segja að þetta sé allt þess virði en þegar fæturnir þínir eru risastórir og óþekkjanlegir þá er þessi reynsla töluvert erfiðari en margan grunar. Nú skokkar söngkonan daglega og borðar holla fæðu á milli þess sem hún hugar að tvíburunum. Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni í fylgd einkaþjálfarans og aðstoðarkonu í Tribeca hverfi í New York. 25.8.2011 15:00
Leikarar á hestatónleikum Helga „Við ætlum að búa til hestastemningu og taka tónleikana aðeins í aðrar áttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. 25.8.2011 14:45
Kokhraustir án Frusciante Tíunda hljóðversplata Red Hot Chili Peppers kemur út á mánudaginn. Josh Klinghoffer hefur tekið við gítarleiknum af hinum óútreiknanlega John Frusciante. 25.8.2011 14:30
Gul í gær - bleik í dag Söngkonan Katy Perry, 26 ára, var mynduð á götum Los Angeles með bleikt hár. Þá má sjá söngkonuna stilla sér upp á rauða dreglinum með gult hár klædd í strumpakjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Smurfs. Katy er fyrsta konan í heiminum með fimm lög* á sama tíma á Billboard Hot 100 listanum. Michael Jackson er eini listamaðurinn sem hefur náð sama árangri. *Last Friday Night, California Girls, Firework, E.T. og Teenage Dream, sem er titill plötunnar. 25.8.2011 14:00
Nú verður kátt í höllinni Það ríkir mikil gleði við dönsku hirðina eftir að tilkynnt var um að Marie prinsessa væri barnshafandi. Hún og maðurinn hennar, Jóakim prins, eiga von á barni í janúar og verður prinsinn því brátt fjögurra barna faðir. Marie og Jóakim eiga fyrir hinn tveggja ára gamla Henrik en Jóakim eignaðist tvö börn með prinsessunni Alexöndru. Spákona heldur því fram að hjónin eigi von á strák. 25.8.2011 13:00
Eva Mendes fékk ráð hjá þjónustustúlku Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leikkonuna Evu Mendes, 37 ára, á hlaupum með hárið tekið aftur í snúð og uppáklædda yfirgefa tískuviðburð á vegum Salvatore Ferragamo. Eva hefur undanfarið fengið leiðsögn hjá ónefndri þjónustustúlku í New York hvernig hún á að bera sig við að leika þjón í myndinni The Place Beyond the Pines. 25.8.2011 12:21